Morgunblaðið - 20.12.1968, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEM!BBR 1968
Þeir sem keypt hafa
Jólatré
í Alaska og gróðurhúsinu geta nú vitjað ókeypis
KLING-spjaldanna sem auðvelda jólatrjánum að halda
nálunum.
Litaðar Ijósaperur
Raftœkjaverzlanir — rafverktakar
Eigum ennþá litaðar ljósaperur.
Söluumboð L.I.R,
Hólatorgi 2 — Sími 16694.
SnyrtivÖrur
í miklu úrvali. — Fallegir gjafakassar frá Max
Factor — Old Spice o. fl.
Snyrtifræðingur til ráðleggingar frá kl. 1.
Álfum/rl 1-Símar 8-1250 Ixknar 8*1251 varzlun
B Ú S L w O Ð
Skrifborðsstólar 20 gerðir
Símastólar 5 gerðir
Danskir pinnastólar
Sófaborð — spilaborð
Opið til kl. 10 í kvöld
G.H.I
skrifborðs- og fundarstóll.
Trousfur og vandaður stóll. Verð kr.
3780.00.
MESTA 0RVAL LANDSINS
AF SKRIFSTOFU- OG FUNDARSTÓLUM.
BÚSLÓÐ
.5
HÚSGAGNAVERZLUN
VIO N6AT0N — S(MI 18520
Allt að 24% munur var á skipta-
verði sjómanna og útgerðarinnar
í ráðherratíð Lúðvíks
Aukinn kostnaður útgerðarinnar
1969 áœtlaður 17,9°/o — 29,4°/o
að fiskverð til s'kipta skyldi
hækka um 10 aura pr. kg. miðað
við slægðan þorsk með haus, og
tilsvarandi fyrir aðrar tegundir,
en útgjaldaaukning fyrir útvegs-
menn 6 aurar, fengu útgerðar-
menn toætta í hækkuðu fiskverði
A MÁNUDAGINN kom frum-
varpið um ráðstafanir vegna
sjávarútvegsins til 1. umræðu í
neðri deild Alþingis, en efri deild
hefur þegar afgreitt frumvarpið
með þeirri breytingu að gildandi
hlutaskiptasamningar sjómanna
verða uppsegjanlegir strax, en
samkvæmt gildandi lögum voru
þeir bundnir.
Eggert G. Þorsteinsson fylgdi
frumvarpinu úr hlaði í deildinni
en sáðan tók Lúðvík Jósefsson til
máls og flutti langa ræðu. Taldi
hann hér farið inn á mjög var-
hugaverða braut, sem aldrei
hefði þekkzt áður hérlendis.
Síðan tók Sverrir Júlíusson til
máls og fer hér á eftir kaflar úr
ræðu hans:
Frumvarp þetta er nauðsyn-
legt til þess að tryggja að at-
vinnurekstur til sjávarins geti
haldið áfram og er virðingarverð
tilraun til þes's að hleypa nýju
lífi í íslenzkan sjávarútveg og
þar með um leið til að treysta
aðalstoðir atvinnurekstrar þjóð-
arinnar.
Aðalóstæða þess að ég tek þátt
í þessum umræðum við fyrstu
umræðu málsins eru staðhæfing-
ar sem fram hafa komið hjá
stjórnarandstæðingum, að hér sé
farin leið sem aldrei hafi áður
þekkzt.
Bátagjaldeyriskerfið var tekið
upp á árinu 1948, þegar hinn
svokallaði hrognagjaldeyrir var
settur á, þ.e.a.s. útvegsmenn
fengu leyfi til að fá hluta af
gjaldeyrinum og selja þær vörur
sem fluttar voru inn, og háðar
ákveðnum lista, og fengu hagnað
af því. Hvers vegna var þetta
gert? Það var vegna þess að
skiptakjörin voru þannig, að við-
urkennt var af stjórnarvöldun-
um að nauðsyn bæri til að
hlaupa undir bagga með útgerð-
inni.
Frá þessum tíma hafa skipta-
kjörin breytzt verulega og þó að
margir tali um helmingaskiptinj
sem svo mjög nauðsynleg ogí
sjálfsögð þá hefur það verið við-;
urkennt af löggjafanum í einu'
og öðru formi, að nauðsyn hefur ’
borið til að hjálpa útgerðinni til ;
þess éinmitt að hún gæti greitt ;
sínum starfsmönnum nauðsynleg;
laun og annað sem þarf til út-,
gerðarinnar.
