Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurapríl 1968næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    2829301234
    567891011

Morgunblaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 196« 5 „Hann kyrrir sjóinn og það verður ísauðn og dauðaþögn" Rœtt við fólk á Þórshöfn um hafís ÞAÐ var bjart veður og stillt s.l. sumiudag, þegar við lögðum upp í könnunarflug frá Akureyri út Byjafjörð. Guðjón Hallsson Þegar við hófum flugið af Akureyrarflugvelli um 8 leyt- ið, var fjöldi fólks komiinn út á pallinn við Oddeyrar- tanga, og þar dorgaði það nið ur um ísinn. Lítill ís var á Eyjafirði og Ólafsfjörður var orðinn auð- ur. Við Grímsey var mikill ís og þar var hafið algjörlega hulið ís svo langt sem augað eygði í norður. Axarfjörður- inn var fullur af samfrosn- um rekís, en auð læna var í fjarðarmynninu. Fyrir vest- an Raufarhöfn sá hvorki í jörð eða ægi, aðeinis enda- lausa is og snjóbreiðu. Við komurn inn yfir Þistilfjörð- inn fullan af hrönnuðum ís og lentum á Þúrshöfn til þess að ræða þar við fóik um ísinn og mannlifið. Það var glampandi sól og stiila á Þórsihöfn og krakkarn ir voru að leika sér í klaka- brynjaðri fjörunni, en enginn sást fara út á ísinn. Á ganigi með fjörunni hittum við 68 ára gamian Þórsihafnarbúa, Guðjón Hallisson. Við tylltum okkur hjá honum á snjóskafl við veginn og röbbuðum við hann. — Hvað segirðu um ísinn, Guðjón? — Það er vont að hafa ís- inn. — Hann þrengir að? — Já, þetta er innilokað og verkar frekar illa á eldra fóik. Þetta getur verið erfitt í harðindum og kulda. Að vísu er fært flugleiðis eins og er, að minnsta kosti og land- leiðina annað veitfið, en ísinn er slæmur. — Er þetta mikill ís? — Já, það er fullur fjörð- urinn hér út eftir öllu og hann getur vart orðið þéttari. Þetta er heldur þéttara, en 1965, en þá var ísinn hér í 7 vikur að mig minnir. — Hvenær mannst þú eftir mesturn og verstum ís? — Það var 1918, þá var allt lokað hér í kring. Bakkaflói og Þistilfjörður voru alveg fullir og þá voru mikldr kuldar. Þá gerði hafþök af ís með stórhríð í janúar og ísinn fór ekki aftuT fyirr en á miðri góu. Eftir það sást bara ekki ís fyrr en 1965 og svo aftur núna. — Lamazt ekki allt at- hafnalíf þegar ísinn leggst að? — Jú, það eru allar bjargir bannaðar, þegar bátarnir komast ekki á sjó.. — Hvað gerir fólk helzt, þegar svona viðrar? — Það er atvinnulaust og plássið er alveg dautt. Bara að ísinn fari sem fyrst. — Þið drífið ekki uipp leik- rit eða neitt þessiháttar? — Jú, ég hef nú heyrt að það standi til að fara að æfa leikrit, ef leikendur fást. — Mannstu eftir nokkrum slysum í ís? — Nei, ekki man ég nú það. Fólk er gætið og krakk- arnir fara vart út á ísinn. — Og það eru ekki neinar sérstakar þrengingar? Framhald á bls. 21 Krakkarnir leika sér í klakabrynjaðri fjörunni. í baksýn sézt jakahrannaður inn og höfnin, þar sem bátarnir geta sig ekki hreyft. Málflutniniísstofa mín c er flutt að Tjarnargötu 3, (3. hæð í húsnæði Iðnaðar- mannafélags Suðurnesja) Keflavík. Sími 2660. Jón Einar Jakobsson, hdl. * * Utsala — Utsala Barnapeysur, verð f. kr. 150 Crepehanzkar, verð f. kr. 95 Barnahúfur — 25 Dömupeysur 95 Brjóstahöld 50 Dömukápur 350 Slæður 25 og m. fl. Aðeins 2 dagar þar til verzlunin lokar. FATAMARKAÐURINN, Álfhólsvegi 7, Kópavogi. VOGIR Höfum ávallt fyrir- liggjandi margar gerð- ir af vogum, fyrir fram leiðslu-, iðnaðar- og verzlunarfyrirtæki. Ólafur Gislason & Co. hf. Ingólfsstræti la, sími 18370. ANGLI - SKYRTUR COTTON - COTTON BLEND og RESPI SUPER NYLON Fáanlegar í 14 stærðum frá nr, 34 til 47. Hvítar — röndóttar — mislitar. Margar gerðir og ermalengdir. ANGU - ALLTAF

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 73. tölublað (09.04.1968)
https://timarit.is/issue/113762

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

73. tölublað (09.04.1968)

Aðgerðir: