Morgunblaðið - 03.10.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBBR 1968
21
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir kvikmyndina Cat Ballou
sem hlotið hefur vinsældir fyrir að vera skemmtileg og spenn-
andi mynd. Með aðalhlutverk fara Jane Fonda, Lee Martin Mic-
hael Callan og Dwayne Hickham. Lee Martin hlaut sérstök verð
laun fyrir leik sinn í þessari mynd, sem gerizt í villta vestrinu.
Islenzkur texti er með myndinni.
Ölynipíuleikamir
Framhald af bls. 10
við sínu 6 ára kjörtímabili hver
af öðrum. Stjórnmálaflokkurinn í
landinu er einn, en prentfrelsi
og skoðanafrelsi ríkir og þrátt
fy.rir hávaðasamar stjórnmáladeil
ur og kosningaherferðir, ríkir
talsverður stöðugleiki í stjórn-
má’lum.
Hvar sem farið er í Mexiko
borg, rekst maður á nöfn og
myndir þeirra manna, sem hæst
ber í þessari sögu Mexiko. Á
Reforma eru styttur af þeim og
risastór listaverk á byggingum
segja þessa sögu og sýna höf-
uðpersónurnar. Á slíkum vegg-
myndum frægustu málara, eins
og Diego Rivera, blasa við hin-
ir bældu Indjánar og grimmir
harðstjórar með spönsku andlitin
og þekkja má andlit einræðis-
herra og uppreisnarmanna fyrri
tíðar. Diego lézt ekki fyrr en
1957, og þó maður væri allur af
vilja gerður, væri varla hægt að
koma til Mexiko án þess að kynn
ast myndum hans. Þær eru stór-
ar, litríkar og sterkar, en ég er
þó ekki sérlega hrifin af tákn-
myndum af þessu tagi.
Mexikanar gera mikið af því
að skreyta með málverkum veggi
stórra bygginga, bæði inni og
úti. Ekki fara hinar nýju, glæsi-
legu háskólabyggingar, semreist
ar voru fyrir 15 árum utan við
borgina, varhluta af því. Feikn-
mikil mosaikmynd eftir Juan ó‘
Gorman þekux vegg 12 hæða
bókasafnsins og sýnir í flókinnj
uppsetningu myndir úr sögu
Mexiko á dögum Indjánamenn-
ingarinnar. Háskólinn er stolt
Mexikana. Hann tekur yfir 50
þúsund stúdenta og byggingarn
ar eru um 80 talsins. Þó hann
- MAÐUR OG KONA
Framhald af bls. 20
burðaleyisi Þórarins í ■ upphafi
og forfrömun hans í lokin. Val-
gerður gerði Sigrúnu að þeim
yfirskilvitlega álfakroppi sem
hin rómantíska draumsýn gerir
ráð fyrir.
Með minni hlutverk fóru Mar-
grét Magnúsdóttir, Þórunn Sig-
urðardóttir, Björg Davíðsdóttir,
Pétur Einarsson, Daníel Willi-
amsson og Guðmundur Magnús-
son, sem öll stóðu sig sómasam-
lega. Mest kvað að Margréti í
gervi prestsmaddömunnar og
Pétri í hlutverki Hrólfs kvæða-
manns.
Einsog fyrr segir var umgerð
sýningarinnar og túlkun leik-
enda mjög í anda hinna gömlu,
góðu daga einsog okkur er
tamt að gera okkur þá í hugar-
lund, umvafða rómantískum
Ijóma, og undirtektir áhorfenda
voru til vitnis um að verkið á
enn hjörtu fslendinga, en að
vísu fyrir aninað en leikræna
kosti.
sé nokkuð langt fyrir utan borg
ina, er þess virði að leggja þang
að leið sína, enda mun mikið af
keppni Olympíúleikanna fara
fram þar út frá.
Ef ef þangað er haldið, er
ágætt að taka sér bíl og líta í
leiðinni á hin sundurleitu borg-
arhverfi, sem erfitt er að kom-
ast til annars. Finna má hverfi
með svip Spánverjanna, þar sem
auðugar fjölskyldur bjuggu og
búa í glæsilegum spönskum hús-
um innan múrveggja. Og einnig
hið nýja glæsilega villuhverfi á
Hraunhæðum. Af því gætum við
ís'lendingar mikið lærð. Það er
reist á úfnu hrauni, með gjót
um og hraunhólum, og landslag-
ið er látið halda sér. Glæsilegu hús
in eru teiknuð inn í umhverf-
ið og falla að því. Þau standa
uppi á hraunhól eða hálf inni í
gjótuvegg. Þetta eru dýr hús, og
gerð af smekkvísi og glæsibrag,
sem einkennir Mexikana. Garðarn
ir eru líka felldir í hraunin, en
sá siður að loka sig og sitt bak
við háan múrvegg, kemur í veg
OMEGA
SPEEDMASTER
KRÓNOGRAPH terproof-
VATNSÞÉTT
ÞÉR GETIÐ STRAX EIGNAST
SAMSKOHAR OMEGA ÚR
OG APPOLLO GEYMFARAR
NOTA ER ÞEIR LENDA
Á TUNGLINU.
BIÐJIÐ ÚRSMIÐ YÐAR
UM ÞAÐ BESTA
RIDJID LIVI OIUEGA
ARMBAND OG
KASSI - RYÐFRÍTT STÁL
fyrir að hægt sé að skoða þetta
sem skyldi.
í sHkri ökuferð hrekkur mað-
ur öðru hverju upp í sætinu.
