Morgunblaðið - 03.10.1968, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1968
27
Til þess að komast að hvellhettunum og sprengiefninu þurfti
þjófurinn að brjóta sér leið gegnum millivegg. Kistan, sem hvell-
hetturnar voru geymdar í, sést einnig á myndinni.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
Sprengiefniö fundið
SPRENGIEFNIÐ, sem stolið var
úr vinnuskúr frá Hlaðbæ h.f. um
helgina, er fundið. A þriðjudags-
morgun handtók rannsóknarlög-
reglan í Kópavogi þjófinn og
vísaði hann á sprengiefnið, sem
hann hafði falið fyrir utan bæ-
inn. Þarna var um að ræða 60
kg af sprengiefni, 540 hvellhett-
ur, tvo sprengihnalla og kapla.
Sprengiefnið var geymt í læst-
um tréskúr með gluggum og voru
'hvellhetturnar í læstri trékistu
þar inni. Þjófurinn brauzt inn
um einn gluggann, en varð einn-
ig að brjóta sér leið í gegn um
millivegg í skúmum til þess að
komast að sprengiefninu.
Einar Eyfells, eftirlitsmaður
Eldvamaeftirlitsins, 'tjá'ði Morg-
unblaðinu í gærkvöldi, að ennþá
BANDALAG íslenzkra lista-
manna efnir til sérstaks hátíða-
kvölds í tilefni 40 ára afmælis
síns n.k. mánudagskvöld. Hátíð
in verður haldin í Þjóðleikhús-
inu undir heitinu Stofnenda-
kvöld og hefst hún kl. 20.30.
Höfundar verkanna, sem flutt
verða, voru allir meðal stofn-
enda Bandalagsins 6. sept. 1928,
og á hátíðin að vera þakkar og
virðingarvottur Bandalagsins til
þeirra manna, sem að stofnun
þess stóðu og fyrir framlag
þeirra til þjóðarmenningar okk-
ar.
Aðgangur að hátíðinni verður
ókeypis og allir eru velkomnir
meðan húsrými Þjóðleikhússins
leyfir. Aðgöngumiðar verða af-
hentir á laugardaginn og sunnu
daginn í miðasölu Þjóðleikhúss-
ins en engum einum verða af-
hentir fleiri en tveir miðar.
Dagskrá Stofnendakvöldsins
verður eftirfarandi:
væru engar fastar reglur til um
geymslu sprengiefnis á vinnu-
stöðum. Hann gat þess, að í sam-
bandi við framkvæmdir í Sunda
höfn hefði verið fluttur inn sér-
stakur sprengiefnageymsluskúr
frá Svíþjóð og hefðu verktak-
amir geymt í honum visst magn
sprengiefnis hverju sinni, en
aldrei neitt yfir helgar.
Yfirleitt, þegar um smærri
framkvæmdir er að ræða, eru
hvellhetturnar geymdar sér í
járnbentum kistum og sprengi-
efnið svo aftur annars staðar.
Einar gat þess, að nú væri ver
ið að flytja áðalsprengiefna-
geymslunnar í Hólmsheiði. Er
þegar ein slík risin þar og er
hún byggð samkvæmt ströngum
kröfum Eldvarnaeftirlitsins.
Þorsteinn Ö. Stephensen les
kafla úr Svartfugli eftir Gunn-
ar Gunnarsson, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir les fjögur kvæði
eftir Jakob Thorarensen, Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari
syngur með undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar tvö lög eft
ir Þórarin Jónsson, Helga Skúla-
son les úr íslenzkum aðli eftir
Þorberg Þórðarson, Brynjólf-
ur Jóhannesson les úr Márus á
Valshamri eftir Guðmund Gísla
son Haglalín, Herdís Þorvalds-
dóttir les nokkur ljóð eftirKrist
mann Guðmundsson, Guðmundur
Jónsson og Ólafur Vignir flytja
aftur tvö lög, í þetta sinn eftir
Pál ísólfsson, Baldvin Halldórs-
son les Jón í Brauðhúsum eftir
Halldór K. Laxness. Hátíðardag
skránni lýkur svo með því að
þeir Björn Ólafsson, Jón Sen,
Ingvar Jónasson og Einar Vigfús
son frumflytja strokkvartett nr.
3 eftir Jón Leifs.
