Morgunblaðið - 09.04.1968, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968
Iiistamaðuriim Sigurjón Ólafsson, myndhöggvari, við eina
mynda sinna er sýndar verða í Unuhúsi.
Sigurjón Ólafsson opn-
ar sýningu í Unuhúsi
LÁNTAKA
Framhald af bls. 32
Hafnarfj arðarvegur
í Kópavogi 10.9
Flugmál 6.0
Skólar 25.6
Sjúkrahús 37.0
Lögreglustöð í Reykjavík 7.0
Búrfellsvirkjun 75.0
Alls 330.2
I greinargerð frumvarpsins seg
ir að á árinu 1967 hafi fjáröflun
með sölu spariskírteina numið
125 milljónum króna en vegna
þess hversu horfir í efnahags-
málum þjóðarinnar á yfirstand-
andi ári er talið að slík fjáröflun
muni ekki geta numið hærri fjár
hæð en 75 milljónum króna eða
csJohnson
MjlHRiNM
9 simi 1149B
50 milljónum króna minna en
1967.
Þá segir ennfremur að sýnt
þyki, að framboð lánsfjár innan-
lands á þessu ári muni ekki
mæta lánsfjárþörf vegna fram-
kvæmdaáætlunar yfirstandandi
árs og þess vegna sé nauðsyn-
legt að afla erlends lánsfjár að
upphæ'ð 275 milljónir króna.
Lántöku hjá Viðreisnarsjóði
Evrópuráðsins og með töku PL-
480 lána eru með sama hætti og
verið hefur undanfarin ár, en í
sambandi við framkvæmdir í
raforkumálum og flugöryggismál
um verður um að ræða talsverð-
an innflutning á tækjum og er
nú eins og á undanfömum árum
leitað heimildar til lántöku
vegna þeirra.
1 greinargerðinni segir að 113
milljónir af hinu fyrirhugaða er-
lenda láni muni endurlánaðar
Framkvæmdasjóði tslands til
þess að mæta lánsfjárþörf fjár-
festingarlánasjóða og fyrirtækja.
Loks er skýrt frá því að heild
arkostnaður strandferðaskipanna
muni nema 146,3 milljónum
króna og muni Skipaútgerðin
leggja fram af eigin fé 20 millj.
króna en allverulegs fjár verði
aflað með lántökum erlendis og
innan lands. Er gert ráð fyrir að
lánin endurgreiðist með framlög
um á fjárlögum á næstu 5 árum.
VANDERVELL
félalegur^y
De Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, flestar tegundir
Dodge
Bedford, disel
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Bedford, disel
Thames Trader
Mercedes Benz, flestar teg.
Gaz ’59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Sími 15362 og 19215.
Brautarholti 6.
Sigurjón Ólafsson myndhöggv
ari opnar sýningu í Unuhúsi í
dag klukkan tvö.
Á sýningunni eru tuttugu og
átta myndir. Nokkrar þeirra eru
í einkaeign, en allar aðrar til
sölu.
Kallaði listamaðurinn á blaða-
menn ásamt framkvæmdastjóra
Unuhúss, Ragnar Jónsson, í gær
í tilefni af þessum viðburði.
Sagði Ragnar, meðal annars, að
verð myndanna yrði allt frá sex
þúsund upp í fjörutíu þúsund
krónur, og myndi sá sami hátt-
ur verða hafður á, og venju-
lega, að selja fólki listaverkin
með afborgunum. Kvað Ragnar
þetta hafa gefizt vel frá upp-
hafi, og skil á greiðslum verið
afar góðar.
Myndir Sigurjóns, eru með
ýmsum hætti, bæði eldri mynd-
ir og nýjar, og því töluverð-
ur munur á stíl listamannsins
fyrr og nú. Var mikið unnið í
tré, rekavið, er rekið hefur á
Laugnarnesfjörur og þá gjarn-
an með koparnöglum, er setja
nýstárlegan blæ á listaverkin.
