Morgunblaðið - 09.04.1968, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968
M. Fagias:
FIMMTA
KOJVAN
hafði hún forðazt alla umhugs-
un um þessa nótt, rétt eins og
hún væri hrædd við að auka
á auðmýkingu hennar, ef hún
lyfti þessari dularhulu, sem um-
lukti þær. En nú lét hún þær
líða fyrir augu sér eins og at-
riði í óhugnanlegri kvikmynd
og allt í einu fannst henni eins
og hún væri komin nær móður
sinni en nokkurntíma áður. Ekki
vissi hún, hversvegna, en henni
fannst sín eigin niðurlæging
drægi nokkuð úr sársaukanum
af síðustu sundum móður hennar
Hún hafði þráð frelsi sveita-
lífsins öll þessi þrjú ár, sem
hún hírðist í rústunum með
frænku sinni. Hún hafði hugsað
sér að hámark allrar sælu væri
að geta séð sólina og tunglið
koma upp, út um gluggann sinn.
Nú tók hún varla eftir útsýn-
inu, og sæti hún hálfa nóttina
úti á garðhjallanum og starði á
tunglið, þá var það aðeins til
þess gert að þurfa ekki að liggja
við hliðina á elskhuga sínum,
sem svaf vært.
Þær stundir, sem þau voru úti
við, voru sízt betri og þar kom,
að hún fór að þrá að komast
aftur til frænku sinnar.
Albert Filler tók vel eftir
þessum einmanaleik hennar, en
eignaði hann bara innri óráa,
sem gripi stúklur, þegar þær
hefðu misst meydóm sinn. Hann
var afskaplega glaður og hreyk
inn af því að hafa verið fyrsti
elskhugi hennar. Alexa Mehely
var eftirsóknarverðasta mann-
vera, sem hann hafði nokkurn-
tíma þekkt, og stórbóndadóttir-
in frá Hangony í þokkabó. Þetta
var meiri sigur fyrir hann en
Lenínverðlaunin hefðu verið.
Þau sneru aftur til Budapest
og hún settist að hjá honum,
enda var ekki í annað hús að
venda. Eitthvað dróst það, að
hún yrði tekin inn í háskólann,
en það var af því, að það kost-
aði aðstoð ráðherrans og Albert
gat aldrei náð í hann á heppi-
legum tíma. Fáum vikum seinna
var hann tekinn fastur. Menn
úr leynilögreglunni börðu að
dyrum um miðja nótt og tóku
hann í rúminu, Og þá var það,
sem hún sá hann, lafhræddan
og skjálfandi, rétt eins og loft-
belg, sem gasið hefur streymt
út úr, í náttjakkanum einum sam
an, Hkastan einhverri lítilli
svartri bjöllu, sem lögregluríkið
var að kremja undir hæl sínum.
Seinna komst hún að því, að
hann hafði orðið fórnarlamb
einhverrar umbyltingar á hæstu
stöðum í flokknum. Ráðherran
hafði oltið úr sessi og tekið Al-
bert með sér í fallinu. Árum
saman hafði Alexa enga hug-
mynd um, hvort hann væri lif-
andi eða dauður — ekki fyrr en
1955, er hann kom aftur fram
á íjónarssvið líjórn; n’álanna.
En nú var hún búin að ná prófi
í lífefnafræði við háskólann í
Budapest og auk þess vellaun-
aða stöðu í lyfjaverksmiðju, og
aftók nú að hitta hann aftur.
Sá maður, sem loksins tókst
að koma henni inn í háskólamm,
var úr hinni sigursælu klíku
flokkspólitíkusa, sem sat að vold
um til vors 1956. Hann var á
sextugs aldri, kvæntur og önn-
um kafinn og krafðist því hvorki
mikils tíma né atlota af henni.
En þar eð hún hafði engan
áhuga þá á neinum öðrum karl-
manni, var þetta samband þeirra
henni mjög þægilegt, einkum nú
er hún hafði gert sér þessa lifn
aðarhætti að góðu. Hún taldi þá
hvorki siðlausa né lastafulla.
