Morgunblaðið - 03.10.1968, Blaðsíða 24
24
MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 196«
Síðan fór hann með Jill og
sýndi henni matarbirgðirnar og
lausu eldavélina og hin ýmiálegu
eldhúsáhöld, sem leiðangurinn
flutti með sér út í eyðimörkina.
lún spurði um ýmislegt, en komst
að því að loknu að þeirri niður-
stöðu, að þetta mundi nú ekki
verða svo sérlega erfitt. Hún
skoðaði þetta sem ögrun við sig,
sem hún skyldi svara með öllum
þeim hæfileikum, sem henni væri
gefnir. Graham kynnti hana fyr-
ir Suliman, aðál-burðarkarlinum,
sem var stór maður og skeggj-
aður. Hann hneig’ði sig fyrir
henni, af miklum virðuleik og
lofaði henni að kenna henni að
búa til hina og þessa þarlenda
rétiti matar, auk þeirra ensku,
sem hún kunni.
Allt í einu sagði Graham: —
Ég er að fara út að uppgreft-
inum. þú ættir að koma með
mér og sjá, hvernig þetta gengur
til. Áttu nokkra hælalausa skó?
Þú þarft að ganga á grjóti.
Þau gengu um borgargöngin út
úr húsagarðinum og út í krók-
óttu götusmugurnar, sem voru
iðandi af lífi, og hávaða. — Ekki
get ég skilið, hvernig þú ferð
að því að rata þetta, sagði Jill,
er þau beygðu fyrir enn eitt
hornið og tróðu sér áfram mi'lli
þakinna sölupalla, og framhjá
gömlum úlfalda, sem var klyfj-
aður ullarpokum. — Þú venst
hþessu fljótlega, svaraði hann, og
hún varð fegin þessu trausti sem
hann sýndi hæfileikum hennar.
Þegar þau komu að torfærum
tröppum, tók hann í hönd henn-
ar og leiddi hana vailega nið-
ur. Snertingin af fingrum hans
var hlý og sterk. Jill fann, að
hún svaraði henni ósjálfrátt. Hún
fékk ofurlítinn skjálfta í sig og
datt í hug hvobt hún væri raun-
verulega að verða ástfangin.
Þau komu upp á hásléttu með
himinháum klettum upp úr, og
útsýni yfir sjóinn. Nú urðu þau
að leiðast, af því að Jill var dá-
ilítið óstöðug á fótunum. Efst á
hæðinni komu þau að kastala-
rústum, þar sem veggirnir voru
hröilegir og veðraðir, en stóðu
samt furðu vel uppi. Einn burð-
arkarlinn frá þeim sait við hlið-
ið og át döðlur.
— Prófessorinn hefur fasta stöð
hérna, útskýrði Graham. — Þeir
eru að rannsaka undirstöðurnar,
hvert lagið eftir annað. Svo
rannsaka þeir það, sem þeir finna
og bera það saman við það, sem
finnst í Khalida. Það getur gefið
bendingu um, hvað við gætum
fundið hérna og fræðzt um menn
Unglingspiltur
óskast til sendiferða og innheimtustarfa.
Æskilegt að viðkomandi hefði reiðhjól eða skellinöðru.
FÖNIX, Suðurgötu 10.N
Óskilahestar
1. Gráskjóttur hestur, 6 eða 7 vetra mark fjöður aftan
hægra, sýlt eða stúfritað vinstra. Gæti verið sneið
rifað aftan vinstra.
2. Brúnn hestur 6—7 vetra, mark biti aftan bæði
eyru, gæti verið stig aftan bæði eyru.
Hestamir em í geymslu hjá hreppstjóra Lundar-
reykjadalshrepps, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Hestar þessir verða seldir á óskilafjámppboði laugar-
daginn 12. október n.k.
HREPPSTJÓRINN
Sími um Skarð.
inguna frá þessum tímum. Eða,
svo að ég segi það á skiljanlegri
hártt: ef við finnum áhöld úr eir
eða jámi, þá hlýtur efnið í þau
að hafa komið úr málmæðum, sem
eru ekki langt í lturtu héðan.
