Morgunblaðið - 05.01.1969, Síða 7

Morgunblaðið - 05.01.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969 7 Hoppa ég bæði á hæ! og tá Lilja Björnsdóttir rifjar gamlar minningar frá þrettándadanslcik á Þingeyri Nýlega var haldinn hér á Hrafnistu eftirminnilegur dans- leikur. Á eftir rifjaðist upp fyr- ir mér dálítið skemmtileg minn ing viðvíkjandi dansi og virtist mér dálítið gaman, að hún gæti geymst á prenti. Um dans hefir alltaf margt verið skrafað og skrifað, og oft er þar skammt öfganna á milli. Sumir telja dansinn kynæs- andi og siðspillandi tilburði, en vegna eigin reynslu og margra annarra neita ég þessu. Frá því fyrsta er sögur fara af, hefir það tíðkast að hreyfa sig eftir hljóðfalli og hljóðfæraleik, og sumstaðar var dansinn hafður um hönd sem helgiathöfn og oft hefi ég verið á samkomum þar sem konur hafa dansað saman og skemmt sér vel. En viðvíkjandi þvi, að dans sé kynæsandi, gæti ég sannað að þeir, sem aldrei hafa dansað, hafa getað hrasað á hinni hálu braut hreinlífsins. En það má allt misnota ekki síður dans en annað. Margt gæti ég sagt um dansinn, en vík nú að minn- ingu þeirri, sem varð tilefni þess að ég tók mér penna í hönd. Það var fyrir meira en ald- arfjórðungi, er ég bjó vestur á Þingeyri við Dýrafjörð. Þar tíðkaðist oft að halda grímu- dansleik á þrettándanum. Þá átti ég ungt bam og bjóst ekki við að komast á dansleik, en mér finnst nær því að forlögin hafi gripið þama innl — eins og svo oft áður — einn drengjanna minna sem ætlað hafði að fara á dansleikinn, stakk sig á nagla í fótinn og varð að sitja heima. Þá hugkvæmdist mér á siðustu stundu, að gaman væri að kom- ast á dansleikinn. Búningur sá er ég hugðist nota var nú ekki af verri endanum, sem sé ein- kennisbúningur, „Uniform", af Pétri skipstjóra, bróður mínum. Þó búningurinn væri snjáður og mér ætlaður til að sauma upp úr-honum á drengina mína, var hann með öllum sínum gylttu hnöppum og borðum ákjósan- legur sem grímubúningur handa mér. Það mátti heita, að hann passaði á mig, og þegar það sannaðist, lá mér við að efast um, að ég væri spengileg í vextinum, en að eiga nú sjálf að búa grímuna til á síðustu stundu, þá vandaðist málið, en það var eins og ég fengi inn- blástur og gríman varð svo góð, síðan náði ég mér í vélstjóra „Kaskett" og þá var allt fengið. Þá lagði ég af stað til sam- komuhússins, þar tók nú ekki verra við. Rétt, þegar ég var komin í biðherbergið bak við tjöldin kom ég auga á svo spengilega peysufatadömu og varð strax bál skotin i hermi og bauð henni upp í dansinn. Ennþá get ég séð okkur í anda, svona montin og sæl, er við sem „fyrsta par“ marserruðum inn á dansgólfið. En þá upphófst nýr þáttur hjá áhorfendum, að gizka á hver þessi ánægðu „pör“ væru, einkum þó skipstjórinn, sumir voru að reyna að sprengja út úr sonum mínum ungum, sem þama voru, og segja við þá: „Hún er myndarleg hún mamma ykkar“, en þeir þögðu, svo spyrjendumir vora alltaf í óvissu. Þeir gátu ekki trúað þvi,* að ég gæti dansað svona létti- lega. en það var hvoratveggja, að ég fann, að það var þægi- legra að dansa í karlmannabux um en í hinum siðu og þungu peysufatapilsum, sem þá tíðk- uðust, annað hitt að fró því ég ung var í dansskóla hjá Stefan- íu Guðmundsdóttur og Guð- rúnu Indriðadóttur og lærði gömlu dansana sem þærkenndu svo taktfast, hafði ég getað smástund I dansi haldið þeim léttu hreyfingum. Mér finnst líka gaman að rifja það upp sem mér fannst nær því furðu gegna, þegar ég kom til Reykjavíkur, sögðu kunn- ingjarnir við mig, þú hafðir svei mér gert lukku á „grímu- ballinu". Svona er lífið hugsaði ég, þeir nefndu það ekki að ég samdi gott kvæði þegar sam- komuhús það — sem þessi dans leikur fór fram í — var vígt. Þá sagði einn af skemmti- nefndarmönnunum við mig- „Hver bað þig um að gera þetta kvæði?