Morgunblaðið - 09.02.1968, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1968
15
Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-52 yfir flugveliinum
þunnan hvítan slóða.
Thule. Flugvélin dregur á eftir sér
Skiptir starlsemi Loft-
leiða engu fyrir Svía?
SÆNSKA blaðið „Götaborgs-
Posten“ birti hinr. 29. jan sl.
grein eftir Njörð P. Njarðlvík
lektor við Gaiutaborgarháskóla
um Loftleiðir og nornænt sam-
starf. í grein sinni greinir Njörð-
ur P. Njarðví'k frá því, hve mi'k-
inn þátt Loftleiðir eiga í því að
rjúfa einangrun Íslands og lýsir
þeirri beiskju, sem hér hefur
komið upp; vegna þess að á fundi
samgöngumálaráðherra Norður-
landa sl. haust var Loftleiðu'm
ekki veitt heimild til þess að
fljúga hinum nýju flugvélum
sínum til Norðurlanda, nema með
skilyrðum, sem • væru mjög
' aðgen.gileg. Bendir Njörður á að
skandinavisku samgöngumálaráð
herrarnir hindri þróun norræns
flugfélags með því að vernda
170 stof nendur Sálarrann-
sóknarfélags á Selfossi
FIMMTUDAGINN 1. febrúar
sl. var stofnað á Selfossi sálar-
rannsóknarfélag, sem ætlað. er
að starfa með líku sniði og önn-
ur slík félög, sem munu nú vera
um 5 starfandi á landinu. En til-
gangur þeirra er a’ð afla sann-
ana fyrir framhaldi lífsins eftir
líkamsdauðann og vinna að
framgangi þeirra málefni. Var
undirbúningsfundur haldinn í
nóvember sl.
Stofnfundurinn var haldinn í
Tryggvaskála og var fjölsóttur,
ekki aðeins að Selfossi heldur
víða að úr nærsveitunum. Þá
mættu og úr Reykjavík stjórn-
armenn Sálarrannsóknarfélags
Islands og séra Benjamín Krist-
jánsson.
Þegar félagið hafði verið
stofnað og lög þess samþykkt,
var kjörin stjórn og skipa hana:
Þórkell G. Björgvinsson, formað
ur, Guðmundur Kristinsson, rit-
ari, Anna Eiríksdóttir, gjald-
keri, og meðstjórnendur Bjarni
Nikulásson og Valdimar Þórðar-
Að því loknu flutti séra
Benjamín Kristjánsson erindi
um efann og ódauðleikann,
ræddi upprisukenningarnar og
hina miklu möguleika til fram-
lífs. Flutti félaginu árna'ðarósk-
ir og kvað verkefnin vera mörg.
Því næst las Guðmundur Ein-
arsson, forseti Sálarrannsóknar-
félags íslands, þýddan bókar-
kafla, frásögn ungs, ensks flug-
manns, sem fórst við Dunkirk
1940, og lýsingu á því, hvað við
tók eftir að hann fórst með flug-
vél sinni.
Á stofnfundinum höfðu 170
manns gengið í félagið. Meðal
verkefna á þessum fyrsta starfs-
vetri þess verður koma enska
huglæknisins Horace S. Hambl-
ings, sem kom hingað til lands
tvisvar á sl. ári og hélt fjölda
funda, þar af allmarga á Sel-
fossi. Er hann væntanlegur
hingað til lands fyrir vorið.
(Fréttatilkynning).
Viðauki við trétt:
Mikil þöri iyrir læknoþjónustu
n Breiðumýri
Húsavík, 2. febr.
FORSTÖÐUMENN ráðstefnunn-
ar, um heilbrigðismál, sem haldin
var á Húsavík í síðasta mánuði
óska að við fréttatilkynningu
þeirra verði bætt eftirfarandi:
„Þóroddur Jónasson læknir á
Breiðumýri ræddi um ýms sjón-
armið í sambandi við hinar um-
töluðu læknamiðstöðvar. Þá
ræddi hann aðstöðu lækna í
dreifbýlinu, sem hann kvað ekki
til þess fallna að gera störf hér-
aðslækna eftirsóknarverð. Þór-
oddur gaf einnig fróðlegar upp-
lýsingar um fjölda læknavitjana
í héraði sínu á liðu ári. Þórodd-
ur sagði að af 16 ára reynzlu
sinni af læknastörfum í Breiðu-
mýrarhéraði og af þeirri þörf,
sem þar væri fyrir læknisþjón-
ustu, yrði að draga þá ályktun
að sameining Húsavíkur og
Breiðumýrarlæknishéraða með
læknaaðstöðu á Húsavík væri
ekki til hagsbóta fyrir íbúa
Breiðumýrarlæknishéraða. Að
sjálfsögðu gæti sú breyting orð-
ið nauðsynlegt ef enginn læknir
fengist til að sitja á Breiðumýri,
ENN HREINSANIR í AÞENU.
Aþenu, 7. febrúar. NTB.