Sigurjón kvaðst hafa myndir á
Charlottenborgarsýningu í sept-
ember mánuði, og kvað hann
óhemju kostnaðarsamt að senda
listaverk út, bæði hvað
viðvéki flutningi og annarri
vinnu þar að lútandi. Kvað
hann til dæmis dönsku tollyfir-
völdin hafa farið fram á það,
að hann ábyrgðist, að verk hans
færu aftur úr landi, því að ella
myndi hann þurfa að greiða tugi
þúsunda í innflutningsgjöld.
Þessu var þó við bjargað af
góðkunningja listamannsins er
sannfærði tollyfirvöldin þar í
landi um, að ekki væri nokkur
von til þess, að verk þessi seld-
ust þar á næstu áratugum. Lista-
maðurinn sagði og, að nýverið
hefði yfrirtæki Rasmussen’s í
Kaupmannahöfn, þess, er gerði
afsteypur af höggmyndum íeir,
verið lagt niður, og hefðu ýms-
ir orðið fyrir skakkaföllum í
því máli, vegna þess, að þurft
hefði að flytja allar þessar
þungu myndir aftur til heima-
landa sinna. Væri til dæm-
is hans skammtur af myndum
þessum heima í Laugarnesi, og
hann vissi hreint ekki, hvað
hann ætti af þessu að gera, svo
sem höfuðmynd af Stefáni Ste-
fánssyni. Svo væri með fleira.
Listamaðurinn sýndi þarna
Ijósmynd af Stöðvarhúsinu við
Þjórsá, en það hefur hann
skreytt, og gert styttur fyrir um-
hverfið. Þar er áttatíu metra
langur veggur, myndskreyttur,
og er skreyting sú fjögra og
hálfs metra há. Fyrir ofan inn-
göngudyr er önnur mynd, sem
er þrír og hálfur metri á hæð,
auk mynda sem settar munu upp
utanhúss, en ekki er enn búið
að velja stað fyrir þær.
Þrjú ár eru síðan Sigurjón
hélt sýningu hér síðast. Þessi
sýning í Unuhúsi verður, sagði
Ragnar Jónsson, fyrst um sinn
opin frá tvö e.h. til tíu e.h.,
daglega, og verður opin fram
yfir páska.
„CONFEXIM
Ríkisútflutningsfyrirtæki,
Sienkiewicza 3/5
L ó d z
Sími: 28-533, Telex: 88-239,
Símnefni: Confexim — Lódz.
CONFEXIM er aðalútflytjandi Póllands á:
— Tilbúnum fatnaði og rúmfatnaði
— prjónavörum og sokkum alls kyns,
— gólfteppum og ábreiðum,
einnig
— höttum og smávörum til fata
og alls konar vefnaðar — tízkuvarningi.
Allar okkar framleiðsluvörur eru 1 háum metum
meðal viðskiptavina víðsvegar um heim og skera sig
úr vegna:
— styrkleika,
— að þær eru af nýjustu tízku
— og með nýjustu sniðum
— og framleiddar af frægustu fagmönnum.
Fullkomin gæði og útlit eru tryggð með stöðugri
samvinnu við vísindalegar rannsóknastofnanir, og
við helztu tízkumiðstöðvar.
Allar frekari upplýsingar fást hjá umboðsmönnum
okkar á íslandi.
ÍSLENZK- ERLENDA
VERZLUNARFÉLAGINU HF.
Tjarnargötu 18, Reykjavík, P. O. Box 509,
Símar: 20400 og 15333.
Símnefni: ICETRADE.
- ÍSBREIÐAN
Framhald af bls. 32
landi væri einnig mjög þétt ís-
breiða, en ísröndin byrjaði að
mjókka suðaustur undir Gerpi
og endaði um 18 mílur suðvestur
af Hvalbak. Væri siglingarleiðin
á þessum slóðum hættuleg og erf
ið. Út af vestanverðu Norður-
landi var ástandið óbreytt frá
fyrri ísflugum, að sögn Gunnars,
og norðaustur af Óðinsboða væri
18-20 mílna svæði alveg lokað.
