Morgunblaðið - 05.07.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGIJR 5. JÚLÍ 1968
17
■iiiilll
pm
JEPPI A KAF
í SJÓIINi
IJNGUM mönnum þykir mörg
um hverjum gaman að aka jepp-
um. Sérstaklega þykir þeim gam
að að aka jeppum, þar sem erfitt
er yfirferðar og fara þá jafnan
meira af kappi én forsjá. Það
verður sjálfsagt dýrt gaman fyr-
ir eiganda þessarar jeppabifreið
ar að hann skyldi ekki standast
þá freistingu að aka um fjöruna
í Grafarvogi, hann festi sig og
svo flæddi að. Líklega ekur hann
með meiri forsjá um fjörur hér
eftir (ef hann þá kemur farkost
inum aftur í gang).
(Ljósm. Þórir Hersveinsson)
Skátafélag Reykjavíkur
efnir til ,-IVIinkamóts“
Dagana 4. — 7. júlí n. k. mun
(Skjöldungadeild Skátafélags
iReykjavíkur gangast fyrir ný-
jstárlegu skátamóti í Borgarvík
við Úlfljótsvatn. Er mótið kallað
,,Minkamót“ og er val dagskrár
þess miðað við menningu og siði
hinna mörgu indíánaþjóðflokka.
Til mótsins er boðið einum skáta
flokki frá skátafélögum lands-
ins, en frá Reykjavík kemur
einn flokkur frá hverju borgar-
hverfi.
Meginviðfangsefni mótsins er
þjálfun minnstu og um leið þýð-
ingarmestu heildar skátahreyf-
ingarinnar, skátaflokksins.
Undirbúningur mótsins befur
staðið yfir í vetur og er nú að
nálgast lokastig. Reynt hefur
verið að afla sem áreiðanleg-
astra heimilda um líf og störf
hinna mörgu indíánaþjóðflokka
og gefnir hafa verið út tveir
upplýsingabæklingar um þetta
efni.
Mótsstjóri „Minkamótsins“ er
Hákon J. Hafliðason, en vernd-
ari þess er Björgvin Magnússon
D.C.C. „Minkamót“ var síðast
síðast haldið árið 1964. og var
þá höfuðviðfangsefnið frum-
byggjastörf.
- ATVINNUMÁL
Framhald af bls. 28.
allt að vera, að núverandi tala
atvinnulausra hjá skrifstofunni
væri ekki raunhæf, þar sem um
sækjendur létu ætíð ekki vita,
ef þeir fengju annars staðar
vinnu, en hjá skrifstofunni.
Borgarstjóri sagði, að þegar síld
arvertíð hæfist myndi ástandið
að öllum líkindum batna, einnig
væri Innkaupastofnun borgar-
innar að Ijúka samningum við
verktaka, sem vonandi leiddu til
þess, að þeir bættu við sig fólki.
Að lokum tók til máls um
þetta mál Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúi, (F), og lagði til,
að borgin yki gangstéttagerð, en
við hana ynni ávallt ungt fólk.
Frá síðasta minkamóti er lialdið var 1964 í Bolungarvík.
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunn-
ar, TF-SIF, fór í ískönnunarflug
í gær.
ísinn er nú um 35 sjóm. N af
Horni og 70 sjóm. N af Skaga,
27 sjóm. í r/v NV af Kolbeins-
ey og liggur þaðan í h.u.b. 70“
r.v. ístunga teygir sig inn
Drangaál og upp að Óðinsboða-
svæðinu, en er ekki breiðari en
5—6 sjóm. og þéttleiki um 4—
6/10. Istunga þessi er eina ís-
hindrunin á siglingaleið fyrir N-
Iandi. Vel virðist þó siglandi
grunnt með Horni og síðan aust-
ur, fyrir sunnan isinn.
