Morgunblaðið - 17.07.1968, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1968
11
Rottan
smávaxin ófreskja
í Indlandi eru 5 rottur á hvern íbúa
cg þœr éta 26 milljónir tonna af
korni á sama tíma og milljónir svelta
x „ÞÓTT rottan sé aðeins
um pund að þyngd má með
miklum sanni kalla hana ó-
freskju. Enginn höfundur hroll
vekjusagna hefur nokkru
sinni skapað jafn viðbjóðs-
legt kvikindi í bókum sínum.
En samt sem áður hefur rott-
an deilt rúmi með og setið
til borðs með manninum í alda
raðir, og leigugjaldið hefur
einungis verið kvöl og dauði.
Nýlega lét bandariskur heil
brigðissérfræðingur þessi orð
falla: — Er þetta ekki kald
hæðni örlaganna, að maður-
km, sem er þess megnug-
ur að senda mönnuð geimskip
til mánans, skuli láta það við-
gangast á sama tima, að slík
skaðræðisskepna fari frjáls
ferða sinna á heimili hans?“
Þannig farast bandaríska
blaðamanninum Ralph Bugg
orð í erlendri tímaritsgrein
nýlega um rottuna og feril
hemnar. Og hann heldur á-
fram:
„Kaldhæðni er þetta óneit-
anl;ga, en við verðum að hafa
það í huga að ekki er hlaup-
ið að því að vinna bug á
henni. Rottan hefur marga
eiginleika — hún getur stokk
ið, klifrað, hlaupið og synt,
og frjósemi herrnar er með
eindæmum. Hún fer leynt og
vinnur skítverk sín í skjóli
myrkursins. Einnig hefur rott
an verið svo lengi í samfé-
lagi við manninn, að það er
næstum farið að líta á hana
sem sjálfsagðan hlut.
En sé það trú rottunnar, að
hún muni lifa áfram í vellyst-
ingum og ímyndi ser að heim-
urinn sé hennar biti af ost-
inum, þá skjátlast henni
hrapalega. Stöðugt er verið að
gera nýjar uppgötvanir og
fundin vélræði, sem miða að
útrýmingu rottunnar. And
stæðingar hennar hafa aldrei
verið ákveðnari í því að koma
henni fyrir kattarnef, og hóp
ar vísindamanna hafa nú
skipulagt mikla útrýmingar-
herferð gegn rottunni."
Rottan stendur 1 þakkar-
skuld við manninn hversu
víða hún hefur náð bólfestu í
heiminum. Hún er talin upp-
runnin i Mið-Asíu en fór
snemma á öldum að flytja sig
vestur á bóginn. Og þegar
maðurinn hóf siglingar landa
á milli var rottan jafnan föru
nautur hans og nam land um
allan heim. Vart mun nokk-
ur höfn hafa sloppið við
þennan ófögnuð.
Til að komast að raun um
yfirgang rottunnar er holit
að íhuga innrás hennar í tvö
fjölmenn lönd — Indland og
Bandarikin. Indverskr stjórn
in áætlar að þar sé , nú um
5 rottur á hvern í’ ^a. Þjóð-
in telur um 48f milljónir
Bréfasam!)and
Bandarískur, barnlaus ekkjumaður, 36 ára, vel
menntaður, óskar eftir bréfasambandi við íslenzka barn
lausa stúlku á aldrinum 2,5 til 30 ára, með hjónaband
fyrir augum.
Mynd óskast, ef til er.
Sendið bréf á ensku eða íslenzku til
Mr. D. Wright
11830 S. W. 89 Ave.
Miami Florida 33156 U.S.A.
vörpum og stundum er vart
hægt að sofna fyrir þruskinu
í þeim.“
Ófagrar eru þessar lýsingar
óneitanLega, og sem betur fer
höfum við ísleningar farið
manns — sem sagt 2,4 bill-
jónir rotta eru í Indlandi og
þær éta árlega u.þ.b. 26 milil-
jón tonn af korni. Og einmitt
hjá þessari þjóð er hungurs-
neyðin alvarlegasta vandamál
ið.
í Bandaríkjunum segir rott
an einnig til sín í efnahags-
lífinu, enda þótt þar séu áhrif
in ekki á neinn hátt eins og
í Indlandi. Þar áætla menn, að
ein rotta sé á hvern íbúa eða
um 200 milljónir, og þær eta
og eyðileggja mabvæli, sem
metin eru á hálfa billjón doll-
ara. Auk þess valda þær
skemmdum á húsum húsbún-
aði o.fl. og skiptir það tjón
án efa milljónum dollara.
