Morgunblaðið - 09.02.1968, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1968
Lára Guðmundsdóttir
Eskifirði — Minning
— Aukin hagræðing
Framhald af bls. 8
fiskiðnaðar í fjórðungnum. Mál
manna er þó, að ekki sé þessum
málum ver stjórnað þar, en ann-
arsstaðar á landinu.
I»ú stóðst sem bjarg í brotsjó
og barst ei mikið á
að gera öðruim gott
var þín gleði og hjartans þrá
ÞETTA er í fáum orðum inntak
í lífi Láru Guðmundsdóttur sem
lézt á síðastliðnu ári. Og því
leita þessi orð nú á hugann er
ég lít til baka á veg minning-
anna sem ofnar eru æskubyggð
minni, Eskifirði. Ég renni hug-
anum að Ásbyrgi, þeirra ágætu
kvenna sem þar unnu mikilvægt
starf um langan tíma, án þess
nokkurn tímann að hyggja að því
hvort í aðra hönd kæmi verðug
umbun eða ekki. í fjölda ára
héldu þeir systur ásamt Björgu
móður sinni uppi gistiihúsi á
Eskifirði, þeim til heiðurs og
staðnum til vagsauka. Þeir verða
ekki tölum taldir sem að garði
báru en ég held að aldrei hafi
verið sú þröng á þingi að ekki
hafi verið hægt að bæta við,
auka við rúmi og það sem máli
skipti var að elskulegheitin og
hjartarúmið þessara góðu kvenna
var jafnan nóg og meira en það.
Það hefir í fjarlægð oft yljað
huga mínum að mæta mönnum
sem gistu í Ásbyrgi og heyra þá
lýsa viðtökum þar. Við þetta
hefir mín gamla æskubyggð
fengið sterkari liti 1 hugskoti
mínu og heiðríkja minninganna
orðið veglegri. Lára var dugleg
í þess orðs fyllstu merkingu, þótt
hún væri að jafnaði ekki að ota
sér fram, þá var hún hinn
trausti bakhjarl er á reyndi og
gæti ég þar tilfært mörg dæmi.
Þannig voru þær systur allar og
tryggari vini eignast menn ekki.
Enda stóðu að þeim góðir stofnar
móðir þeirra frú Björg Jónsdótt-
ir, ein af hinum myndarlegu og
glæsilegu Svínaskálasystrum og
faðir þeirra Guðmundur Ás-
bjamarson fríkirkjuprestur sem
um langt skeið setti sterkan svip
á lífið á Eskifirði. Guðmundur
var gáfumaður mikill og sérstak
ur tungumá’.amaður, stór vexti
og myndarlegur að vallarsýn og
aðsópsmaður þegar hann gekk
að. Hann hvarf því miður frá
okkur á miðjum aldri. Kosti for-
t
Elsku konan mín, móðir og
amma
Svanfríður Sólbjartsdóttir
Eskihlíð 16,
andaðist á Heilsuverndarstöð-
inni 8. febrúar.
Fyrir hönd barna og barna
barna.
Guffbjartur Sumarliffason.
t
Útför ástkærs eiginmanns
míns,
Sveins Ársælssonar,
útgerffarmanns,
verður gerð frá Landakirkju
í Vestmannaeyjum, laugar-
daginn 10. febrúar kl. 2.00.
Bernódía Sigurffardóttir.
eldra sinna fengu börnin í arf.
Ég minnist líka einkasonar
þeirra hjóna, Ásbjarnar, hug-
ljúfs gæðadrengs og vel gefins,
sem fór alltof fljótt í önn dagsins
og átakasamrar framtíðar.