Tonn í stnð kíld
í GREIN Þorsteins Arnalds fram
kvæmdastjóra BÚR, „Villandi
ummæli Tryggva Ófeigssonar
um rekstur BÚR“, sem birtist í
Mbl. í gær slæddust tvær prent-
villur inn í fyrsta dálk greinar-
innar. Aftan við tvær tölur stóð
tonn, en átti að vera kg. Rétt er
greinin svona:
„ . . . Til þess að reyna að
gera hlut sinn eitthvað meiri
gengur Tryggvi algjörlega fram
hjá saltfisk- og skreiðarfram-
leiðslu Bæjarútgerðarinnar á síð
astliðnu ári, sem var 334.764 kg„
miðað við fullstaðinn saltfisk, og
557.325 kg. miðað við verkaða
skreið, en saltfisk- og skreiðar-
framleiðsla Júpíters og Marz h.f.
mun hafa verið mjög lítil á því
ári. . .“
- SEXBURAR
Framh. af bls. 1
nokkuð um það eftir fáeinar vik-
ur.
Það var í ágústmánuði, að
læknar fengu vitneskju um, að
'frú Thron myndi sennilega fæða
fimm eða sex böm og voru þau
þess vegna mæld og gizkað á
þyngd þeirra, svo að allt yrði
'tilbúið fyrir fæðinguna, sem
’hlaut að verða erfið.
Viðstaddur fæðinguna var enn
fremur Arthur Orook, einn af
helztu sérfræðingum Breta í
hormónameðferð og hafði frú
Thron verið hjá h-onum til með-
ferðair.
Möguleikarnir á því, að sex-
burar fæðist, eru af sérfræðing-
um taldir vera einn af hverjum
3000 millj., en hormónameðferð
hefuir m. a. valdið því á sl. árum
í Svíþjóð, að fleirburafæðingum
hefur fjölgað.
Hjá konum, sem hlotið hafa
hormónameðferð, kemur það fyr-
ir stundum, að fóstirin þróast
frá mismunandi eggfrumum, en
venjulega koma tvíburar af einnj
eggfrumu, sem hefur skipt sér.
- FUNDUR
Framh. af hls. 1
kommúnisma í Tékkóslóvakíu.
Samkvæmt samningum á að
flytja herlið Varsjárbandalags-
ríkjanna, þegar búið er að koma
ástandinu í landinu í „eðlilegt
horf“, þ.e.a.s. þegar frelsisþró-
uninni hefur verið snúið við og
gripið hefur verið til ráðstafana
til þess að draga úr því, sem
leiðotgar Sovétríkjanna nefna
andsósialistiska starfsemi.
Kveðjur og ályktanir um stuðn
ing við leiðtoga Tékkóslóvakíu
hafa verið að birtast í blöðum
landsins. Sýna þær áhyggjur
landsmanna um, að Sovétríkin
kunni að krefjast breytinga á
forystulfði landsins.
Blaðið „Prace“, málgagn verka
lýðssamtakanna birti í dag bréf
frá verkafólki í verksmiðju í
Ceske Budowice. I þessu bréfi
er vísað á bug sovézkum full-
yrðingum um, að fundizt hafi í
verksmiðjunni dreifiblöð, þar
sem hvatt er til þes» að valda
kommúnismanum tjóni. í bréfi
verkafólksins til Prace segir, að
fréttin um dreifibréfið sé ósönn,
en það á að hafa borizt í hendux
sovézka sendiráðinu í Prag og
sovézk blöð hafa birt fréttir um
það.
I bréfi verkamannanna er einn
ig ráðizt á blaðið „Zpravij", sem
er gefið út á tékknesku af Rúss-
um. Segja verkamennirnir, að
blaðið verði ekki til þess að
flýta fyrir þróuninni í eðlilegt
horf með hugarburði sínum. Rit-
skoðendur í Tékkóslóvakíu hafa
lýst því yfir, að þetta blað sé
ólöglegt, en því er dreift úr jepp-
um og hervögnum sovézka hers-
ins.
— Fundur BSRB
Framhald af bls. 28
afgreiðslu tillögur um kjaramál
og starfsmat.
Þrjú ný félög hafa sótt um
inngöngu, þ.e. starfsmannafé-
lag Neskaupstaðar, sjónvarps-
starfsmenn og flugumsjónamenn.