Þær eru orðnar margar plág
urnar, sem rottan hefur leitt
yfir mannkynið frá örófi alda,
og einnig mannslífin, er hún
hefur sent inn í eilífðina. Og
enn þykir nógu slæmt að vera
rændur af rottum eða smitast
af vírusum þeirra, en til eru
önnur tilfelli — enn óhugnan
legri. Dr Harold G. Schott,
starfsmaður bandarísku heil-
brigðisstofnunarinnar tekir
að árlega séu um 14 þúsund
manns bitnir af rottum þar
vestra. Fjöldi sannra sagna
eru til um að rottur hafi bit-
ið menn til ólífis — og þá sér
staklega ungbörn. Tökum
dæmi. f Brooklyn kom móðir
að barni sínu og hugðist gefa
’því pela til að stöðva grát
þess. Sá hún þá að barnið
hafði verið bitið mjög illa af
rottum, og lézt það litlu síðar
í sjúkrahúsi. Tilgreinir Ralph
Bugg fjölda áþekkra dærna í
grein sinni og sum enn ægi-
legri.
Flest fórnardýr rottunnar
lifa þó af bit hennar, en oft
eru hin andlegu sár, sem þær
skilja eftir, enn hörmulegri en
líkamslýtin. Til dæmis réðst
rotta á litla stúlku á einum
stað í Bandaríkjunum og beit
af henni nefið. Uppfrá því
hafa leikfél. hennar aldrei kall
að hana annað en „Pig-face“
eða Svínsandlit.
Rottur halda sig jafnan þar
sem óþrifnaðurinn er mestur
— í fátækrahverfum stórborg
anna, í skipalægjum og hjá
sorpræsunum. Og þó oftast sé
þarna lítinn mat að finna.
handa fólki þá fær rottan
nægju sína og vel það. Fróð-
legt er að heyra íbúa fá-
tækrahverfanna lýsa sambúð
inni við rotturnar:
— Þær hrekja okkur næst
um því úr rúmunum, segir
einn húsráðandinn. — Ef ég
set ekki matinn í kælinn strax
og við höfum matast kemur
rottan og tekur hanin trausta
taki. Og um leið og ég slekk
ljósinn á kvöldin þá streyma
þær út úr veggjunum í unn-
Rottan getur stokkið, klifrað, hlaupið og synt, og þarna
fetar hún sig eftir örmjóu vír.
varhluta af þessu að mestu.
Að vísu eru rottur hér viða
en hvergi nærri eins fjölmenn
ar og víða úti í löndum. Við
snerum okkur til Leós
Schmidts meindýraeiði hjá
Reykj avíkurborg, til að for-
vitnast um fjölda rotta í höf-
uðborginni. Ekki treysti Leó
sér til að nefna neinar tölur
í þessu sambandi, en taldi að
nú væri minna um rottuna en
oftast áður — Rottan hefur
ekki fengið hér neitt tækifæri
til að fjölga sér verulega, seg-
ir Leó, — því að á hverju
vori höfum við eitrað skipu-
lega á þeim stöðum, sem helzt
verður vart við hana. Helzt
skýtur hún upp kollinum þeg
ar vorar og hitna fer í veðri,
og helztu aðsetursstaðir henn
ar eru í klóökunum, og eins
þar sem fiskvinnsla er — svo
sam við Skúlagötuna hjá Bæj
arútgerðinni, úti í Örfirirsey,
inni á Kirkjusandi og víðar.
Alla þessa staði eitrum við á
vorin og við höfum ágætar
eiturtegundir, sem vinna fljótt
á henni. Við fáum líka alltaf
eitthvað af kvörtunum frá
íbúðarhúsum um rottugang,
einkum í kjölhirum, og er það
aðallega frá nýju hverfunum.
Stafar það e.t.v. af því, að
skolprör hafa opnast við fram
kvæmdirnar í þessum hverf-
um og rotturnar komist upp
með púkkinu í húsgrunnin-
um og þaðan upp á yfirborð
jarðar. Einnig er fólk oft óvar
kárt og skilur ræsi í þvotta-
húsum eftir opin, þainnig að
rottan kemst þar upp. En eins
og ég sagði áðan, þá ber nú
minna á rottunum en oftast
áður — við getuim tekið i>akk
húsin við höfnina sem dæmi
— Þar hefur jafnan verið
mikið af rottunum en þar eru
þær nú með alminnsta mótL
Fljúgið
í sumarleyfið
vel tryggð
IÐGJOLD FERÐATRYGGINGA HAFA LÆKKAÐ VERULEGA
FERÐATRYGGINGAR OKKAR ERU ÖDÝRAR OG VlÐTÆKAR. WtR TRYGGJA YÐUR FYRIR ALLS KONAR SLYSUM, GREIÐA
DAGPENINGA VERÐIÐ ÞÉR ÖVINNUFÆR SVO OG ÖRORKUBÆTUR OG FJÖLSKYLDU YÐAR DÁNARBÆTUR.
MIÐAÐ VIÐ 100.000,— KRÖNA TRYGGINGU I HÁLFAN MÁNUÐ ER IÐGJALD N0 KR. 47.00 EN VAR ÁÐUR KR. 81.00.
FARIÐ EKKI ÓTRYGGÐ I SUMARLEYFIÐ. TRYGGIÐ YÐUR HJÁ AÐALSKRIFSTOFUNNI EÐA NÆSTA UMBOÐI.
SAMVIINNUTRYGGIIVGAR
ÁRMÚLA3 SfMI 38500