Morgunblaðið - 17.07.1968, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JULI 1968
TVÆR broshýrar, dans’kar ný-
stúdínur litu inn á Morgunblað-
ið, voru að koma úr ferðalagi til
Vestfjarða. Þær áttu reyndar er-
indi til okkar, því önnur er dótt-
ir íslandsvinarins Bents A. Koch,
itstjóra, sem lengi var frétta-
, 'itari fyrir Mbl. í Kaupmanna-
nöfn. Hún heitir Marie Koch og
vinstúlka hennar Eba Lilien-
Kampff. Þær stöllurnar eru í
sumarfríi. Marie Koch hafði kom
ið hér áður með foreldrum sín-
um og það var ástæðan til þess
að þær héldu í norðurátt til ís-
lands.
Ekki byrjaði ferðin þó vel og
voru þær stöllur fjúkandi reiðar,
þegar þær komu inn í landið.
Það var 1. júlí og ískalt, sögðu
þær. Tollverðir spurðu hvort
þær hefðu áfengi og sígarettur.
Já, þær voru með leyfðan
skammt af sígarettum og eina
Dönsku nýstúdíurnar Eba Lilienkampff og Marie Koch.
Mörg dásamleg smáæfintýri á
sögðu danskar nýstúdínur
flösku af wisky, sem þær ætluðu
að hafa sem öryggismeðal i úti-
legunni, þegar kaldast væri.
Hvað, væru þær gamlar? Já, báð
ar 19 ára. Þá var wiskyflaskan
umsvifalaust af þeim tekin. —
Við vorum æfareiðar, sögðu þær
því í Danmörku þarf maður ekki
að vera nema 16 ára til að mega
hafa vín undir höndum. Og þetta
sem var styrkjandi meðalið, sem
við ætluðum að hafa við kuldan-
um norður í landi. En þegar við
fórum að segja frá þessu, gáfu
góðar manneskjur okkur bara
sína flöskuna hvorri. Svo við er-
um næstum búnar að fyrirgefa
íslendingum þessa ósvinnu. Við
höfðum líka reglulega not fyrir
þetta meðal, til að hrista úr okk-
ur hrollinn og verða sifjaðar af
á kvöldin í þessari eilífu dags-
birtu.
Og svo sögðu þær okkur frá
ferðinni. Þær ferðuðust á puttan
um, sem sagt er, fengu að sitja
í bílum og gekk vel. Sumir voru
svo almennilegir að þeir biðu og
komu okkur í næsta bíl ef þeir
beygðu út af okkar leið. Þær
fóru fyrst um Borgarfjörð og
svo í Bjarkarlund og tóku áætl-
unarvagn til ísafjarðar, þar sem
svo litil umferð var á veginum.
Þá fóru þær út í Vigur, og bjuggu
þar í nokkra daga. — Það var
stórkostlegt að koma þar og fá
að kynnast reglulegu íslenzku
sveitaheimili, sem stendur á
gömlum merg, sögðu 'þær. Sjálft
búið er nútímalegt, með nýjum
Framhald á bls. 14
*
FLESTIR þekk.ja hann sem
Bjössa á Ægissíðunni, en í
raun réttri heitir hann Björn
Guðjónsson. Og hann er góð-
kunningi flestra Reykvikinga,
sem telja rauðmaga og signa
grásleppu til lostætis. Björn
hefur í fjölda ára róið frá
Ægissíðunni á rauðmagamiðin
þegar vorar og fram á sumar,
og farkostur hans er eins og
hálfs tonna trilla, sem Björn
segir mesta happabát.
Þegar við áttum laið fram
hjá Ægissíðunni ekki alls
fyrir löngu sáum við hvar
tri'lla Björn sikreið greiðlaga
áleiðis að landi og var hann
við annan mann. Þegar bát-
urinn lenti sáunn við að há-
setinn var Haraldur Ólafsson,
forstjóri FáLkans, — hann
hafði þá brugðið sér með Birni
í einn róður sér tM. skemmt-
Hér bera þeir hluta aflans í
„Ekki ræ ég á tveimur bátum í einu...“
Litið við hjá Bjössa á Ægissíðunni og
frœðst um rauðmaga og grásleppu
Hér er Björn ásamt snaggaralegum drengjnm, sem hann
vildi endilega fá á myndina með sér, því að „þeir eru nefni-
lega hásetamir mínir.“
unar og heilsubótar. Og þeir
höfðu aflað allvel og fram í
bátnum byltu grésLeppurnar
og rauðmagarnir sér í dauða-
teygjunum í tugatali.
Við þóttumst þarna hafa
fengið tilvalið tækitfæri til að
rabba ofurlítið við Björn um
útgerðina. Spurðum við hann
fyret uim fiskiríið það sem af
er.
