Morgunblaðið - 20.11.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. NÓV. 1068
niðri á horninu á Wallace breið-
götunni.
Og hún hefur ekki haft
neitt samband við ykkur síðan?
— Nei, ég skil ekki, að henni
finnist nein ástæða til að vera að
skrifa okkur.
— Var nokkuð rætt um skiln-
að?
— Ég er búin að segja yður, að
við erum kaþólsk. Auk þess er
sonur minn ekkert að hugsa til
hjúskapar héðan af. En ég skil
ekki enn, hvaða erindi lögregl-
an getur átt við okkur.
— Mig langar að spyrja yður,
frú, nákvæmlega hvað gerðist á
þriðjudagskvöld. Andartak. Þið
hafið stúlku, er ekki svo?
— Nei. Eugénie hreingerninga
konan, er hér aðeins frá níu til
fimm.
— Er hún hérna í dag?
— Nei, þér hafi hitt á frídag-
inn hennar, en hún verður hér
á morgun.
— Á hún heima hérna í ná-
grenninu?
— Hún á heima í Puteaux,
handan við ána. Uppi yfir járn-
vörubúð, beint fyrir brúnni.
— Hún hefur sjálfsagt hjá'lpað
tengdadóttur yðar að pakka?
— Hún bar farangurinn henn
ar niður.
— Hve mörg stykki?
— Eitt kofort og tvæi töskur,
nákvæmlega til tekið En svo
var líka skartgripaskrín og
snyrtivörukassi.
— Og fór Eugénie klukkan
fimm, eins og venjulega?
— Já, það gerði hún. Afsakið
ef ég er eitthvað rugluð, en þetta
er í fyrsta sinn, sem ég er yfir-
heyrð svona og ég skal játa,
að. . .
— Fór sonur yðar út þetta
kvöld?
— Hvenær kvöldsins, eigið þér
við?
— Við skulum segja fyrir
kvöldmat.
— Hann fór út að ganga eins
og hann var vanur.
— Hann hefur sjálfsagt far-
ið að fá sér eitt glas?
— Hann drekkur ekki
— Aldrei?
— Ekkert annað en eitt glas
af víni með mat, og það vatns-
blandað. Og sízt af öllu þetta
hræðilega, sem menn eru að
hvolfa í sig fyrir mat.
Maigret þóttist finna Pernod-
þefinn úr yfirskegginu á Boissi-
er, sem sat þarna eins og brúða.
Við settumst við matborðið
strax þegar hann kom inn. Hann
gengur al'ltaf sama vegarspott-
ann. Þetta varð að vana hjá
honum, meðan við höfðum hund,
sem purfti að hreyfa daglega
á vissum tíma og þannig komst
þetta upp í vana hjá honum.
— Þið hafið þá ekki hund
lengur?
— Nei, ekki síðan Bíbí dó,
fyrir fjórum árum.
— Eða kött?
— Tengdadóttir mín hafði ó-
beit á köttum. Þér sjáið þarna,
að ég tala um hana í liðinni tíð,
og það er vegna þess, að þann-
ig hugsum við um hana.
— Og þið borðuðuð saman
öll þrjú?
— Já, María kom niður rétt
þegar verið var að bera fram
súpuna.
— Og þið rifuzt ekkert?
— Alls ekki. Enginn sagði orð
undir borðum. En ég vissi ósköp
vel, að Guillaume var órólegur
í skapinu. f fljótu bragði virð-
ist hann kaldur, en raunveru-
lega er hann af skaplega til-
finninganæmur drengur. En þeg
ar maður er búinn að lifa í ná-
inni sambúð við einhvern í tvö
ár. . .
Maigret og Boissier höfðu
ekkert heyrt. En gamla konan
hafði skarpa heyrn. Hún laut
höfði, rétt eins og hún væri að
hlusta. En það var misskilning-
ur og Maigret stóð á fætur og
opnaði dyrnar. Þar stóð maður
sem var stærri á alla vegu en
Maigret sjálfur, og dálítið
skömmustulegur, því að hann
hafði sýnilega legið á hleri
nokkra stund.
Móðir hans hafði sagt satt, að
hann hefði verið að 'leggja sig.
Þunnt hárið á honum var úfið
og hékk niður á ennið, hann
hafði troðið hvítri skyrtunni
niður í buxurnar og kraginn
10
var enn óhnepptur. Og hann var
í inniskóm.
— Viljið þér ekki koma inn,
hr. Serre? sagði_ Maigret.
— Afsakið! Ég heyrði manna
mál og hélt. . .
Hann talaði stillilega, og leit
seinlega á þá sem inni voru á
víxl.
— Þessir herrar eru frá lög-
reglunni, sagði móðir hans og
stóð upp.
Hann bað ekki um neina skýr
ingu, en starði á þá aftur og
hneppti að sér skyrtunni
— Frú Serre var að segja mér
Yspilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
verður fimmtudaginn 21. nóvember kl. 21.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Góð kvöldverðlaun. — Kaffiveitingar.
___ NEFNDIN.
I
Orðsending til eigenda og vélstjnra Caterpillar-sjóvéla
Ákveðið hefur verið að efna
til þriggja daga námskeiðs
sem sérstaklega er ætlað
vélstjórum og eigendum
CATERPILLAR-sjóvéla.
