Morgunblaðið - 05.07.1968, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1968
KERO 2:
TVEGGJA MANNA
200x135
KERO 4:
FJÖGURRA MANNA
205x205
KERO 6:
SEX MANNA
260x260
7
9
15
150
150
180
KR. 3500
KR. 5400
KR. 7400
HENTA BEZT ÍSLENZKU VEÐURFARI
SPORTVÚRUHÚS REYKJAVlKUR
VIO ÓÐINSTORO - RIYKJAVfK
íslenzkir handunnir
leirmunir
íslenzkur heimilisiðnaður,
Laufásvegi 2.
Skrifstofustúlka
Ung stúlka, sem stundað hefur nám í verzlunar-
skóla í London tvö undanfarin ár og hefur góða
þekkingu á ensku máli, vélritunarkunnáttu og í
enskri hraðritun, óskar eftir atvinnu í skrifstofu
hjá einkafyrirtæki eða opinberum stofnunum í
byrjun ágústmánaðar. Tilboð óskast sent Morg-
unblaðinu fyrir 11. þ.m. merkt: „Ágúst — 8151“.
10 ÁRA ÁBYRGÐ
TVÖFALT
EINANGRUNAR
20ára re
nsla hérlendi:
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF
±
10 ÁRA ÁBYRGÐ
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR
Sumarferð VARÐAR
BORGARFJARÐARFERÐ UM KALDADAL
SUIMIMUDAGIIMIM 14. JÚLÍ 1968
Farin verður Borgarfjarðarferð um Þingvelli, Kaldadal, Húsafell og Skorradal. Að þessu sinni er nú í ráði að kanna
nýja leið og halda yfir Kaldadal, eina af hinum fornu fjallaleiðum milli landsfjórðunga. Vér höldum sem leið ligg-
ur um Mosfellsheiði til Þingvalla í Bolabás fram með Ármannsfelli að Meyjarsæti um Sandkluftir, um Bláskóga-
heiði að Brunnum sem er gamall áningastaður. Leiðin liggur um Bláskógaheiði þar sem ekið verður yfir sýslumörk
Árnessýslu og Borgarfjarðarsýslu. Útsýni frá Kaldadal er tilkomumikið. Þar sér maður Fanntófell og jöklana OK,
Þórisjökul, Geitlandsjökul, Langjökul, en í norður rís ískaldur Eiríksjökull, einhver glæstasti jökull landsins. í
þessum töfrandi jökulheimi er Kaldidalur. Norður af Kerlingu er Langihryggur, en þar fyrir norðan tekur við Skúla-
skeið. Þegar ekið er yfir Lambá, höfum við til sinn hvorrar handar Hafrafell og Strútinn, og er þá komið í hið dá-
samlega umhverfi Borgarfjarðar. Nú beygir vegurinn niður að Húsfelli, þar eru okkar indælu skógar, komið að
Bamafossum, ekið um Hálsasveit hjá Reykjum um Bæjarsveit, Hestháls og Skorradal. Þá verður ekið um Geldinga
dranga, Komahlíð, Svínadal hjá Ferstikiu og um Hvalfjörðinn til Reykjavíkur.
Kunnur leiðsögumaðu r verður með í förinni
Farseðlar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu (uppi) og kosta kr. 395.00 (innifalið í verðinu er miðdegisverður og kvöld-
verður). Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu kl. 8 árdegis stundvíslega.
STJÓRN VARÐAR