Morgunblaðið - 05.07.1968, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1968
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 - Sími 30135.
Garðeigendur Á lagea- garðhellur. Einnig í litum og fasaðar og kant- steinar. Hellu- og steinsteypan sf., við Breiðholtsveg. S. 30322.
Keflavík — Suðurnes Bílar, verð og greiðsluskil- málar við allra hæfi. Bilasala Suðurnesja, Vatnsnesvegi 16. Sími 2674.
íbúð óskast Ungt reglusamt par með 1 barn óskar eftir 2ja herb. íbúð frá 1. des. Góð um- gengni. Sími 31342 efitir kl. 8 að Rauðalæk 13.
Áreiðanlegur maður mundi vilja taka að sér fararstjórn til utan- landsferða. — Tungumála- kunnátta fyrir hendi. Nán- ari uppl. í síma 10T84.
Slár Telpna- og unglingaslá og Ijósar sumarkápur til sölu. Allt á mjög góðu verði. Saumast. Víðihvamml 21, sími 41103.
Keflavík — Suðumes Viðleguútbúnaður, tjöld, svefnpokar, vindsængur, pottasebt, gaseldunartæki. STAPAFELL, sími 1730.
2ja—3ja herb- íbúð óskast fyrir eldri hjón, sem vinna bæði úti. Upplýsing- ar eftir kl. 3 í dag í sima 13285.
Píanó til sölu Danskt píanó, vel útlítandi og gott, til sölu, hagstætt verð. Upplýsingar í síma 15601.
Laxveiði í júlí og ágúst eru nokkur veiðileyfi laus í Hvítá í Borgarfirði. Allar nánari upplýsingar í síma 83960.
Garðeigendur Úðum garða. — Pantanir í síma 40686.
Ég óska eftir að koroagt á góðan síld- veiðibát. Er vanur. Upplýs. ingar í síma 36916.
Peningar 100.000 krónur óskast að láni. Upplýsingar í síma 37546.
Ung hjón með 1 barn óska eftir 1— 2ja herb. íbúð á leigu. — Ræsting eða barnagæzla kæmi til greina. S. 21969.
Dilkakjöt Úrvals dilkcikjöt, nýtt og reykt. Opið föstud. kl. 3— 7, laugard. kl. 1—5. Slátur- hús Hafnarfjarðar, Guðm. Magnúss. S. 50791 — 50199.
Með Tjaldsunga i fangi
En öllum þeim sem tóku við hon-
um gaf hann rétt til þess að verða
Guðs börn, þeim sem trúa á nafn
hans — nafn Jesú (Jóh. 1.12).
í dag er föstudagur 5. júlí og er
það 187. dagur ársins 1968 Eftir
lifa 179 dagar. Árdegisháflæði kl.
3.26
Dppiýslngar um læknaþjðnustu i
oorginni eru gefnar i sima 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
or.
Læknavaktin í Heilsuverndar-
stöðinui hefur síma 21230.
Slysavarðstofan í Borgarspítal-
anum er opin allan sólahringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætur- og heigidagalæknir er
■ síma 21230.
Neyðarvaktin ♦Sh'arar aðeins á
vrrkum dögum frá kl. 8 til kl. S,
«ímt 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
um hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstími prests,
þriðjud. og föstud. b—6.
Kvöldvarzla og helgidagavarzla í
lyfjabúðum í Reykjavík
vikuna 29. júní -6. júlí er Lyfja-
búðin Iðunn og Garðs apótek.
Næturlæknir í Hafnarfirði
aðfaranótt 6. júlí er Eiríkur
Björnsson sími 50235
Næturlæknir í Keflavík 5. júií er
Arnbjörn Ólafsson.
Keflavíkurapótek er oplð virka
daga kl. 9—19, Iaugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á mótt
þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þrlðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasimi Rafmagnsveitu Rvik-
jr á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
A.A.-samtökin
í'undir eru sem hér segir í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lifsins svarar í síma 10-000.
Litla stúlkan á myndinni, hún Theodóra, 10 ára, kann aug-
sýnilega að meta sumarið, sólina og sjávarströndina, og hér hefur
hún á gönguferð sinni náð sér í Tjaldsunga til að gæla við. Unginn
virðist ekkert ofsahræddur, en sjálfsagt berst í honum litla fugls-
hjartað, því að það er aldrei að vita, hverju þetta stóra fólk tekur
uppá, en við vitum fyrir víst, að litla stúlkan á myndinni muni
ekki gera honum neitt illt. Þess vegna getur hann verið rólegur.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Sigurði Hauki Guð-
jónssyni ungfrú Brynja Sverrisdótt
ir, Bárugötu 40 og Ólafur Garðars-
son, Miklubraut 66. Heimili þeirra
verður Víðimelur 57.
