Morgunblaðið - 13.10.1968, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 196«
MINNINC:
Sigríður Bernhöft
Fædd 8. júní 1877.
Dáin 8. okt. 1968.
A MORGUN, mánudag, verður
jarðsett frú Sigríður Bemhöft, er
lézt á Heilsuverndarstöðinni í
Reykjavík þann 8. þessa mánað-
ar, 91 árs gömul. Frú Sigríður
fæddist í Bollagarðakoti á Sel-
tjarnarnesi og voru foreldrar
hennar Þorsteinn Guðmundsson
og kona hans, Sigríður Bjarna-
dóttir, en þau hjón eignuðust sex
börn, sem nú eru öll látin.
Árið 1889 giftist Sigríður Daní-
el Bernhöft, bakarameistara. —
þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en þau tóku til fósturs og
ættleiddu Ásthildi, systurdóttur
fyrri konu Daníels. Ennfremur
var Guðrún, sonardóttir Daníels,
en hún er nú búsett í Skot-
landi, að mestu alin upp hjá
þeim, en hún missti móður sína
kornung.
Kynni mín af þeim hjónum
hófust 1942. Frú Sigríður var
mikilhæf kona, er var manni sín-
t
Faðir okkar,
Hálfdán Halldórsson
fyrrum verzlunarmaður
i Viðey,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 14.
þ.m. kl. 10.30 f.h.
Sveinn B. Hálfdánarson,
Örlygur Hálfdánarson.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð vfð andlát og útför
Laufeyjar Pálsdóttur.
Sóiveig
og Poul Dyhre-Hansen,
Valgerður Þorsteinsdóttir,
Steingrimur J. Þorsteinsson
og aðrir aðstandendur.
um styrk stoð í einu og öllu, á
heimilinu, sem hún stýrði af
rausn og myndugleik, svo og í
fyrirtæki þeirra, þar sem hún
starfaði af framúrskarandi dugn-
aði og ósérhlífni við hlið manns
síns, en Daníel heitinn var dug-
mikill og vandvirkur fagmaður,
sem stýrði fyrirtækinu farsæd-
lega.
Frú Sigríður var í einu og öllu
hollur og öruggur leiðbeinandi,
glögg á það sem afilaga fór,
ströng, en umfram allt réttlát og
sanngjöm. Hún mat mikils það
sem vel var gert. Þannig stuðl-
aði hún að því að afla fyrirtæki
þeirra hjóna trausts viðskipta-
vina og starfsfólks.
Daníel heitinn minntist þess
oft, hver styrkur hún hefði ver-
ið sér á erfiðum tímum, og öðru-
vísi kynni að hafa farið, ef henn-
ar hefði ekki notið við.
Það er gömul saga, að menn
meta og þola misjafnlega sanna
einurð og hreinskilni. Því hlaut
svo áð' fara, að elfki væru allir
á einu máli alltaf um ágæti frú
Sigríðar, og er það henni sízt til
lasts, svo sönn og mikilhæf sem
hún var.
Ég kveð því að lokum frú Sig-
ríði Bernhöft með virðingu og
þökk fyrir viðkynningu, sem ég
met mikils sem og öll hennar
hollu ráð, sem hún, þrátt fyrir
háan aldur og tæpa heilsu, gaf
mér um árabil.
S. B.
Gömul heildverzlun
vill kaupa af íslenzkum framleiðendum niðursuðu-
vörur og fleiri iðnaðarvörur.
Upplýsingar merktar: „Vörukaup — 2164“ leggist inn
til afgreiðslu Mbl.
Hjúkmnarkona óskast
að sjúkrahúsinu Patreksfirði frá 1. nóvember n.k.
Laun samkv. almennu launakerfi ríkisstarfsmanna.
Upplýsingar hjá sýsluskrifstofu Patreksfirði.
Sýslumaður Barðastrandasýslu.
Sendisveinn óskast
allan eða hálfan daginn.
STEINDÓRSPRENT HF.
Tjamargötu 4, sími 11174.
Snyrtistofa Ástu Halldórsdóttur
Tómasarhaga — Simi 16010
býður upp á alla snyrtingu. Hreinsa bólur og
húðorma og gef persónulegar leiðbeiningar.
Athugið hina fullkommi fótsnyrtingu jafnt fyrir
karla sem konur.
Jónína Guðnadóttir. Á veggnum eru nokkrir sýningargrip-
anna. Hún kallar þá skjaldbökur.