Ekki veit ég til þess að Lára
hafi talið vinr.ustundimar og því
síður að ég minnist þess að hún
hafi tekið sér sumarfrí frá dag-
legu amstri, enda var lítið um
slíkan munað þá, þá var unnið
meðan vinnu var hægt að fá og
önnur vinnutilhögun en nú. En
hvar sem Lára gat komið fram
ti'l góðs, þá var hún á sínum
stað. Þeim sem kynntust henni
var jafnan hlýtt til hennar, ég
veit ekki hvort húr. átti marga
vini um dagana, en þeir voru
líka innilegir og góðir sem hún
átti. í vinahópi var hún glöð og
ræðin, en hversdagslega hlé-
dræg. Rösk voru handtök henn-
ar, hvort sem hún átti við heim-
ilistækin eða fjallaði urn fisk og
annað sem hendi þurfti til að
taka. Fyrir samvizkusemi og
dugnað eignaðist hún ágæta hús-
bændur sem mátu hennar störf.
Þótt kaupið væri mikils virði þá
sem nú, þá var það Láru meira
í mun að hafa skilað góðu dags-
verki og ég held að hún hún
hafi skrifað lífsbók sína þannig
að margir mættu þar til öfundar
augun renna og víst er um það
að í lífsbók annara lét hún ekki
marga bletti. Þar sagði grand-
varleikinn til sín. Já það var oft
glatt í Ásbyrgi og oft komum
við þar saman til gagns og
skemmtunar og seinast þegar ég
var á ferð heima þá kom ég þar
við, minningarnar og hinir
ágætu vinir þar löðuðu til sín.
Frú Björg var enn hin ernasta
þá um nírætt og stjórnaði eins
og áður sinni greiðasölu. Ekki
datt mér þá í hug að svo tóm-
legt yrði á næsta leiti.
Og þó, þegar vel er unnið
stormasama og annasama æfi
hljóta þreytumörkin að segja
til sín. Sól fer að nálgast æginn,
eins og Þorsteinn kvað.
Lífsbókinni lokað hér á jörð.
En fargrar og bjartar minning-
ar lifa. Fyrir þær erum við sam-
ferðamennirnir svo þakklátir að
leiðarlokum og ég vil þótt seinna
lagi sé, ekki láta hjá líða að
senda mínar þakir fyrir góða
samleið.
Það er vissulega tómlegra í
Ásbyrgi nú en áður og einhvern-
veginn er sál hússins önnur en
var, en hitt er staðreynd að orð-
stír, deyr aldrei, hveim sér góð-
an getur, svo sem í Hávamálum
segir. Því þakka ég hinum látnu
tryggð og vináttu liðinna ára og
bið henni guðsblessunar á Ijóss-
ins vegi.
— Á. H.
t
Útför
ísleifs Einarssonar,
Hátúni 4,
verður gerð frá Fossvogs-
kirkju laugardaginn 10. febr.
kl. 10.30 árdegis.
Þorgerffur Diffriksdóttir,
börn, tengdaböm og
barnabörn.
t
Þökkum samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
Magnúsar Brynjólfssonar
frá Dysjum.
Guðmann Magnússon,
Úlfhildur Kristjánsdóttir,
Þuríffur Magnúsdóttir,
Sigurbjartur Vilhjáimsson,
barnabörn og barnabarna-
börn.
Ekki skal því neitað að mis-
munandi sjónarmið geta gilt um
athafnir og gjörðir einstaklinga.
Tel ég því ekki eðlilegt þótt
sagt væri, að ástæða til algerrar
stöðvunar frystihúsanna hafi
ekki verið fyrir hendi fyrr en
séð var hvað ríkisvaldið vildi
leggja á sig til að gera rekstur
iðnaðarins færan. Var ég einn á
meðal þeirra. Þegar það væri séð
var eðlilegt að taka afstöðu til
þess boðs, taka því ef boðlegt
þætti eða hafna, ef boðið full-
nægði ekki þeim lágmarks þörf-
um sem farið væri fram á og
þá að stöðva. Reksturinn var
vonlaus við þau skilyrði sem fyr
ir hendi voru. Við síðasta boð
ríkisstj. má segja að rofað hafi
til að nauðvarnar aðgerðir frysti
húsamanna hafi flýtt fyrir að-
greiðslu málsins hjá ríkisvaldinu
og raunhæfara mat hafi verið
lagt á hlutina, en annars hefði
verið gert.
