Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 28
Heimílistrygging
er nauðsyn
*
ALMENNAR
TRYGGINGARP
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1968
Meiri kjötútflutn-
ingur en i fyrra
— fyrsti farmurinn fer á morgun
Að öllum líkindum verður meira
flutt út af kjötframleiðslu þessa
árs, en síðasta árs, að þvi er
Agnar Tryggvason hjá útflutn-
ingsdeild S.Í.S. tjáði Morgun-
blaðinu í gær. Af framleiðslu
sl. árs voru flutt út um 4000
tonn.
'Verðlagsgrund-!
jvöllur landbún-
aðorvora
óhveðinn tíl
tveggja óro
Tfimefnd í verðlagsmálum'
landbúnaðarins ákvað í gær I
nýjan verðlagsgrundvöll, sem|
gilda skal til tveggja ára. i
Hins vegar er eftir að reikna!
út áhrif þessa nýja grundvall'
ar á búvöruverðið og niður-1
stöðu af þvi ekki að vænta (
fyrr en eftir nokkra daga.
Agæt hrefnu-
veiði í sumur
Góð hrefnuveiði hefur verið í
ísafjarðardjúpi í sumar. Hefur
Karl Þorláksson frá Súðavík,
sem stundar þessar veiðar ásamt
Kjartani syni sínum, veitt 12
hrefnur í sumar, og annar bát-
ur, sem einnig er gerður út frá
Súðavík, hefur fengið fimm
hrefnur.
Góður markaður er fyrir
hrefnukjöt þar vestra.
Fyrsti farmurinn af fram-
leiðslu þessa árs, 130 tonn, fer
til Bretlands og Þýzkalands með
leiguskipi, sem á að leggja af
stað á morgun. Á sunnudag kem
ur annað leiguskip og lestar um
400 tonn af nýju lambakjöti til
Bret'lands og Þýzkalands.
Bretar keyptu mest af útflutn-
ingsframleiðslu síðasta árs, eða
S hluta, en síðan komu Fær-
eyingar og einnig var kjöt selt
til Hollands, Vestur-Þýzkalands,
Danmerkur, Finnlands og Sviss.
Öll þessi lönd munu kaupa eitt-
hvað af framleiðálu þessa árs, en
einnig opnast nýr markaður í
Frakklandi og verður selt þang-
að kjöt fyrir rúmlega hálfa millj.
króna.
Norðmenn hafa á undanförn-
um árum keypt af okkur saltað
dilkakjöt, en þau viðskipti hafa
farið minnkandi og af fram-
leiðslu síðasta árs voru aðeins
seld 92 tonn til Noregs.
Þessa mynd af Surprise á ið mesta hallann af togaran- upp vélarnar, en þegar því
strandstaðnum tók Ámi John um, sem enn liggur þvert fyr er lokið, má vænta þess, að
sen í gær, en eins og á henni ir í fjörunni. Nú vinna björg tilraun verði gerð til að ná
sést hafa björgunarmenn tek unarmenn að því að þrífa togaranum út.
Saltað af ful lum krafti á
Raufarhöfn og Seyðisfirði
Söltunarmet hjá Óðni h.f.
SALTAð var af fullum krafti á
Raufarhöfn og Seyðisfirði í gær
en síldin, sem barst til Neskaup-
staðar var illsaltandi vegna rauð
átu. Saltendur á Austurlandi
auglýsa nú eftir síldarstúlkum
og í gær komu tvær flugvélar
MYNDIN er tekin í brúnni á Óðni í gær. Frá vinstri:
Hannes Finnbogason, læknir, sem var með Óðni í fyrri ferð-
inni, Sigurður Ámason, skipherra, og dr. Snorri Hall-
grunsson.
frá Reykjavík til Raufarhafnar
með síldarstúlkur. f gærmorgun
kom Gísli Árni til söltunarstöðv
arinnar Óðins h.f. á Raufarhöfn
með um 330 tonn og um tíuleyt-
ið í gærkvöldi var búið að salta
í 1600 tunnur en búizt var við
að um 1800 uppsaltaðar tunnur
fengjust úr aflanum. Er það þá
það mesta, sem ein stöð hefur
saltað úr síldveiðiskipi í einu og
að líkindum einnig það mesta,
sem fengizt hefur úr afla eins
veiðlskips.
