Morgunblaðið - 31.05.1968, Síða 1
32 SIÐIiR
112. tbl. 55. árg.
FÖSTUDAGUR 31. MAI 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins
TEKUR HANN SÉR ALRÆÐISVALD?
De Gaulle rýfur þing og varar við hættu á ein-
ræði kommúnista
Stjórnarandstæðingar
vara við borgarastyrjöld
París, 30. maí. AP-NTB.
• De Gaulle fyrirskipaði í dag þingrof og nýjar kosningar
og varaði þjóðina við því að hann neyddist ef til vill til að
gera aðrar ráðstafanir ef vandræðaástandið í landinu héldi
áfram. Með þessu er talið, að hann hafi varað við því að hann
kunni að taka sér alræðisvald.
• Forsetinn sagði, að hætta á „kommúnistaeinræði“ vofði
nú yfir frönsku þjóðinni og hann hefði alls ekki í hyggju að
segja af sér eða víkja Georges Pompidou forsætisráðherra
og stjórn hans frá völdum. I stjórnarskránni er forsetanum
heimilað að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir að höfðu
samráði við forsætisráðherra, ef truflun verður á eðlilegu
starfi þingræðislegrar stjórnar.
Novotny rekinn úr
kommúnistaflokknum
Prag, 30. maí AP. NTB.
MlðSTJÓRN tékkneska komm-
únistaflokksins ákvað á fundi
sínum i gær að reka Antonin
Novotny, fyrrv. forseta lands-
ins, úr kommúnistaflokknum og
þar með einnig úr miðstjórninni.
Sex aðrir háttsettir embættis-
menn voru reknir úr flokknum
„um óákveðinn tíma“ meðan fer-
ill þeirra verður rannsakaður
og athugað hverja ábyrgð þeir
bera á ofsóknum og pólitískum
Ótryggt óstond
í V-Þýzknlondi
Bonn, 30. maí. NTB.
ÓTRYGGT ástand ríkir í Vest
ur-Þýzkalandi þar sem stúd- {
entar hafa lagt undir sig
marga háskóla til að mót-
mæla nýjum lögum sem sam-
bandsþingið samþykkti í
þess efnis, að stjórnin fái sér-
stök völd ef til hættuástands
kemur. I Frankfurt ruddi lög-
regla háskólann, sem stúdent-
ar hafa haft á sínu valdi í
nokkra daga, og háskólanum í '
Giessen var lokað. 1 Köln lok 1
uðu stúdentar götum sem |
liggja til háskólans, og í Heid (
elberg ráku hægrisinnaðir
stúdentar vinstrisinnaða stúd !
enta, sem lokað hafa leiðum |
til háskólans, á flótta. 1,
Múnchen, Bonn og Hamborg
ruddust stúdentar inn í leik- !
hús til að kappræða við áhorf |
endur um hættuástandslögin.
1 Bonn varð Lúbcke forseti'
að fara úr óperunni um neyð ‘
arútgang þar sem stúdentar |
börðust við lögreglu við aðal- |
innganginn.
réttarhöldum á hendur saklausu
fólki. Meðal sexmenninganna er
einn fyrrverandi forsætisráð-
herra Dilen Sirokyn.
Ákvörðun þessi var birt að
loknum miðstjórnarfundi, sem
þeir sátu báðir Novotny og Dub
eck aðalritari kommúnistaflokks
ins, sem mesta forgöngu hefur
haft um að veita nýju lofti inn
í tékknesk stjórnmál að unöan-
förnu. Á fundinum var og sam-
þykkt að kveðja saman aukafund
í september til að staðfesta
hina nýju stefnu tékknesku
stjórnarinnar. Dubcek sagði, að
flokkurinn væri staðráðinn í að
losa sig við þá menn, sem bæru
ábyrgð á margvíslegum pólitísk-
um afglöpum og ofsóknum frá
fyrri árum. Litið er á samþykkt
miðstjórnarinnar sem ótvíræðan
sigur fyrir Dubcek og óhang-
endur hans. Þó virðist ekki á
döfinni neinar skyndilegar að-
gerðir gegn Stalínistum sem enn
gegna ábyrgðarstöðum í Tékkó-
Framhaid á bls. 2
De Goulle
snýr nftur
De Gaulle forseti kemur til .
Elysee-hallar ásamt konu
sinni frá sveitasetri sínu I
í Colombey-les-deux-Eglises.
Skömmu síðar hélt de Gaulle ,
fund með stjórn sinni og að
honum loknum ávarpaði hann I
bjóðina í útvarpi.
# Leiðtogi Vinstriflokkabanda-
lagsins, Francois Mitterand talaði
skömmu eftir að forsetinn hélt
ræðu sína að hann hefði hvatt
til borgarastyrjaldar. „Þjóðin hef
ur heyrt rödd einræðisins tala.
Louisville, Kentucky 30. maí.
NTB.
TVEIR negrar voru drepnir í
Louisville í gærkvöldi, þegar kyn
þáttaóeirðir blossuðu upp þriðja
daginn í röð. Negrarnir voru
skotnir fáeinum klukkustundum
eftir að 500 þjóðvarðliðar höfðu
verið kvaddir aftur til búða
sinna. Talsmaður lögreglunnar
segir, að þeir hafi verið skotnir
við gripdeildir í verzlunum.