Atvinnurekstur sem byggir til
veru sína á útflutningsframleiðslu
á hag sinn að verulegu leyti
undir markaðsaðstæðum og
hvaða mat lagt er á þau verð-
mæti, sem fást fyrir útflutning-
inn. Ríkisvaldið framkvæmir það
mat með gengisskráningunni, það
skyldu menn hafa í huga.
f nóv.s.l. var mat það sem
lagt hefir verið á verðmæti út-
flutningsframleiðslunnar tekið
til endurskoðunar. Getur það gef
ið tilefni til árása á hraðfrysti-
húsamenn, að nýja matið full-
nægði ekki þörfum hraðfrysti-
iðnaðarins? Við athugun kemur
í ljós að ekki hefir verið tekið
tillit til allra staðreynda. Um
endurmatið, gengisskráninguna,
var ekki fjallað af frystihúsa-
mönnum. Getur það verið tilefni
til árása á forsvarsmenn hrað-
frystihúsanna, ef þeir sem
halda um stjórn þjóðfélagsins og
efnahagsmála þess. hafa talið
það þjóðfélaginu og efnahags-
lífinu hentugara að hraðfrysti-
iðnaðurinn fengi bein framlög
úr sameiginlegum sjóði þegnanna
í stað þess að fella gengið svo
að það fullnægði iðnaðinum. Þess
ar aðgerðir geta átt rétt á sér,
ef gengisskráningin fullnægir
öðrum greinum útflutningsfram-
leiðslunnar, en það getur ómögu
lega verið hraðfrystihúsamönn-
um til lasts að sú leið er farinn.
Þeir hafa ekki valið hana
Fyrir skömmu taldi stjóm
eins fyrirtæki's í mínu byggða-
lagi að tekjur fyrirtækis
ins nægðu ekki fyrir þörfum
þess og því þurfti að auka þær.
Tekjuaukinn til handa fyrir-
tæki þessu er fenginn með ein-
faldri samþykkt stjórnarmanna,
2 milljónir króna, ca 20% tekju-
auki. Hverjir eiga svoa að koma
með þennan tekjuauka? Það er
hinn almenni neytandi, sem fyr-
irtækið seluT sína framleiðslu.
Það er ekki á svona einfaldan
hátt sem hraðfrystiiðnaðurinn í
landinu getur aukið sínar tekj-
ru. Ég tel varla nokkur vildi það.
Orðhvatir menn ásaka frysti-
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför föður okkar, tengda
föður og afa
Páls H. Jónssonar.
Sérstaklega þökkum við heim
ilislækni, læknum og starfs-
liði fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri fyrir frábæra um-
önnun og hlýju í hans garð
fyrr og síðar.
Sveinbjörg K. Pálsdóttir,
Sigurlína Pálsdóttir,
Einar Magnússon,
Jóhanna G. Pálsdóttir,
Bjarni J. Gíslason,
Valdimar Pálsson,
Sigurveig Jónsdóttir
og barnaböm.
húsamenn og segja að athafnir
þeirra hafi verið rangar, skipu-
lag iðnaðarins á öðruvísi en það
eigi að vera, verktilhögun megi
vera öðruvísi o.s.frv. Þegar um
slíkt er rætt skildum við hafa
í huga orð þau sem kennd eru
við Bismark hinn þýzka. Hann
á að hafa sagt: að það sé ljóta
starfið að þurfa sífellt að vera að
taka ákvörðun, takist vel til með
framkvæmd sé stjórnvizku hrós-
að, takist illa sé heimska stjóm-
andans höfð í hámæli,þó sé svo
aff samskonar vitneskja og sama
stjórnvit liggi að baki baffum á
kvörffunum.
