Morgunblaðið - 03.10.1968, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1968
Gildi geðverndar
Eftir Jón Sigurðsson dr. med.
Geðheilsa geðveiki og geð-
vernd hefur verið ofarlega á
baugi í umræðum um heilbrigð-
ismál undanfarin ár.
Að nokkru leyti stendur þetta
í sambandi við síaukið umtal um
alvarleg þjóðfélagsvandamál,
svo sem glæpastarfsemi, afbrot
xmglinga, deyfiylfjanotkun,
drykkjuskap, saurlifnað, hjóna-
skilnaði, slys, vanrækslu alls
konar o.fl., en farið er að leita
að því í vaxandi mæli, hvort
geðveila eða geðrænar orsakir
liggi hér að baki. Jafnframt er
mönnum ljóst, að iðnvæðingu og
þéttbýli fylgir aukin sálræn
spenna. Þeim einstaklingum fjölg
ar stöðugt, sem leita þurfa lækn-
inga vegna taugaveiklunar eða
geðveiki. Sjúkrarúmaþörf fyr-
ir þessa sjúklinga hefur engan
veginn verið mætt, og er ástand-
ið í því efni fyrir löngu orðið
mjög alvarlegt, svo sem kunnugt
er. Þeir eru orðnir margir
sjúklingarnir, sem ýmist aldrei
eða of seint hafa fengið viðhlít-
andi meðferð vegna sjúkdóms
síns. Er erfitt að gera sér í hug-
arlund, hve miklum sársauka og
óhamingju þetta atriði út af fyr-
ir sig hefur valdið.
Þótt ýmislegt, og alls ekki lít
ið hafi verið vel gert í heilbrigð-
ismálum þjóðarinnar, þá höfum
við aldrei getað státað af því,
að við höfum búið vel að geð-
sjúklingum okkar. Fyrsta geð-
veikraspítalann, Klepp, feng-
inn við ekki fyrr en 1909. Hann
var þá byggður fyrir 40 sjúkra-
rúm, en var þó strax í upphafi
látinn hýsa 60 sjúklinga og hef-
ur verið yfirfullur síðan. — Fram
að þeim tíma fara ekki margar
sögur af því, hvernig farið var
með geðsjúklinga, en varla hefur
gætt miklu meiri mannúðar hér
á landi í meðferð þeirra, en tíðk-
aðist í öðrum löndum.
Það var ekki fyrr en á síð-
ustu árum 18. aldar, að barátta
var hafin fyrir því, að litið yrði
á geðveika sem sjúklinga og þeir
yrðu fluttir úr fangelsum, venju
lega viðurstyggilegum dyflissum,
í sjúkrahús. Hinn hugrakki
brautryðjandi var franskur lækn
ir og hét Philippe Pinel. Hann
sætti harðri mótstöðu og háði
starfsbræðra sinna, læknanna,
sem annarra, þegar hann krafðist
þess, að hætt yrði að hlekkja
þessa sjúklinga, hafa þá til sýn-
is, berja þá og setja í spenni-
treyju. Tæpri öld síðar varhorn
steinninn lagður að vísindagrein-
um sálarfræði og geðlæknisfræði
og með þeim hófst margra ára-
tuga þróun í geðlækningum, og
hafa framfarirnar þó orðið stór-
stígastar á undanförnum árum.
Hið fyrirbyggjandi starf, geð-
verndin, er að margra dómi tal-
in hefjast með bókinni „Sál, sem
fann sjálfa sig“, A Mind That
Found Itself, en hana skrifaði
Clifford Beer árið 1908 og
á mjög áhrifaríkan hátt. Hann
hafði verið sjúklingur á mörg-
um geðspítölum og stofnunum og
hrópaði á endurbætur og á al-
menna fræðslu um geðvernd
Clifford Beer fékk það góðan
hljómgrunn, að honum tókst að
stofna, þegar hið sarna ár, 1908,
félag til geðverndar, Connecticut
Society for Menta Health, sem
mér skilst að sé fyrsta geðvernd-
arfélag, sem stofnað hefur verið.
Og ætla ég ekki að rekja
sögu þessara mála frekar.
