Morgunblaðið - 17.07.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.07.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1968 5 / Hingai Maut leiðin að liggja að lokum Bremsuborðar Bremsuklossar Viftureimar Ávallt fyrirliggjandi mikið úrval varahluta í flestar gerðir bíla. Athugið okkar hagstaeða verð. Kristinn Cuðnason hf. Klapp-arstíg 27. Laugaveg 168. Sími 12314 og 22675. — segir ívar Guðmuftdsson, blaðafulltrúi ívar Guðmunidsson, blaðafull- trúi hjá Sameinuðu þjóðunum, er staddur hér á landi tun þessar mundir, en ein,s og kunnugt er hefur hann verið skipaður frétta stjóri Ríkisútvarpsins frá næstu áramótum að telja. Ivar er hér í sumarleyfi með fjölskyldu sinni, en það hefur verið venja hans að koma hingað aninað hvert ár að minnsta kosti til þess a'ð halda við sambandi við land og þjóð. Þessi ferð stendur því ekki beinlínis í sambandi við fram- tíðarstarf hans hér, enda ákveð- in áður en það kom til greina. Er Morgunblaðið spurði ívar, hver hefði verið aðalástæ'ða þess, að hann sótti um fréttastjóra- starfið, svaraði hann því til, að í þau 18 ár, sem hann hefði starfað hjá Sameinuðu þjóðun- um hefði hugurinn ætíð verið heima, og „hingað hlaut leiðin a'ð liggja að lokum“, sagði hann. „En það sem mestu réði um að ég greip þetta tækifæri, er fram- tið sona minna þriggja. Um tvennt var að ræða, að þeir kynnu að hverfa í milljónahaf erlendra þjóða, eða gæfist kost- ur á að verða nýtir íslendingar. Ég er þakklátur því trausti, sem forráðamenn Ríkisútvarpsins hafa sýnt mér. Á þessu stigi málsins tel ég ekki ástæðu til að ræða frekar um starfi'ð sjálft, en eftir þeim góðu viðtökum, sem ég hef hvarvetna fengið —ÁJR ÝMSUM ÁTTUM Framhald af bls. 12 mín og einn sona minna hafa áður komið, og ég á eftir að koma aftur á næsta ári og þá komum við hjónin. Þessi dótt ir mín rekur heimili fyrir van gefin börn og þau eru hennar líf og yndi. Þá á ég son, sem er ritstjóri Readers Digest í Þýzkalandi, annar er prestur í Hamborg og sá þriðji er þjóðminjavör'ður við safnið í Vestur-Berlín. Hann gegnir því sama embætti og forset- inn ykkar, bætti Manfred Hausmann við og kvaddi okkur. þessa fáu daga, sem ég hef verið hérna nú, þykist ég mega vænta góðrar samvinnu og velvildar í hinu nýja starfi, þegar þar að kemur.“ „Nú sem stendur veiti ég for- stöðu þeirri deild Upplýsinga- skrifstofu' Sameinuðu þjóðanna, sem annast um ýmis sérmál," sagði Ivar ennfremur. „Flest þeirra eru bundin ákveðnum tíma, ejns og til dæmis Alþjóða mannréttindaárið, sem nú stend- ur yfir og lýkur ekki fyrr en í desember n.k. Önnur eru einnig tæplega nema hálfunnin. Má þar nefna undirbúning að hinum ár- legu hringboi'ðs-umræðum rit- stjóra og fréttastjóra útvarps og sjónvarps, sem að þessu sinnd verða haldnar í Santiago í Chile í lok þessa árs. Auk þess er starfstímabili mínu sem ritara ívar Guðmundsson og frú Barbara ásamt sonum sínum. Þeir eru, talið frá vinstri: Brúsi tvar, 9 ára, Pétur. 4 ára og Brjánn, 10 ára. Ráðgefandi nefndar um upplýs- ingaþjónustu SÞ og sérstofnana þeirra (CCPI) ekki lokið. Næsti fundur þeirrar nefndar verður um áramótin í Washiragton eða Montreal. Þessi og öranur ólokin verkefni eru aðalástæða þess, að ég get ekki tekið við starfi mínu hér fyrr. ívar fer héðan með fjölskyldu sinni n.k. laugardag, fyrst með Gullfossi til Edinborgar, en það- an með skipi vestur um haf. GRENStóVEGI 22-24 SlMAR: 30280-322GZ Teppi — Teppi Belgísk, þýzk og ensk gólfteppi. Verð pr. ferm. fró kr. 255.— Góð og vönduð teppi. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu MÆMSk RALEIGH KING SIZE FILTER Leið nútímamannsins til ekta tóbaksbragðsins f rá Ameríku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.