Með rökum verður því ekki í
móti mælt að hraðfrystiiðnaður
inn í landinu og síldveiðarnar
hafa skilað þjóðinni meiri hag-
vexti en nokkrar aðrar starfs-
greinar, þar hefir framleiðni-
aukningin verið mest. Ný tækni
og nýjar vinnsluaðferðir hafa
haldið innreið í hraðfrystiiðnað-
inn.
Éf ég notaði sömu rökhyggju
og liggur baki þeirra orða Sig.
Guðmundssonar í upphafi þessar
ar greinar, gæti ég sett upp
dæmi, hliðstæðu við það sem
hann talaði um:
Ég veit ekki hver laun starfs-
fólks eru hjá stofnun þeirri sem
Sigurður vinnur við, en segj-
um að það sé samanlagt 300 þús
kr. um mánuðinn. Um næstu
mánaðamót samþykkir stjórn
stofnunarinnar, að þar sem hún
hafi ekki fé handa í milli ákveði
hún að skrifstofustjórinn fengi
200 þús. kr. til greiðslu launa
starfsfólksins, en þau skilyrði
fylgi að hann verði að greiða
sama fjölda og sömu upphæð
hverjum og hann greiddi með
300 þús, kr. Ég veit ekki hvort
Sigurður teldi það hverkatak um
háls yfirmanna sinna, þótt hann
tilkynnti þeim að þetta væri sér
ómögulegt og ef svo ætti _að vera
yfirgæfi hann starfið. Ég veit
ekki, hvort hann teldi sig „brjóst
mylking" stjórnendana þótt
hann fengi leiðréttingu og varla
teldi hann að sér væri færð upp
hæðin á silfurfati, þegar leið-
réttingin væri ger.
Ég vildi að hinir orðhvötu
menn kæmu hér til Vestfjarða
og skoðuðu rekstur hraðfyrsti-
húsanna, athuguðu hvert þeim
fjármunum hefði verið varið, sem
fyrirtækin hafa haft með hönd-
um. Hvaða áhritf það hetfir á vest
firzka byggð, ef alvarlegur
kirkingur og fjárhagsvandræði
ná að hrjá hraðfrystiiðnaðinn
í fjórðungnum. Jafnfram mættu
þeir gefa því gaum hve margir
eru uppistandandi í sjávarút-
vegi og fiskiðnaði, af þeim sem
þar hösluðu sér völl á fyrri helm
ing þessarar aldar.
Fjöldi manna hefir hér á landi
lagt starf sinna beztu ára að sjá
varútvegi og fiskiðnaði í sam-
bandi við hann, en oftast að lok-
um staðið í rústum fyrirtækja
sinna, niðurbrotnir á sál og lík-
ama, sökum aðstæðna, sem þeir
á engan hátt hafa getað haft á-
hrif á, aflabrögð, tiðarfar, mark-
aðsaðstæður o.fl.
Hraðfrystiiðnaðurinn er mikil
vægasta grein útflutningsfram-
leiðslunnar. Á árinu 1966 voru
afurðir hans seldir til 25 landa
í tugum mismunandi pakkning-
um Framleiðsluverðmæti var
1650 millj krónur. Útflutnings-
skýrslur segja að árið 1966 hafi
92,5 af útfl. landsins verið
sjávarafurðir, af heildar útflutn
ingi hafi 25.8% verið frystar af-
urðir. Auk þess á frystiiðnaður-
inn nokkurn þátt í söltun, skreið
arframl. og mjölsölu sem hliðar-
greinum og betri nýtingu hrá-
efnis. Hraðfrystiiðnaðurinn hefir
náð lang lengst í sölustarfi allra
greina útflutníngs framleiðslu-
unnar. Af þessu má sjá, að hér
er um að ræða eina þýðingar-
mestu grein íslenzks atvinnu-
lífs, sem snertir hvem þjóðfé-
lagsþegn, ekki sízt fölkið sem
býr út um hinar dreifðu byggðir
landsins og á alla sína atfkomu
undir því, að þessum atvinnuvegi
vegni vel, samfara því að út-
gerð og sjósókn haldist.