Hrútafjörður og Miðfjörður
eru lokaðir, en sigling er sæmi-
leg á Steingrímsfjörð, þótt farið
sé gegnum ís að þéttleika 1—
3/10, utan Grímseyjar. Fært er
á aðra firði og einnig á Skaga-
strönd og Blönduós. Nokkur ís
I—3/10 að þéttleika er kringum
Sauðárkrók, en siglingaleið þang
að er fær eins og er.
Góð oðsókn oð
Mnnni og konn
LEIKFÉLAGIð Baldur á
Bíldudal hefur nú sýnt sjónleik
inn Maður og kona eftir Jón
Thoroddsen niu sinnum, á sex
stöðum á Vestfjörðum. Undirtekt
ir hafa verið frábærar og að-
sókn geysimikil. Til dæmis má
nefna, að á fjórum stöðum hefur
fengist metaðsókn mest á Pat-
reksfirði, rúmlega 270 manns.
Næsta sýning verður í Búðar-
dal næstkomandi laugardag kl.
8.30 Um fleiri sýningar er ekki
víst að svo stöddu. Hannes.
Cleveland, Ohio, 4. júlí. AP.
HUBERT Humphrey, varaforseti
hefur gefið í skyn í sjónvarps-
viðtali að hann muni gera
nokkrar breytingar á ríkisstjórn-
inni ef hann verði kjörinn for-
seti og meðal annars veita Dean
Rusk utanríkisráðherra lausn frá
frá störfum.
Varaforsetinn fór lofsamlegum
orðum um störf Rusks í utanrík-
isráðherraembættinu, en gaf í
skyn að hann hefði gegnt því of
lengi. Hann vildi ekkert um það
segja hvern hann mundi skipa
eftirmann Rusks.
- 25 STULKUR
Framhald af bls. 1.
til Raufarhafnar. Við tökum
fyrst og fremst frá okkar eigin
bátum, en ef það nægir ekki
tökum við einnig frá öðrum. Við
vitum ekki ennþá hversu langar
útilegurnar verða. Við höfum
leigt skipið til tveggja mánaða,
en ef við óskum eftir því, getum
við fengið það áfram að þeim
tíma liðnum.
Var ekki óhemjumikill stofn-
kostnaður við þetta? Jú, þetta
er dýrt, en við höfum úrvals
fólk um borð, og bregðist síldin
ekki tekur ekki langan tíma að
fylla tunnurnar.
- FLEIRI TILFELLI
Framhald af bls. 28.
safna sýnishornum frá veiku
fólki og lagt kapp á að ná til
allra slíkra sjúklinga. Þetta
verður geysimikið starf sem
kemur til viðbótar venjulegum
störfum sem eru ærin, því að nú
er óvenju kvillasamt í héraðinu
og margir læknar í sumarleyf-
um.
— Þess vegna hef ég beðið
landlækni að senda mér aðstoð-
armann, sem kemur á morgun
og vedður hér nokkra daga.
Helzt þyrfti ég að hafa aðstoð
nokkuð langan tíma, eða þang-
að tii búið verður að ganga úr
skugga um hversu útbreiddur
sjúkdómurinn er. Sennilegt er
að hann sé víðar en nú er vitað
um, enn getur ýmislegt nýtt
komið fram.
— Ég vil eindregið ráðleggja
fólki að gæta ýtrusta hreinlætis
sérstaklega við alla matargerð og
eftir notkun salernis. Hreinlæti
og aftur hreinlæti er fyrsta boð-
orðið. Þá ættu menn fyrst um
sinn að forðast neyzlu hrárra
eggja því að mikil hætta getur
stafað af þeim og öllu sem þau
ieru notuð í, svo sem majones og
kökukrem. Soðin egg eru hættu-
laus og einnig egg sem notuð eru
við kökubakstur. Þetta segi ég
aðeins í öryggisskyni en tek
fram að við höfum hvorki fund
ið hænsni né egg menguð af
sýkli.