Að dómi íselnzkra geðlækna,
og er þá aðallega stuðzt við dokt
orsritgerð Tómasar Helgasonar,
prófessors, mun tíðni geðveiki
vera svipuð hér og á hinum
Norðurlöndunum. Þar er álitið,
að um 3,9 sjúkrarúm þurfi fyrir
hverja þúsund íbúa. Má af því
draga þá ályktun, að hér sé þörf
fyrir um 780 sjúkrarúm fyrir geð
veika.
Kleppsspítalinn ásamt Flóka-
deild tekur 200 sjúklinga, en auk
þess hefur hann ráðstöfunarrétt
yfir 56 sjúkrarúmum á öðrum
sjúkrastofnunum, utan Reykja-
víkur. Á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri eru enn fremur 10
rúm ætluð geðsjúklingum.
í Borgarspítalanum er nú starf
rækt 32ja rúma geðdeild, og
Hvítabandsspítalinn verður not-
aður fyrir þessa geðdeild til fram
haldsmeðferðar sjúklinga þaðan.
í Hvítabandsspítalanum eru fyr
Tréskrúfur
Höfum fyrirliggjandi gluggalistaskrúfur
úr kopar og galvaniseraðar.
Hagstætt verð.
R. GUDMUNDSSON g KIIARAN HF.
ÁRMÚLA 14, REYKJAVÍK, SIMI 35722
Dr. Jón Sigurosson.
írhuguð 30 rúm, og munu sjúkl-
ingar þar — í vissum tilfellum —
getað stundað vinnu eða dvalizt
á heimilum sínum á daginn, ef
þeir ekki fá endurþjálfun í
vinnustofum spítalans. Auk þess
er ætlunin að taka þar til rann-
sóknar og meðferðar, allt að því
daglangt, sjúklinga, sem dvalizt
geta á heimilum sínum yfir nótt-
ina. Loks er í Arnarholti heimili
fyrir 54 vistmenn, sem ekki eiga
samleið með öðru fólki, venju-
lega af geðrænum ástæðum.
Þegar allt er tínt til, verða
þannig um 350 sjúkrarúm og vist
pláss fyrir hendi ætluð geðsjúk
um og geðveilum. Okkur van-
hagar því um 430 rúm fyrir
þessa sjúklinga, ef fullnægja á
kröfum frændþjóðanna í þessu
efni.
Stjórnmálamenn okkar hafa al
mennt sýnt málefnum geðveikra
tómlæti, ekki sízt ríkisstjórnirn-
ar, og hefur hingað til skipt
litlu, hvernig þær hafa verið
skipaðar. Er það þó hefðbundin
skylda ríkisins að sjá geðsjúk-
um fyrir viðhlítandi meðferð og
umönnun.
Þótt aðstæður séu á engan hátt
sambærilegar við það, sem var
í Connecticut, þegar Beer stofn-
aði fyrsta geðverndarfélagið
enda eru nú 60 ár í milli,
þá verkar það eins og vorþeyr í
þessum málum hér á landi, að
áhugasamt og fórnfúst fólk hef-
ur tekið höndum saman til að
liðsinna geðsjúkum. Þessir sjúkl
ingar geta ekki myndað samtök
talað fyrir sínu máli og barist
fyrir hagsmxmum sínum. Hér
þurfa andlega hraustir að koma
tu.
Gildi þess, að stofnuð eru sam-
tök eins og Geðverndarfélag ísl-
ands, er ekki aðeins metið í því,
sem félagið kann að láta af mörk
um í fé og framkvæmdum til þess
ara mála, heldur engu síður í
gildi þess, að vandamálin eru
tekin til umræðna, athygli al-
mennings vakin á þeim, hann
fræddur um þau, og viðhorfi
hans til þeirra breytt, þannig að
landsmenn taki heilbrigða og
eðlilega afstöðu til vanda hinna
geðveiku. Sjúklingunum er ekki
sízt nauðsyn á, að almenningi
verði ljóst, að nú er svo komið,
að oft er hægt að lækna sjúk-
dóminn, og jafnvel ósjaldan á
stuttum tíma, þegar rétt er brugð
izt við.