ísafirði, 30. jan. 1968.
Marias Þ Guðmundsson.
Frá félagi
háskólamennt-
aðra kennara
MBL. hefur borizt eftirfarandi
ályktun frá Félagi háskóla-
menntaðra kennara:
„Stjórn FHK. mótmælir ein-
hliða ákvörðun fjámálaráðu-
neytisins um lækkun á yfir-
vinnuálagi, enda verður slík á-
kvörðun að teljast bein kjara-
skerðing fyrir félagsmenn FHK.
Stjómin mótmælir og þeirri
túlkun fjármálaráðuneytisins,
sem liggur til grundvallar þeirri
ákvörðun þess, að daglegum
vinnutí'ma kennara skuli ljúka
kl. 17 mánudaga til föstudaga
og kl. 12 á laugardögum í stað-
inn fyrir kl. 16 mánudaga —
föstudaga og kl. 11 á laugardög-
um, Tekið skal fram, að hvort-
tveggja er miðað við, að starfis
tími hefjist kl. 8. Mótmæli þessi
byggir stjórn FHK. á eftirtöld-
um triðum:
a) Stjórnin lítur svo á, að
fyrrnefnd túlkun brjóti í bága
við 3. gr. Kjaradóms frá 1967,
en þar stendur, að eigi skuli á-
kvæði dómsins valda því. að dag
legur vinnutími nokkurs starfs-
manns lengist frá því sem áður
var.
b) Fyrnefnd túlkun mun
bitna harðast á þeim kennurum,
sem inna verða verulegan hluta
kennsluskyldu sinnar af hönd-
um síðdegis vegna skorts á hús
næði fyrir kennslu (tvísetningar
í skólum).
c) Nefna má einnig, að í nú-
gildandi erindisbréfi fyrir kenn
ara eru ákvæði um, að dagleg-
um starfstíma skóla skuli ljúka
kl. 17, ef hann hefst kl. 9, ann-
ars fyrr.
Með tilliti til þessara atriða
æskir stjóm FHK. þess eindreg-
ið, að þér hlutizt til um, að fyrr
nefnd ákvörðun um lækkun á
yfirvinnuálagi og túlkun á á-
kvæðum Kjaradóms um dagleg-
an starfstíma kennara verði
endurskoðuð.
Virðingarfyllst,
Jón Baldvin Hannibalsson.
(formaður)
Hörffur Bergmann
(ritari)
L Thant til
Moskvu
New York, 5. febrúar,
AÐALRITARI Sameinuffu þjóff-
anna, U Thant, mun fara í stutta
heimsókn til Moskvu og Lund-
úna í næstu viku til viffræffna
viff Kosygin og Wilson, aff því
er upplýst var af opinberri háltfu
í New York í dag. í tilkynning-
unni var þess getiff hvaffa mál-
efni verffa rædd í þessari tför
U Thants, en fullvíst þykir aff
ástandið í Víetnam og kreppan
fyrir botni Miðjarffarhatfs verffi
efst á baugi.
Hugheilar þakkir sendi ég
öllum þeim sem heiðruðu
mig og sýndu mér vinsemd
á sjötugsafmæli mínu 6. þ.m.
Einkum vil ég flytja sam-
starfsfólki mínu hjá Bæjar-
útgerð Reykjavíkur alúðar
þakkir fyrir höfðinglega
gjöf sem það sendi mér. Heill
og farsæld fylgi ykkur öll-
um um ókomna daga.
Sigurjón Sigurbjörnsson.
Hjartanlega þakka ég öll-
um þeim sem glöddu mig á
75 ára afmæli mínu þann 24.
janúar sl. með heimsóknum,
gjöfum og hlýjum kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Jóhannesdóttir
Grundarstíg 4.