Listmunasýning
í Unuhúsi
1 dag, Iaugardag, kl. 4 e.h.
opnar ung listakona Jónína
Guðnadóttir gler- og leirmuna-
sýningu í Unuhúsi. Jónína er
Reykvíkingur, en alin upp á
Akranesi. Hún nam við Hand-
íðaskólann og siðar í Myndlistar-
skólanum. Árið 1963 fór hún
til náms við Konstfack í Stokk-
hólmi og lauk prófi þaðan 1967.
Meðan Jónína dvaldi í Svíþjóð
tók hún þátt í nemendasýningum
og nokkrum sinnum fékk hún
styrki úr Menningar og minning-
arsjóði kvenna og Minningarsjóði
Fredriku Bremer.
Jónína sýndi nokkra listmuni
á Svensk form árið 1967, gripir
voru eftir hana á sýningu í Norr
æna húsinu í sumar og um þess-
ar mundir á hún listmuni á sam-
sýningu í Svíþjóð. Þess má og
geta um sýningu hennar í Unu-
húsi, að þetta er í fyrsta sinn, sem
glermunir eru sýndir á einka-
sýningu hérlendis.
Sýningin er opin daglsga til
20. október og eru allir munirn-
ir til sölu.
Hljómleikar og dans-
sýning í Þjóðleikhúsinu
12 nýir
sjúkrnliðor
Um miðjan siðasta mánuð luku
12 sjúkraliðar námi frá Land-
spítalanum. Eftirfarandi stúlkur
luku námi:
M.a. flutt rafmagnsljósatónverk um Surtsev
NÆSTKOMANDI mánudags-
kvöld, þann 14. október, verða
haldnir hljómleikar og danssýn-
ing í Þjóðleikhúsinu. Er þetta
framlag Musica Nova og Félags
íslenzkra listamanna. Ödl verkin
á leikskránni eru íslenzk, og hef-
ur ekkert þeirra verið flutt hér
á landj áður. Tónskáldin, sem
þarna eiga verk eru Þorkell Sig-
urbjörnsson, Gunnar Reynir
Sveinsson, Leifiur Þórarinsson,
Páll Pampichler Pálsson, Atli
Heimir Sveinsson og Magnús Bl.
Jóhannsson. Þungamiðja kvölds-
ins er ballett, sem Ingibjörg
Björnsdóttir hefur samið við tón-
list eftir Magnús Bl. Jóhannsson.
Er þar margt óvenjulegt á ferð-
inni, enda vart við öðru að bú-
ast, þar sem höfundur tónlistar-
innar við kvikmyndina „Surtur
fer sunnan“ á í hlut. Tónlistin
sjálf er „mixtúra“ hljóðfæra- og
rafmagnstónleikar. Magnús hefur
síðan samið við þetta eins konar
ljósatónverk, þar sem sviðsljósa-
kerfið er tengt við píanóhljóm-
borð, sem einn hljóðfæraleikar-
anna leikur á. Dansinn sem Ingi-
bjö^g Björnsdóttir hefur samið,
er einnig mjög í anda nútímans,
en hann flytja 9 stúlkur úr ball-
ettskóla Þjóðleikhússins.
Að tónlistarflutningi standa 15
hljóðfæraleikarar ásamt söng-
konunni Ruth Little Magnússon.
Viðamesta tónverkið að frátöld-
um ballettinum eru 3 sönglög við
kvæði eftir Jón Óskar, eftir Atla
EINANGRIiN
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnisstaðal 0.028 til 0.030
Kcal/mh. ”C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðai glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
engan raka eða vatn í sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegt-t
einangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
landi, famleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verði.
Reyplast Ji.f.
Armúla 26 - Sími 30978
Heimi Sveinsson. Auk strengja,
blásturs- og slaghjóðfæra, koma
fram fjórir píanóleikarar í þessu
verki, þau Gísli Magnússon, Guð-
rún Kristinsdóttir, Halldór Har-
aldsson og Þorkell Sigurbjörns-
son. Þorkell leikur þá tvö píanó-
verk, Etyðu etftir sjálfan sig, og
Svítu eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. Þessi tvö verk framflutti
hann á tónleikum í Stokkhólmi
fyrir skömmu. Verk Leiifis Þórar-
mssom.ar heitir „Ég á lítirm skrit-
inn skugga“, og er tilbrigði fyrir
klarnett, cello og píanó, samið að
tilhluitan skóLadeildar Rikstkon-
serter í Sviþjóð.