— Þetta hefur gengið bæri-
lega, sagði Björn, þegar tíðin
hefur verið sæmileg, og heild-
a.rútkoman nú er betri en í
fyrra.
— Hvenær hefst rauðmaga
vertíðin?
— Hún hefst í marz, og
stendiur yfirleitt nokfcuð fram
á sumarið. Við förum að
hætta hvað úr hverju, þetta
fer eftir tíðinni hvað maður
heldur Lengi áfram.
— Og hvert er aðallega
sótt?
— Ég held mig mest út af
Kerlingaskeri út atf Suður-
nesi. Þar er oft alilgóð veiði
að fá, og við höfuim verið þar
tveir að undantfömu. En eins
og ég sagði áðan, förum við
bráðlega að hætta, og þá tek-
ur við ýmiss konar dagiauna-
vinna.
Við spyrjum Bjöm hvernig
gangi að koma atflanum út
dags daglega: — Ég þarf ekki
að kvarta, svarar hann. —
Rauðmaginn selzt yfiriLeitt um
leið og hann er kominn á þurrt
land, og sigin grásleppa selzt
altaf meðan hún er tiil. Úr
henni hirði ég einnig hrognin
og salta þau.
— Hvert selur þú þau aðal-
lega?
— Aðalmarkaðurinn fyrir
grásleppuhrogn er í V-Þýzka-
landi oig þangað hetf ég seit
þau beint til kaupenda í
nokkur ár. Ég get selt þangað
hverja tunnu fyrir um 65 doll-
ara brúttó, og þegar þokka-
lega gengur fæ ég hrogn í 50
tunnur, þannig að brúttótekj-
ur af þessu éru rúmilega 3200
dollarar.
— Og rærð aðeins með
þennan eina bát?
Framhald á bls. 14
FASTEIGNASALAN
GARÐASTRÆXI .17
Símar 24647 - 15221
TIL 5ÖLU
við Austurbrún 2ja herb.
íbúðir á 8. og 10. hæð.
3ja herb. íbúð á 2. hæð við
Skipasund.
4ra herb. hæð við Grundar-
gerði, sérinngangur ræktuð
lóð.
4ra herb. ný hæð við Skóla-
gerði útb. 475 þúsund.
Við Nóatún 3ja herb. jarðhæð,
sérhiti, sérinnganigur.
5 herb. endaíbúð við Hraun-
bæ, 2 íbúðarherbergi á
jarðhæð fylgja, íbúðin er í
sérflokki með allan frá-
gang.
Parhús við Skólagerði 5 herb.
nýlegt vandað steinhús, bíl-
skúr 40 ferm. upphitaður og
raflýstur, girt og ræktuð lóð
útb. 750 þúsund sem að má
skipta.
Parhús við Álfheima, 5 til 6
herb. Æskileg eignaskipti á
4r.a herb. íbúð.
Einbýlishús við Hlíðarveg 4ra
til 5 henb. bílskúr.
4ra herb. íbúð á 4 hæð við
Alftamýri suðursvalir.
4ra herb. sérhæð í Hafnar-
fiirði, nýleg íbúð útíb. 350
þúsund.
Iðnaðarhúsnæði við Auð-
brekku 470 ferm.
Iðnaðar-, skrifstofu- og verzl-
unarhúsnæði við Skipholt.
Nýlenduvörubúð í Austur
bænum.
Árni Giiðjónsson, hrl.
Þorsteinn Geirsson. hdl.
H«*l*i Olofsson. sölustj.
Kvöldsími 41230.
16870
Höfum fjársterka
kaupendur
að 2ja herb. íbúð í
Kleppsholti eða ná-
grenni, gjarnan í há-
■hýsi við Austubrún eða
Kleppsveg, að 3ja-4ra
herb. íbúð í Klepps-
holti eða Vogum, að 2ja
-3ja herb. íbúð á hæð í
jVesturbænum, að 4ra
herb. íbúð í smíðum í
;Fossvogi.
;Ath. hringið og biðjið
um söluskrá og við send
um yður endurgjald-
laust.
um ölukrá og við end-
um yðar endurgjaldlau
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
IAuslurstræti 17 ÍSilli S Valdil
Ragnar Tómasson hdl. simi 24645 I
sölumadur fasteigna:
Stefón J. Richter simi 16870
kvöldsimi 30587
íbúð óskust
Stór tveggja eða lítil þriggja
herbergja íbúð óskast keypt,
milliliðalaust.
Mikil útborgun.
Tilboð merkt: „2712“ send-
ist Morgunblaðinu fyrir 25.
þ.m.
Atvinna — Ldn
Sá sem getur Lánað 100 þús.
kr. til 1 Vz árs, getur fengið
vinnu við léttan iðnað og get-
ur að mestu ráðið vinnutíma
sjálfur.
Helzt bvenmaður, en ekki
skilyrði. Tilboð sendist blað-
inu merkt: „8244“,________