Sáu slóðir eftir tvo ísbimi
Fréttaritari Mbl. í Neskaup-
stað símaði og sagði, að þar hefði
ísinn í gær virzt vera minni en
á sunnudag, og samkvæmt upp-
lýsingum manna, er fóru þaðan
í ísflug, væri ísinn um 2 til 3/10
suður undir Gerpi. Hefur ísinn
nú rekið eitthvað frá og þar með
einnig ísbjörninn, sem skipverj-
arnir á Esju sáu. Tvö skip komu
til Norðfjarðar í gær, rússneskt
og þýzkt, og sóttist ferðin þeim
sæmilega.
Þá ræddi Mbl. við Tryggva
Blöndal, skipstjóra á Esjunni en
þá var skipið statt út af Breið-
dalsvík. Var ísinn þar með þétt-
aramóti, er komið var þar suð-
ur, og skipið nær stöðvað af þeim
sökum. Var skipið búið að vera
12 klukkustundir frá Neskaup-
stað og suður á móts við Breið-
dalsvík, sem venjulega er um
þriggja tíma sigling. Tryggvi
sagði, að skipverjar hefðu hvergi
séð til ísbjarnarins í gær, en
hins vegar rekist á slóðir, sem
gætu verið eftir tvo birni.
Skortur á nauðsynjavörum í
mörgum höfnum
ísinn hefur víða lokað höfn-
um bæði á Norðurlandi og Aust-
urlandi, og á nokkrum stöðum
gerir skortur á nauðsynjavörum
vart við sig. Er orðið talsvert al
varlegt ástand af þessum sökum,
bæði á Raufarhöfn og á Seyðis-
firði. Einnig er farið að bera á
vöruskorti á Vopnafirði. Frétta-
ritari Mbl. þar kvað ísinn loka
Vopnafirði á móts við Fagradal,
og eru engar samgöngur við
Vopnafjörð eins og er. Olía er
til þar fram í miðjan mánuðinn,
en þrjóti hana verður bæði ljós-
laust og hitalaust á Vopnafirði,
þar eð dísilrafstöð og kyndinga-
tæki flestra ganga þar fyrir raf-
magni.
Reyna að sprengja rennu út úr
Húsavíkurhöfn
ísspöngin sem landföst hefur
verið framan við Húsavíkurhöfn
og lokar innsiglingu, er enn ó-
1 breytt. Vírarnir sem strengdir
hafa verið fyrir hafnarmynnið
halda höfninni hafíslausri, en
mannheldur lagís var á henni í
gær og fyrradag. í gærmorgun
var hafizt handa um að sprengja
með dínamiti rennu frá höfninni
og út í gegnum spöngina. Var
stanzlaust unnið að þessu í all-
an gærdag, og er hún nú orðin
500 metra löng. Þegar rennan hef
ur verið fullgerð munu bátar
fara út til að reyna að finna
eitthvað af þorskanetum, sem í
sjó liggja vestur undir Kinna-
fjöllum, en Skjálfandaflói er að
mestu leyti íslaus þessa stundina.
Töluverð áhætta fylgir því að
fara út með bátana, því alltaf
má gera ráð fyrir því að renn-
an lokist.
Skolphreinsun
Losa um stífluð niðurfallsrör.
Niðursetningu á brunnum. —
Smáviðgerðir. Vanir menn.
Sótthreinsum að verki loknu.
Sími 23146.
Hnsgögn
klæðningnr
Svefnbekkir, sófar og sófasett.
Klæðum og igerum við bólstr-
uð húsgögn.
Bolstrun Samúels Valbergs,
Efstasundi 21 - Sími 33613.