Geðverndarfélag íslands má
una vel við árangurinn af starfi
sínu þennan stutta tíma, sem það
hefur starfað. M. a. má þakka
því að nokkru breytt viðhorf al-
mennings til geðsjúkdóma. Ótt-
inn við þá er nú annar og minni
en verið hefur. Til marks um það
má nefna, að nú er tekin til
starfa í Borgarspítalanum hin
nýja — áður umrædda — geð-
deild í sömu sjúkraálmu og með
sama inngangi og aðrar deildir
spítalans, lyflækninga- og skurð-
ælkningadeildir. Þetta hefði
verið óhugsandi fyrir nokkrum
órum.
Nú hefur Geðverndarfélagið
færzt mikið í fang, það er að
byggja þrjú vistmannahús fyrir
alls 12 sjúklinga að Reykjalundi.
Er ætlunin að endurhæfa á
þessum farsæla stað geðsjúkl-
inga, sem hlotið hafa rannsókn
og meðferð á öðrum sjúkrastofn-
unum. Er þetta mjög hagkvæm
tilhögun, ódýr í stofnkostnaði og
rekstri, og telja verður það á-
vinning, að geðsjúklingar fái
endurþjálfun sína, og búi sig
undir að hefja vinnu á ný, við
hliðina á sjúklingum, sem fá
endurhæfingu vegna líkamlegra
sjúkdóma. Óska ég félaginu til
hamingju með þetta verkefni og
vona, að það reynist létt að
hrinda því í framkvæmd.
Á undanförnum árum hafa ris-
ið upp ýmis félög, sem vinna að
heilbrigðismálum, og eru nokkur
þeirra stór og sterk. Sum þess-
ara félaga eru samtök sjúklinga
og öryrkja. Það er ánægjulegt,
og jafnframt aðdáunarvert, hve
miklu þessi frjálsu samtök hafa
afrekað, þau hafa í rauninni
markað heillaríkt spor í heil-
brigðismálum þjóðarinnar. Þau
hafa vakið áhuga almennings
fyrir þessum málum og fengið
hann til að leggja fram fé til
þeirra, en þau hafa einnig knúið
ríkisvaldið til • að veita, beint og
óbeint, talsverðu fé til heilbrigð-
ismála, sem ekki hefði fengist
með öðru móti. Af þessu leiðir
þó það, að frjáls félagasamtök
hafa jafnframt öðlazt íhlutun um
stjórn heilbrigðismála í landinu.
Grunur minn er sá, að stjórn-
málamenn hafi yfirleitt ekki gert
sér fulla grein fyrir þessu.
Eins og áður hefur verið látið
liggja að, er full ástæða til að
beita öllum hugsanlegum ráðum
til að koma hér upp miklum
fjölda sjúkrarúma til líknar og
lækninga geðsjúku fólki, sem nú
og um fyrirsjáanlega framtíð
verður að bíða innlagningar, á
meðan sjúkdómur þess magnast
og batahorfur minnka. Þessum
sjúkrarúmaskorti fylgir og oft ó-
mannúðlegt álag á fjölskyldur
þessara sjúklinga, sálræn spenna
APPELSÍNUR
FRÖMSK EPLI
LANGT UNDIR BÚÐARVERÐI
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A — Síml 81680.
*?mu\
Fólksflutningar
Tilboð óskast í flutninga á skólabörnum
Heyrnleysingjaskólans Stakkholti 3, Reykja-
vík til og frá skóla í vetur.
Tilboðseyðublöð með nánari upplýsingum
afhendast á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI7 SÍMI 10140
sem stundum er svo mikil, að
hún skilur eftir spor.
En þótt okkur mundi takast að
fjölga sjúkrarúmum fýrir geð-
sjúka, bæta meðferð þeirra og
batahorfur, þá má aldrei gleym-
ast, að geðverndin er ekki síður
nauðsynleg. Það verður að leggja
áherzlu á að auka og betrumbæta
möguleika okkar til að uppgötva
hjá fölki geðrænt ástand, sem
þegar hefur leitt eða leitt gæti
til persónulegra eða félagslegra
vandamála, leita að orsökum
þessa ástands og koma í veg
fyrir frekari skaðleg áhrif af
þeim. Orsakanna getur verið að
leita í heimilislífi, á vinnustað, í
kunningjahópi, eða í lífsvenjum
eða skapgerð þeirrar persónu,
sem í hlut á.