■— Reynt verður að sjálfsögðu
að leita allra hugsanlegra ráða
til að uppræta sjúkdóminn og
grafast fyrir um upptök hans.
En það verður mikið verk og
örðugt og kann að taka langan
tíma.
Morgunblaðið hafði samband
við Sigurð Sigurðsson, land-
lækni, sem staðfesti að veikin
hefði komið upp á Skáld-
stöðum og að tvö tilfelli hefðu
fundizt á Akureyri. Frestað hef-
ur verið niðurskurði á bæjunum
framyfir helgi, meðan frekari
rannsóknir eru í gangi á öðrum
heimilum í Eyjafirði.
Aðspurður um sjúkdóminn sjálf
an sagði landlæknir:
— Sjúkdómurinn getur verið í
ýmsum myndum og mismunandi
hvað alvarlegur hann er.Hann er
sjaldan lífshættulegur þó að það
hafi komið fyrir í stórum far-
öldrum að fólk hafi látist. Hvað
mótefni viðvíkur eru til lyf sem
eru talin verka vel á- hann, en
örugg eru þau ekki talin.
— Gæti þetta orðið faraldur
hér á fslandi?
— Já, þetta getur vei orðið
faraldur. 1958 og ’59 gekk slíkur
faraldur í Svíþjóð og þá voru
það milli 10-20 þúsund manns
sem tóku veikina. í slíkum til-
fellum er ekki um annað að
ræða en að hindra útbreiðslu
hans eftir beztu getu.
Blómaúrval
Blómaskreytingai
GRÓÐRARSTÖÐIN
Símar 22822 og 19775.
GRÖÐURHÚSIÐ
við Sigtún,
sími 36770.
— Kjarvalssýning
Framhald af bls. 28.
byrjað á þessari mynd, og þeg
ar ég kom heim, færði hann
mér hana að gjöf og kallaði
hana „Morgunroða."
— Eg á ekki ýkja margar
myndir eftir pabba, þó tals-
vert af fallegum teikningum
og skissum. En af öllum mynd
unum er þessi mér kærust,
því að mér fannst bæði mynd
in og nafngiftin bera þess
vitni, að honum væri koma
mín til íslands kær.
— Þótt myndin sé ekki mál
uð fyrr en 1939, þá er mótíf-
ið ekki með öllu nýtt. Ég á
litla vatnslitamynd frá 1918-
20, þar sem sama stemning-
in birtist, enda þótt uppbygg
ingin sé önnur. Mér hefur
skilizt, að fígururnar í mynd
inni séu táknrænar fyrir ætt-
ina, en byggingin á myndinni
miðri með kúpta þakinu sé
draumahöll pabba. Hana vildi
hann neisa á Öskjuhlíð, að
því er mér er sagt, og klæða
kúpuna með ljósrauðu postu-
lini að innan.
Vi spyrjum Svein álits á
sýningunni, og hann segir:
— Ég er sannfærður um, að
maður sem kæmi inn á þessa
sýningu án þess að hafa þekkt
til verka pabba áður, mundi
halda að hér væri um 25 mál
ara að ræða. Það er líka
stefna þessarar sýningar, að
sýna sem flestar hliðar mál-
arans. Ef ég má dæma um
list pabba, þá held ég að leit
sé að málara, sem spannar yf
ir eins mörg svið í myndum
sínum. Hinu er samt ekki að
neita, að ég hefði gjarnan
viljað hafa hér sýnishorn af
teikningum pabba, sem marg
ar eru mjög fallegar, segir
Sveinn að lokum.
Sýningin í Listamannaskál
anum verður opin til 12. júlí,
daglega frá kl. 10 til 22. Um
40 þúsund manns hafa séð
sýninguna, og sýningarskrár
hafa selzt fyrir um 600 þús-
und krónur. Ágæt aðsókn er
enn að sýningunni, og síðustu
daga hefur talsverður fjöldi
erlendra ferðamanna skoðað
sýninguna.