FRÉTTIR
Félag austfirzkra kvenna
fer skemmtiferð þriðjudaginn 9.
júlí Uppl. og þátttaka tilkynnist
fyrir hádegi mánudaginn 8. júlí I
síma 82309 og 15635
Kristileg samkoma
verður í samkomusalnum Mjóu-
hlíð 16, sunnudagskvöldið 7. júU.
kl. 8. Allt fólk hjartanlega velkom
ið.
Kvenfélagið Hvöt í Sandgerði
fer skemmtiferð í Þjórsárdal
sunnudaginn 7. júlí. Allar konur
velkomnar. Uppl I símum 7525 og
7613
Skálholtskirkja
I sumar verða messur í kirkjunni
á hverjum sunnudegi og hefjast
þær að jafnaði kl. 5 Séra Guðmund
ur Óli Ólatsson.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í auglýsingu
frá Nýja bíó í gær, að myndin
Ótrúleg furðuferð, var sögð
sýnd í síðasta sinn, en myndin
er í fullum gangi og sýnd við
góða aðsókn.
Óháði Söfnuðurinn
Ákveðið er að sumarferðalag Ó-
háða Safnaðarins verði sunnudag-
inn 11. ágúst. Farið verður í Þjórs-
árdal, Búrfellsvirkjun verður skoð
uð og komið við á fleiri stöðum.
Nánar siðar.
Gestamót Þjóðræknisfélagsins
verður haldið sunnudaginn 7.
júlí að Hótel Sögu — Súlnasal —
Gert er ráð fyrir miklu fjölmenni
Vestur-Islendinga. Stjóm félagsins
býður öllum Vestur-fslendingum,
sem hér eru á ferð, til mótsins.
Heimamönnum er einnig heimill
aðgangur og fást miðar við inn-
ganginn.
Bræðrafélag Dómkirkjunnar.
Skemmtiíerð verður farin sunnu
daginn 7. júlí, jafnt félagsmenn
sem aðrir safnaðarmenn og fjöl-
skyldur þeirra eru velkomnir
í ferð félagsins. Farið verður að
Odda og Keldum, hinn forni skáli
skoðaður. Leiðsögumaður verður
Ámi Böðvarsson, cand.mag. Fargj.
er áætlað uþb. kr. 250. Fólk hafi
með sér nesti, en kaffi verður
drukkið að Hótel Hellu á heimleið.
Nánari upplýsingar veitir Jón
Magnússon í síma 12113 og 15996.
Þess er vænzt, að allir, sem eiga
þess kost noti þetta tækifæri til
ferðar á þessa fornfrægu sögustaði.
Hafnarfjörður
Kvennadeildin Hraunprýði fer
austur i Þjórsárdal sunnudaginn
7. júlí. Upplýsingar I sima 50231
(Rúna) og 50290 (Rannveig)
Heyrnarhjálp
Maður frá félaginu verður á
ferðalagi um Norðurland frá
1.—15. júli til aðstoðar heyrnar-
daufum. Allir sem óska, geta
snúið sér til hans. Nánar auglýst
á hverjum stað.
Kvenfélag Bústaðasóknar
Hin árlega skemmtiferð félags-
ins verður farin sunnudaginn 7.
júlí kl. 8 árdegis frá Réttarholts-
skólanum. Uppl í síma 34322 og
32076
Spakmœli dagsins
Fögnuður endurfundanna bætir
kvalir aðskilnaðarins. Hver afbæri
hann líka annars? Rowe.
Við hittum Sigríði Björnsdóttur,
listmálara að máli í gær, og spurð-
um hana hvernig gengi á sýning-
unni í Casa Nova kjallarasal
Menntaskólans. „Takk ailbærilega.
ég seldi 21 málverk strax um síð-
ustu helgi, og aðsókn hefur verið
sæmileg. Hins vegar er þess að
geta, að ég hef breytt opnunar-
tímanum og hef nú opið frá kl. 12
á hádegi til 10 á kvöldin. Það eru
alltaf einhverjir, sem helzt hafa
tima til að skoða sýningar í hádeg-
inu. En fyrir alla muni taktu fram,
að sýningunni lýkur kl. 10 næsta
sunnudagskvöld, svo að síðustu for
vöð eru fyrir fólk að skoða hana
um helgina." Svo sem áður hefur
verið frá skýrt, eru allar myndir-
nar til sölu, og verðið ekki hátt
miðað við núgildandi verðlag.
Fr.S.
sá NÆST bezti
Ungur prestur, sem var að leita sér fylgis við prestskosningu
í sveitaprestakalli, kom í fjósið hjá bónda einum og sá þar stríð-
alið naut. Hann mælti þá:
„Mikið er þetta naut feitt.“
„Já,“ svaraði bóndi. Bara að við værum eins vel búnir undir
dauðann og nautið."
HVENÆR SKYLDI HÚSBÓNDANUM ÞÓKNAST A» LÁTA GERA VIÐ SNÚNINGSVÉLINA!!