Morgunblaðið - 10.07.1968, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1968
7
Hefur viðtöl við íslenzka
ísframleiðendur fyrir BB€
Hér á landi er staddur um
þessar mundir þrítugur bre*k-
ur blaðamaður, John Burke að
nafni, í boði Flugfélags íslands
Hann mun ferðast um landið á
næstunni, auðvitað með Flugfé-
laginu, og skrifa síðan greinar
um kynni sín af landi og þjóð
í ýmis brezk blöð og tímarit,
svo sem „Catholic Herald", „Ir-
ish Independent" og „Travel
Trade Gazette". Hann mun ræða
við viðskiptamálaráðherra um
ferð hans til A-Evrópu nú fyr-
ir skömmu og ennfremur hefur
brezka útvarpið, BBC, beðið
hann um að hafa viðtöl við ís-
lenzka ísframleiðendur (mjólk-
urísframleiðendur).
Burke heimsótti starfsbræður
sina á Morgunblaðinu í fyrra-
kvöld og notuðum við þá tæki-
færið til þess að spyrja hann
um ferðina, og hann sjálfan, og
reyna að komast að því hvað
hann ætlar að skrifa um okkur
íslendinga þegar hann kemur
heim.
— Ég las mikið um ísland
áður en ég kom hingað, segir
1. júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Þjóðkirkjunni í Hafnar-
íirði af séra Garðari Þorsteinssyni
ungfrú Þorbjörg Bernhard og Sig
urjón Gunnarsson Heimili þeirra
er Bröttukinn 4 Hafnarfirði.
(Stodio Guðmundar)
Þann 9. júní voru gefinn saman
af séra Ragnari Fjalari Lárussyni
ungfrú Sigríður Herbertsdóttir og
Sigurjón Bjarnason. Þau búa að
Urðarstíg 15.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Erna G. Árnadóttir, stud.
Burke, svo að ég var búinn að
gera mér nokkuð rétta mynd af
landi og þjóð. Þó kemur það
mér á óvart, hversu dökkir þið
eruð yfirlitum. Það vekur sér-
stakan áhuga minn, því að ég
hef dálítið írskt blóð í æðum.
Mér finnst hreint ekki erfitt að
komast fram úr íslenzku Ég
skil bæði sænsku og þýzku og
get því stautað ofurlítið í Morg
unblaðinu.
Hann segir okkur frá því, að
hann hafi numið sagnfræði við
Lundúnaháskóla og hafi mik-
inn áhuga á sögu íslands og
fornum bókmenntum. — Þetta
er eins og að hverfa þúsund ár
aftur í tímann, segir hann. Nei,
ekki að þið séuð svö frumstæð-
ir, heldur er þetta rómantískt,
sálrænt, þið skiljið hvað ég á
við. ísland hlýtur að vera demó
kratískasta land í heimi.
Burke er hrifinn af landinu.
— Jóhannes Snorrason leyfði
mér að koma fram í stjórnklefa
til þess að njóta útsýnisins þeg-
ar við flugum með suðurströnd
inni, segir hann, ég sá Vatna-
jökul og Heklu — loftið er svo
hreint.
— Sem blaðamaður vonast ég
til að geta aðstoðað við að
„koma íslandi á kortið“, segir
hann. Ég tek litmyndir ogætla
að halda fyrirlestra þegar ég
kem heim. Ég held að ég hafi
komið til landsins á réttum
tíma, því að um þessar mundir
er svo mikið að gerast. Meðal
þess sem ég mun fjalla um í
greinum mínum er hægri um-
ferðin, vorfundur Nato, forseta-
philol., Nýjagarði, Reykjavík, og
Egiil B. Hreinsson, stud, polyt. írá
Akureyri.
kjörið, Katla sem getur farið
að gjósa á hverri stundu, 50
ára afmæli fullveldis á þessu ári
og 25 ára afmælis lýðveldisins á
næsta ári.
Árið 1964 var Burke blaða-
fulltrúi (hann notaði íslenzka
orðið, hefur komizt í kynni við
Svein Sæmundsson) Evrópu
þings stúdenta í Lundunum.
Það var fyrsta þingið sem ís-
lenzkir stúdentar áttu fulltrúa á
og var þar fyrir hönd þeirra
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlis-
fræðistúdent. Burke kynntisthon
um þar og vonast til þess að
hitta hann aftur ef hann er hér
á landi.
Burke segir okkur frá þvi, að
hann sé annar maðurinn úr
fjölskyldunni sem kemur til ís-
lands. Faðir hans var hér á
brezku skipi á stríðsárunum og
bar mikinn vinarhug til íslend-
inga.
— Ég ætla að reyna að læra
svolitið í íslenzku á meðan ég
hérna, sagði Burke að lokum,
enda er ég ákveðinn í því að
koma aftur.
