Morgunblaðið - 05.01.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup:
Án hans
Jesiús segir: Án mín getið þér alls
ekkert gjört. Jóh. 15,5.
Nýtt ár er runnið. Vér heilsum þvá
með vonum og góðum óskum, biðjum
farsældar sj'álfum oss, þjóð vorri og ÖJI-
um mönnum á jörð.
Vonir og óskir eru hjá flestum tengd-
ar áformum og áætlunum, misjafnlega
ljósri meðvitund um verkefni, sem fram
undan eru, um það, sem vér munum
þurfa að gjöra. I mörgum tillvikum er
þó varla um að ræða áform eða áætl-
anir eftir frjálsu vali og ákvörðun,
heldur vitneskju um kvaðir lífsins,
sem eru órðnar hlutskipti vort oig halda
áfram að gjöra tilkall til tíma og krafta
á því ári, sem kemur, eins og hinu, sem
leið í aldanna skaut.
Kynslóð vor er athafnasöm, ekki sízt
hér á fslandi. Það er mikið, sem eftir
hana liggur hvert árið, þó að misjafnit
sé. Víst mun það ár, sem kvatt var
fyrir stundu og var íslendingum örðugt
í sumu, verða talið merkilegt ár í sögu
athafna og enda afreka. Þá mun verða
staldrað við þann atburð, sem varð í
árslok, þegar mannánum tókat á flugi
sínu að ná til tunglsins og komast svo í
færi við það, að nú virðist maninkyn
að því komið að geta gert sér mánann
undirgefinin á sama hátt og móður jörð.
Mikið er að gjört í sögu mannsins, og
þó meiri venkefni, sem við blasa, því
hvert unnið afrek opnar nýja mögu-
leika fyrir önnur og jafnvel stærri.
Samt er mörg áleitin spurning um
framtíð mannsinis, mörg uggvænleg vafa-
spurning, sem Stóru stökkin á braut
framfaranna þagga ekki. Þvert á móti.
Sálarlif nútímamannsnis er merkt af
beyg, þar er nagandi ótti við þann
mátt sem mannkyn ræður nú yfir.
Albert Einstein sagði einu sinni (í við- .
tali við Ilja Ehrenburg), að hann hefði
oft sagt, að möguleikar þekkingarinn-
ar væru ótakmarkaðir. En hann sagðist
líka hugsa um það, að grimmdiin og litt-
iimennskan ættu sér heldur engin tak-
mörk.
Það er kunnugt, að Einstein lagði
fram sinn ómetanlega skerf til vísinda-
eigra samtímans. Hann óttaðist það vald,
sem maðurinn fengi með því að ná tök-
um á kjarnorkunni. Þó studdi hann það
að kjarnorkusprengja væri framleidd í
Ameríku. Hann gerði það vegna þess,
hann og aðrir vörðu það fyrir samvizku
sinei með því, að ef Ameríka yrði ekki
á undan, kymni grimmd og hrottaleg
villimennska nazismans að ná þessum
yfirburðum á hernaðairsviðinu, og þá
væri alit tapað.
Þetta var skiljanlegt, eins og á stóð,
•hitt miður skiíljanlegt, að þessu vopni
var beiitt, þegar það var gert. Og ekki
er það gott að vera í slíku kapphlaupi
við grimmdina, ekki gott að vera þanm-
ig rekimn áfram af óttanum. Og nú
sprengja Kínverjar í óða önn, í kapp-
hlaupi við sinn ótta. Hver vinnuir síðast í
þessu kapphlaupi? Hvar endar það?
En eitt er engin spurning í öliu þessu:
Mennirnir geta mikið, stórkostlega mik-
ið.
Og svo er það einrn, sem segir: Þér
getið ekkert, alls ekkert gjört, án min.
Hver segir þetta?
Jesús Krisitur, hann, sem vér höfum
ekkert
enn á nýliðnum jólum hyllt sem „son
Guðs, frelsun mannanna, firelsisins Jind
konung lífs vors og ljóss“, svo vitnað
sé í kærasta og kunnasta jólasáliminn.
Hver er alvaran í þessari hyllingu? Og
hver tekur hann alvarlega, þegar hann
segir: Án mín getið þér alls ekkert
gjört?