Bílstjórinn hefur skyndliega dreg
ið úr ferð og hendist yfir nokk-
urs konar „vegagildrur". Með
jjöfnu millibili, hefur verið greypt
þvert yfir götuna mjótt belti af
háum málmbólum, sem sýnast
eins og víggirðingar. Þær eiga
að koma í veg fyrir að menn aki
of hratt, því hver bíll mundi
brotna í sundur, sem kæmi á
þetta á ferð. Reyndar hlýtur það
að fara illa með farartækin, þó
ekki sé ekið óvarlega og ekki
er það þægilegt fyrir farþeg-
ana.
Ekki þýðir að vera að rekja
allt það, sem ferðamaður ætti
að sjá í þessari 6 milljón manna
borg með hálfrar sjöundu aldar
menningarsögu að baki. Göngu-
ferð um miðbæinn hlýtur þó að
tggja um Zocalo torgið með gömlu
þjóðahöllinni, sem byrjað var á
1092, og hinni fornu dómkirkju
sem Spánverjar reistu á svæð-
inu, þar sem Aztekahofið stóð.
Undir dómkirkjunni fannst ein-
Þiitt hin frægi tímatálssteinn Azt-
ekanna. í nágrenninu vekur
margt athygli. Þar eru bókabúð-
ir, leðurbúðir, eirbrúnir skóburst
arar með kassana sína í Alemeda
garðinum, listahöllin með litrík-
um málverkum eftir Tamayo og
þjóðdansasýningum frá ýmsum
héruðum Mexikó á kvöldin og
nálægt er hin opinbera handiðn
aðarverzlun, sem safnar saman
sérkennilegum handunnum mun-
um úr öilum héruðum Mexiko.
Þetta eru aðeins örfáir punkt-
ar frá Mexikoborg. Ýmislegt er
að sjá í nágrenni borgarinnar.
Eitt af því eru Teutihuacan pyra
midarnir í um hálfs annars tíma
ferð frá borginni. Þeir eru yfir
1000 ára gamlir, voru þar fyrir
er Aztekarnir komu. Sá stærsti
er tileinkaður sólinni. Upp hann
liggja 248 þrep. Tunglpíramíd-
inn í nágrenninu er lægri og við
ráðanilegri uppgöngu. Ekki þarf
mikið ímyndunarafl, þegar komið
er á þessar slóðir, til að setja
sér fyrir sjónir 1000 ára gamla
mynd af mannfórnum á þessum
pýramídum með mannfjöldann
horfandi á í lotningu fyrir neð-
an. Skrautsýning með frásögn-
um í hátalara og dularfullu leik-
andi ljósi á þeim hlutum, sem frá
var sagt, ýtti líka undir, þeg-
ar ég var þar. Áhorfendur sátu
á steinbekkjum í hringleikahúsi
í brekkunni. Að kvöldi kólnar
mjög eftir heita daga svona hátt
uppi í fjöllunum. Og hver sem
ætlar að sitja þannig úti eða
vera á ferli á kvöldin, þarf að
taka með sér skjólflík. En áhrifa
mikið er þetta. Ferðin þarna út
eftir reyndist mjög skemmti’leg,
þó ekki væri hún þægileg, því
farið var í áætlunarvagni með
þreyttum bændum og konum með
börn að koma af markaðinum og
fólkið tíndist út úr vagninum á
aðaitorginu í fátæklegu þorpun-
um á leiðinni. En almenningur í
Mexiko lifir fábrotnu lífi við
mikla fátækt.
f næstu grein verður sagt frá
Acapulco og leiðinni þangað með
stanzi í bæjunum Taxco og Cu-
arnavaca. — E.Pá.
Framarar,
handknattleiksdeild, stúlkur.
Æfingar fyrir stúlkur 10-12
ára á fimmtudögum kl. 7.40—
8.30. Stúlkur 12—16 ára kl.
8.30—9.20. Ath., æfingarnar
fara fram í æfingasalnum
undir striku Laugardalsvallar.
Fjölmennið — Stjórnin.
Knattspyrnufélagið Valur,
knattspyrnudeild.
Innanhúsæfingar h e f j a s t
miðvikudaginn 2. okt. Annar
flokkur miðvikudaga og föstu
daga kl. 19.40—20.30. Þriðji
flokkur miðvikudaga og föstu
daga kl. 18.50—19.40. Fjórði
flokkur miðvikudaga og föstu-
daga kl. 18—18.50 og sunnu-
daga kl. 15.40—16.30. 5. fl. a
og b lið fimmtudaga kl. 10—18
og sunnudaga kl. 14.50—15.30.
c lið sunnudaga kl. 14—14.50
og yngri en 10 ára sunnudaga
kl. 13.10—14. Mætið stundvís-
lega.
Stjórnin.
Unglingur
ósknst
til sendiferða hálfan eða allan daginn.
II.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
' j® . ■ ii;:| Listdansskóli Guðnýjar Pétursdóttur Lindarbæ Reykjavík og Félagsheimili Kópavogs, Kópavogi. Kennsla hefst mánudaginn 7. október. Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 2—7 í síma 40486.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS < ><><►
VIKING
SNJÓHJÓLBARÐARNIR fást hjá
okkur í flestum stærðum.
VIKING-snjómynstur taka öðrum
gerðum fram.
Á VIKING-dekkjum kemst bíllinn
áfram í snjó.
Á snjónegldum VIKING-dekkjum
er bíllinn stöðugur á hálum veg-
um.
Kaupið VIKING-snjóhjólbarða, það
borgar sig.
Gúmmvvinifustofaii hf.
Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavík.
Sigurður A. Magnússon.