— Ég skil. Þetrta er allt mjög
fornt, er þaS ekki?
— Byblos er talin vera elzta
borg í heimi, sagði Graham. —
Þar var stafrófið fundið upp.
Hann kveikti á stóru vasaljósi.
— Við skulum fara gegn um
þessar dyr, Jill. Þetta var einu-
sinni krossfarakastali, enda þótt
þeir fyndu hann byggðan þegar
þeir komu hingað, svo að þú
getur hugsað þér riddarana á
ferli þar sem við göngum núna.
Það var mjög dimmit þarna inni
og Jill var nokkra stund að venj
ast myrkrinu, en fótatak þeirra
bergmálaði á steinunum er þau
gengu að bratta stiganum, sem
höggvinn var í klettinn. Jill hálf
rann og hálfskreið niður, og Gra
ham á eftir henni. Neðst var mik
ill hellir og þakið á honum hvarf
út í myrkrið, en á gólfinu voru
nokkur ljós á stólpum. Þarna
var frú Fallowman og aðrir þátt
takendur í leiðangrinum, flest á
hnjánum. — Þau eru að ramn-
saka leirbroit, sem þau hafa fund
ið, útskýrði Graham. — Nú ætla
ég að afhenda þig honum Davíð.
Hann gætir þín svo.
Dttvíð var vopnaður einhverj-
um svörtum kassa, sem einhvers-
konar armur srtóð út úr. Hann
sýndi Jill, hvernig hann færi að
rannsaka byggingu klettsins, með
því að lárta arminn snerta vegg-
inn og gólfið og skrifa hjá sér
viðbrögð hans. — Þú gætir nú
gert gagn með því að skrifa nið-
ur það, sem ég finn — en það
er á þessu stigi eintómar tölur.
Jill tók bókina, sem lítill lampi
var festur við og ellrti hann síð-
an um þennan óhugnanlega stað.
Einusinni straukst eitthvað við
andlitið á henni og hún hrökk
við. — Þetta er bara fluga, sagði
Davíð. — Hér eru engar leður-
blökur. Við erum búin að út-
rýma þeim.
Um klukkustundu síðan til-
kynnti hann, að tími væri ti‘1
kominn að fá sér einhverja hress
ingu. Þau gengu gegn um stóra
hellinn og inn í annan minni,
þar sem var ofurlítil glufa, sem
gaf dálitla birtu. Þarna var tré-
borð með matarkössum og brús-
um með heitu te, sem Suliman
var að útbýta. Frú Fallowman
kom til þeirra og leit nú skríti-
lega út, því að nú hafði hún
sveipað gráum bómullardúk um
höfuð og herðar, í stað hattsins
og rétt mótaði fyrir nefi og munni.
En hún varð að taka þertta af
sér meðan hún át og drakk. Hún
sagði ekkerrt við Jill, en gekk
jafnskjótt burt sem hún hafði
kingt síðasta munnbitanum. —
Þetta er til þess að verjast ryki,
sagði Davíð er hún spurði hann
til hvers þessi búnaður væri.
— Það verður að hafa eitthvað
tannduftið
sem gerir
gular
tennur
HVÍTAR
svona sér til hlífðar, þegar ver-
ið er að grafa upp.
— Grafa hvað upp?, spurði
Jill um leið og hún fékk sér
bita af ósýrðu brauði, með osti
á.
— Það geta verið peningar, eða
moilar af leirílátum. Það getur
allt mögulegt komið upp úr jörð-
inni á svona stað. Það verður að
grafa með fingrunum og mjög
varlega og hægt, til þess að
brjóta ekki það, sem upp kemur.
He'ldurðu, að þér muni þykja gam
an að vera með okkur, Jill?
— Já, áreiðanlega, svaraði hún.
— Það er ég orðin alveg viss
um. Hún fór að velta því fyrir
sér, hvar Gralham mundi vera og
tók að svipast um eftir honum,
en hann var hvergi innan sjón-
máls. Þegar þau sneru aftur til
vinnunnar hafði hún hert nægi-
lega upp hugann til að spyrja
Davíð, hvað orðið hefði af Gra-
ham.