Kristur — hvar kemur hann við sögu
afrekamna í tækni, hver er hans skerfur
á sviði framfiaranna?
Tökum ísland. ísland hefur breytzt á
örfáum áratugum svo mjög til bóta, að
það er ótrúilegt ævintýri.
Ég man alltaf, þegar ég spurði afa
minn, hvað honum væri eftirminnileg-
ast af öllum þeim breytingum, sem barnn
hafði 'lifað. Hann var þá kominm á ní-
ræðisaldur og kjarnorkuöldin var haf-
in. Hann hugsaði sig um og svaraði síð-
an: „Ég held, að það, sem einna mestu
munaði fyrir okkur smælingjana, hafi
verið það, þegar skozku ljáirnir komu“.
Svo lítilþægir voru menn einu sinni,
og ekki lamgt síðan.
Það hefur margt gerzt síðan skozku
Ijáirnir komu og leystu af hólmi heima-
smíðuðu spíkurnair. Og amma mín eldaði
lengst af í hllóðum og skilvindu átti hún
ekki fýrr en síðast í búskapnum. Kyn-
slóð afa og ömmu var alin upp við það
að þurfa að tína fífu í kveiki og noita
lýsi til ljósmetis. Svo kom steinolían.
Hverju munaði það, þegar steinolían
kom? Síðan kom rafimagnið. Menn á mín
um aldri muna það vel, þegar rafmagn
sem almenn gæði og þægindi var aðeins
fjarlægur draumur.
Svona má halda áfram. Ég nefni að-
eins sára einfialda hluti, sem eru orðn-
ir hreinn hégómi í ljósi þess, sem síðar
hefur gerzt og er að gemst.
Hefur Jesús Krisitur verið við þetta
riðinn, öll þessi ævintýri vorra tíma?
Hanin hefur kanniski átt þáitt í því,
að mannúðim hefur aukizt? Kannski. En
stundum er á það bent, að manmúðin
hafi vaxið á sama tíma og guðræknin
hefur þverrað og áhrif kirkjunnar dvín
að. Og þá leyfa menn sér að efast um,
að þessi þáttur í framförum mútímans sé
neitt sérstaklega Kristi að þakka. Ætli
það geti ekki eins verið hitt, að menm
hafi orðið mildari, þjóðfélagið miskunn-
sarmara af því að fól'kinu ‘líður betur en
áður, er þar af leiðandi betur lynt?
Hvað hefur Jesús Krsitur gjört, hver
er þáttur hans í öllu því, sem áunnizt
hefur frá því að spíkurnar hurfu og
grútarlamparnir hurfu og íslendingar
átti við að stríða það snærisleysi, sem
nú er orðið heimsfrægt í skáldskap?
Eða þá viðureignin við dauðamn.
Læknisfræðin hefur gjört mikið. Kem-
ur Jesús við sögu þar? Hefur ekki pen-
icillínið varnað meiri sorg og stöðvað
fleiri tár en hann? Ég gæti mefnt fleiri
lyf og aðrir þó miklu fleiri en ég.
Ég hugsa um konuna austuir í Meðal-
landi fyrir tæpri öld. Maðurinn henmar
fórst í brim’lendingu á árabáti um páska
leytið. Og sama vor missti hún börnin
sín hvert af öðru, fimm voru þau víst,
sem fóru í gröfima, dóu öll úr barna-
veiki.
Hver famn upp bóluefnið gegn barna
veiki? Ekki eir Jesús nefndur í því sam-
bandi, sá Jesús, sem við allar þessar
grafir var sagður „sigrarinn dauðans
sanmi“.
Það er önnur saga, að konan stóð
Upprétt eftir allt þetta sitríð og harma,
bugaðist ekki, brast ekki. Hún átti eitt
þegar allt var misst, eina vissu, sem bar
hama uppi:
Ég veit minn ljúfur lifiir
lausnarinm himnum á,
hann ræður öllu yfir,
einn heitir Jesús sá.
Þetta er sem sagt önmur saga, löngu
liðin, saga eins hins smæsta smælingja
á fátæka íslandi, sem þó vanm e.t.v.
stærri sigur en þótt hún hefði flogið
til tunglsins. En önnur saga. Þæir sögur
eru nýrri og áþreifanlegri, sem nú gex-
ast hvern dag, að slysum sé forðað og
dauða varnað með hjálp vísinda.
