Morgunblaðið - 29.03.1968, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1968
JMwgtiitfrlðfrífr
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
AFRAM SKAL HALDIÐ
í sumar munu um 1000
starfsmenn vinna við Búr-
fellsvirkjun og um 650 starfs ■
menn við byggingu álbræðsl-
unnar í Straumsvík. Þessum
viðamiklu framkvæmdum
lýkur á árinu 1969 og hefur
þá fyrsta og örlagaríkasta
skrefið verið stigið til upp-
byggingar orkufreks iðnaðar
á íslandi og til nýtingar nátt-
úruauðæfa landsins, annarra
en fisksins í hafinu kringum
landið. Þessar miklu fram-
kvæmdir við Búrfell og í
Straumsvík hafa að sjálf-
sögðu örvað mjög atvinnu-
lífið í landinu og haft marg-
vísleg bein og óbein áhrif í
ýmsum atvinnugreinum.
Nú er fyllilega tímabært að
vekja máls á því, hvað við
tekur eftir Búrfell og
Straumsvík. Þá má ekki láta
staðar numið við stórfram-
kvæmdir og iðnvæðingu. Um
nokkurra ára skeið hafa farið
fram athuganir á möguleik-
um þess að byggja hér á
landi olíuhreinsunarstöð og
bendir allt til þess, að slík
stöð geti orðið hagkvæmt
fyrirtæki, jafnframt því, sem
hún mun flytja margvíslega
tækyiiþekkingu inn í landið
og leggja grundvöll að víð-
tækum efnaiðnaði. Fyllsta
ástæða er til að hrinda þessu
máli í framkvæmd. Þá hefur
Baldur Líndal unnið að
rannsóknum á sjóefnavinnslu
hér á landi og benda þær
upplýsingar, sem fyrir liggja
til þess, að mörg tækifæri til
atvinnuuppbyggingar séu
fyrir hendi í slíkri vinnslu.
Þótt Búrfellsvirkjun sé
mikið stórvirki er engin
ástæða til að láta þar staðar
numið við virkjun íslenzkra
fallvatna. Þegar í stað ber að
hefja athuganir á virkjunum
annarra fallvatna, t.d. Jökuls
ár á Fjöllum og kanna jafn-
framt hvaða orkufrekan iðn-
að hægt er að byggja upp í
sambandi við nýja stórvirkj-
un eða hvernig slík virkjun
geti stuðlað að áframhald-
andi iðnvæðingu landsins.
Þeir efnahagserfiðleikar,
sem þjóðin á við að stríða um
þessar mundir hljóta að
verða okkur hvatning til
þess að láta hendur standa
fram úr ermum í stað þess
að láta hugfallast, að halda
áfram stórfelldri iðnvæðingu
íslands í krafti fossaaflsins í
stað þess að leggja árar í bát
og koðna niður í ilideilum og
sundurlyndi mili einstakra
hagsmunahópa í þjóðfélag-
inu, sem ekki berjast lengur
um að skipta kökunni, held-
ur jafna niður tapinu.
Núverandi ríkisstjórn hef-
ur haft forustu um stórvirkj-
un og uppbyggingu orku-
freks iðnaðar í landinu. Sú ör
lagaríka ákvörðun á eftir að
■ hafa víðtæk áhrif til góðs á
komandi árum og þeim mun
meiri ef þessu merka upp-
byggingarstarfi verður nú
haldið áfram og til þess eru
öll skilyrði. Við skulum gæta
þess, að verða ekki of upp-
tekin af hinum smærri mál-
um, þau leysast af sjálfu sér,
ef stórmál þjóðarinnar eru
tekin föstum og djörfum tök-
um.
HVERT STEFNIR
PÓLLAND?
C|amhliða hinni athyglis-
^ verðu stjórnmálaþróun í
Tékkóslóvakíu á síðustu vik-
um og mánuðum hafa þeir
atburðir gerzt í Póllandi sem
benda til þess að mikil ólga
sé þar undir niðri og að al-
mennjngur krefjist aukins
frjálsræðis eins og nú virðist
ætla að verða hlutskipti
fólks í Tékkóslóvakíu.
Á árinu 1956 varð mikil-
ólga í Póllandi um svipað
leyti og upp úr sauð í Ung-
verjalandi og Gómulka kom
til valda í Póllandi þá ein-
mitt vegna þess að talið var,
að hann mundi stefna í frjáls
ræðisátt. Raunin hefur hins
vegar orðið sú að Gómúlka
er annar auðmjúkasti leppur
Rússa í A-Evrópu. Fyrsta sæt
ið skipar tvímælalaust Ul-
bricht í Austur-Þýzkalandi.
