Morgunblaðið - 10.07.1968, Síða 11
MORGUNB'LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1908
11
SKÓLASLIT
Hagaskólinn
Hagskólanum var slitið 31.
maí sl. í skólanum varu í vetur
812 nemendur í 28 bekkjardeild-
um. Fastir kennarar við skól-
ann voru 25 og 19 stundakenn-
airar. Við skólauppsögn ræddi
skólastjórinn, Björn JónssO'n, um
starf Hagaskóla síðastliðinn vet-
ur, lýsti úrslitum prótfa og af-
heniti gagnfræðingum prófskír-
teini.
Landsprótf þreyttu 81 nem-
andi. Stóðust allir prótfíð og 73
máðu framhaldiseinkun'n. Hæstu
einikunn á prótfinu hlaut Hafliði
Gíslason, ág. 9,71. Gagnfræða-
prótf þreyttu 112 nemendiur. —
Hæstu einkunn hlaut Jó'n Uunn-
dórsson, 8,84.
Réttarholtsskólinn
Réttarholtsskólanum var slitið
31. maí. í vetur voru í skólanum
667 nemendur í 24 bekkjiardeild-
um, flestir í I. bekk, 222. Við
skólann störfuðu 24 fastir kenn-
arar og 17 stundakennarar.
Undir landspróf gengu 62
nemendur og stóðust 58 prófið,
þar af hlutu 46 nemendur
framhaldseinkunn, eða 76,6%. —
Hæstu einkunn á landsprótfinu
hlaut Magnús Guðmundsson, I.
ág. 9,31.
Gagnfræðaprófi luku 85 nem-
endur. Hæsta einkunn hlaut Guð
rún Finnsdótftir, 9,01.
Við skólasliit gaf skólastjórinn,
Ástráður Sigursteindórsson, yfir-
lit um skólastarfið og ávarpaði
hina ungu gagnfræðinga.
Gagnfræðaskóli Austurbæjar
Skólaslit Gagnfræðaskóla Aust
urbæjar fóru fram 31. maí sl. í
vetu.r voru í skólanum 421 nem-
andi í 15 bekkjardeildum. Fastir
kennarar voru 22 og stundakenm
arar 6. Við skólasLiit gaf Svein-
björn Sigurjónsson, skólastjóri,
ytfirlit yfir störf skólans á starfs-
árinu og lýsti úrslitum prófa.
Landspróf þreyttu 120 nem-
endur. 118 stóðust prófið og þar
af hlutu 83 framhaldseinkunn.
Undir gagnfræðapróf gengu
95 neimendur, en deildin skiptist
í almenna bóknárrusdeild og
verzlunardeild. f bóknámsdeild-
inni hlaut Esiter Magnúsdóttir
hæsta einkunn, 8,15, en Ingi-
björg Guðbjartsdóttir í verzlun-
ardeildinni, 8,23.
Gagnfræðaskólinn í Keflavík
Gagnfræðaskólanum í Ketfla-
vík var slitið 31. maí. 448 nem-
endur stunduðu nám í skólanum
í vetur. Við skólaslit flutrti Rögn-
valdur J. Sæmundsson, skóla-
stjóri, ræðu og fjallaði um starf-
semi skólans í vetur. Ræddi
hann m.a. um húsnæði skólans,
sem er mjög ófullnægjandi.
22 nemendur þreyttu lands-
prótf. Hæstu einkunn á prófinu
hlaut Ellen Mooney, 8,58. — 82
nemendur tóku gagntfræðapróf
og hæstu einikunn hlaut Marsha
Kay Adkins, 8,33.
Héraðskólinn í Skógum
Héraðsiskólanum í Skógum var
sagt upp 26. maí sl. Jón R. Hjálm
arsson, skólastjóri, flutti ytfirliit
um starfið á vetrinum, lýsti
prófum og á'varpaði nemendur.
Nemendur í Skógaskóla sl. vet-
ur voru 115, en 112 gengu undir
próf.
29 nemendur þreyttu lands-
prótf,, en sökum intflúenzufarald-
urs í skólanum luku aðeins 23
nemendur öllutn prótfum. Þar af
náði 21 framhaldseinkunn. —
Hæsu einkunn á prófinu hlaut
Sigurður Sigursteinsson, Norður-
Fossi í Mýrdal, 9,27.
29 nemendur luku gagnfræða-
prófi. Hæstu einkunn, 8,85, hlaut
Gréta Adólfsdóttir, Litlu-Tungu,
Holtum.
Kvennaskólinn í Reykjavik
Kvennaskólanum í Reykjavík
var sagt upp 25. maí sl. Skóla-
slitaræðu flutti frú Hrefna Þor-
steinsdóttár, settur skólastjóri í
orlofi frú Guðrúnar P. Helga-
dóttur. Mikill fjöldi gesta voru
viðstaddir skólaslitin.
223 námsmeyjar settust í skól-
ann sl. haust og 36 brautskráð-
ust úr skólanum í vor. Hæstu
einkunn á lokaprófi hlaut Ásta
Ásdís Sæmundsdóttir, 9,27. Mið-
skólaprófi luku 30 stúlkur, en
landspróf þreyttu 27. Á miðskóla
prótfi hlaut hæsta einkunn Sig-
urlína Hermannsdóttir, 8,52.
Skólanum bárust margar góðar
gjafir við skólaslitin.