Hverjum og einum ber skylda
til, sjálfs sín vegna og annarra,
að lifa í samræmi við lögmál og
reglur heilbrigðs lífs. f heilsu-
vernd og geðvernd eru þætt-
ir, sem hver einstaklingur verð-
ur að gæta sjálfur. Það veltur
t.d. á miklu, hvernig maðurinn
fer með sjálfan sig í stritinu fyr
lr verðmætum lífsins. Það er
sorglegt að vita til þess, hversu
margir fara hirðuleysislega með
líkamlega og andlega heilsu
sína. f austantjaldslöndum er
mönnum gert skylt að gæta
heilsu sinnar og annarra. Mönn-
um leyfist ekki þar að verða
þjóðfélaginu til byrði að nauð-
synjalausu, og þeir verða líka
að koma í veg fyrir, að aðrir
verði það, að svo miklu leyti
sem unnt er. Af þessu má eitt-
hvað læra.
í , amstri okkar mannlega lífs
hafa allir sínar byrðar að bera.
Ef við viljum létta undir þeim
hjá náunganum, þá ber okkur
fyrst að minnast þess, að „sá,
sem ræktar sinn eigin garð,
jgengur varfærnum fótum um
garða annarra." Við þurfum að
I sýna náunga okkar fulla tillit-
jsemi, gera okkur grein fyrir til-
.finningum hans og þörfum á því
jviðkvæma sviði. Okkur ber að
ihafa í huga þörf hans fyrir ör-
jyggiskennd, þörf fyrir vináttu
jog kærleika, fyrir sjálfstæði, fyr
ir fullnægingu í starfi eða í því
hlutverki, sem hann hefur tek-
ið að sér og þörf fyrir sjálfs-
jvirðingu, en „sá, sem ekki virð-
ir sjálfan sig, getur ekki borið
jVÍrðingu fyrir öðrum“, segir Kór
aninn.
Það hlýtur að vera takmark
hverrar þjóðar að þroska ein-
staklinginn þannig, að hann geti
mætt hvers konar utanaðkom-
andi áhrifum án þess að bíða
tjón á andlegri heilsu sinni. Bull
is orðaði þetta svo árið 1950:
,Gera verður alvarlega tilraun
til að hjálpa piltum okkar og
stúlkum, sem nú sitja á skóla-
bekk, til aukins þroska, hjálpa
þeim til að taka ákvarðanir, til
að taka á sig ábyrgð, til að
læra af eigin mistökum, til að
eignast vini og halda vináttu
þeirra, til að geta talað opin-
skátt um kvíða sinn og ótta, til
að vera fær um að nýta sem
bezt hæfileika sína, þótt þau
verði fyrir geðshræringu, til að
vera sjálfum sér nóg og geta ver
ið án þess að sækja skemmtanir
til annarra, til að horfast í augu
við fortíð og farmtíð kvíðboga-
laust, til að takast á við hvim-
leið kvíðvænleg og óviðfeldin at
vík, sem bera að höndum hverju
sinni og til að líta á óvænta at-
burði, sem framtíðin kann að
bera í skauti sér, sem skemmti-
leg viðfangsefni að glíma við.
Mundi það ekki vera mikils
virði, ef stefnt yrði að þessu
marki í fræðslu- og uppeldis-
kerfinu hér á landi? Mundi Geð
verndarfélag íslands vilja beita
sér fyrir því, að svo verði?
Svo verður að telja.
Með því að temja okkur holl-
ar lífsvenjur getum við í flest-
um tilvikum bætt árum við líf
okkar, en við eigum enn auð-
veldara með að bæta lífi vfð ár-
in okkar, svo að ég noti orð
viturs manns, dálítið breytt. —
Með því einfaldlega að temja
sér að hafa opin augun fyrir
dásemdum lífsins, sýna góðvild
og skynja góðvild í hjörtum sam
ferðamanna okkar. Það út af fyr
ir sig er forsenda heilbrigðs and
legs lífs.