Morgunblaðið - 03.10.1968, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBBR 1968
13
Um þaö dmfagra sembal
— Rœtt við Helgu Ingólfsdóttur, sem
lokið hefur prófi í leik á sembal
Ung stúlka, Helga Ingólfs
dóttir lauk í vor prófi í semb
alleik við tónlistarháskólann
í Miinchen og er hún fyrsti
íslendingurinn, sem lýkur
prófi í leik á þetta ómfagra
hljóðfæri. Hún er nú á för-
um til Bandaríkjanna, en mað
ur hennar Þorkell Helgason
mun stunda þar framhalds-
nám í stærðfræði. Við hittum
Helgu fyrir nokkrum dögum
og spjölluðum við hana um
sembal og tónlistarlíf í Miin-
chen.
„Þú sérð, að sembalið
myndar tónana á annan hátt
en píanóið," sagði Helga og
sýndi mér „Píanóið er áslátt
arhljóðfæri og þar eru hamr
ar, sem slá á strengirua. í
sembalinu er hins vegar grip
ið í strengina, svo að hljóm-
urinn verður annar“, og hún
spilaði fyrir mig lítið lag. Það
var eftir Mozart, og hljómur-
inn var áþekktur gítarhljómi
Ég spurði hana af hverju
hún hefði farið að læra á sem
baló
„Ég lærði upphaflega á pía
nó og lauk einleikaraprófi
veturinn 1963. Þá fór ég til
Detmold í Norður-Þýzka-
landi til framhaldsnáms og
lærði ég á sembal sem auka-
grein. Síðan fór ég til Miin-
chen og lærði þar á sembal í
fjögur ár og lauk prófi það-
an í vor.
Ástæðan til þess að ég
valdi sembal var, að ég hafði
heyrt í því og vildi endilega
læra að spila á það, og þess
vegna tók ég það sem auka-
grein og síðar sem aðalgrein.
Hins vegar verða menn allt
af að læra með sembali á pía
nó og á annað hljóðfæri, sem
heitir Klavikord, sem er ósk
öp lítið hljóðfæri, og heyrist
lítið í því eiginlega ekki til
neins nema þess, sem spilar á
það. Bach samdi tónverk sín
einna mest á það hljóðfæri að
margra sögn.“
„Hvernig tónlist er aðallega
leikin á sembal?"
„Baroktónlist. Sembalið er
fyrirrennari píanósins, og það
er farið að skrifa tónverk fyr
ir það kringum 1550 og þá af
enskum tónskáldum. Þau
voru kölluð virginalistar, því
að sembal var kallað í Eng-
landi virginal. Síðan koma
meistarar eins og Bach og
Scarlatti, Couperin og Ram-
eau, Það var eiginlega gull-
öld sembalsins. Á þeim tíma
kemur píanóið til sögunnar
og þá er farið að semja fyr-
ir bæði hljóðfærin, eins og
t.d. þetta verk sem ég spilaði
fyrir þig eftir Mozart. Menn
héldu að dagar sembalsins
væru taldir, þar sem píanóið
væri mun fullkomnara hljóð-
færi, og það hverfur svo til
á 19. öld. Um aldamótin kem-
ur til sögunnar pólsk kona
Vanda Landowska, og það er
hún sem vinnur mest að því
að kynna sembalið á ný.
Helztu höfundar í dag, sem
skrifa fyrir sembal er Jean
Francaix og Bohuslav Mart-
inu, og þeir skrifa verk í nú
tíma stíl, ekki þó framúr-
stefnu neina, heldur verk í
samræmi við tónlist nútímans
„Er sembal viðsælt í Þýzka
landi?“
„Já, það er mjög vinsælt og
þar er Bach yfirleitt spilað-
ur á sembal. Og í Munchen
voru það eingöngu stúlkur,
sem lærðu á hljóðfærið, þær
voru frá Chile, Spáni, Júgós
lavíu og svo Þýzkalandi."
„Var ekki skemmtilegt að
læra í Þýzkalandi?“
„Jú, sérstaklega í Múnohen
Helga Ingólfsdóttir.
Hún er mikil tónlistarborg, og
þar er mjög góð ópera, sem
hefur sýningar á hverj.u
kvöldi. Þar eru settir upp
fimm nýjar óperur á hverju
ári, auk hinna sem ganga í
marga mánuði. Þeir flytja mest
af Strauss, sem starfaði í
Mtinchen mest alla ævi sína.