Gómúlka virðist nú eiga
um tvo kosti að velja, annars
vegar að fylgja fordæmi
Tékka og Slóvaka eða herða
mjög tökin í Póllandi. Velji
hann síðari leiðina munu
hann og aðrir kommúnista-
leiðtogar í Póllandi komast
að raun um, að það verður
skammgóður vermir. Fylgi
hann í kjölfar Dubseks getur
hann enn áunnið sér merkan
sess í sögu Póllands.
LITRIKUR STJÓRN
MÁLAMAÐUR
IJyrir nokkru lét brezki
* stjórnmálamaðurinn Ge-
orge Brown af embætti utan-
ríkisráðherra Breta, eftir að
honum hafði sinnazt við
Wilson, forsætisráðherra. —
Brezku blöðin virtust al-
mennt fagna því að Brown
fór frá og töldu að tími hefði
verið til kominn.
Ólíklegt er að George
Grundvöllur lagður að nýrri efna
hagsstefnu í Tékkóslóvakiu
„STÓRKOSTLEGASTA af-
rekið, sem unnið hefur verið
í Tékkóslóvakíu á síðustu 20
árum, var að koma landinu,
sem eitt sinn var blómlegt
iðnaðarríki, niður á stig van-
þróaðs lands“. Með þessari
einstöku háðslegu setningu
lýsti hagfræðingur nokkur í
Prag efnahagsástandi lands
síns fyrir nokkru.
Með þessu sagði hann líka
nokkuð, sem hvað eftir
annað, enda þótt það hafi
ekki verið með jafn sterkum
orðum, hefur verið sagt á síð-
ustu vikum af hinum nýja
leiðtoga kommúnistaflokks
lands ns, Alexander Dúbeek,
og frehnstu mönnum úr hópi
stuðningsmanna hans, sem
vinna vilja að endurbótum í
landinu. Öll svið efnaihags-
lífsins séu svo ilia á sig kom-
inn, að varia geti ástandið
orðið verra, og ef ekki takist,
að leggja heilbrigðan grund-
völl fyrir sæmilegum lífs-
kjörum í aindinu með því að
framkvæma gagngerar end-
urbætur á efnahagskerfinu
og breyta þeim hugsunar-
hætti, sem ríki í hugsun og
athöfnum þar, þá muni vonir
þær um betra iíf, sem hvar-
vetna gera vart um sig á
meðal þjóðarinnar, aildrei
verða að neinu.
Margar ástæður eru fyrir
því, að Tékkóslóvakía hefur
ratað í þessa aðstöðu. Það
byrjaði með því, að landið
varð eftir síðari heimstyrj-
öldina að beina viðskiptum
sínum til Austur-Evrópu, en
þangað til höfðu þau aðal-
lega beinzt til Vestur- og
Mið-Evrópu. Það voru ekki
aðeins fyrirmæli valdhafanna
í Moskvu, sem þvinguðu
landið inn á þessar brautir,
heldur einnig verzlunarbann
það, sem vestur’önd komu á
gagnvart Tékkóslóvakíu á
mörgum sviðum. Nú á um
helmingur utanríkisverzlun-
ar landsins sér stað við Sovét-
ríkin og um þrír fjórðu hlut-
ar hennar við Comecon,
efnahagstoandalag kommún-
istaríkjanna.
Hinn stirðnaði áætlunanbú-
skapur veitti fyrirtækjunum
enga möguleika til frekari
þróunar. Einangrunin gagn-
vart Vesturlöndum varð til
þess, að landið dróist aftiur úr
á tækniisviðinu og vörur það-
an urðu verri að gæðum.
Skrifstofutoákan flokksins
með allar sínar kennisetn-
imgar kom í veg fyrir öll tæki
færi til sjálfstæðrar hugsunar
eða frumkvæðis. Framleiðsl-
an var orðin að tilgangi í
sjálfri sér og enginn hirti um,
hvort hún væri hagkvæm eða
hvort yfirieitt væri unnt að
selja hana.
Vegna hinna sívaxandi
erfiðleika varð Tékkóslóvakía
fyrsta landið í Austur-Evrópu,
Antonin Novotny, fyrrVerandi flokksleiðtogi og forseti
Tékkóslóvakíu. Leiðir afsögn hans í síðustu viku til vaxtar-
skeiðs í tékknesku efnahagslífi, sökum þess að nýjar hug-
myndir, frumkvæði og frelsi fá að ryðja sér til rúms í
stað stirðnaðra kennisetninga?
þar sem áform urðu til um
að endurbæta efnahagskerf-
ið. Gerðist það haustið 1964.