Slíta jafnaöarmenn
stjórnarsamstarfi?
Rómaborg, 29. maí. NTB.
STJÓRN ítalska sósialista
flokksins gerði þá samþykkt á
miðvikudag, að flokkurinn hætti
starfi í samsteypustjórn mið- og
vinstri flokkanna, sem hafa far-
ið með völd á Ítalíu síðustu
fimm ár. Sósíalistaflokkurinn
missti verulegt fylgi í kosning-
unum nýverið, en foringi hans
er Pietro Nenni, sem vill halda
áfram stjórnarsamvinnunni.
Heimildir innan flokksins vís-
uðu því á bug, að samþykktin
hafi að markmiði að koma á
stjórnarkreppu í landinu. Mið-
stjórn flokksins mun ræða sam-
þykktina á fundi á föstudag og
verður að samþykkja hana, til
að hún öðlist gildi. Stjórnmála-
sérfræðingar segja að þetta
muni gera kristilegum demókröt-
um erfitt fyrir um myndun minni
Framhald á bls. 23
Leitin að Scorpion:
Dularfulít kallmerki
ekki irá týnda kafbáfnum
Nortfolk, Virginia, Watlhiingiton,
30. maí AP—NTB.
HIN umfangsmikla leit að banda
ríska kjarnorkukafbátnum
„Scorpion" jókst enn í gær, eft
ir að bandarísk eftirlitsflugvél
yfir Atlantshafi heyrði merki kl.
00,28 ) fyrrinótt að ísl. tíma,
sem talin voru frá kafbátnum.
Sex flotaskip heyrðu einnig
merkin sem talin voru einkenn
istákn hins týnda kafbáts.
Síðla dags í gær sendi banda
ríska flotamálaráðuneytið frá
sér tilkynningu þess efnis, að
víðtæk leit hafi verið haldið
uppi á þeim svæðum, sem líkleg
þóttu, en enginn árangur orðið.
Ekkert hafi komið fram, er
sanni á nokkurn hátt að skeytið
hafi verið frá „Scorpion". Því
hafi beinni leit að upptökustað
merkjanna verið hætt.
Talið var, að merkin kæmu
frá stað sem væni um það bil
110 sjómílur auistur af Norfolk.
Dýpt.in á því svæði er 210 metr
ar og glædidust vonir um bjöcng
un um skeið. Annar kjarnorku-
kiniúinn ka.fbátur „Lapon“ heyrði
einnig mierkin, en af mæilingum
hams ex áætlað að Seorpálon
hliyti að vera á minmsita kosti
4.500 metra dýpi. Kalkmarikin
sem heyrðust hljóðuðu svo: „til
Framhald á bls. 2
Þjóðin mun kveða niður þessa
rödd. Þjóðin mun innleiða frelsi
á ný. Lýðveldissinnar sameinist.
Lengi lifi lýðveldið,“ sagði Mitter
and. Hann sagði að stjórnarand-
stæðingar mundu svara af misk-
unnarleysi og festu þessari atlögu
við lýðræðið, sem væri hliðstæð
valdatöku Napoleons I. og Napo-
leons III. og uppreisn Frakka í
Alsír 1958.
• Mikið uppnám varð á þingi
þegar forseti þess, Jacques
Chuban-Delmas, tilkynnti þingrof
og nýjar kosningar í samræmi
við ákvörðun de Gaulles og hef-
ur sjaldan verið eins stormasamt
í þinginu frá lokum heimsstyrj-
aldarinnar. Gaullistar fögnuðu til
kynningu Chaban-Delmas með
fagnaðarhrópum. Þegar þing-
fundi var lokið gengu gaullistar
út, en kommúnistar og aðrir
stjórnarandstæðingar sátu sem
fastast, sungu þjóðsönginn og
hrópuðu að de Gaulle yrði að
segja af sér. Þeir hrópuðu að lok-
um: „Lengi lifi lýðveldið.“
• De Gaulle hélt ræðu sina að
loknum stjórnarfundi, sem stóð í
þrjár stundarfjórðunga. Skömmu
Franskir
hermenn
kallaðir
heim?
Bonn, 30. maí. NTB.
FRANSKUR talsmaður bar til
baka í kvöld fregnir um að
helmingur hins 60.000 manna
1 herliðs, sem Frakkar hafa i
Vestur-Þýzkalandi, verði kall-
aður heim til Frakklands
vegna ástandsins þar. Vestur-
þýzk fréttastofa hafði þessa
frétt eftir áreiðanlegri heim-
ild í kvöld, en dró fréttina til
baka. Samkvæmt þessari frétt
var ákvörðunin tekin á fundi
sem de Gaulle forseti á að
hafa haldið með Jacques
Massu hershöfðingja, yfir-
manni franska herliðsins í
Vestur-Þýzkalandi, og 11 öðr-
um hershöfðingjum á fundi í
Beifort í Austur-Frakklandi í
gær.
r