Maðurinn, sem hefur leyst innst-u rúm
efnisins, maðurinn, sem er að hefja land
nám á öðrum hnöttum, hvað vantar hanm
til þesis að geta allt? Og Jesús segir:
Án mín getið þér alls ekkert gjört? -
Nú er rétt að skjóta því inn, að þegar
Jesús talaði þetta, þótt síðan séu nálega
tvö þúsund ár, þá vissi hann það, að
mennirnir gátu mikið. Þeir hafa alltaf
unnið aðdáunarverð afrek, miðað við sin
ar aðstæður. Þeir höföu t.d. lengst aftur í
fornöld reist turn í Babel, frægan.
Hann var hár, hann átti ekki að ná til
tunglsins, heldur alla leið til himims.
Hvar er hamm í dag? Þeir höfðu reist
pýramída. Hvers virði eru þeir í dag?
Fornöldin átti sín tæknilegu undur, sjö
voru talin fremst, vöktu mesta aðdáun,
kölluð sjö furðuverk heknsins. Þeir
höfðu eignazt allan heiminn hveir af öðr
um, Sanherib, Nebúkadnessar, Alexand-
er, Ágústus, og hvað þeir nú hétu allir
þessir miklu, þessir alvöldu menn. Hvað
eiga þeir í dag?
Jesús vissi þetta. Hanin vissi vel, að
mennirnir geta býsna mikið án þess að
spyrja hann eða sækja hamm að ráðum.
Þeir gátu meira að segja tekið bann
sjálfan og bundið og barið og dæmlt.
Þeir gátu hengt hann á kross og stimpl-
að gröf hans eilífri gleymsku, eilífri
smán. Þeir gátu kosið að vera án hans,
án hans að eilífu.
Hann kaus annað. Með yður alla daga,
sagði hamm, þegar þeir höfðu kosið að
vera án hans, dæmt hann úr leik. Ég er
með yður alla daga. Og án mín getið
þér alls ekkert gjört.
Og vér, nútímans sterka, volduga
kynslóð, auðvitað getum vér meira en
samtíðarmenn hanis, sem vildu vera ám
hans. Hafi þeir gert út af við hann á
sólarhring, ættuim vér að geta það á and
artaki. Hafi þeir getað það eirau sinni,
gætum vér sjá'Ifsagt gert það þúsund
sinnum. Hafi þeir treyst sér tiil að gera
hann og ríki hams útlægt af jörðinni,
er ekki að umdra, þótt nútímamenn telj i
fært og tímabært að gera hann og ríki
hans útlægt úr geimnum.
En það þarf ekki að taka svo stórt til
orða. Ég veit fyrir mig, að ég get margt
og hef gent roargt án hans. Þú líka. Það
er alveg víst, að við gerum báðir margt,
stígum margt spor, hugsum marga hugs-
un og mællum margt orð, sem er ekki
hans. Það eir alveg víst, að íslenzka
þjóðin getur margt án þess að leita
ráða hjá honum. Hún getur byggt upp
sitt viðskiptalíf, fjármálalíf, menningar-
líf án hans, heimilislíf, stjórnmálalíf og
stjórnarkerfi án hans. Vér geitum byggt
honum út. Vér getum álllt við hann
gjö.rt, sem samtíð hans gjörði, og meira
tif
Ég hugsa, að Jesús Kristur viti þetta
allt, sé það fullkomlega l|jóst, hafi ver
ið það og sé það. Samt segir hamn: Án
mín getið þér alls ekkert gjört.
Nú leyfi ég mér að rifja upp orð, sem
standa í jólaguðspjalli — ég bið þig að
taka eftir þeim, hugsa út í þau. Þau
ættu að vera fersk því þau standa í
jólaguðspjalli: Allir hlutrr eru gjörðir
fyrir hann og án hans varð ekkert til,
sem til er orðið.
Þetta er jafnsatt á nýársdag eins og
á jóladag. Það er eilíflega satt.
Hvað þýðir þetta?
