Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.12.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBBR 1968 Axei Sölvason við hreinsunar vélina. Hioðhreinsun d Egilsstöðum Egilsstöðum, 9. desember. HRAÐHREINSUN var opnuð hér á Egilsstöðum á laugardag. Er hún til húsa að Bjarkarhlíð 6. Eigendur eru Gyða Vigfúsdóttir og Stella Aðalsteinsdóttir. Aðeins hefur verið setit upp ein hreinsunarvél ennþá, frá Westing house, og afkasitar hún 4 kg. af þurrum fatnaði á 40 mínútum. Uppsetningu vélarinnar annaðist Axel Sölvason, rafvirkjameistarL Engin fatahreinsun hefur verið á Egilsstöðum til þessa og er þetta nýja fyrirtseki því til mikils hægðarauka fyrir íbúa Fljófts- dalshéraðs, sem nú þurfa ekki lengur að senda föt sín til hreins unar á Reyðarfirði eða Neskaup- stað. LJÓS í RÓUNNI Bók Stefáns Jónssonar fréttamanns, um undarleg at- vik, þjóðfraegt, skrýtið og skemmtilegt fólk. Hér segir Stefán frá fólki, sem hann hefur kynnzt í aldar- fjórðungs starfi, um allt land. Alvaran er blandin góðlát- legri kímni, — nema ef vera skyldi í kaflanum um hagfræð- ingana. Þar má segja að kímnin sé blönduð dálítið beizkri alvöru. Ljós í róunni geymir nöfn 130 þjóðfrægra og sumra heims- frægra manna, — allt frá Þormóði kúfiski upp í Ólaf Thors og Albert Einstein. — Þetta er 7. bók Stefáns, og e.t.v. sú skemmtilegasta. Gleðjið vini ykkar á jólunum með Ljósi í róunni. ÆGISÚTGÁFAN HAFÍS VIÐ ÍSLAND er fyrsta bókin sem skrifuð hefur verið um hafísinn. SÉRA SVEINN VÍKINGUR ritar þar þrjár greinar af sinni aikunnu snilld. Sjaldan hefur ritsnilld og kímni séra Sveins notið sín betur en í greininni: „Spjallað við sjómenn og bændur á Skaga“. Samtal hansvið Jón Norðmann á Selnesi verður öllum ógleymanlegt. Bókin Hafís við ísland hefur fengið lof allra gagnrýnanda dagblaðanna. Hver grein- in er þar annarri skemmtilegri. Bókin Hafís við fsland er ekki bók um kaldar vísindalegar staðreyndir, heldur lif- andi og skemmtileg frásögn af sambýli þjóðarinnar við hafísinn. Jólabók allra sem unna þjóðlegum fróðleik. K V ÖLD V ÖKUÚTGÁFAN. k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.