Morgunblaðið - 09.04.1968, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 196'8
31
Rúmenar
sigruöu
RÚMENSKA liðið Steaua í Ruka
rest vann Evrópubikar hand-
knattleiksmanna. f úrslitaleik,
sem fram fór í Frankfurt, mætti
rúmenska liðið Dukla Prag, og
vann með 13 mörkum gegn 11.
Leikurinn fór fram á laugardags-
kvöldið. í hálfleik var staðan 7-6
Rúmenum í vil.
8'000 manns sáu leikinn.
Úrslit í kvöld
í KVÖLD fara fram að Háloga-
landi úrslit íslandsmótsins í
handknattleik hjá 3. flokki karla,
2. fl. kvenna og 1. flokki kvenna.
Annað kvöld verða tveir leikir
leiknir í 1. deild í Laugardals-
höll. KR leikur við Fram og
vinni Fram hefur félagið unnið
mótið. Hinn leikurinn er milli
Hauka og Víkings.
Bikgir Ö. Birgis.
Birgii Birgis kosinn bezti körfu-
knnttleiksmnður 1. deildur
Mynd þessi var tekin á Keflavíkurflugvelli, þegar þjóðarsorg
ríkti í Bandaríkjunum vegna morðsins á Martin Luther King.
Þar blöktu fánar íslands, Bandarikjanna og NATO í hálfa stöng.
Gnðmundnr Þór Pnlsson kosinn
formnður Arkitektnfélngsins
Bandaríkjamaðurinn Dave Zin-
koff frá liðinu Philadelphia 76
ers, liefur gefið verðlaunagrip
handa „Most Valuable Player“
á fslandsmótinu í ár.
Slíkar verðlaunaveitingar eru
algengar erlendis, en hafa ekki
tíðkast hér á landi fyrr.
Venjulegustu leiðirnar til að
velja „MVP“ eru annaðhvort að
kjósa verðlaunahafa eða þá, að
leikmenn sjálfir greiða atkvæði
um, hver úr þeirra hópi sé verð-
ur þessari heiðursviðúrkenningu
Stjórn K.K.Í. hefur valið þá
leið, að fá leikmenn 1. deildar
til að velja bezta körfuknattleiks
mann fslandsmótsins 1968. At-
kvæðagreiðslan, sem var leyni-
leg hefur farið fram og var taln-
ing atkvæða gerð á stjórnar-
fundi K.K.Í. á fimmtudagskvöld
s.l.
Efsti maður á atkvæðaseðlin-
um hlaut 5 stig, annar 3 stig
og þriðji 1 stig.
Flest atkvæði hlaut hinn
reyndi körfuknattleiksmaður frá
Ármanni, Birgir Örn Birgis, en
ÞESS verður skammt að bíða að
Danir og íslendingar mætist aft-
ur í tveim landsleikjum í hand-
knattleik, og þá verður meira í
húfi en var nú um helgina. Lands
lið þjóðanna hafa verið dregin
saman í riðil í undankeppni HM
keppninnar næstu. Þriðja landið
í riðlinum er Belgia, sem talið
er veikt „handknattleiksland“.
16 lönd komast í lokakeppnina
sem fram fer í Frakklandi.
Landslið gestgjafanna, Frakka,
heimsmeistaranna, Tékka, taka
ekki þátt í undankeppni og held
ur ekki Japan, MaTokko og sig-
urvegari í leik USA/Kanada.
Aðrar þjóðir berjast um 11 sæti
og skiptast þarrnig í riðla:
1. Danmörk, fsland, Belgía.
2. Rúmenía, Austurríki og Búlg-
aría.
3. Sovétríkin, Pólland, ísrael.
4. Svíþjóð, Noregur, Finnland.
5. V-Þýzkal. Spánn, Portúgal.
6. Júgóslavía, Sviss, Luxemborg
7. Ungverjaland, A-Þýzkal. og
Holland.
Ákveðið er að í hverjum riðli
komist sigurvegarinn beint í loka
hann hlaut alls 108 stig. Næstir
honum voru:
Gunnar Gunnarsson K.R. 95 stig
Guttormur Ólafsson K.R. 46 stig
Þorsteinn Hallgrímss. Í.R. 42 stig
Kolbeinn Pálsson K.R. 27 stig.
Aðrir hlutu færri en 18 stig
og voru allls 44, sem greiddu
atkvæði.
ÍSLAND1968
Verðiaunagripurinn verður
afhentur Birgi í leikhléi á POL-
AR CUP mótinu um páskana nk.
ld. mynd.
keppnina, nema í 7. riðli, þar sem
tvö efstu lið komast áfram. Síð-
an berjast þau lönd sem verða
nr. 2 í hverjum hinna riðlanna
og mætir land nr 2 í 1. riðli og
nr. 2 í 2. riðli, í öðrum leik nr.
2 í 2. riðli og 2. í 5. riðli og loks
nr. 2 í 3. riðli og 2 í 4. riðli.