Guð -er að skapa heiminn sinn. Allar
kynslóðir hafa lifað sinn þátt þeirar
sköpunarsögu, vor kynslóð fær að lifia
þátt, sem er stór, a.m.k. í vorum augum
og á mælikvairða himmair kunmu mann-
kynssögu. Og Kristur er orðið, hugsun
in á bak við alla sköpun. Haran er það
orð, sem segir frá öndverðu: Verði ljós,
verði líf, víki dauðinn, hverfi harmar
og böl og bölvun, komi heilsan, frelsið,
friðurinn, kærleikuirinn.
Án þessa orðs, þessa vilja, varð ekk-
ert til, sem eiitthvað er, ekkert, sem mið-
ar til góðs, hvort heldur var ljár eða
lyf eða lampi, hvort heldur var hlý
hugsun, mannúðlegt orð eða verk. Ekk-
ert, sem miðar til góðs. Þar er vizkam
að baki og gæzkan, það hugarfiar Guðs
kærleika, sem Jesús Kristur hefur opim-
berað.
En vér getum farið eigin leið án
hans. Getum það, bæði í smáu og stóru.
Svo mikill er maðurinn. En það, sem
vér gjörum þannig, — það geta verið
stórkositleg afrek, en í hans augum er
það — ekkert, það er í ætt við gapið
myrka, það eyði og tóm, sem talað er
um í 2. versi Biblíunnar, það eyði og
tóm, sem var, áðuir en Guðs orð, Guðs
elska, kállaði í myrkrin út. Og það
stefnir til þeirrar upplausnar, þeirrar
rotnunar dauðams, sem Guðs skapandi
kærleiksorð vill sigra og ætlar að sigra.
Vér getum, já án hams getum vér
haldið áfram að keppa við og ala
grimmdina og óttan í sjálfum oss. Án
hans getum vér sprengt og sprengt afit-
ur, umturnað, lagt borgir í rústir og
lönd, jafnvel hnöttinn, án hans getum
vér urið sjávarmið og aðrar auðlindir
Guðs náttúru till þurrðar, án hans hald-
ið áfram að eitna sjó og vötn og loft,
án hans baldið áfram að dreifa sýklum
halturs og hefndarþorsta. Vér getum
sigrað sjúkdóma, en líka meira: Vér
getum án hans búið til sjúkdóma, getum
notað læknisvísindi til þess að drepa ó-
æskillega þegna eða gera þá að fábján-
um og þræluim.
Vér getum allt án hans, allt sem er
ekki neitt, af því að Guð afneitar því,
Guð Jesú Krisfs. Vér getum brotið lífs-
ins lög, öll lífsins lög. En vér getum
ekki fundið 'lífsins lög, ekki lifað þeim,
ekki þjónað þeim án hans. Vér getum
eignazt al'lan heiminn án hans, eignazt
hann þannig, að allt tapist. Vér getum
glatað sjáilfum oss en ekki fiundið sjálfa
oss án hans.
Án mín getið þér alls ekkert gjört.
Það er hans stóra og gilda orð, alvar-
an miikla, náðin mikla og sannleikurinn
sem kom fyrir Jesúm Krist, úrslitin miklu
í lífi vor "allra, í Mfi þjóðair og heims.
Með honuan eða án hans. Þiað eru vega-
mætin sem skerast í hverri sál og skera
úr um allt.
Og nú hefst nýtt ár. Með honum, vin-
ur, mót mýju ári, með horaum, fslancL
Með honum til góðrar baráttu, fyrir
réítlæti, sanngirni, sáttum, friði. Með
honum í hverri viðleitrai, öllum áform-
um, allri raun.
Með honum. Þá er framtíðin björft.
Þá er rikið hans þiltt, eitífa, sigrandi
ríkið hans. Án hans ekkert. Með honum
allt.
Verzlunarhúsnæði við Bankastræti
Mér hefur verið falið að annast um leigu á verzlunar-
húsnæði við Bankastræti. Húsnæðið, sem er á jarðhæð,
er laust nú þegar.
HÖRÐUR EINARSSON héraðsdómslögmaður
Túngötu 5 — Sími 10033.
Til sölu
Opel sendiferðabifreið árgerð 1964
Ásbjörn Ólafsson hf.
Borgartúni 33 — Sími 24440.
hefst að nýju þriðjudag 7. janúar
Nemendur mcetið á sömu tímum og
áður. Sími 32753
BA LLETÍ IKG II SIGRÍÐAR Ll ÁRMANN
SKÚLAGÖTU 34 4. H ÆÐ