Hjá Norðursíld á Haufarhöfn
var saltað í um 500 tunnur úr
Jóni Garðari og í nótt voru þrjú
skip væntanleg til Raufarhafn-
ar með síld, Héðinn ÞH með
110 tonn til Björgu hf; Faxi
með 150 tonn og Þórður Jónas-
son til Norðursíldarinnar.
Á Seyðisfirði var í gær saltað
á sex stöðvum úr átta bátum og
gizkaði fréttaritari Morgunblaðs-
ins á, að saltað hefði verið í um
1000 tunnur alls. Lítið er um að
komufólk á Seyðisfirði ennþá.
Tveir bátar komu til Neskaup
staðar í gær, Börkur NK með
100 tonn og Sveinn Sveinbjörns
son með 150 tonn. Síldin var full
af rauðátu og hafði því þolað
illa geymslu. Yar saltað í rúmar
300 tunnur úr Berki, en ekkert
var hægt að salta úr Sveini
Sveinbjörnssyni, þar sem síldin
var svo götótt á kviðnum vegna
rauðátunnar. Von var á þrem-
ur bátum til Neskaupstaðar í
nótt, Magnúsi NK með 150 tonn,
Bjart NK með 200 tonn og einn-
ig var von á Helga Flóvents-
syni með 120 tonn.
— 0 —
„Þetta er eiginlega búið að
vera endalaus söltun hjá okkur
síðan á laugardagsmorgun",
sagði Einar Guðmundsson, for-
stjóri Óðins h.f. á Raufarhöfn,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gærkvöldi. „Sl. laugar-
dagsmorgun kom Gísli Ární og
söltuðum við úr honum í 764 t.,
þá kom Fylkir og var saltað
í 772 tunnur úr honum, þá kom
Þorsteinn og fengum við 526 tunn
ur úr honum. Úr Sóley söltuðum
við í 100 tunnur og tóku-m auk
þes-s 660 t., sem skipverjar
höfðu saltað í úti á miðunum, og
í morgun kom svo Gísli Árni aft-
ur. Við höfum rúmlega 60 söltun
arstúlkur núna og eru þær bún-
ar að standa sig vel, eins
og reyndar allur mannskapurinn
í heild“.
Aðstoðuðu um 40 skip og
veittu 22svar læknishjálp
í
Vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 214 millj.
— í ágústmánuði síðast liðnum
Óðinn kom af síldarmiðunum í gœr
VARDSKIPIÐ óðinn kom til
Reykjavíkur í gærdag eftir 25
daga útivist á síldarmiðunum
norður í hafi. Skipið hefur
verið þar nú í sumar og veitt
veiðiskipunum ýmiss konar
þjónustu. Dr. Snorri Hall-
grímsson, yfirlæknir, var með
skipinu að þessu sinni og
veittj sjómönnum læknisþjón-
ustu, þegar hennar var þörf.
Morgunblaðið hitti dr. Snorra
og Sigurð Árnason, skipherra,
Framhald á b]s. 20
VÓRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
við útlönd var í ágústmánuði
sl. óhagstæður um 214,3 millj.
kr., að því er segir í tilkynningu
frá Hagstofu íslands, og vöru-
skiptajöfnuðurinn fyrstu átta
mánuði ársins óhagstæður um
2144,8 milljónir. í ágústmánuði
sl. árs var vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um 206,8 millj.
og fyrstu átta mánuði sl. árs
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 1971,4 milljónir. Það
skal tekið fram að tölur frá sl.
ári eru reiknaðar á því gengi
sem gilti fyrir gengisbreyting-
una í nóvember 1967, en tölur
1968 eru miðaðar við það gengi,
sem þá tók gildi.
í ágústmánuði sl. voru fluttar
út vörur fyrir samtals 298,7
milljónir, en innflutningurinn
nam 513 milljónum.
í ágústmánuði 1967 voru flutt-
ar út vörur fyrir 307,8 millj.,
en inn fyrir 514,6 milljónir.
Það sem af er þessu ári hafa
vörur verið fluttar út fyrir
2807,4 millj., en inn fyrir 4952,2
milljónir. Á sam-a tíma í fyrra
nam útflutningurinn alls 2675,7
millj., en innflutningurinn
4647,1 milljón.
Af innflutningi þessa árs eru
skip 174,5 millj., flugvélar 133
millj., vörur til Búrfellsvirkjun-
ar 271,6 millj. og innflutningur
til íslenzka álfélagsins h.f. 149,6
millj. króna, eða samtals 728,7
milljónir króna. Á sama tíma I
fyrra nam þessi innflutningur
samtals 617,6 millj. króna.