Aðaihvatamenn þeas voru
hagfræðingurinn Ota Sik
prófessor og yfirmaður áætl-
anakerfis ríkisins, Aldrich
Cernik ,sem báðir eru nú í
hópi stuðningsmanna Dub-
ceks. Þar sem i þessurn áform
um var m.a. gert ráð fyrir
„kapitalistiskum aðferðum",
mættu þau andspyrnu hinna
íhaldsömu kennisetningafræð
inga. sem þáverandi flokks-
leiðtogi og forseti Antonin
Novotny, hafði safnað í kring
um sig. Þessir menn námu
brott; að því er nú er vitað,
allt það úr þessum endur-
bótaráðagerðum, sem þeim
þóknað’iist, og þegar þessar
efnahagsendurbætur komu til
framkvæmda í reynd 1967,
voru þær svo breyttar, frá
því sem fyrirhugað hafði
veri i upphafi af hvatamönn-
um þeirra, að ástandið versn-
ai enn í stað þess að skána.
Prófsteinn „lýðræðislegs
sósíalisma*’
Dubcek ag stuningismenn
hans vita, að lausn þessara
efnahagsörugleika mun verða
prófsteinninn fyrir ÖLI áform
þeirra um „lýðræðislegan
sósíal;sma“. Til þess að
tryggja það, að þessar endur-
bæíur komist til fram-
kværnda, eiga lykilstöður í
stjórn og efnaihagsfcerfi lands-
ins að verða fengnar í hendur
áreiðanlegum kunnáttumönn-
um, en framkvæmdastjórar
fyrirtækja, sem, eins og það
er orðað, „hvorki hafa skil-
yrði eða getu“ til þess að
leysa hin nýju verkefni af
hendi, verða leystir frá
störfum.
Til þess að fullnægja hags-
munum neytenda innanlands
og til þess að standast sam-
keppnina á heimsmarkaðin-
um, eiga fyrirtækin og fram-
kvæmdastjórar þeirra að £á
Brown hverfi af sviði stjórn-
málanna þrátt fyrir það, að
hann gegnir nú ekki lengur
ráðherraembætti. Hann er
tvímælalaust einhver litrík-
asti stjórnmálamaður, sem
fram hefur komið í Bretlandi
um langt skeið og þrátt fyrir
margvíslega galla og mann-
legan breyzkleika skapaði
hann þá breidd í ríkisstjórn
Wilsons, sem nú er ekki leng-
meira vald en áður. Hug'sun- i
arhátt verkamanna í starfi á
að bæta samkvæmt einkun-
arorðunum: „Sá, sem vinnur
lítið, fær lítil laun“.
Þá á að leggja niður fyrir-
tæki, sem borga sig illa.
Framieiðsla á neyzluvarningi,
sem vanrækt hefur verið á
undanförnum árum, skal
aukin og tóil þess að koma
frekar til rnóts við óskir neyt-
enda verður starfsemi smá-
fyrirtækja á sviði fram-
leiðslu, verzlunar og þjónustu
leyfð að nýju.
Menn gera sér það samt
Ijóst í Prag, að leysa verður
efnahagslíf Tékkóslóvakíu úr
þeim viðjum einangrunar,
sem það hefur verið í til
þessa og að auk viðskipta-
samstarfsins innan Comiecon.
verður að taka upp aukin
verzlunarviðskipti við „kapi-
talistísk ríki“. Þannig skal
verzluninni við Vesturlönd
efld og með því reynt að
koma í veg fyrir stöðugan
halla á verzlunarviðskiptum
við þau.
Þannig hefur verið lagður
grundvöllur að nýrri stetfnu
í efnahagslífi Tékkóslóvakíu
og það leikur eniginn vafi á
því, að Dubeck og stuðnings-
menn hans munu gera allt,
sem í þeirra valdi stendur að
framkvæma hana mótstöðu-
laust. Árangur þeirra verður
ekki sízt undir því kominn,
hvort þeirn tekst að rífa
fólkið upp úr þeirri deyfð,
sem það hefur búið við. Á
meira en tveimur áratugum,
sem íbúar Tékkóslóvakíu
hafa búið við stalinistiska
einræðisstjórn, hafa margir
þeirra gleymt því, hvernig á
að hugsa sjálfstætt og frum-
kvæði þeirra verið drepið í
dróma. Það er ekki víst, að
það verði auvelt að sannfæra
þá um, að það borgi sig í
framtíðinni að vera iðjusam-
ur og vinna verk sín vel.
ur fyrir hendi. Það verður
fróðlegt að fylgjast með ferii
Browns á næstunni og víst er
að ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins er veikari eftir en
áður.