Má telja hlut íslands nokkuð
góðan. Hugsanlegt er að komast
beint í úrslitin með því að sigra
Dani, en annars ætti leikur gegn
Sviss — sem sennilega verður nr.
2 í 6. riðli, ekki að verða íslend-
ingum ofraun, þó engu verði
slegið föstu fyrirfram.
Jim Glark lét
lífið í keppni
JIM Clark fyrrum heimsmeistari
í kappakstri lézt í kappakstur-
keppni í nánd við Stuttgart s.l.
sunnudag. Bíll hans fór skyndi-
lega út af brautinni og á fullri
ferð inn í skóginn til hliðar og
þar rakst hann á tré með þeim
Gripu þjófinn um
borð í búti
BROTIZT var inn í verzlunina
Raforku á Grandagarði aðfara-
nótt sunnudagsins. Þjófurinn,
sem stal útvarpstæki og plötuspil
ara, brauat inn um glugga að
húsabaki. Lögreglan handtók
manninn skömmu síðar um borð
í bát í Reykjavíkurhöfn, þar sem
bæði tækin fundust, og játaði
hann því strax þjófnaðinn.
Árshútíð Homro-
hlíðorskólons
MENNTASKÓLINN við Hamra-
hlíð heldur árshátíð sína í kvöld
í Lido. Dagskrá hátíðarinnar er
fjölþætt og m.a. eru tveir leik-
þættir, sem eru tileinkaðir striði.
Leikþættirnir heita: „Skemmti-
ferð um vígvöllinn“, og „Við
í sláturhúsinu". Árshátíðin hefst
kl. 9, en húsið er opnað kl. 8 og
miðar eru seldir við inngang-
1 inn.
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 30
aldrei rönd við reist ofuraflinu,
þótt það berðist vel, af danskri
samstillingu og danskri þrá—
kelkni. Beztir voru þeir Gra-
versen (8), Per Svendsen (5)
að ógleymdum Mortensen í mark
inu.
Dómarinn Patterson dæmdi lít
ið, leyfði margt, sem aldrei er
leyft í handknattleik, en var nú
engan veginn hlutdrægur.
Mörk íslands: Jón Magnússon
5, Geir Hallsteinsson 4 (2 úr
víti) Sigurbergur 2, Sig. Einars-
son, Þórður Sigurðsson, Ingólfur
og Björgvin Björgvinsson 1 hver.
Mörk Danmerkur: Graversen
4, Carsen Lund 3, Per Svend-
sen 2 og Frandsen 1.
A.ST.
Sagt eftir leikinn.
Eftir sigurleik ísl. liðsins
gegn Dönum á sunnud. sagði
fararstjóri danska liðsins, Per
Theilmann:
„Sigurinn var verðskuldað
ur, á því leikur enginn vafi.
Það var betra liðið sem sigr-
aði. fslendingar sýndu meiri
sigurvilja, og áttu mun betri
markskot en okkar menn.
Dómarinn missti að nokkru
tök á leiknum, en það réði
ekki um úrslitin".
Þjálfari danska liðsins Hans
Jenssen sagði:
„Það skorti nokkuð á að
danska liðinu tækist að nýta
sín tækifæri. fslenzku piltam
ir léku mjög hressilega og
baráttuvilji þeirra var ódrep
andi“.
afleiðingum að Clark lézt sam-
stundis. Enginn annar bíll var í
námunda við slysstaðinn.
Fyrir 3 mánuðum vann Clark
sitt 25. Grand-Prix hlaup og setti
þar með met. Áður hafði hann
unnið ótal keppnir, m.a. heims-
meirarakeppnina 1963 og 1965.
1960 réðist hann til Ford og ók
Lotusmódeli verksmiðjanna og
fór frægðarför víða um heim.
Clarkes er víða minnzt um
heiminn sem sannri hetju og
hugdirfskukappa.
AÐALFUNDUR Arkitektafélags
íslands var haldinn í byrjun
febrúar sl. f stjórn félagsins eru
nú: Guðmundur Þór Pálsson for-
maður, Ólafur Sígurðsson ritari,
Guðmundur Kr. Guðmundsson
gjaldkeri og Guðmundur Kr.
Kristinsison, meðstjórnandi. 13
nýir félagar bættust í starfshóp-
inn á síðasta ári.
Síaukin aðsókn og eftirspurn
eftir sýningarbásum hefur verið
hjá Byggingaþjónustu félagsins
að Laugavegi 26. Gunnlaugur
Halldói-sson, arkitekt, hefur ver-
ið formaður Byggingaþjónust-
unnar frá upphafi.