16 yfirmenn í gríska hernum,
þar af sex hershöfðingjar og sex
ofurstar, voru settir á eftirlaun
í dag. Undanfarna tíu daga hafa
79 yfirmenn í hernum og 19 yfir-
menn í flughernum verið sviptir
starfinu eða settir á eftirlaun,
vegna stuðnings við Konstantín
konung. Um 500 liðsforingjar
hafa verið hækkaðir í tign síð-
an konungur gerði gagnbyltingar
tilraun sína.
en hún yrði að byggjast á þeirri
forsendu. Gagnvart íbúum
Breiðumýrarlæknishéraðs mætti
segja að sameign þessi væri vel
möguleg, en ekki æskileg."
SAS leilor eftir starfsfólki og
húsnæði hér
SAS-flugfélagið hefur nú aug-
iýst eftir starfsfólki, og er á hött
um eftir húsnæði hér á landi til
að fá afgreiðsluaðstöðu vegna
fyrirhugaðra ferða félagsins til
íslands á sumri komanda.
Munu 2—3 starfmenn vinna á
skrifstofu félagsins hér, að því
er Birgir Þórhallsson, umtooðs-
maður SAS á íslandi tjáði blað-
inu í gær. SAS hefur hafið við-
ræður við Flugfélag íslands um
fyrirkomulag þessara ferða, en
þær eru þó ekki enn komnar á
endanlegt stig. SAS mun fljúga
hingað til lands einu sinni í
viku með farþega, sem hug hafa
á að fara til Suður-Grænlands.
Lendir vél félagsins á Keflavík-
urflugvelli, og mun síðan vera
ætlunin að vélar F.í. flytji far-
þega þessa til Grænlands. Þann
dag í viku hverri sem SAS flýg
ur til landsins múnu ferðir þot-
unnar til Kaupmannahafnar
LÍTIL tveggja manna flugvél í
einkaeign lenti á Esjunni í blíð-
viðrinu í fyrradag kl. 3.30 og
munu flugmaður og farþegi hafa
ætlað að skoða sig um þar uppi.
Svo illa tókst til, að annað fram
hjól vélarinnar, sem er af gerð-
inni Super Cup sprakk í lending
unni.
Flugmaðurinn, Þórólfur Magn
ússon ,tók það til bragðs að
fljúga vélinni einn til R.víkur-
flugvallar og gekk það að von-
um. Farþeginn gerði sér hins
vegar lítið fyrir og gekk ofan af
Esjunni og komst síðan klakk-
laust til borgarinnar með aðstoð
góðfúsra ökumanna.
Tannlæknar ræða
samvinnu við
Krabbameinsfélagið
ÞANN 18. janúar flutti formaður
Krappameinsfél. íslands, Bjarni
Bjarnason læknir erindi á fundi
Tannlæknafélags íslands um
krabbamein í munni. Jafnframt
var sýnd amerísk kvikmynd um
það efni, sem dr. H. Niebel í
Washington lét gera og lánaði
Krabbameinsfélaginu. Bjarni
Bjarnason læknir hóf mál sitt á
því að segja, að jafnan hefði ríkt
hin bezta samvinna milli lækna
landsins og Krábbameinsfélags-
ins, sem eftir beztu getu reyndi
að miðla fræðslu um þessi mál.
Hann sagði m.a. „Þegar tann-
læknir finnur ákomu, sem hann
telur geta verið krabbamein,
stendur hann frammi fyrir við-
fangsefni, sem leggur honum
hvað mesta ábyrgð á herðar af
öllu í sérgrein hans. Þegar svo
ber við, verður klíniska krabba-
meinsgreiningin annað hvort að
sannast eða afsannast svo að ekki
sé um nei.tt vafamál að ræða. Þó
táka sýnis sé í raun og veru ein-
föld, veltur hún á svo miklu fyrir
sjúklinginn, að þar má engu
skeika, því að bregðisit greining
á krabbameini er líklegt að það
kosti sjúklinginn lífið, vegna
dráttarins, sem þá verður á réttri
greiningu." Þá ræddi læknirinn
um hina fræðilegu hlið máisins
og lét að lokum fundarmönnum
í té litprentaðan myndabækling
um byrjunareinkenni meinsemda
í munni töku sýnis og fleira.
Fræðslurit þetta er gefið út af
sænska kratobameinsfélaginu og
tannlæknasamandinu þar í landi.
Formaður Tannlæknafélags fs-
lands, Geir R. Tómasson ,tann-
læknir, þakkaði Bjarna Bjarna-
syni erindi hans og ræddi um
þátt tannlækna í þessari heil-
brigðisþjónustu, vegna sérstöðu
þeirra og nauðsyn þess að vera
jafnan á verði fyrir hinum mikla
vágesti — krabbameininu. Síðan
hófust umræður og barst fjöldi
fyrirspurna til frummælenda.
Erindi Bjarna Bjarnasonar
læknis hefur verið fjölritað og
mun Tannlæknafélag fslands sjá
um úfchlutun þess, ásam,t sænska
fræðsluritinu, til allra tannlækna
landsins.
falla niður, en á hinn bóginn
mun Færeyjaflug F.í. fljúga alla
le ð til Kaupmannahafnar. Flug
félagið mun á hinn bóginn sjá
um flutning farþeganna fré S-
Grænlandi aftur til Kaupmanna
hafnar, en sem fyrr segir hefur
enn ekki verið gengið endanlega
frá fyrirkomulagi þessara ferða.
annað, þ.e. SAS.
