Morgunblaðið - 09.02.1969, Blaðsíða 32
fNtfggitiifytafrifr
SUNNUDAGUR 9. FEBRUAR 1969
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMi 'IO'IOQ
Fundir aöila í Eyjum
vegna verkfallsins
BÆ J ARRÁÐ V estmannaey ja
hefur haft forgöngu um það að
kanna, hvort unnt sé að leysa
sjómannaverkfallið þar með sér-
samkomulagi deiluaðila. Gert var
ráð fyrir því, að viðræðunefndir
úvegsmanna, yfirmanna og sjó-
manna kæmu saman í gær eða
í dag.
Bæjaráð Vestmannaeyja átti
fund með forvígismönoum fyrr-
greindra samtaka á fösitudaig.
Þegar bæjaráð boðaði til fund-
airins voru samningamenin Eyja-
félaganna staddir í Reykjavík.
Var þá gripið til þess ráðs að
senda sérstaka fiugvél eftir
þeim.
Á fundinum með bæjarráði
skýrðu aðilar sjónarmið sín, en
þeir hafa tekið þátt í samninga-
viðræðum heildarsamtaka sinna
í Reykjavík. Bæjarráð hvatti
hins vegar til þess, að kannað
Röðull rokst
d lóðsbót
Einn féll útbyrðis
TOGARINN Röðull rakst á lóðs-
bát í hafnarmynninu í Hafnar-
firði rétt eftir hádegi í gær. Mun
maður um borð í lóðsbátnum
hafa fallið útbyrðis er Röðull
rakst á bátinn, en honum mun
hafa tekizt að komast aftur um
borð. Voru fréttir allar enn mjög
óljósar af þessum atburði er
Mbl. fór í prentun í gær.
yrði hvort unnt yrði áð koma á
sérsamningum í Vestmannaeyj-
um, enda eigi Vestmannaeyjar
meira undir því, en flest önn-
ur bæjarfélög, að verkfallið leys
ist sem fjrrst.
Niðurstaðan var sú, að fyrr-
greind hagsmunafélög hétu því
að kanna afstöðu meðlima sinna.
Að því er Björn Guðmundsson,
fréttaritari Mbl. í Vestmanna-
eyjum, tjáði blaðinu í gær, voru
fyrirhugaðir fundir stjórna og
trúnaðarmannaráða í félögunum
þá um daginn. Sagði Björn, að
trúlegt þætti, að viðræðunefnd-
ir sjómanna, yfirmanna og út-
vegsmanna kæmu saman síðdeg
is eða þá í dag, sunnudag.
SELDU FYRIR
16 MILLJÓNIR
6 ÍSLENZKIR togarar seldu afla
sinn í Þýzkalandi í síðustu viku.
Seldi Röðull 193 tonn á mánu-
dag fyrir 136.048 þýzk mörk.
Hallveig Fróðadóttir seldi á
þriðjudag 204 tonn fyrir 125.477
mörk. Sama dag seldi Víkingur
238 tonn fyrir 139.400 mörk. Þor
kell Máni seldi á miðvikudag 154
tonn fyrir 117.700 mörk og á
fimmtudag seldu Egill Skalla-
grímsson og Maí. Seldi Egill
Skallagrímsson 127 tonn fyrir
94.230 mörk og Maí 154 tonn fyr
ir 120.900 mörk.
Samanlagt söluverðmæti afla
togaranna 6 er um 16 milljónir
íslenzkra króna.
1*
Lífsbaráttan er erfið hjá fuglunum við höfnina þessa dagana. f verkfallinu fellur þeim ekki
til æti frá frystihúsunum. Vonandi færir sólin, sem gægist yfir Hafnarhúsið, þeim og öðrum
von betri og hlýrri daga (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Vélstjóraverkfall
dæmt ólögmætt
:
f FÉLAGSDÓMI féll nýlega
dómur í máli, sem LÍÚ höfðaði
gegn Vélstjórafélagi íslands
vegna ólögmætrar verkfallsboð-
unar hjá vélstjórum í Þorláks-
höfn.
Útvegsimemn kröfðust þess, að
ÍSLENZKA LIÐIÐ EINS
0G FALLEGUR G0SHVER
— sagði formaður sænska
handknattleikssambandsins
Dönsku blöðin skrifa mikið um
um leikinn í dag og telja úrslit óviss
Kaupmannahöfn 8. febrúar.
Frá Atla Steinarssyni.
DÖNSKU blöðin skrifa mikið
í dag um landsleikinn í hand-
knattleik milli fslands og
Danmerkur sem fer fram á
morgun. Eru þeir fullir aðdá-
unar á frammistöðu liðsins í
leiknum við Svía, og segja að
ekkert danskt lið geti náð
slíkum leikkafla og fslend-
ingar sýndu er þeir breyttu
stöðunni úr 14:9 í 15:15.
Eftir landsleikinn í Hels-
ingborg var haldin veizla á
Hotel Arnet og þar hélt for-
maður sænska handknattleiks
sambandsins, Vadmark, ræðu,
sem hann þakkaði Islending-
um góðan leik og sínum mönn
um fyrir frammistöðtina og
sigurinn. Rúnar Bjarnason
þakkaði fyrir hönd íslending-
bandinu fallega keramik-
styttu að gjöf.