Síðast á dagskrá á fundinum
var stjórnarkjör.
- FORTAS
Franih. af bls. 1
f gær fór. fram atkvæða-
greiðsla í öldungadeildinni
um tillögu, sem borin var
fram þess efnis, að endi yrði
bundinn á málþófið um skip-
un Fortasar, en 14 atkvæði
skorti til þess að tiilagan
væri samþykkt með 2-3 meiri
hluta, sem tilskilinn var. Jam
eis Eastland öldungadeildar-
maður sagði, að greini-
legt væri að skipun Fortas-
ar yrði ekki samþykkt og
spáði því, að leiðtogar demó-
krata hættu „vonlausir bar-
áttu“ sinni 'fyrir skipun hans í
embættið. Johnson forseti var
hins vegar sagður á þeirri
skoðun að skipun Fortasar
yrði samþykkt.
Fortas hefur verið náinn vin
ur og ráðgjafi Johnsons, for-
seta, um árabil og hefur átt
sæti í hæstarétti um margra
ára skeið. Tilnefning hans í
embætti hæstaréttarforseta
hefur sætt harðri gagnrýni
repúblikana og Suðurríkja-
demókrata. Hann er frjáls-
lyndur, og almennt hefur ver
ið talið að hann mundi fylgja
sömu stefnu og Earl Warren
fráfarandi forseti hæstarétt-
ar.
- ÁRÁS
Framhald af bls. 1
mála samtakanna við beitingu á
valdi svo lengi sem slíkt gerð-
ist á áhrifasvæði þeirra. Sagði
hann, að þjóðir heims myndu
beina augum sínum til Sovét-
ríkjanna eftir svari við þessari
spurningu og eftir tryggingu fyr
ir því, að Sovétríkin væru ekki
að skipa sér sess ofar sáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
Þá sagði Rusk ennfremur, að
Bandaríkin gerðu sér fulla grein
fyrir því áfalli, sem atburðirnir
að undanförnu hefðu valdið
trausti meðal þjóða í alþjóða-
málum, en þau væru reiðubúin
til þess að halda áfram viðleitni
sinni til þess að koma á sam-
komulagi milli austurs og vest-
urs um eftirlit með vígbúnaði.
Dean Rusk varaði Sovétríkin
við því, að Bandaríkin myndu
standa fullkomlega við skuld-
bindingar sínar gagnvart Vest-
ur-Berlín og Vestur-Þýzkalandi
með tilliti til hótanna Sovétríkj-
anna að undanförnu, þar sem þau
hefðu lýst því yfir, að þau hefðu
rétt til íhlutunar í V-Þýzkalandi
og V-Berlín, hvenær sem þau
teldu, að hættan á nýnazisma
væri fyrir hendi.
- BIAFRA
Framh. af bls. 1
sátri. Félagi hans, sem er brezk-
ur, særðist á fæti.
í París var í dag opinberlega
vísað á bug fréttum um að Frakk
ar hefðu hafið vopnasendingar
til Biafra. Johnson, forseti ítrek
aði í dag stuðning Bandaríkja-
stjórnar við tilraunir til að koma
á friði í Nígeríu og vilja hemnar
til að draga úr manmlegum þján
ingum beggja vegna víglínunn-
ar.
- N-VIETNAM
■°ramh. af bls. 1
nama um, að nota vopnlausa
beltið fyrir stökkpall til árása á
Suður-Vietnam og sagði, að gagn
árás hefði veri'ð gerð á vopnlausa
beltið til þess að koma í veg
fyrir yfirvofandi innrás og
treysta vamir útvirkja sunnan
svæðisin3.
KRAFA UM INNRÁS
í Saigon lagði fonseti herráðs
Suður-Vietnam, Cao Van Vien
hershöfðingi, til í dag, að annað
hvort yrði gerð innrás í Norður-
Vietnam með 60.000 manna
liði, eða komið yrði fyrir víg-
girðingum frá Suður-Kínalhafi
til landamæra Thailands til þess
að binda enda á liðsflutninga
Norður-Vietnama til Suður-Viet
nam. Hann sagði, að ráðstafamir,
sem þegar hefðu verið g = rðar til
að’ binda enda á liðsflutningana,
dygðu ekki til. Talið er. að 30.000
norður-vietnamskir hermenn séu
sendir suður á bóginn í hverjum
mánuði.