Þá er þarna einnig óperettu-
hús og svo lítil ópera, sem
flytur mest Mozartóperur.
Auk þessa eru aððvitað flutt
ir fjöldinn allur af tónleik-.
um.“
Helga býður mér meira kaffi
og heldur svo áfram:
„Það sem er skemmtilegast
við allt tónlistarlí.f í Mún-
chen er þó, að tónleikar heima
manna eru ekki síður sóttir
en tónleikar aðkeyptra
manna. Af heimamönnum er
Karl Richter í mestu áliti, —
hann er organisti, og sembal
leikari,— og hann heldur tón
leika hálfsmánaðarlega. Eru
það annaðhvort kór, orgel eða
sembalverk, sem eru flutt, og
sömu verkin eru flutt ár eftir
ár, T.D. er Matthíasarpassía
Handels flutt um hverja
páska, en mest er þó flutt
tónlist eftir Bach. Richter er
einnig mjög frægur fyrir
túlkun sína á Max Reger, og
það er alltaf slegizt um miða
á tónleika hans.“
„Gazt þú sótt þessa tón-
leika?"
„Við sem vorum í tönlistar
skólanum höfðum góða að-
stöðu til þess. Skólinm fékk
Framh. á bls. 19
Nýtt frímerki gefið út
í tilefni 150 ára afmœli Landsbókasafnsins
Nýtt frímerki verður gefið út
30. október í tilefni af 150 ára
afmæli Landsbókasafnsins fyrr
á þessu ári. Á frímerkinu er
mynd af lestrarsal safnsins, en
verðgildi eru tvö, 5 krónur og
20 krónur. Er 5-krónu frímerk-
tANOSeOKASAtN ÍSIANDS
Frímerkið, sem gefið verður út
30. október.
ið gult að lit, en 20-krónu merk-
ið blátt. Stærð merkjanna er
26x36 mm og voru þau prentuð í
Sviss.
Fyrsta desember n.k. verður
gefið út frímerki í tilefni 50 ára
fullveldisins og 28. febrúar 1969
kemur Norðurlandafrímerkið út.
Að þessu sinni er það teiknað
af sænskum arkitekt og verður
með mynd af fornri mynt, sem í
eina tíð var. notuð á Norður-
löndum.
Á Evrópudeginum 5. maí 1969
kemur Evrópumerki þess árs
svo út. Tveir ítalskir myndgraf-
arar, Luigi Gasberra og Giorgio
Belli, hafa gert uppkast, sem
samþykkt var á síðasta Evrópu
póstþingi. Er það mynd stór-
byggingar, sem á að tákna Ev-
rópu, og er henni haldið uppi
af grindarmúr, sem myndar staf
ina EUROPA CEPT, en þetta á
að túlka samheldni og styrk sam
einaðrar Evrópu.
(Frá Landssambandi islenzkra
f rí merk jasafnara)
SENN Á MARKAÐ IN U M
Þessi húsögn, sem mikla athygli vöktu á sýningu húsgagnaarkitekta „HÚS-
GÖGN ’68“ teiknuð af Helga HaUgrímssyni húsgagnaarkitekt, eru nú í fram-
leiðslu hjá undirrituðum, er gefa allasr nánari upplýsingar og taka á móti pönt-
unum. Efni: valn eik, sætis- og bakpúðar klæddir ísl. sauðskinni.
Húsgagnavinnust. Ingva Victorssonar, Ármúla 10, sími 32400.
Húsgagnabólstrun Ásgríms P. Lúðvíkssonar, Bergstaðastr. 2, sími 16807.
Söluumboð: Húsgagnaverzlun Kristjáns Siggeirssonar h.f., Laugav. 13, sími 13879.
1938 -
30 vinningar
BERKLAVARNARDAGUR
__ S.Í.B.S. 30 ÁRA
- 1968
30 vinningar
10 Blaupunkt sjónvarpstæki
Berklavarnardagurinn er á sunnu-
daginn.
30 glæsilegir vinningar í merkja-
happdrættinu.
Blað og merki dagsins seld um
land allt.
20 Blaupunkt ferðaútvarpstæki