Morgunblaðið - 09.08.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1968
19
- NIXON
Framh. af bls. 10
torsóttasta, sem hann hafði
nokkru sinni háð. Almenningur
í Kaliforníu leit á Nixon sem
fallinn stjórnmálamann er ætl-
aði að nota sér fylkið sem stökk
pall inn í Hvíta húsið. Ósigur-
inn tveimur árum áður var enn
í fersku minni. Nú endurtók
sagan sig og Nixon féll við |
dynk. Meirihluti Brown voru
tæp þrjúhundruð þúsund at-
kvæði.
Þetta urðu síðustu afskipti
Nixons af stjórnmálum í bili.
Hann kvaddi blaðamenn, sem
hann ávallt hafði talið sér and-
snúna, með þeim orðum að nú
skyldu þeir ekki hafa Nixon í
framtíðinni til að henda skæt- ,
ingi í.
Hann hætti í svipinn opinber- '
um afskiptum af stjórnmálum,
gerðist meðeigandi í þekktu lög
fræðifyrirtæki í New Yorkborg
með 25 þúsund dala árslaun og
hefur auðgast vel á þessum ár- j
um.
í forsetakosningunum árið
1964 tók hann þátt í kosninga- j
baráttu Goldwaters, hélt ræður
og beitti áhrifum sínum til fram j
gangs flokknum. Þetta mundi
Goldwater honum áreiðanlega í
ár og varð einna fyrstur af for- j
ystumönnum flokksins til að
lýsa yfir stuðningi við Nixon. |
Þessi stuðningur Goldwaters og
fylgismanna hans úr hægri
armi flokksins mun einnig hafa
dugað honum hvað bezt í
Miami nú á dögunum, þrátt
fyrir framboð Reagans.
f aukakosningunum fyrir
tveimur árum notfærði Nixon
sér svo það tómarúm, sem skap
ast hafði í forystu flokksins eft-
ir dýrkeyptan ósigur Goldwat-
ers. Hann tók sig upp frá New
York og af endurnýjuðum
krafti veitti hann frambjóðend-
um um allt land þann stuðn-
ing er hann mátti. Árangur
Republikana í þessum kosning-
um var góður. Nixon hlaut sinn
skerf af sigurlaununum fyrir
atbeinann.
Pólitísk sól Nixons nálgast nú
á ný hádegisstað. í nóvember ;
ganga Bandaríkjamenn tilkjörs
þá verður úr því skorið hvort
sól hans fær að skína áfram.
Snekkja ferst
við Jan i\layen
(Bodö, 8. ágúst.
ENSK snekkj,a, „Mtschief“, sökk
aðfaranótt mánudags um 30 til 40
sijómílur frá Jan Mayen er verið
var að dr^gta hana frá eynni til
Rodö í Noregi. Áhöfninni var
bjarg'að um borð í íshafstskipið
„Brandal“, sem diró snekkjuna.
Skipið kom til Bodö í fyrradag.
„Mischief" er skráð í Cardiff,
og skipðtjóri snekkjunnar er H.
W. Tilman, sem hefur tvívegis
siglt á henni til íslands á leið
til Grænlands, í annað skipti
þegar Filippus prins kom í heim
sókn. Fyrir tæpum hálfum mán-
uði strandaði snekkjan í Bátvik
í Noregi og er talið að tjónið
hafi verið svo mikið að hún hafi
efcki verið siglingahæf eftir
atrandið.
Pólskni styrkur
Mbl. barst í gær svohljóðandi
fréttatilkynning frá menntamála-
ráðuneytinu:
„Pólsk stjórnvöld bjóða fram
styrk handa íslendimgi til há-
skólanáms í Póllandi námsárið
1968-69. Styrkfjárhæðin er2400
zloty á mánuði, en auk þess fær
styrkþegi ókeypis húsnæði á stú
dentagarði og er undanþeginn
greiðslu kenmslugjalda.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 26. ágúst n.k.
Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.*1
Winstoi
mest seldu
Silter sígarettur í heímt
Winston
eru framleíddar af
Camet verUsmíójunum
EITTHVAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR
AD MENN VELJA WINSTON HELDUR ..