Og það alveg án tillits til þess,
að hún hafði ekki átt annars
úrkosta. Það umhverfi, sem hún
nú lifði í, krafðist þess af henni
sem þess verðs, sem gjalda varð
fyrir viðunanlega stöðu, tiltölu-
legt öryggi og helztu lífsnauð-
synjar. Vitanlega hefði hún get
að neitað að gjalda það verð,
en það hefði þýtt, að hún hefði
orðið að fara aftur í niðursuðu
verksmiðjuna, eða þá í einhverj
ar vinnubúðir. Loks kom til
mála sá möguleiki að giftast, en
úr því að hún gat ekki fundið
neinn mann sem hún gæti elsk-
að, var eins gott að vinna fyrir
sér og varðveita sjálfstæði sitt,
sem var áunnið með svo mikl-
um erfiðismunum.
En hún var ekki kærulaus
um sjálfa sig og skipti ekki um
elskhuga oftar en nauðsyn
krafði. Hinn síðasti þeirra var
Borbas. En svo sleit hún sam-
vistum við hann, þegar hún sá
Zoltan Hamly og varð ástfangin
af honum. Þau hittust fáum vik-
um eftir að hún hóf störf á sjúkra
húsoinu. Hann hafði orð á sér fyr
ir hreinlífi, að minnsta kosti hvað
það snerti að vera of nærgöngull
kvenfólkinu, sem þarna vann.
Nokkrar konur höfðu ögrað sjálf
stæði hans, en engri þeirra tókzt
að vinna bug í þessari kulda-
legu hlédrægni hans, sem hann
viðhafði einnig gagnvart karl-
mönnunum, sem unnu með hon-
um, svo að þeir gerðust honum
aldrei of nærgöngulir. Þegar
þeir fóru að sálgreina hannmeð
sjálfum sér. komust þeir að
þeirri niðurstöðu, að hann væri
trúr eiginmaður, enda þótt hann
hefði aldrei konuna sína með
sér í samkvæmi. Þeir fáu sem
þekktu frú Halmy, viðurkenndu
að hún væri sérlega aðlaðandi
kona, og gerðu sér því að góðu
þessa skýringu sína.
Alexa vakti áhuga hans, strax
í fyrsta sinn, sem hann sá hana
í matstofunni. Þegar þau loks-
fSIPOWEXl LÉTTSTEYPUVEGGIR
í ALLA INNVEGGI
Fljótvirk og auðveld
uppsetning.
Múrhúðun | )
óþörf.
HELENA RUBINSTEIN
Nýjar
vorur
^ruiJzXttrutA. f friylítVóUi >
Austurstræti 16 — Sími 19866.
Vinsælar fermingargjafir
Skóútbúnaður
Skautar frá kr. 770.—
Útivistartöskur
Svefnpokar
Tjöld
Ferðagastæki
Veiðistangasett
Instamatic Ijósm. vélar
Sjónaukar o. fl.
VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER.
VERZLIÐ ÞAR SEM HAGKVÆMAST ER.
Laugavegi 13.
ins kynntust — enda þótt hann,
þótt ótrúlegt væri hefði heldur
reynt að forðast hana en hitt
— hafði hann góðar reiður á
allri fortíð hennar, eða að
33
minnsta kosti þær, sem starfslið
ið þarna þekkti. Fyrsta sinn sem
þau voru saman, talaði hann
við hana í sama kumpánlega
tóninum, sem menn nota við hálf
baldna krakka, sem jafnframt
eru eitthvað töfrandi. Hann sak
aði hana aldrei um vafasama for
tíð hennar, sagði aldrei: „Hvers
vegna gerðirðu það?“, eða
„Hvernig gaztu fengið það af
þér?“, en kom miklu fremur
fram við hana með góðlátlegri
hæðni, rétt eins og hahn væri
að tala um löngu liðin barna-
brek, eins og að naga neglur
eða væta rúmið. Og samt gat
hún með því að hlusta vand-
lega á hann, tekið eftir ofur-
lítilli beizkju i þessari stríðni
hans, og því meir sem þau
nálguðust hvort annað, því aug
ljósari varð þessi beizkja.