“ Ég svaraði fáu, vissi sem var að það þýddi ekki að segja honum að kvæðið hefði komið nær því fullskapað í huga minn og svo fágætum Guðsgjöfum tæki maður á móti með lotn- ingu og þakklæti án þess að spyrja þá leyfis, sem betur væra settir að ytri ástæðum en ég var þá. Síðan hefi ég oft hugsað um hversvegna þessi danstækni mín hefði vakið svo mikla eftirtekt. Það var ekki al- gengt þá að „útungunarvélacr" eins og stórskáldið mundi hafa nefnt mig, birtist I sviðsljósi skemmtistaðanna, þær sátu allt- af heima og rauluðu stundum fyrir rollingunum um vísu Siglu víkur-Sveins, „Ég hefi ekki neitt td neins nema börn og skuldir." Oft síðan þegar ég hefi hitt mírva spengilegu dansmey, sem var Ragnar Ágústsson nú skip- stjóri hjá Eimskip hef ég sagt við hann að gaman hefði nú verið að eiga mynd af okkur, en tæknin var ekki komin á eins hátt stig þá eins og nú. En þeg- ar ég heyri gömlu danslögin vel spiluð, koma mér í hug ljóð- línur eftir E. Ben. „Hví veldur mér trega tónanna slagur.“ Uilja Björnsdóttir. Á morgun mánudag er 60 ára Þorleifur Jónsson, fulltrúi á loft- skeytastöðinni I Gufunesi, til heim- ilis Löngufit 10. Á gamlaárskvöld opinberuðu trú lofun sína Sigurleif J. Sigurjóns- dóttir Fosshólum, Holtum, Rang., og Jón Þ. Bárðarson Vík í Mýr- daL 30. nóv. voru gefin saman í hjóna band í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Garðari Þorsteinssyni ungfrú Sig- rún Magnúsdóttir Fögrukinn 22 og Jón Eðvarðsson iðnnemi Hverfis- götu 101 A. Rvík. (Ljósmyndastofa Hafnarfjarðaríris) Á jóladag opinberaðu trúlofun sina, Sjöfn Sverrisdóttir, Kapla- skjólsvegi 37. Rvík, bg Halldór Pálsson, Lönguhlíð 19, Rvik. 60 ára er í dag Magnús Jóns- son, yfirmatsmaður og fyrrver- andi skipstjóri, Mjallargötu 8, ísafirði. 16. nóvember voru gefin saman af séra Garðari Þorsteinssyni ung frú Kristin Magnúsdóttir Hafnar- firði og stud. occeon. Halldór Kristjánsson, Akureyri. Heimili þeirra verður að Víðimel 63 Rvík. (Ljósmst. Hafnarfjarðar íris) íbúð til leigu 4ra herb. íbúð til leigu á góðum stað í Kópavogi. Upplýsingar í síma 42367. Raðhús Til sölu fokhelt raðhús í Fossvogi. Uppl. í síma 13742. 21 árs stúlka óskar eftir skrifstofu eða verzlunar- starfi, helzt í Hafnarfirði. Reynsla á skrifstofu. Tilb. sendist afgr. Mbl. f. 10. jan m. „Skrifstofustúlka 6236“. 2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu með eða án hús- gagna. Greiðsla í dollurum, ef óskað er. Uppl. í síma 13965. Bókhaldsþjónusta Tökum að okkur, bókhald, ársuppgjör ásamt framtölum til skatts. BÓKHALDSÞJÓNUSTAN SF. Hverfisgötu 76, efstu hæð. Sími 21455. Júdódeild Ármanns Vegna mjög mikillar aðsóknar að æfingum hjá deildinni, bæði í júdó og líkamsrækt eru þeir sem ætla að æfa í janúar febrúar og marz beðnir um að hafa samband við skrif- stofuna nú þegar í Ármúla 15. Sími 83295 eftir kl. 13. Skrifstofuhúsnœði 4—5 skrifstofuherbergi til leigu strax, í Miðborginni. Upplýsingar á skrifstofu vorri Hallveigarstíg 10. Ceymsluhúsnœði á jarðhæð um 175 ferm. getur fylgt. Hannes Þorsteinsson heildverzlun Kennsla hefst 9. þessa mánaðar. Uppl. í síma 8-48-42 í dag, 6., 7. og 8. þ. mán. allettskólí atrínai' uuðjónsdóttur LINDARBÆ DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000 Cítarkennsla í Lindarbæ. — Upplýsingar í síma 8-48-42 í dag, 6., 7. og 8. þ. mán. KATRÍN GUÐJÓNSDÓTTIR. Bezt að auglýsa í MorgunblaDinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.