Morgunblaðið - 25.02.1968, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1908
Nær allar gerðir eldfjalla á jörðinni gera
ísland að óskalandi eldfjallafræðinga
Eldgos á fslandi síðan land hyggðist. Innan sviga eru gos þau sem ekki hafa örugga tímasetningu, en í hornklofum eru gos þar sem staðsetning er ekki ná-
kvæm. Á myndina vantar Kötlugosið 1612.
þeim kemur Surtseyjargosið,
sem ekki virðist (nú að
minnsta kosti) ætla að fara
fram úr Mývatnseldum hvað
gostíma snertir ,Að vísu virð-
ist rjúka meira úr Surtsey nú
í vetur en verið hefur lengi,
en það stafar víst aðeins af
því hve kalt er í veðri og hita
útstreymi því meira áberandi.
Oftast hefur orðið gos í
Grímsvötnum í Vatnajökli,
enda gaus þar í aldir tíunda
hvert ár. Næst kemur Katla
hvað snerti fjölda gosa frá því
land byggðist, hefur gosið 17
sinnum — sem vitað er um.
Næst er Hekla með 14 gos.
Næstmesta sprengigos á íslandi
var fyrsta Heklugosið eft-
ir að land byggðist, en það
varð 1104, gosið sem eyddi
Þjórsárdal.
Nútímahraun á íslandi þekja
rúmlega 10000 ferkílómetra
eða nær þriðjung þeirra jarð-
eldasvæða, sem virk hafa verið
á nútíma. Hvergi á jörðinni
hafa myndazt víðáttumeiri
hraunbreiður á þessum 15000
árum, segir Sigurður Þórarins
son í ritgerð. Og ennfremur:
Þótt eldsumbrotin á íslandi
hafi verið stórvirk, er það þó
fyrst og fremst fjölbreytni um
eldstöðvar, sem gert hefur ís-
land að óskalandi eldfjallafræð
inga ,svo að ekkert annað land
kemst þar til jafns. Á 35000
ferkílómetra syæði er þar að
finna nær allar þær gerðir eld
fjalla, sem til eru á jörðinni,
og er sumar þeirra nær
hvergi að finna utan íslands.
NORRÆN eldfjallarannsóknar
stöð á að rísa á íslandi. Ligg-
ut beint við að slík stöð verði
hér staðsett, reyndar hvergi
annars staðar hægt að reisa
hana á Norðurlöndum vegna
jarðfræðilegra aðstæðna, eins
og segir í áliti menningarmála
nefndar Norðurlandaráðs. Hví
líkt Gósenland ísland hlýtur að
vera fyrir þá, sem fást við eld
fjallarannsóknir, sést greini-
lega ef litið er á meðfylgjandi
kort, sem Sigurður Þórarins-
son gerði. Þar eru merkt inn á
öll gos, sem orðið hafa á íslandi
frá því land byggðist (utan
eitt Kötlugos 1612).' Áður en
sögur hófust. hafa að sjálf-
sögðu orðið eldsumbrot. Mesta
öskugos, sem hér hefur orðið,
var t.d. Heklugos fyrÍT um
2800 árum. En það látum við
liggja á milli hluta nú, höldum
okkur við þau gos, sem orðið
hafa síðan menn tóku sér hér
bólfestu .Enda af nógu að atka
þar.
Skulum við nú aðeins nefna
þau gosin sem hæst ber, en
Sigurður Þórarinsson hefur
leiðbeint okkur um það efni.
Stærsta hraungosið er úr
Laka 1783. Þá varð mesta
hraungos, sem orðið hefur á
jörðinni síðan sögur hófust.
Gu/bbuðust þá upp 12 V2 kúbik-
kílómeter af hrauni.
Mesta öskugosið frá land-
námi var aftur á móti gosið í
Öskjujökli árið 1362, en það er
mesta sprengigos sem orðið
hefur í Evrópu síðan Monte
Somma sprakk í loft upp
79 e. Kr. Þetta Öræfa-
jökulsgos aleyddi þáverandi
Litla-Hérað, blómlega byggð.
Þarna hafa verið allt að 40 bæ-
ir, en þar í sveit voru 16—17
guðshús, ef kapellur og bæna-
hús eru meðtalin. Virðist öll
þessi byggð hafa farið — í
bili. Því hefur sveitin fengið
þetta kynlega nafn Öræfasveit,
sem hún ber nú. Rúmmál gos-
efnisins nýfallins hefur vart
verið minna en 10 rúmkílómetr
ar og hefði það myndað 10 sm.
þykkt lag á jafndreift um fs-
land, en meginhlutinn barst út
á haf, sem betur fór.
Mun-u þetta vera mestu
mannskaðar sem orðið hafa af
völdum eldgosa hér. Árið 1104
fór að vísu í eyði í eldgosum
Þjórsárdalur og Hrunamanna-
afréttur, þar sem þó var byggð
og jafnvel bæir við Hvitárvatn
(skammt frá þar sem skáli
Ferðafélagsins er nú). Hafa þá
sennilega upp undir 20 bæir
farið, og sú byggð varð aldrei
aftur til.
Það gos, sem lengst hefur
staðið á íslandi, eru Mývatns-
eldar 1725—1729. En næst
Hekla hefur gosið 14 sinnum síanðan land byggðist, og er samanlögð „framleiðsla hennar, aska
og hraun, 800 kúbikkílómetrar. Breidd örva gefur hugmynd um hlutfallslega stærð gosanna.