Laugardaginn 22. júní voru gef-
in saman í hjónaband af sr. Óskari
J. Þorlákssyni ungfrú Jóhanna Val-
geirsdóttir Bólstaðarhlíð 36 og Bene
dikt Axelsson kennari Ásbraut 3
Kóp. Heimili ungu hjónanna verð
ur á Freyjugötu 15 Rvík.
(Ljósmyndari ókunnur)
Laugardaginn 4. maí voru gefin
saman í hjónaband af séra Þor-
steini Björnssyni, ungfrú Jutta Ge-
baner og Ögmundur Árnason. Heim
ili þeirra er að Nesveg 68.
Loftur h.f.
20. apríl voru gefin saman í hjóna
band í Háskólakapellu af séra Hall
dóri Gunnarssyni ungfrú AuðurPét
ursdóttir og Haraldur Finnsson.
Heimili þeirra er að Vesturg. 17.
(Studio Guðmundar)
Þann 18.5 voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini Björns
syni ungfrú Louisa Bieríng og Magn
ús Arnar Sigtryggssyn. Heimili
þeirra er að Álfaskeiði 72. Hafnarf.
8Studio Guðmundar)
Spakmœli dagsins
Heimurinn er spegill, þar sem
hver maður sér sitt eigið andlit
endurspeglast. Grettu þig framan í
hann, og hann sýnir þér afar súran
svip. Hlæðu við honum, og að hon-
um og þér mun finnast hann glað-
ur og góður félagi.— M. Thackeray.
Keflavík — Suðumes Ódýrar toppgrindur, barna stólar, barnakerrur, garð- sláttuvélar, Brigston-hjól- barðar. Stapafell hf., sími: 1730. Keflavík — Suðumes Svefnpokar, tjöld, vind- sænguT og pumpur, pick- niksett, gaseldunartæki, pottasett. Stapafell hf., sírni: 1730.
Willy’s jeppi í mjög góðu ásigkomulagi, áæg. 1945, 'til sölu. Uppl. í síma 50361 kl. 10—13 og 20—22. Trilla Til sölu. 5 tonna frilla með díselvél og Simrad-mæli. Uppl. i sima 2196, Kefla- vík.
FIAT 1100 ’63 til sölu. Vel með farinn, skoðaður' ’68. Upplýsingar í sima 35640 kl. 9—6. Hraðbátur til sölu, ódýrt, 50 Iha. Mer- euiry-ivél. — Uppl. í síma 42356.
Barnavagn Barnavagn til sölu. Sími 52234. Vinna óskast 13 ára telpa óskar eftir barnagæzlu, einnig óskar 14 áira telpa ■eftir inn- heimstustörf'Um. Uppl. í s. 82939.
Hestamenn Til sölu 3 hestar af Horna- fjarðar-, Svaðast,- og Hind isvikurk., 2 ó't. 4ra v. og 1 6 v., taminn gæðingiur. — Uppl. í s. 19008 kl. 6—8 sd. Klæðum og gerum við Ibólstruð húsgögn. Komum og gerum tilboð. — Úrval áklæða. Bólstrnnin, Strand igötu 50, Hafnarfirði, sími '50020.
Hraðbátur til sölu Nýr 16 feta Mecoury-bátur, trauð'ur að lit, til sölu. Fæst fyrir skuldabréf. Uppl. í s. 1190, Akranesi. Bronco — Scout Óska eftir að kaupa nýleg- an Bronco eða Soouf. Uppl. á daginn í s. 24111 og á kvöldin í síma 50680.
4ra herb. íbúð til leigiu. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „íbúð — 8428“. Til sölu er 4ra henb. íbúð við Ljós- heima. Upplýsimgar í síma 84986 eftiir kL 7 á kvöldin.
Landrover (bensín), árg. 1965, klædd- ur að innan, til sýnis og sölu. Uppl. að Leifsg. 7, 1. h. t.'h. og í síma 34818 kl. »—10 f. h. 2ja herb- íbúð ósikast til leigu. Upplýsing- ar í síma 20116.
BÍLAR - BÍLAR
Aðal-BÍLASALAN er flutt új- Ingólfsstræti 11 að
SKÚLAGÖTU 40 (við Hafnarbíó).
Ennþá höfum við stærsta sýningarsvæðið á bezta
stað í borginni.
Bíll er verðmæti. — Látið þekkingu okkar tryggja
hag ykkar.
Bílasala — Bílaskipti — Bílakaup.
AÐAL-
BÍLASALAN
Skúlagötu 40 (við Hafnarbíó)
Símar 15-0-14 og 1-91-81.
M.P. miðstöðvarofnar
Sænsku Panel-ofnarnir
frá A/B Fehingsbro Verk-
stáder, eru ekki aðeins
tæknilegt afrek, heldur
einnig sönn heimilisprýði.
Verð hvergi lœgra.
LEITIÐ TILBOÐA
Einkaumboð:
Hannes Þorsteinsson
heildverzlun, Hallveigarstíg 10, sími: 2-44-55.