Þetta væri staðreynd og sem
slík mjög undarleg, þar sera
varla væri unnt að télja þessa
vernd vera í þágu almennings.
Það hlyti þvert á móti að vera í
almenningsþágu, að mögulei'kar
á ódýrum flugferðum til Am-
eríku væru fyrir hendi. Flug-
ferð fram og til baka frá Gauta-
borg til New York væri 371 kr.
sænskri ódýrari með Loftleiðum
en ef flogið væri með SAS.
Greinarhöfundur spyr síðan
hvort þetta skipti ekki neinu
máli fyrir Svía. Það sé ekki SAS,
sem átt hafi þátt í því að halda
niðri verði á flugferðum milli
Norðurlanda og Ameríku. Þetta
ha'fi hins vegar Loftleiðir gert
með því að gefa kost á þeirn
möguleika að flugferðin taki
lengri tima, en sé jafnframt ódýr
ari. Þetta hafi um leið komið í
veg f'yrir verðhækkanir hjá öðr-
um flugfélögum.
Chicago, 7. febrúar. AP.
53.000 manns biðu bana í um-
ferðarslysum í Bandarikjunum
í fyrra, eða álíka margir og árið
áður. Tjónið af völdum umferðar
slysa í fyrra er talið nema 11
milljörðum dollara. 5.210 bana-
slys urðu í umferðinni í desem-
ber, 3% fleiri en í sama mánuði
1966.
366 vcrðlaunaðir
fyrir akstur
Á AÐALFUNDI klúbbsins
„ÖRUGGUR AKSTUR" í Reykja
vík, sem haldinn var í síðustu
viku fengu alls 366 bifreiðaeig-
endur afhent verðlaunamerki og
viðurkenningu frá Samvinnu-
tryggingum fyrir fimm og tíu
ára tjónlausan akstur. Hafa þá
alls 1.470 bifreiðaeigendur í
Reykjavík fengið verðlauna-
merki og viðurkenningu frá
Samvinnutryggingum fyrir tjón
lausan akstur.
Aðalfundurinn var haldinn að
Hótel Borg, og var hann mjög
fjölmennur. Fundarstjóri var
Gunnar Grímsson, en fundarrit-
ari Héðinn Emilsson. Baldvin
Þ. Kristjánsson, fél'agsmálafull-
trúi og Björn Vilmundarson,
deildarstjóri, afhentu verðlauna
merkin, en 105 bifreiðaeigendur
fengu merki fyrir 10 ára tjón-
lausan akstur og að auki fá þeir
ábyrgðartryggingu bifreiða
sinna ókeypis 11. tryggingaárið.
261 bifreiðaeigandi fékk verð-
launamerki fyrir fimm ára tjón
lausan akstur.
Að merkjaafhendingunni lok-
inni flutti Pétur Sveintojarnar-
son umferðarfulltrúi Reykjavík-
urtoorgar erindi um hægri um-
ferð. Þá var kaffidrykkja í boði
Samvinnutrygginga, og að henni
lokinnl sagði Kári Jónasson
fréttir af fyrsta jndsfundi
klúbbanna „ÖRUG' R AKST-
UR“. Klúbbarnir «. nú orðnir
þrjátíu talsins, dre óir um allt
land, og dagana Lj. og 21. nóv-
emtoer Sl. var fyrsti landsfund-
ur þeirra haldinn. Var þar rætt
um framtíðarhlutverk klúbbanra
og margar ályktanir gerðar um
samstarf þeirra í framtíðinni, Þá
voru gerðar fjölmargar ályktan-
ir um umferðarmál á landsfund
inum.
Síðasti dagskrárliður aðal-
fundarins var stjórnarkosning
og voru eftirtaldir menn kjörn-
ir í stjórn klúbbsins „ÖRUGG-
UR AKSTUR“ í Reykjavík:
Kái Jónasson, blaðafulltrúi. Héð
inn Emil’sson, fulltrúi og Hörður
Valdimarsson lögregluflokk -
stjóri, I varastjórn voru kjörn-
ir þeir séra Páll Páisson, Frið-
geir Ingimundarson bókari og
Trausti Eyjólfsson hárskeri og
ökukennari.
Félagar í klúbbnum „ÖRUGG
UR AKSTUR", geta allir þeir
bif: eiðaeigendur orðið, sem
tryggja bifreiðir sínar hjá Sam-
vinnutryggingum, og þótt stutt
sé ;íðan kliúbbarnir voru stofn-
aðir, hafa þeir töluvert látið til
sín taka í umferðarmálum.
Stjórnarmeðlimir klúbbsins „Óruggur akstur" í Reykjavík. F.
v. sr. Páll Pálsson, HéðLnn Em ilsson, Kári Jónasson, formaður.
Hörður Valdimarsson og Frið geir Ingimundarson. Á myndina
vantar Trausta Eyjólfsson.