Páll Pampichler Pálsson á
þama verk, sem hánn nefnir
„Hringspil 11“ og var það samið
á sl. sumri, fyrir þá hljóðfæra-
leikara sem filytja það nú í fyrsta
sinn: Trompetleikarana Jón Sig-
urðsson og Lárus Sveinsson, Stef
án Þ. Stephensen hornleikara, og
básúnuleikarann Björn R. Éin-
arsson. Þetta kvöld í Þjóðleik-
húsinu er hið síðasta á afmælis-
hátíð Bandalags ísQenzkra lista-
manna, en áður hafa verið leik-
sýningar, myndlistarsýningar,
upplestra og tónlistarkvöld o. fl.
— Listsýningar
Framhald af bls. 12
tinnst vanta hinn sanna kjama
landsins inn í þær. Það er mögu
legt að máta af íþrótt, tækni eða
leikni, en það er líka hægt að
gera hlutina með „l’Aot" og það
er betra. Pétur vinnur sér hlut-
ina of létt, baráttu við viðfangs-
efnin gætir minna.
Jafnan eru nokbrar myndir, sem
maður staðnæmist við á sýning-
um Péturs og svo er einnig að
þessu sinni og hika ég*ekki við
að segja álit mitt, að húsamynd
irnar á sýningunni séu jákvæð-
asti þáttur hennar, svo sem nr.
22 „Úr Hellisgerði", sem er
sterk og afdráttarlaus í lit og
formi. Nr. 26 „Að húsabaki við
Laugaveg", er einnig sterk út-
færslu og rík í lit. Nr 12 „Morg-
unn í Reykjavík", er maíerísk, en
ekki eins sterk í hyggirtgu né
heild.
Það er ákaflega erfitt að skilja
hvernig málari, er málar slíkar
myndir, hverfi að því að mála
margt annað, sem þarna getur að
Hta af listrænni hvöt.
— Ég get ekki sagt að sýning-
in í heild hafi vakið hrifni mína
sem skyldi, til þess er henni I
heild of vant átaka og innlif-
unar.
Anna Kristín Björgmundsdótt
ir, Kirkjubóli, Mosvallahr. V-ís.
Birna Björnsdóttir Lövdal,
Reykjavík, Brynhildur Rósa
Jónsdóttir, Hafnarfirði, Bryn-
hildur Vilhjálmsdóttir, Möðrudal
Jökuldalshr., Guðný Sigurgísla-
dóttir, Kópavogi, Kristín Jákob
ína Gísladóttir, Skáleyjum,
Breiðafirði, Kristín Erla Stefáns
dóttir, Reykjavík, Málfríður
Jónsdóttir, Kópavogi, María
Guðrún Loftsdóttir, Reykjavik,
Rósa Guðmundsdóttir, Kópavogi,
Vilborg Jóhannesdóttir, Hafnar-
firði, Vilborg Elín Kristjónsdótt
ir, Gilsbakka, Hellissandi.
— Utan úr heimi
Framhald af hls. 14
innar. „Ég er nýi forsætiráð-
herrann," sagði hann. „Hleyp-
ið mér inn.“
Stjórnandi hervarðarins við
höllina svaraði kurteislega:
„Herra Mujica Gallo, þér vor-
úð forsætisráðherra, en nú
hefur herinn tekið völdin.“
Blaðamaður einn, sem var
svo heppinn að ná símasam-
bandi við einkanúmer forset-
ans, talaði við Carolinu dótt-
ur hans. Hún sagði: „Ég er
að pakka niður í töskur mínar
og hermaður vopnaður hríð-
skotabyssu fer með mér.“
Juan Velazco Alvarado hers
höfðingi, yfirmaður herfor-
ingjastjórnarinnar, hefur
virzt vinstrisinnaður. Rikis-
stjóm hans hefur nú neitað
samningunum umdeildu við
IPC, og lýst því yfir að olíu-
lindirnar verði þjóðnýttar, og
yfirlýsingar hans við valda-
tökuna báru keim áhrifa frá
Nasser forseta Egyptalands.
Margir hershöfðingjar Suður-
Ameríku hafa lýst því jrfir
að þeir væru vinstrisinnaðir
umbótamenn, en erfitt hefur
þeim reynzt að flytja arabisk
an sósíalisma yfir til latneska
hluta Ameríku. Ekkert gefur
tilefni til að ætla að nýju
stjómendunum í Perú verði
meira ágengt í þeim efnum.
(Observer).
Hjartans þakkir sendi ég ætt-
inigjum og vinum fjær og nær
sem með heimsóknum, gjöf-
um og heillaóskum sýndu
mér vináttu og gerðu mér
áttræðisafmælisdaginn 5. okt.
sl. ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
SigurSur Kristjánsson
HrisdaL
V
Bragi Ásgeirsson.