Morgunblaðið - 09.04.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968
19
Sigurbjörn Einarsson, biskup:
Um íslenzka prestinn í
Kaupmannahöfn
MBL. hefur borizt eftirfarandi
greinargerð biskupsins, hr. Sig-
urbjörns Einarssonar:
Árið 1964 gerðist það m.a. í
íslenzkum kirkjumálum að ráð-
inn var prestur til þess a'ð starfa
meðal íslendinga í Kaupmanna-
höfn og annars staðar á Norður-
löndum eftir því, sem við yrði
komið. Ég hafði með sjálfum
mér lengi verið á þeirri skoðun,
að kirkjan þyrfti að hafa starfs-
mann á þessum vettvangi og ég
hafði fundið til þess, hvað kirkj-
an gerir lítið og getur lítfð gert
fyrir íslendinga, sem dveljast
langdvölum erlendis, eða um
stundar sakir, svo sem sjómenn
í erlendum höfnum og náms-
menn. Það gegnir raunar sama
máli um ýmis önnur svið, þar er
þörfin fyrir hendi og verkefnin
ærin fyrir kirkjuna, en það er
ekki svo auðvelt fyrir kirkjuna
nú á tímum að sannfæra menn
um, að hún þurfi að láta til sín
taka á nýjum sviðum og geti
látið gott af sér leiða.
En þegar þeirri hugmynd var
hreyft að ráða prest til starfa í
Kaupmannahöfn, fékkk hún já-
kvæðar undirtektir ráðamanna.
Þáverandi sendiherra Islands í
Kaupmannahöfn, Stefán Jóhann
Stefánsson, tók ákve'ðið undir
hana og veitti henni mikilvægan
stuðning. En mestu munaði það,
að kirkjumálaráðherra, Jóhann
Hafstein, tók henni af miklum
skilningi og beitti sér fyrir því,
að hún gæti orðið að veruleilaa.
Ég færði það í tal við séra
Jónas Gíslason, sem þá var ekki
bundinn í embætti, hvort hann
mundi fáanlegur til þess að taka
þetta starf af sér, ef til kæmi,
og eftir nokkra umhugsun tjáði
hann sig reiðubúinn til þess. En
það skiptir jafnan höfúðmáli,
þegar um nýtt starf er að ræða,
brautryðjendastarf, sem byggja
verður upp frá grunni, að í það
veljist réttur maður,’ og ég hafði
það álit á sr. Jónasi, að hann
myndi einmitt reynast réttur
maður á réttum stað. Og sama
álits naut hann hjá öðrum þeim,
sem áttu um málið áð fjalla á
undirbúningsstigi. Það var litið
svo á, að hér væri um tilraun að
IV BÍLAR
ræða. Þó að ég og aðrir hefðum
ákveðnar skoðanir á því, að hér
væri þörf fyrir hendi, sem mikil
vægt væri að bæta úr, hlaut
reynslan ein að skera úr því til
hlítar, hversu brýn hún væri, og
ekki varð heldur vitáð fyrr en
á reyndi, hvernig þessari við-
leitni yrði tekið af þeim, sem
áttu hlut að máli.
Auðvitað var tilraunin gagn-
rýnd, hún þótti óþörf tiltekja og
nauðsynjalaus eyðsla. Það var
líka gagnrýnt, að starfið var ekki
auglýst til umsóknar, heldur
maður ráðinn til þess að gegna
því. En þá gættu menn ekki
þeirrar stáðreyndar, að hér var
ekki um lögfest embætti að
ræða, heldur ráðningu til ákveð-
ins verkefnis, án þess að nokkur
ákvörðun væri um það tekin þá
að sinni, hvort framhald yrði á
starfinu eða það gert að lögmætu
embætti.
Þær raddir, sem töldu óþarfa
á ferðinni, hljóðnuðu brátt, því
áð fljótlega bárust þær fregnir
hingað heim, sem þögguðu slíkar
raddir niður. Miklu fremur fóru
menn að spyrja sig, hvernig við
hefðum hingað til komizt af án
þess að hafa þá fyrirgreiðslu,
sem íslenzki presturinn í Kaup-
mannahöfn hefur látið í té. Þetta
á sérstaklega við um þá mörgu,
sem verða að leita héðan til
Kaupmannahafnar til þess að fá
þar sjúkrahússvist og læknis-
hjálp. Af e'ðlilegum ástæðum
hafa fréttir verið færri af öðru
starfi prestsins, því um þáð eru
heimamenn ekki eins til frá-
sagnar, en allar fregnir og
reynsla af öðru því, sem hann
hefur látið til sín taka, bendir
í sömu átt um það, að hér sé
mikilvægur starfsvettvangur. En
sá þáttur, sem veit að sjúkling-
um, hefur verið gildur og reynzt
gildari en menn varði fyrir-
fram, enda hefur sr. Jónas Gísla-
son rækt þann þátt, sem og aðra
þætti starfs síns, af frábærri
alúð og atorku.
