Morgunblaðið - 20.12.1968, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968
27
- BLÁA BANDIÐ
Framhald ai bls. 16
efni þessara akrifa minna, kem-
ur fram sú hugmynd að stofna
samskonar félag til áfengisvarna
og t.d. Slysavarnarfélagið,
Krabbameinsfélagið og Sam-
band ísl. berklasjúklinga. Það er
gott og blessað. En greinarhöf-
undi sést alveg yfir aðalatriðið í
því máli. Ekkert þessara félaga
hefði náð nokkrum teljandi ár-
angri í starfi sínu, ef Alþingi
hefði ekki stutt þau öll með stór
felldum varanlegum fríðindum
til fjáröflunar eða beinum fjár-
framlögum úr ríkissjóði. Nægir í
því efni að minna á Happdraetti
S.Í.B.S., tappagjöldin og sígar-
ettupakkagjaldið, sem allt er
traustur fjárhagslegur bakhjárl
þessara samtaka allra. Sam-
kvæmt lögum nr. 39-1964, greið-
ir Áfengisverzlun ríkisins ár-
lega í sérstakan sjóð, sem nefn-
ist Gæzluvistarsjóður, 7,5 millj.
króna. Þetta fé er allt og sumt
sem íslenzka ríkið leggur til á-
fengisvarna árlega. Það skiptist
þannig samkvæmt fjárlögum:
Drykkjumannahæli ríkisins í
Gunnarsholti 5,4 millj. kr.
Kleppsspítalinn 1,4 millj. kr.,
Víðineshælið 600 þús. kr. og fé-
lagið Vernd 100 þús. krónur.
Gengur þannig 90 prs þessa fjár
til geðveikrahælis ríkisins til
hjálpar þeim sem minnsta mögu-
leika hafa á að læknast.
Hér skal enginn dómur á það
lagður, hvort það kemur að til-
ætluðum notum. Það er mál, sem
ekki er til umræðu á þessu stigi.
Staðreyndin er sú, að horfið var
frá því kerfi sem Bláa Bandið
reyndi að byggja upp á sínum
tíma og tekið upp annað, sem þá
verandi og núverandi stjórnend
ur þessara mála töidu skynsam-
legra og heppilegra að sjálf-
sögðu fyrir þjóðfélagið í heild
sinni.
Að mínum dómi er sú stefna,
sem nú er fylgt í þessum málum
röng.
Eigi ofdrykkjuvarnir þjóðar-
innar að komast í viðunandi
horf verður að tryggja frá Al-
þingi nægulegt fé til að halda
þeim uppi og það fé á að taka
frá Áfengisverzlun ríkisins. Og
það má ekki vera neitt smáræði.
Dugir þar ekki minna árlega en
10-20 prs. af tekjum verzlunar-
innar, og undir engum kringum-
I stæðum minna en 50 milljónir
Jólaleikföng
Mikið úrval af ódýrum jólaleikföngum
á gamla verðinu.
MIHHIlmmiUllllil||l.lumiiMMlMIHIIMtillU|liili|I.IIMHIIl.
mhi| QUm8i3i<iMM.Mm.MM<t..i.i..M^^^B<iiiimMMi.
.MmiHMMlll] WWlill........I........lllllWfc.........
■M".n 1111II.■.■.•IH..MH...M.I..I.MIMM'M.- *
Miklatorgi, Lækjargötu 4.
króna á ári næstu 5 til 10 árin,
meðan verið er að byggja várna
kerfið upp. Yfir áfengisvarnirn-
ar verður að skipa dugmikinn
lækni, sem ekki hefði önnur störf
og sérstakan framkvæmdastjóra,
sem skipulegði og stjórnaði starf
inu.
En til þess að þetta megi verða
þarf ríkissitjórnin aö öðlast meiri
skilning á þessu málefni en hún
hefir nú. Hún og Alþingi virðist
ekki sjá í hvern voða er stefnt
með þeirri stefnu 1 áfengismál-
um þjóðarinnar, að auka sífellt
söluna — ausa áfenginu tak-
markalaust yfir unga og aldna
og hirða gróðann af ógæfu þjóð-
arinnar, en skeyta engu um á-
fengisvarnir. Hafa þær gagns-
litlar eins og þær eru nú.
Á næsta ári á Víðinesheimilið
tíu ára starfsaímæli. Þá verður
enn á það reynt — og í síðasta
sinn — hvort það fær að eiga til
verurétt til frambúðar. Líklegt
er ef fram heldur sem horfir, að
við verðum þá að gefast upp,
eins og við urðum að gera 1963
á Flókagötunni. Við bíðum og sjá
um hvað setur.
f baðherbergið
Baðvogir, taukörfur,
handklæðahengi, baðburstar,
mottur baðker, baðmottusett.
J. Þorláksson £■ Norðmann hf.
SÝHINGARÍBÚÐ B.S.A.B
B. S. A. B. sýnir eina íbúð í fjölbýlishúsinu að Kóngsbakka 2—16
(í Breiðholti) dagana 20., 21., 22., 27., 28. og 29. des. n.k. kl. 15—22
alla dagana. Sérstaklega er félagsmönnum bent á sýninguna.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Byggingarsamvinnufélags
atvinnubifreiðastjóra.
Bókin segir frá öllum helstu
dulrænu fyrirbærum sem kunn
eru, svo sem skyggnilýsingum,
dulheyrn, hlutskyggni, hug-
lækningum, líkamningum og
miðilsfundum.
C. E. LUCAS PHILLIPS
HET7UR
Á HÚÐKEIPUM
' v >X!>HÁM»A!>WPí>Xk 5ÍWM'
AKASWN' * Hfímsti.: VCiS
BRáGÁS
Saga einnar djörfustu árásar
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Skipanir þeirra voru að
sökkva eða eyðileggja eins
mörg skip og þeir framast
gátu, en forða sér síðan.
í Píreus, hafnarborg Aþenu
laumast ókunnur maður um
borð í brezka fluttningaskipið
„Gloriana”. Er laumufarþeg-
inn sovétski vísindamaðurinn
sem leyniþjónustan leitar að.
tn íau Myra» kíoihm
lOsirsu vtsiMp«.
**M ItTNIHOMfVtAM
i»nM
.
Viðburðarík og óvenju spenn-
andi ástarsaga eftir hinn vin-
sæla rithöfund Erling Poulsen.
1 fyrra gaf forlagið út eftir
hann skáldsöguna „Fögur og
framgjöm“.
Flugið er allt með eðlilegum
hætti, þar til vélin er yfir
Arizona. Þá hverfur hún af
ratsjárskermi fyrir augunum
á skelfingu lostnum umsjónar-
manni.
Óvenju spennandi skáldsaga
um ástir frægrar leikkonu og
duttlunga örlagana sem ógna
bæði henni og. fjölskyldú
hennar. Þetta var hættulegur
leikur.
Heimsfræg unglingasaga skrif
uð af 16 ára gamalli stúlku
um argentínskan dreng og
hestinn hans. Sögur( Helen
Griffith hafa hlotið feikna
vinsældir um allan heim.
Skemmtileg og spennandi
unglingasaga um hraUsta
stráka sem lenda í ótrúlegustu
ævintýmm. Þetta er fyrsta
bók Hafseins, og hún lofar
svo sannarlega góðu.
Jólabækurnar
1968
Bók er rétta jóiagjöfin
Afgreiðsla í Reykjavík er í Kjörgarði sími 14510
Keflavík, sími 92-1760.