— Hann sagði, að það hefði
verið hann, sem beitti brögðum
til að koma þér inn í háskól-
ann. Halmy átti alltaf við Al-
bert Filler.
— Það er nú bölvið lygi.
sagði Alexa og röddin var harð
ari en hún ætlaði henni að vera.
— Það geturðu sagt honum næst
þegar þið hittist.
Og hann sendi henni eitt þess
ara augnatillita, hálfhlæjandi
og hálfrannsakandi, sem hún
bæði óttaðist og særðist af.
—Gott og vel, það skal ég
segja honum sagði hann og þrýsti
andlitinu á hálsinn á henni. —
Guð minn góður, hvað þú ilmar
vel. Eg var næstum búinn að
gleyma, að nokkur gæti þefjað
af öðru en svita og grefti.
Hún slappaði af og sælutil-
finning streymdi um hana alla.
Þetta var eins og að liggja í
baðkeri, sem fylltist hægt og
hægt af volgu vatni.
— Ég vildi gjarna fara eitt-
hvað út með þér í kvöld, sagði
hann, — Heyra svolítinn jazz,
dansa, drekka mig fullan, Og
svo er hvergi opið í þessum and
styggðar bæ. Er þetta ekki
9. APRÍL.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Þú hefur tilhneigingu til að sækjast um of eftir völdum og
vilt heldur stjórna en láta stjórna þér. Reyndu að skilja, að
þú veizt ekki alltaf bezt.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Allt virðist ganga á afturfótunum í dag, en það eru tíma-
bundnir erfiðleikar, sem þú skalt ekki kippa þér upp við.
í kvöld getur brugðið til beggja vona. Hlustaðu á góða tónlist.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Allt virðist fara á ^nnan veg en þú hafðir gert ráð fyrir og
ýmsar ráðstafanir þínar fara út um þúfur. Ættingjar þinir eru
skapstyggir.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
í dag reynir á kænsku þína í ýmsum málum. Þú mátt vel við
una við árangur þann sem næst. Ofmetnastu ekki. Reyndu að
gera upp við þig hvaða stefnu er bezt að taka.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þú verður var við umhyggju og samúð hjá þínum nánustu og
skalt meta hlýhug þeirra að verðleikum og reyna að endur-
gjalda það þegar betur stendur á.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. september.
Þú átt erfitt með að líta raunsæjum augum á hlutina og það
getur staðið þér fyrir þrifum i dag. Þú færð fréttir frá fjar-
stöddum vinum, sem gleðja þig.
Vogin 23. september — 22. oktober.
Nágrannar þínir eru erfiðir í dag og máttu taka á allir skap-
stillingu þinni til að forðast deilur. Þú færð ánægjulegar fréttir
í pósti I dag.
Drekinn 23. oktober — 21. nóvember.
Reyndu að halda starfi og samkvæmislífi aðskildu í dag, ella
getur allt farið upp í loft. Vertu viss um vilja þinn áður en
þú ákveður þig.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Þú skalt ekki fiska eftir hóli og gullhömrum nema þú sért
viss um þú eigir slíkt skilið. Heppilegt að skipuleggja ferðalög
næsta sumar.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þú skalt greiða skuldir þínar og vera síðan gætnari í peninga-
málum. Farðu að ráðum, sem góður vinur gefur þér. Vertu
heima við í kvöld og taktu lífinu með ró.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Dagurinn verður sérlega ánægjulegur, einhver sá bezti um
langan tíma. Gefðu gaum að þvi sem maki þinn eða náinn
ættingi hefur til málanna að leggja.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Verk þín bera góðan ávöxt í dag og skaltu gleðjast yfir þvl
og ofmetnast hvergi. í kvöld skaltu unna þér hvíldar og bjóða
ef til vill fáum og góðum vinum heim.