Bátagj aldeyriskerf ið byrjar
sem slíkt samkvæmt ráðuneytis-
bréfi 24. janúar 1951 og það
sýndj sig þá, þegar frá leið, að
nauðsyn bar til að semja um
ákveðið skiptaverð. 1954 var
fyrir forgöngu Alþýðusam’bands-
ins og Landsambands ísl. útvegs-
manna teknir upp samningar á
þann veg að skiptaverðið var
annað en útgerðarmenn fengu.
Síðan tóku svo við útflutnings-
uppbætur sem var endurtekið af
vinstri stjórninni.
Frá mínu sjónarmiði er nokk-
uð sama hvort millifærsluleiðin
er farin eða gengisbreyting gerð.
Það eru viss undirstöðuatriði sem
þurfa að vera fyrir hendi til þess
að útgerðin geti gengið. Það er
staðreynd, að á ároinum 1956—
1959 þegar Lúðvík Jósefsson fór
með sjávarútvegsmál að tals-
verður munur var á skiptaverði
og því verði sem útgerðarmenn
fengu og vissúLega var það gert
til þess að reksturinn gæti haldið
áfram.
Ég vil aðeins vitna hér í
skýrslu Landsambands ísl. út-
vegsmanna í árslok 1957. Þar er
fjallað um fiskverð næsta árs og
segir m. a.
Samningaumleitanir stóðu yfir
þar til á aðfangadagsmorgun og
lauk þá með samkomulagi, sem
fulltrúar nú töldu sér fært að
mæla með fulltrúaráðsfundi. Að-
alefni samkomulagsins varðandi
áætlun L.l.U. vax í fyrsta lagi
BÓKIN
Á AÐ VERA í JOLAPAKKANUM
Sverrir Júlíusson
frá kaupendum. í öðru lagi:
Beituverð sern átti að hækka um
20 aura pr. kg., skyldi vera
óbreytt, þó þannig, að skráð
verð skyldi vera 2,55 kr. pr. kg.
af pakkaðri síld, en fiskkaup-
endur skyldu greiða það niður
um 20 aura. Hækkaðar voru
tekjur útvegsmanna úr útflutn-
ingssjóði úr 35% og 16% í
35,3% og 17,65%. Hins vegar
fengust ekki uppborin þau 10%
af brúttóafla, sem útvegsmenn
höfðu gert kröfu til vegna á-
hættu og sem hefur sýnt sig, að
full þörf er á, og þar að auki
þurftu útgerðarmenn að taka á
sig fullkomlega hækkun á trygg-
ingu pg að vertíðinni skyldi skipt
í tvö tryggingatímabil, þegar
skipt er um veiðiaðferðir, ef sjó-
mannafélögin gerðu kröfu um
það. Þarna er einmitt verið að
skýra frá niðurstöðum og þetta
staðfestist einnig í toréfi frá sjáv-
arútvegsmálaráðherra þann 30.
des. 1957, en þar segir m. a.:
„Fyrirheit þau, sem að framan
eru gefin, eru bundin því skil-
yrði, að samkomulag takist milli
Landssamtoands íslenzkra útvegs-
manna eða félagsdeilda þess
annars vegar og samtaka sjó-
manna hins vegar um eftirgreind
atriði.
a) Fiskverð sjómanna hækki
úr kr. 1,38 pr. kg. í 1,4® pr. kg.
miðað við þorsk og hlutfallslega
fyrir aðrar fisktegundir.
b) Lágmarkskauptrygging sjó-
manna frá 1. janúar til 15. maí
verði kr. 2530 í grunn á mánuði
og gildi þessi kauptrygging á
isvæðinu frá og með Breiðafirði
og austur að Djúpavogi, nema
samkomulag verði um annað. Ef
skipt er yfir á net á vetrarvertíð,
skal sjómannaiélögum heimilað
HAMRAKJÖR KJÖTBÚÐ SUDURVERS
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 22
Nýir ávextir í 5 kg. pokum I VÖrUVal — VÖrUgœðí
á mjög hagstœðu verði | r j - - - ^ m m
sími 3/077 I 5IMI 35645
SUNNUDAG OPIÐ KL. 10-18
Á horni Hamrahlíðar og Stigahlíðar, við Kringlumýrarbraut