Morgunblaðið - 09.02.1969, Blaðsíða 7
MORGUNKLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1969.
7
Leikfélag Hveragerðis og Leikfélag Selfoss sýna sameiginlega
um þessar mundir leikritið Skálholt eftir Guðmund Kamban. —
Leikstjóri er Gísli Halldórsson.
í leikritinu koma fram 20 leikarar og leikur Valgarð Runólfsson
Brynjólf biskup og Aðalbjörg M. Jóhannsdóttir biskupsfrúna.
Næstu sýningar verða i Selfossbíói í dag, Aratungu laugard. 15.
febr. og Hvoli sunnud. 23. febrúar.
I A*J
80 ára er í dag Magnús Jónas-
son Hverfisgötu 37 Rvk. Hann
stundaði mikið sjómennsku á sín-
um yngri árum. Sínan gerðist hann
starfsmaður hjá Reykjavíkurborg,
þar til fyrir tveim árum að hann
lagði niður vinnu. í dag dvelst
hann á heimili sonar síns að Njörva
sundi 10 Rvík.
70 ára verður ó morgun 10. febr
úar frú Málfríður Ásmundsdóttir
frá Sólheimum í Reykjavík nú
Brekkustíg 17 (Fríða í Sól). Hún
býr nú að Reykjavíkurvegi 33 hér
í borg.
Opinberað hafa trúlofun sína ung
frú Sigurbjörg Sverrisdóttir frá
Raufarihöfn og Lárus Ragnarsson
prentari Borgarholtsbraut 45, Kópa
vogi. Hjónaefnin starfa bæði hjá
Morgunblaðinu.
Laugardaginn 1. febrúar opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Ingibjörg
Kristinsdóttir, Mávahlíð 11 og
Magnús Oddsson kennari Suður-
götu 121 Akranesi.
Frétt i r
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk
halda áfram í Hallveigarstöðum
alla fimmtudaga frá kl 9—12 f.h.
Tekið á móti tímapöntunum í sfma
13908 alla daga.
Kvenfélag Grensássóknar
hefur fótaaðgerðir fyir aldrað
fólk í sókninni í safnaðarheimiil
Langholtssóknar á mánudögum kl.
9—12 f.h. Pantanir í síma 12924
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk i
safnaðarheimili Hallgrímskirkju
miðvikudaga frá kl. 9—12 árdegis.
Pantanir teknar í síma 12924.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Rvík,
hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldr
að fóik í Safnaðarheimili Langholts
kirkju alla miðvikudaga fró kl. 2-
5. Pantanir teknar í síma 12924.
Gengið
Nr. 13 — 5. febrúar 1969.
1 Bandar. dollar
1 Sterlingspund
1 Kanadadollar
Kaup
87,90
210,15
81,94
Sala
88,10
210,65
82,14
100 Danskar krónur 1.167,94 1.170,60
100 Norskar krónur 1.230.66 1.233,46
100 Sænskar kr.
100 Finnsk mörk
100 Franskir fr.
100 Belg. frankar
100 Svissn. frankar
100 Gyllini
100 Tékkn. krónur
1.700,38 1.704,24
2.101,87 2.106,65
1.775,00 .1.779,02
175.05 175,45
2.033,80 2.038.46
2.430,30 2.435,80
1.220,70 1.223,70
100 V.-þýzk mörk 2.194,10 2.199,14
iOO Lírur
100 Austurr. sch.
14,08
339,70
100 Pesetar 126,27
100 Reikningskrónur
Vöruskiptalönd 99,86
1 Reikningsdollar
Vöruskiptalönd 87,90
14,12
340,48
126,55
100,14
88,10
sör n
Náttúrugripasafnið, Hverfisgötu 116
opið þriðjudaga, fimmtudaga, laug
opið þriðjudaga, fimmtudaga, laug
ardaga og sunnudaga frá 1.30-4.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 1.30—4
Listasafn Einars Jónssonar er
lokað um óákveðinrt tíma.
Þjóðminjasafn islands
er opið sunnudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl 1.30
Landsbókasafn íslands, Safnhúslnu
við Hverfisgötu:
Lestrarsalir eru opnir alla virka
dag kl. 9-19.
Útlánssalur er opinn kl. 13-15.
Bókasafn Kópavogs
í Félagsheimilinu. Útlán á
þriðjudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum.
Fyrir börn kl. 4.30—6.00 Fyrir
fullorðna 8.15—10.00. Barnabóka
útlán , Kársnesskóla og Digra-
nesskóla auglýst þar.
Bókasafn Sálar-
rannsóknafélags
íslands er opið á
þriðjudögum, mið-
vikudögum, fimmtu
'dögum og föstu-
'dögum kl. 5,15 til 7 e.h. og laugar-
'dögum kl. 2—4 e.h. Skrifstofa SRFÍ
'og afgreiðsla tímaritsins MORG-
'UNS, sími 18130, eru opin á sama
'tíma.
BORGABÓKASAFNIÐ
Aðalsafnið Þingholtsstræti 29a
sími 12308 Útlánsdóilir og lestr
arsalur: Opið kl. 9-12 og 13-22.
Á laugardögum kl. 9-12 og kl.
13.-19. Á sunnudögum kl. 14-19
Útibúið Hólmgarði 34
ÚTlánsdeild fyrir fullorðna:
Opið mánudaga kl. 16-21, aðra
virka daga, nema laugardagakl
16-19.