Miðstöð alis undirbúnings að
Norræna byggingardeginum (Nor
disk byggedag) hefur verið í
húsakynnum Arkitektafélagsins,
en búizt er við 600-800 erlendum
gestum. Gunnlaugur Halldórsson
er aðadritari samtakanna hér á
landi, en Hörður Bjarnason, húsa
meistari ríkisins, er formaður
þeirra. Fulltrúi Arkitektafélags-
ins hjá N.B.D. er Manfreð Vil-
hjálmsson, arkitekt. Ólafur Jens-
- NETABÁTAR
Framhald af bls. 32
ustu 3-4 daga. Hæsti báturinn,
sem landaði á sunnudag var Geir
fugl með 50 tonn af einnar nátta
fiski en Albert var með 44
tonn. Þann dag lönduðu 50 bát-
ar i Grindavík og voru þeir með
allt niður í átta tonn. Geirfugl
er langaflahæstur þeirra báta,
sem leggja upp í Grindavík, en
á laugardag landaði hann 76
tonnum. Er báturinn nú búinn
að fá 810 tonn en þrír aðrir bát-
ar eru næstir honum með um
700 tonn. — Hrafn III., Albert og
Arnfirðingur. Trollbátar lönduðu
á sunnudag í Grindavík frá 4
upp í 14 tonn. Engir línubátar
lönduðu þann dag, en í sl. viku
lönduðu nokkrir keflvískir línu
bátar 8-17 tonnum, sem er dágóð
ur afli.
Til Þorlákshafnar komu 18 bát
ar á sunnudag, og var haesti bát
urinn — Gissur ÁR-75 — með
34 tonn, en netabátarnir voru
annars með frá 6 tonnum upp í
30 tonn. Tveir trollbátar lönd-
uðu 10 og 8 tonnum, en engir
línubátar.
Keflavíkurnetabátarnir hafa
flestir haldið sig í bugtinni og
afli verið tregur, mest 21 tonn.
Eru nú margir þeirra farnir af
stað á Selvogsbanka. Sex bátar
frá Akranesi hafa stundað veið-
ar á Selvoginum og lönduðu þeir
frá 50 upp í 70 tonnum af tveggja
nátta fisk í fyrrádag á Akranesi.
son, fulltrúi hjá Byggingaþjón-
ustu A.Í., er skrifstofustjóri við
undirbúning ráðstefnunnar.
í tengslum við ráðstefnuna
verður haldinn hér stjórnarfund-
ur allra arkitektafélaganna á
Norðurlöndum.
Þá segir í fréttatilkynningu frá
A.Í., að mikið af starfi stjórn-
arinnar fari í að halda á réttinda-
málum félagsins og félagsmanna.
Á s.l. ári hafi utanfélagsmanni
verið gefin heimild með ráð-
herrabréfi til að nota starfsheit-
ið arkitekt. Telur félagið það al-
varlegt mál sem fordæmi, en
vonast til að því verði kippt í
lag, eins og komizt er að orði.
Arkitektafélagið og Félag
ráðgjafaverkfræðinga vinna nú
að því í sameiningu að gera
ályktun um samstarf starfssviðs
og starfekiptingu stéttinna inn-
byrðis.
- ÍSRAELSMENN
Framhald af bls. 1
í Amman er sagt, að jór-
danskir hermenn hafi hrakið á
flótta ísraelska hermenn, sem
sótt hafi inn yfir vopnaihléslín-
una. Jórdanskur talsmaður
sagði, að ísraeismenn hefðu ekki
náð tilgangi sínum. Hann bætti
því við að enginn Jórdaníu-
maður hafi særzt.
Sagt var, að ísraelsk skrið-
drekadeid hefði ráðizt rmeð
stuðningi flugvéla og þyril-
vængja yfir vopnahléslímma um
50 km sunnan við Dauðahaf eftir
orrustu stórskotaliðs og stríðs-
vagna á Kraymiahsvæði í miðj-
um Jórdandal. Skipzt var á skot-
um í um tvo og hálfan tima í
Kraymeh og Abou Al-Sous. Jór-
daníumenn segjast hatfa þaggað
niður í fallbyssum ísraelsmanna,
sprengt í lotft upp skotfæra
geymslur og eyð lagt hertflutn-
ingabifreið.
í Tel Aviv er sagt, að isra-
elskir hermenn hatfi í morgun
rekizt á hóp arabískra skemmd-
arverkamanna á Eilat-svæðinu,
liðsauki hafi verið sendur á
vettvang og þegar skemmdar-
verkamennirnir hafi reynt að
hörfa yfir landamaerin til Jór-
daníu, hafi hermenn verið flutt-
ir í þyrlum yfir vopnahléslín-
una, þar sem þeir hatfi sprengt
aðalstöðvar skemn»darverka-
mannanna í loft upp og náð á
sitt vald vopnum og skjölum.
Jórdaníustjórn kærði ísraels-
menn fyrir Öryggisnáðinu í
kvöld og sakaði þá um árásar-
aðgerðar. Þess var ekki krafizt
að ráðið héldi fund um raálið.
Danir og Islending-
ar mætast aftur
- ■/ undanrásum heimsmeisfarakeppni