Tækniskóli íslands 1
Tækniskóla íslands var slitið
í fjórða sinn 27. júni. — Bjarni
Kristj ánsson, skólastjóri, flutti
skólaslitaræðu og ræddi m. a. í
henni starfsemi skólans ag fram-
tíðarhorfur.
139 nemendur stunduðu í vet-
ur nám í Tækniskólanum. Til-
skilin árspróf stóðust 78. Þar af
eru 17, sem fara nú uitan til að
ljúka tveim síðustu námsárun-
um.
Próf í undirbúningsdeild luku
33 nemendur með fullnægjandi
árangri, en alls voru í deildinni
63 nemendur í vetur. Próf í raun
greinadeild stóðust 28 af 40 sem
stunduðu þar nám. í meinatækni
deild luku 12 stúdínur prófi.
Hæistu einkunn í undirbúnings
deild hlaut Jón Ragnar Höskulds
son, 9,1. í raungreinadeild hlutu
hæsta einkunn, 9,2, Sigurður
HörðUr Sigurðsson og Stefán
Arnar Kárason. Hæsta próf í 1.
hluita tók Ingi Ásmundsson, 8,8,
og í meinatæknideild var Hrefna
Kjartansdóttir efst með meðal-
einkunnina 8,6.
Við skólann voru i vetur 5
fastráðnir kennarar, stundakenn-
arar voru 20 og prófdómarar 24.
Vélskóli tslands
Vélskóla íslands vaT slitið í 53.
SAIMYL
ÞAKRENNUR
J. Þorláksson & Norðmann
sinn 31. maí sl.
Skólastjóri, Gunar Bjarnason,
flutti skólaslitaræðu og rakti í
henni störf skólans sl. vetur, en
tilkoma nýrra laga um menntun
vélstjóra hatfa orðið til þess að
miklar breytingar hafa orðið í
kennslu skólans.
t skólaslitaræðu Gunnars
Bjarnasonar kpm fram, að á
skólaáriniu voru gefin út samtals
180 iskírteini. Þau skiptast þann-
ig: Lokapróf samkvæmt eldri
reglum 33, 1. stig 39 (þar af 11
á Akureyri), 2. stig 42, 3. stig
28 og öldungar 38.
Að lokinni ræðu skólastjóra og
afhendingu prófskírteina • til
hinna nýútskrifuðu prófsveina
tók Jóhannes G. Jóhannesson til
máls tfyrir hönd 10 ára nemenda
og færði skólanum að gjöf mál-
verk atf skólastjöra, er Halldór
Pétursson hefur málað.
Þakkaði skólastjóri hlýhug
gamalla nemenda sinna. Síðan
sagði hann skóalnum slitið.
Skrifstofustiilka óskast
Skrifstofustúl'ka með starfsreynslu óskast að stóru
fyrirtæki tii fjölþættra starfa. Með umsókn verður
farið sem trúnaðarmál. Umsóknum þurfa að fylgja
upplýsingar um menntun og fyrri störf og óskast
þeim skilað til Morgunblaðsins fyrir 17. þ.m.
merktum: „Skrifstofustúlkur — 8485“.
Hjúkrunarkona
Hjúkrunarkonu vantar frá 1. október n.k. að Dval-
arheimilinu Ási í Hveragerði.
Umsóknir sendist í skrifstofu vora, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
EIIi- og hjúkrunarheimilið Grund.
KAUPMENN — KAUPFÉLÖC
SUNDSKYLUR
oc
SÓLBUXUR
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
S. Óskatsson. &. (Zo.j
HEILDVERZLUN — Garðastræti 8 — Sími 21840.
ALLT Á SAMA STAÐ
Notoðar biíreiðir til sölu
Scout 1967 klæddur, skipti möguleg.
Opel Reckord 1963, Opel Caravan 1962,
Opel Capitan 1961 ódýr, Opel Cadett L gerð
1966, eins og nýr, Opel Cadett station 1967,
Hillman Husky 1964, Renault Dauphine 1963,
Austin Gipsy 1962, Willy’s jeep 1966, með blæjum,
Willy’s Tuxedo 1966, Ford Bronco 1966,
Commet imp 1967 sendiferðabifreið,
Rambler Classic 1964, skipti á ódýrari bíl
koma til greina.
Rambler Classic 1963, Jeepster 6 cyl.,
Wil'ly’s jeep frambyggður 1964, Singer Vouge 1965,
Taunus 17M station 1965, Hillman Super Minx 1966,
lítið ekinn, Saab special 60 hestöfl 1966.
EGILL VILHJÁLMSSON H.F.,
sýningarsalur,
Laugavegi 116, sími 22240.
Njótið hollrar útiveru í fögru um-
hverfi og skemmtilegum félagsskap
Skíðukennslo,
gönguferðir,
kvöldvökur
Næstuferöir eru 13. júlí — 19. júlí,
21. júlí — 27. júlí og 27. júlí — 2. ágúst.
Þátttökugjald 4800 kr. — Innifalið: ferðir, fæði,
gisting, skíðakennsla, skíðalyfta, leiðsögn í göngu-
ferðum, kvöldvökur. — Skíði og skíðastafir til leigu.
— Heit og köld böð eru á staðnum.
Fjölskylduferð verður 2. ágúst — 8. ágúst og síðan
fimm unglinganámskeið.
Upplýsingar hjá Hermanni Jónssyni úrsmið, Lækj-
argötu 4, sími 1-90-56 og Ferðafélagi íslands, Öldu-
götu 4.
Skiðaskólinn i Kerlingarfjöllum