— Hann var að leiðbeina nýja
aðstoðarmanninum okkar, seinasrt
þegar ég sá hann, sagði Davíð
brosandi. — Og það getur orðið
dálítið erfitt mætti segja mér.
En honum hlýtur samt að hafa
þótrt gaman að því.
Jill skildi ekki, hvað hann var
að fara. Hún leit í áttina, sem
Davíð hafði bent í, og sá móta
fyrir einhverri kvenveru, sem
sat með krosslagða fætur í bjarm
anum frá litlum lampa og var
í óða önn að klóra í mjúka æð
í jarðveginum, með hanzkaklædd
um höndum. Hún var sveipuð í
gráan ullardúk. alveg eins og frú
Fallowman. Eitthvað sem Jill
sjálf hefði ekkj getað sagt, hvað
var, kom henni til að ganga til
hennar, til þess að siá hvað hún
væri að grafa upp. En þá fann
hún, að hún var sjálf að reka
upp undrunaróp í annað sinn
þann daginn.
— Sandra, hvað í ósköpunum
ert þú að gera?
Gráa klæðið, sem Sandra var
sveipuð í, gat ekki einungis leynt
hinu sérkennilega augnatilliti
hennar. Sandra lyfti nú augun-
um, rétt eins og hún væri á leik-
sviði og settist á hækjur sér.
— Halló, Jill, sagði hún og
dró gráa klæðið ofurlírtið frá
andlitinu. — Ég er hér til reynslu
Þetta er allt andstyggilega skít-
ugt og ég er viss um, að ég
er þegar búin að eyðileggja á
mér neglurnar, en ég verð að
þrauka það út í dag ,annars get
ég ekki orðið ráðin hér. Það seg-
ir hann að minnsta kosrti, bann-
settur harðstjórinn.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Óþolinmæðin getur orðið þér mikill þrándur í götu. Ef þú ferð
þér hægt, geturðu bætt hag þinn talsvert. Reyndu að fara dálítið
smekklega að, ef þú vilt slá vopnin úr hendi keppinauta.
Nautið 20. apríi — 20. maí
Þetta er góður dagur í heimilisllfinu. Samböndin eru viðkvæm
og vandmeðfarin. Nú er EKKI tíminn til að framfylgja furðuleg-
um hugmyndum.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Ef þú hefur þolinmæði er hægt að bægja vandamálum frá, sem
kunna að skapast milli heimiils og atvinnu.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Gerðu ráð fyrir þvf að fólk sé ágengt, eins í umferðinni. Farðu
vel að fólki, sem er á einhvern hátt tengt þér eða atvinnu þinni.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þér gengur vel í öllu nema fjármálum. Gefðu rómantíkinni svo-
lítið tækifæri i kvöld.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Stundum er ómögulegt að ráða við kringumstæðurnar. Þú nærð
betri árangri, ef þú athugar árangurinn af ráðagerðum annarra,
og kostnaðinn lika.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Það hefur verið gengið á hlut einhvers, sem svo er þungur á
brúnina. Ekki þýðir að troða sér fram. Fáðu þér smá hvíld til að
forðast of mikið áLag.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Sittu á þér og vertu orðvar. Reyndu að sinna skapandi störfum
og sýndu smekkvísi.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Þér reynist auðvelt að hafna. Reyndu að halda jafnvægi opin-
berlega og heima fyrir.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Skipuleggðu daginn vel. Því minna, sem þú átt við vini og ætt-
ingja, því betra fyrir þig. Haltu þig við áform þín, a.m.k. framan
af degi.
Vatnsberinn 21. jan. — 18. febr.
Reyndu að athuga vinnuvélar vel. Reyndu síðan að ljúka verki
þínu sem fyrst. Sinntu rómantikinni í kvöld.
Fiskamir 19. febr. — 20. marz
Mannlegt eðli er svo furðulegt, að það er hérumbil alveg sama
upp á hverju þú bryddar 1 dag. Þvi verður öllu hafnað. Láttu
þetta líða hjá, ef þú vilt vera skynsamur.