Mun námskeiðið verða
haldið dagana 11., 12. og 13.
des. nk. í skólastofu okkar
að Laugavegi 170.
Þeir sem hug hafa á að sækja námskeiðið vinsamlega láti skrá sig eigi síðar
en þriðjudaginn 3. desember næstkomandi.
Oaterpifl!lair og CAT enu skrásetl
vörurnerki.
HEKLA hf
Laugavegi
170-172
Simi
21240
.. . ■• jj :.■•■' - t ,■-- k
CATERPILLAR
að konan yðar hafi farið í
fyrradag. \
Nú leit hann á gömlu konuna
og hleypti ofurlítið brúnum. Stór
skrokkurinn á honum var kvap-
kenndur eins og andlitið en
ólíkt mörgum feitum mönnum
virtist hann ekki neitt léttur í
hreyfingum. Hörundsliturinn var
mjög fölur og gugginn og ofur-
litlir hártoppar stóðu út úr nös-
unum og augnabrýrnar voru
mjög loðnar.
— Hvað vilja þessir herrar
eiginlega? spurði hann settlega.
— Það veit ég ekki.
Jafnvel Maigret komst í hálf-
gerð vandræði. Boissier velti því
fyrir sér, hvernig yfirmaður
sinn færi að því að sleppa út
úr þessu. Þetta var ekki fólk,
sem hægt væri að beita þriðju
gráðunni við.
— Sannast að segja, hr. Serre
þá barst konan yðar í tal af ti'l-
viljun. Móðir yðar sagði okkur,
að sér hefðuð lagt yður, og svo
skröfuðum dálítið samar, meðan
við biðum eftir yður. Við erum
hér starfsbróðir minn og ég
(Boissier var svo hrifinn af
þessu starfsbróðurnafni) —ein-
faldlega vegna þess, að við höf-
um orðið þess vísari, að þér haf-
ið orðið fyrir innbrotstilraun.
Serre var ekki sá maður, að
hann þyrfti að líta undan. Öðru
nær, því að hann glápti á Mai-
gret, eins og hann ætlaði að
lesa innstu hugrenningar hans.
— Hvernig datt yður það í
hug?
— Við fáum stundum trúnað-
ar-upplýsingar.
— Þér eigið náttúrlega við
lögregluþefara?
— Já, við getum orðað það
þannig.
— Afsakið, herrar mínir.
— Hefur þá ekki verið brot-
izt inn í húsið yðar?
— Hefði svo verið, hefði ég
ekki látið á mér standa að leggja
inn kæru hjá lögreglunni á staðn
um.
Hann var ekkert að reyna að
vera kurteis, og aldrei hafði
brugðið fyrir brosi í svip hans.
— En þér eigið samt sem áð-
ur peningaskáp?
— Ég held ég væri í fullum
rétti til að neita að svara því.
En ég get þar fyrir sagt yður
að þannig skáp á ég.
Móðir hans var að reyna að
gefa honum einhverjar bending-
ar — senniflega um að vera ekki
svona geðvondur.
Hann fann þetta og var áfram
þögull.
20. NÓVEMBER
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Því vinnusamari sem þú ert, þeim mun meira fjarlægist róman-
:íkin. Stilltu þig og hvíldu dálítið á tilhugalífi.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Vertu áfram jafn ópersónulegur, og e.t.v. dálítið stífur. Þér
gengur betur, ef þú gerir ekki ráð fyrir aðstoð.
Tvíburarnir, 21. mai — 20. júní
Dálítið blendinn dagur. Ekki er svo með öllu illt. Að minnsta
kosti er þér ljóst, að maka þínum stendur ekki á sama.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Auðveldara er að eiga við ókunnuga, en ættingja. Einbeittu þér
að starfi þínu, og eyddu kvöldinu í að sinna þvi.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Gerðu þitt til þess að fólk megi sem bezt samlagast. Allir
munu reyna að glepja þig.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september
Arðvænlegt að hygla að eignum sínum. Rómantíkin getur ver-
ið þreytandi, og kannski dálítið mislit, ef áherzla er lögð á hana.
Leggðu einkamálin á hilluna í bili.
Vogin, 23. september — 22. október
Leynimakk á hvergi upp á háborðið, því að von bráðar kemst
allt upp, og þú stendur berskjaldaður. Friðmælztu.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember
Efnishyggjan blómstrar. Rómantíkin er eilítið bæld. Sérstakt lag
þarf í umgengni við ættingjana og tengdafólkið.
Bogamaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Ef þú biður beinlínis um aðstoð, færðu miklu meira, en þér
datt í hug. Allir koma til hjálpar. Njóttu ólátanna.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar
Samvinnan byggist á því, hvað þú vilt ganga langt til móts við
aðra. Ef þú getur staðið einn, skaltu reyna eitthvað nýtt. Og í
stað þess r.ð spyrja, skaltu hugsa um þessa tilraun þína til enda.. .
einn.
Vatnsberinn, 20.janúar — 18. febrúar
Óvæntar erjur koma til skjalanna. Semdu með fullum virðu-
leika. Gott kvöld til að kynnast nýju fólki.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Eyddu kröftunum í að fylgja eftir. Illa gengur í rómantík-
inni og félagslífinu.