Eftir veizluna hitti ég Vad-
mark að máli og fékk hann
til að ræða við mig um ís-
lenzka liðið og stöðu þess í
handknattleik í Evrópu, en
Vadmark á sæti í tæknideild
alþjóðasambandsins og er
mjög þekktur sem handknatt-
leiksfrömuður. Vadmark vildi
ekki gefa upp skoðanir sínar
á því hvaða þjóðir yrðu settar
saman í riðla í næstu heims-
meistarakeppni, en þegar að
honum var þrengt um hverjar
hann teldi beztu handknatt-
ieiksþjóðir heims sagði hann
orðrétt:
— Ég mun alltaf halda því
fram að þær 8 þjóðir sem skip
uðu efstu sætin í síðustu
heimsmeistarakeppni, séu enn
8 sterkustu þjóðirnar. En að
þeirri röð slepptri mundi ég
skipa Austur-Þýzkalandi í ní-
unda sæti, Póllandi í 10. sæti,
Noregi í 11. og fslandi í 12.
Um leikinn við Svía sagði
hann:
— Ég bjóet við 4-5 marka
sigri okkar, og sú spá virtist
ætla að rætast í byrjun síð-
ari hálfleiks. En lokasprettur-
inn hjá íslenzka liðinu átti
sinn ekki líkan. Þetta lið ykk-
ar getur allt. Það er eins og
goshver, og það mjög fallegur
goshver.
Á leiðinni til Kaupmanna-
hafnar ræddi ég við Per Kal-
man, einn af forystumönnum
danska sambandsins, og
spurði hann sömu spurninga.
Hann sagðist telja að þjóðirn-
ar 8 sem voru í úrslitum síð-
ustu heimsmeistarakeppni,
skipuðu þau sæti áfram, en
síðan kæmi Austur-Þýzka-
land, Pólland og ísland. Hann
sagði að fslendingar hefðu
sýnt geysilegar framifarir í
íþróttini og ekki væri á því
vafi að þeir næðu lanigt.
Greinilegt væri að þá skorti
nokkuð reynslu. „Að sigra í
leik á útivelli, er list sem tek-
ur langan tíma að læra“,
sagði hann.
verkfallið yrði dæmt ógilt, við-
komandi aðiiiar taldir bótaskyld-
ir gagnivart bátaeigendum, þar
sem undiirmenn á skipunum
höfðu ekki boðað til verkfaMs,
er verkfalil vélstjóra slkall á.
Félagsdómur fél'lst á, að vetrk
fal'lið væri ólögmætt, félagið
dæmt til sjö þúsund króna
selktar, og ennfremur kvað dóm-
urinn srvo á um, að félagið skyldi
bótaskýlt gagnvart bátaeigemd-
um í Þorliákslhöfn.
SAUTJÁN ára piltur, réttinda-
laus og undir áhrifum áfengis,
stal bíl í fyrrinótt og átti lög-
reglan í brösum með að hafa
hendur í hári hans. Áður en það
varð ók hann utan í þrjá bíla og
skemmdi þá alla meira eða
Bíða nú
heimferðar
i Hegningarhúsinu
SKIPVERJARNIR FJÓRIR af
þýzka togaranum Gliicksburg
burg, sem uppreisn gerðu
gegn yfirmönnum sínum, voru:
í fyrrakvöld fluttir úr fanga-
geymslunni í Síðumúla í
Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg. Þar munu þeir
dveljast þar til ákvörðun
hefur verið tekin um hvert
verðUr framhald máls þeirra.
Samkvæmt upplýsingum um-
boðsmanns togarans hafði
þýzka sendiráðinu í gær ekki
borizt fyrirskipun að utan um
hvað gera skuli og hennar þvi
varla að vænta fyrr en á
morgun. Búizt var við að
staðgenglar fjórmenninganna,
sem útgerðin sendir hinigað
kæmu með flugvél í gær-
kvöld, en fyrr getur togarinn
ekki farið á veiðar aftur.
Mikill af li Patreks-
fjarðarbáta
GÓÐUR afli hefur verið hjá Pat
reksfjarðarbátum að undanfömu
og að þvi er Finnbogi Magnús-
son, útgerðarmaður á Patreks-
firði skýrði Mbl. frá í gær. Tveir
netabátar komu á fimmtudag
með yfir 30 tonn hvor og línu-
bátur með tæp 8 tonn. Á föstu-
dagskvöldið komu tveir netabát
ar aftur með 20 tonn hvor og
línubátur með á ellefta tonn.
Þrymur fór út í fyrrakvöld á
línu.
Helga Guðmundsdóttir er nú
á heimleið frá Danmörku og er
hún væntanleg til Patreksfjarð-
ar á morgun. Sagði Finnbogi að
byrjað yrði á því að skipa upp
saltfiskinum og verður honum
pakkað og fluttur út blautpakk-
aður. Er ráðgert að Helga Guð-
mundsdóttir fari á nietaveiðar í
næstu viku.
Finnbogi sagði að gott útlit
væri um fiskirí hjá Patreksfjarð
arbátum og einnig hefðu bátar
frá Tálknafirði og Þíngeyri feng
ið ágætan afla.
Hallur Sigurbjörnsson, frétta-
ritari Mbl. í Bolungarvik sagði
blaðinu í gær, að afli í Djúpinu
væri heldur tregur, frá 4-6 tonn.
Hæsti bátur í Bolungarvík i
fyrradag hefði verið með 4%
tonn en þrír bátar frá Bolungar
vík væru farnir suður á bóginn
á svipaðar slóðir og Patreksf jarð
arbátar.
Alyktun ASÍ
MBL. hefur borizt eftirfarandi
ályktun frá ASÍ:
„Fundur haldinn í miðstjórn
ASÍ tfimmtudaginn 6. febrúair
1969, lýsiir yfir fyllsta stuðningi
við bairáttu sjómannaisamtak-
anna og fordæmir þann seima-
gang sem hefur orði® á því að
gengið verði til saimniniga u«n
san.ngjarnar kröfur þeirra".