1 Hanoi mótmælti talsmaður
norður-vietnamska utanríkis-
ráðuneytisins því opinberlega í
dag, að bandaríska orrustuskipið
„New Jers:y“ hefði ráðizt á skot
mörk á vopnalausa beltinu. Hann
kvað árásina jafngilda stigmögn
un stríðsins.
- GULLIÐ
Framhald af bls. 1
formum um að lækka verðið á
frjálsum markaði niður fyrir 35
dollara únsuna, sem er hið
skráða gengi.
f Washington er haft eftir góð-
um heimildum, að vænta megi
samkomulags í gulldeilu Banda-
ríkjanna og Suður-Afríku í
næstu viku. Suðux-Afríkumenn
vilja selja Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum gull á 35 dollara úns-
una, en Bandaríkjamenn óttast,
að með því veirði grafið uhdan
gullverðinu. Á fundi Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins hefur Karl
Schiller, efnahagsmálaráðherra
Vestur-Þjóðverja, beitt sér fyrir
'málamiðlunarlausn.
- ÖFÆRÐ
Framhald af bls. 28
sénstaklega í Bitru
Grímsstaðabændur komu á
mánudagsmorgun út á Kópasker
msð sláturfé sitt, en komust ekki
heim sömu leið. Þurftu þeir að
fara um Kelduhverfi, 'Húsavík og
Mývatnssveit.
Mbl. hafði samband við frétta
ritara isína á Dalvík og Sauðár-
króki, þar sem heyrzt hafði um
erfiðleika þar.
Fréttaritarinn á Dalvík sagði,
að skepnur hafi sloppið vel frá
hríðarveðrinu í Svarfaðardal.
Mikið snjóaði, en það var í logni.
Var því jafnfallinn snjór 40-50
sm. En snjórinn er léttur og loft-
mikill og hefur ,ekki lagzt í
skafla. Ekki hefur hann tekið
upp enn. Ryrjað var að slátra
fyrir nokkrum dögum og er fé
m.jög vænt.
Fréttaritarinn á Sauðárkróki
sagði, að Staðargöngum hefði ver
ið flýtt vegna veðurs. Seinni göng
ur voru á laugardag og töldu
gangnamenn að smalast hefði
mjög vel. Voru þeir svo snemma
að, að þ:ir voru komnar til
byggða með féð áður
en hríðaði alvarlega. En þeir
stóðu yfir fénu í Langholti á eft-
ir. Sömu sögu er að segja víð-
ast hvar úr Skagafirði. Veðrið
var mjög slæmt, eins og verstu
stórhríðar, að vetri að sögn frétta
ritarans. Eitthvert tjón mun vera
á skepnum í Skagafirði, en ekki
í stórum stíl svo vitað sé. Þó er
lítið um þetta vitað enn.
— Holtavöiðuheiði
Framhald af hls. 28
kominn talsverður snjór. Strand
ir voru mokaðar í gær inn í
Hrútafjörð, en ófært er í Árnes-
hreppi. \
Á Vestfjörðum versnaði færð
á Bnsiðdalsheiði, Botnsheiði og
Hrafneyrarheiði og var skaf-
renningur þar í gær. Var mokað
í gær, mest vegna sláturfjárflutn
inga. En í þessu veðri er óvíst
hve lengi heiðarnar haldast opn-
ar.
Frá Hrútafirði til Akureyrar
var góð færð, en veður slæmt á
annesjum fyrir norðan. Siglu-
fjarðarskarð var lokað og ekki
ætlunin að moka í bili.
Á Austurlandi snjóaði í gær
og voru visgir farnir að lokast.
Þó var enn jeppafært yfir Fjarð
arheiði og Oddsskarð. Á Norð-
austurlandi var orðið fært til
Þórshafnar í gær, en hálsar voru
mokaðir. Vegur var opinn frá
Sandvíkurheiði, en ófært þaðan
upp á Fjöll. Hólssandur og Axar
fjarðarheiði voru lokaðar.
Sagði Arnkell áberandi að
menn virðist ekki reikna með að
geti snjóað og fari þeir jafnvel
keðjulausir á heiðcLrvegL
B.Í.L. efnir til
stofnendakvölds
— aðgangur ókeypis og öllum heimill
— flutt verða verk eftir stofnendur