Lesstofa og útlánsdeild fyrir
börn: Opið alla virka daga, nema
laugardaga, kl. 16-19.
Útibúið við Sólheima 27. Sími
36814. Útlánsdeild fyrir full-
orðna: Opið alla virka daga,
nema laugardaga, kl. 14-21. Les-
stofa og útlánsdeild fyrir börn:
Opið alla virka daga, nema laug
ardaga.
Útibúið Hofsvallagötu 16
Útlánsdeild fyrir börn og full
orðna: Opið alla virka daga,
nema laugardaga kl. 16-19.
Tæknibókasafn IMSÍ, Skipholti
37, 3. hæð er opið aEa virka
daga kl. 13—19 nema laugar-
daga kl. 13—15 (lokað á laug-
ardögum 1. maí — 1. okt.)
VÍSUKORN
Margur slórir máttlinur
maður lífs á vegi '
þetta tórir Þorgerður
þó að aðrir deyi.
Þorgerður postilla
sá NÆST bezti
1. Dreng vantar til að setja umbúðir utan um fisk 15 ára gamlan.
2. Stúlfcu vantar til að festa tölur á fjórðu hæð í húsinu nr. 16 við
?-götu.
3. Píanó til sölu hjá tónlistarkennara, sem er í gó’ðu ástandi.
R.R.Þ.
FRÉTTIR
Blóðbankinn
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem vilja gefa blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h og 2—4 eh Mið-
vikud kl 2—8 eh og laugard. kl.
9—11 fh. — Sérstök athygli skal
vakin á miðvikud vegna kvöld-
tímans.
Fíladelfía .Reykjavik
Almenn samkoma í kvöld kl. 8.
Ræðumaður Villy Harisen. Fórn
tekin á samkomunni vegna kirkju
byggingarinnar. Safnaðarsamkoma
kl. 2.
Hjálpræðisherinn
Klukkan 11 f.h. er helgunarsam
koma. Kl. 8,30 samkoma. Mánudag
kl. 4 heimilasambandsfundur.
Kirkja Óháða safnaðarins
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 2. síð
degis. Séra Emil Björnsson.
Kvenfélag Neskirkju
Aldrað fólk í sókninni geturfeng
ið fótaðgerðir í Félagsheimili kirkj
nnnar á miðvikudögum frá 9—12
Pantanir teknar á sama tíma, sími
16783
Já, hér er svo sannarlega kuldalegt um að litast á ðekki þýzka tog-
arans Gluksburgs, sem kom til Reykjavíkur á fimmtudagsmorgun,
enda gaddurinn víst þá ein 15 eða 16 stig. Hingað kom togarinn,
sem nýbyrjaður var veiðar hér við land, vegna mótþróa nokkurra
af áhöfninni við skipstjórann.
(Ljóssm.: Sv. Þorm.)
Au pair stúlka óskast á nýtízku heimilj. í Leeds í Englandi frá 10. marz, Uppl. í síma 35956. íbúð óskast Vil taka á leigu nýtízku 2ja—3ja herb. íbúð á góð- um stað í borginni. — Simi 16965.
Bókhald — skattaframtal Munið nýju skattalöigin, útvega tilheyrandi toók- haldsbækur. Bókhaldsskrifstofa Suður- lands, Hveragerði, s. 4290. Áreiðanleg kona óskast til léttra heimilis- starfa í Laugarneshverfi. Sími 35908 kl. 2—4 í dag.
Fallegur Mustang Til sölu er mjög falleg og vel með farin Ford-Must- ang bifreið Uppl. í síma 83427 m. kl. 13-16 sunnud. og eftir kl. 19 á mánudag. Heitur og kaldur matur Smurbrauð og brauðtertur, Leiga á dúkum, glösum, diskum og hnífap. Útv. stúlkur í eldhús oa framr. Veizlustöð Kópav., s. 41616.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Önnumst alls konar ofaníburðar- og fyllingar- verk. Seljum 1. flokks fyll- ingarefni frá Björgun hf. Vörubílastöðin Þróttur. Sími 11471 — 11474.
Starf óskast
Vön vélritunarstúlka, með góða málakunnáttu og
langa starfsreynslu, ósfear eftir starfi sem fyrst.
Meðmæli eftir óskað er.
Tilboð óskast send Morgunblaðinu merkt: „6339“.
Húsnæði
fyrir rekstur bifreiðaverkstæðis óskast til leigu sem
fyrst. Stærð 400—500 ferm. Æskilegt er, að húsnæðið
sé staðsett í Austurborginni sem nœst Iðngörðum, þó
er það ekkert skilyrði. Tilboð, er greini stærð og
leiguskiknála sendist Morgunblaðinu fyrir n.k. mið-
vikudag, 12. þ.m., merkt: „6850“.
Óska eitir
að taka á leigu húsnæði með tveimur íbúðum. Önnur
íbuðin má vera lítil. Til greina kemur gott einbýlis-
hús. Góðri umgengni og reglusemi heitið.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 16. febrúar merkt: „Húsnæði
— 6096“.
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C. Bidet
Handlaugar Baðker
Fætur f. do. W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumhoð fyrir fsland:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.
BEZT AB AUGLÝSA í MOBGUiLAflll