E'n þá ber svo við, þegar feng-
in er nálega fjögurra ára reynsla
af þessu starfi, reynsla, sem ÖH
er á eina lund, að alþingi ákveð-
ur a'ð tillögu ríkisstjómarinnar
að spara þann lið á útgjöldum
ríkisins, sem þessi þjónusta kost-
ar. Þessi ákvörðun hefur vakið
mikla athygli og valdið sárum
vonbrigðum. Ég hef í höndum
allmörg bréf frá fólki, sem hefur
haft kynni af starfi prestsins í
Kaupmannahöfn og þau bréf
lýsa furðu og sársauka yfir því,
að sparnarþörf ríkisins skuli
þurfa að koma niður á þessu
starfi. En alþingi er búið að
ganga frá málinu, fjárveiting til
starfsins er niður felld á þessu
ári og ver'ður það því að falla
niður.
Þegar svo er komið, vaknar sú
spurning, hvort ekki séu einhver
úrræði til þess að halda þessu
starfi gangandi. Svarið við
þeirri spurningu hlýtur að vera
játandi. Ef þeir mörgu, sem vita
hvað í húfi er, leggjast á eitt, þá
er hægt að safna því fé, sem
þarf til þess að halda þessari
starfsemi uppi þetta ár, og takist
það, þá er ekki gerandi ráð fyrir
Gamalt timbur
Mikið af kössum stórum og smáum til sölu.
Upplýsingar í síma 38830.
rjt »• *Jk-*
1 resnuoir
Tilboð óskast í að slá upp og gera fokhelt raðhús
í Fossvogi. Gólfplata tilbúin.
Upplýsingar í síma 16768 og síma 17368 eftir kl. 7.
BÍLL DAGSINS:
Willy’s jeppi, árg. 67, ek-
inn 18 þús. km. með
mjöig góðu 'húsi og allur
kiæddur innan.
Rambler American árg. 65,
67.
Chevy II nova árg. 65.
Chevill árg. 64.
Buick LeSabre árg. 63.
Hillman IMP árg. 65.
Remo R 8 ár.g. 63.
Reno R 10 árg. 65.
Pauigeut 404 árg. 64.
Zephyr árg. 63, 66.
Dodge D 100 pick up árg.
67.
Skoðið hreina og vel með
farna bíla í björtum húsa-
kynnum.
Tökum notaða bíla upp I
notaða bíla.
Mjög baigstæðir greiðslu-
ski'knálar.
i frvi m LL H.F.
Chrysler- umboðið Hringbraut 121 sími 106 00
abc 2000
FERÐARITVÉLIN
er:
sterk — falleg — létt
Verð aðeins kr. 3.806 m. sölusk.
SKRI FSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33
Sími 20660.
öðru en að fjárveitingavaldið
endursko'ði afstöðu sína. Þess
vegna hafa nokkrir menn gengið
fram fyrir skjöldu og hyggjast
beita sér fyrir fjársöfnun meðal
almennings í þ.ví skyni að ná
saman þeirri upphæð, er nægi til
þess að kosta þjónustu prests í
Kaupmannahöfn þetta ár. I
broddi fylkingar er ungur og
ötull stúdent, Sigurður Guð-
mundsson. Ég er bjartsýnn á
það, að þessi tilraun takist vel
og leyfi mér að heita á alia góða
menn til styrktar því, að svo
megi verða.
FÉLAGSIÍF
Páskar
Dvalið verður í Skíðaskála
Vals um páskana. Dvalarkort
verða afhent í Valsheimilinu
mánudagskvöld. Ath.: Pláss
er mjög takmarkað.
Stjórnin.
BLÓMIAÍJRVAl
Gróðrarstöðin við
Miklatorg
Sími 22822 og 19775.
■H7ÍTUÍIIM
Víkingar knattspyrnudeild
Meistarafl., 1. og 2. fl. Áríð-
andi æfing í kvöld þriðjudag
kl. 7,20. Rabbfundur eftir æf-
ingu. Fjölmennið. — Þjálfari.
Ármenningar — skíðafóik.
Skíðaferðir í Jósefsdal yfir
hátíðina verða sem hér segir:
Miðvikudagskvöld kl. 8, alla
helgidagana kl. 10 f. h. og
laugardag kl. 2 og 6 . Ath. að
þeir, sem ekki hafa tryggt sér
dvalarmiða yfir hátíðina fá
ekki gistingu í skálanum.
Stjórnin.
dUh
ISLAND 1968
W
lack a Decka
Reykjavík og nágrenni:
J árnvöruverzl.
Jes Zimsen
G.J. Fossverg,
Málning og járnvörur,
Slippfélagið,
Vald Poulsen,
Byggingavöruverzlun
Kópavogs,
Málmur, Hafnarfirði,
O. Ellingsen verzl.
Úti á landi:
Axel Sveinbjörnsson,
Akranesi,
Póllinn h.f., ísafirði,
Elís Guðnason, Eskifirði,
Atlabúðin, Akureyri,
Grímur & Árni, Húsavík,
Haraldur Eiríksson h.f.,
Veslmannaeyjum,
G. Á. Böðvarsson h.f.,
Selfossi,
Stapafell, Keflavík,
NBIBHMIJOHNSON LF
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2-42-50
ÚTSÖLUSTADIR:
til fermingargjafa