Morgunblaðið - 25.02.1968, Síða 1

Morgunblaðið - 25.02.1968, Síða 1
 32 SIÐtiR 48. tbl. 55. árg. SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Öður morðingi gefst upp og sleppir gislum — eftlr fjögurra daga umsáfur Tolk'í'ó, 24. febrúar (NTB) ÓÐUR morðingi, s«m liafzt hef- ur við í veitingahúsi einu i Jap- an í fjóra sólarhringa vopnaður st írskeyttum riffli og búinn mikl um birgðum af dínamít-stöngum, gafst upp í dag og leysti úr gísl- ingu hép fanga, sem hann hafði h'tað aS drepa ef lögreglan léti bann ekki í friði. Morðir.iginn beitir Huo Hyo Kim og er Kóreumaður ,en hef- ur verið búsettur í Japan um margra ára skeið. Á þriðóu'dag- inn kom hann til veitingaihússins Fujimiya við baðstað'inn Sumata kyo. Var hann akandi og bifreið- in hlaðin dýnamítstöngum og uim 1500 sksotum í riffil hans. Að sögn lögreglunnair hafði hann áður skotið t'vo menn til bana í næturklúbb einuim í bænum Shimzy. Þegar til veitinga'hússins feom, tók Kiim 16 gísla, og hótaði því jafnframt að sprenigja upp hús:ð ef lögreglan gerði tilraun til að ná bonum. Þremur gíslanna tókst að komast undan, og seinna leysti Kim úr haldi þrj'á menn, konu og þrjú börn hennar. Kim ræddi oft við blaðamenn þá daga, sem hann divaldist í veitinga'húsinu, en enginn þeirra þorði að gera tilraum til að hand taíka hann þar sem hann sat við arineld með d'ínamítsistafla sér Framh. á bls. 2 Fagerhoim afneitar — embætti forsætisráðherra Hluti af Lakagígum, en þar varð T783 stærsta hraungos á jörðinni frá því sögur hófust. Ljósm. Sig. Þór. — Sjá nánar bl. 10. Helsingfors, 24. feb. (NTB) KARL-August Fagerholm, fyrrum forsætisráðherra og núverandi forstjóri finnsku áfengiseinkasölunnar, neitaði í dag að taka að sér embætti forsætisráðherra Finnlands. Höfðu stjórn og þingmenn Jafnaðarmannaflokksins sam- þvkkt á fundi sínum sl. fimmtudag, að tilnefna Fager holm næsta forsætisráðherra, en Fagerholm var þá staddur á Kanaríeyjum í fríi. Við heimkomuna í dag kvaðst hann ekki geta tekið að sér Framhal á bls. 2. Keisarahöllin í Hue aftur í hönd- um stjórnarhermanna Mestallur víggirtihlutinn á valdi bandamanna Hue og Saigon, 24. febrúar. NTB-AP SUÐUR-VIETNAMSKIR hermenn náðu keisarahöll- inni í Hue á sitt vald í morg- un og hafa nú mestallan víg- girta hluta borgarinnar á valdi sínu, en dreifðir smá- hópar norður-vietnamskra hermanna veita enn harð- vítugt viðnám í hverfinu, aðallega í suðvesturhlutan- um. tTm 450 suBur-vletnamsklr hennenn, þar á meðal 150 úr hinni frægu herdeild „Svörtu hlébarðarnir“ ruddust sigri hrós- andi gegnum hlið keisarahallar- innar og komust að raun um að hinn aldagamli hásætissalur hallarinnar og aðrar byggingar í hverfinu höfðu orðið fyrir til- tölulega litlum skemmdum. Þó voru nokkrar sprungur á þak- inu eftir sprengjuárásirnar á höllina undanfarna daga. Þriggja metra hár spegill í há- sætissalnum var brotinn. Stjórnarhermennirnir réðu sér ekki fyrir kæti og settust í ryk- fallið hásætið án þess að láta skothríð fró leyni'skyttum á sig fá. í herbergi á bak við salinn lágu særðir borgarar, sem stundu og báðu hermennina um vatn. Þeir voru loikaðir þarna inni þegar Norður-Vietnamar tóku höllina 31. janúar og höfðu orðið fyrir skotum úr byssum stjórnarhermanna. Fáni Viet Cong tekinn niður Áður en lokaárásin var gerð höfðu stjórnarhermennirnir tek- ið niður fána Viet Cong, sem dreginn hafði verið að húni á stærstu flaggstöngini í víggirta hlutanum, rétt hjá stríðsminnis- merki, sem er um 200 metra frá keisarahöllinni. Síðan drógu þeir suður-vietnamskan fána að húni og skutu nokkrum skotum í heiðursskyni, en svo illa vildi til að ein kúlan hæfði fánastöng ina og iáninn féll til jarðar. Tveir hermenn klifu upp í flagg stóngina og festu fánann aftur. Rúmlega 250 Norður-Vietnam- ar féllu í lokaatlögunni þegar stjórnarhermennirnir ruddust gegnum hliðið inn í höllina, en suðuT-vietnamskur talsmaður í Framihald á bls. 31 Hitobylgjo í Melbourne Melbourne, 24. febrúar NTB. SEX menn hafa látizf í ofsa- hitum, sem geisa í Mel- bourne í Ástralíu, og margir hafa verið fluttir í sjúkra- hús. í dag komst hitinn upp í 42 stig á selsíus. Á öðrum stöðum í Viktoríu-fylki er 1 hitinn ennþá meiri. Ægileg hitabylgja hefur | geisað í Melbourne í undan- förnum fjórum vikum. Þeir sem látizt hafa fengu hjarra- I slag á heimilum sínum, en einn lézt í bifreið sinni, sem , hafði verið lagt. í fylkinu öllu hefur fólki verið bannað að kveikja elda, og varða brot á þessari tilskip un 7000 dollara sekt eða sex mánaða fangelsi. Hæst hefur hitinn komizt í 43 stig í Mel bourne og var það í lok jan- i úar. 10 mill jónir í ánauð Þrælahald enn útbreitt í heiminum New York, 24. feb. (AP) ÞAÐ er vægt reiknað að 10 milljónir manna séu nú í ánauð í heiminum, segir Bretinn Patrick Mont- gomery ofursti, sem kom- inn er til New York á veg- um samtaka í Bretlandi, er berjast fyrir afnámi þræla- halds. Ræddi ofurstinn við fréttamenn í New York á föstudagskvöld og skýrði þeim frá mörgum dæmum um þrælahald víða um heim ,en skoraði jafnframt á Sameinuðu þjóðirnar að hrinda í framkvæmd sam- þykkt samtakanna frá 1956 um afnám þrælahalds í heiminum. — Á menningar'heimili í Mið-Austurlöndum, þjóna 8 ára stúlkur tiil borðs fram undir klukkan ei'tt að nóttu. en eru vaktar n'Okkrum kiukkstunduim síðar til að hefja morgunstórfin. f einu Afríkuríki eru 300—400 kon- ur og stúlkur í kvennaibúri eins manns — höfðingja, sem keypti þær af þegnuim sín- Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.