Morgunblaðið - 09.02.1969, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.02.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1960. 19 eraðir og teknir saman með beltum. Efnin eru einnig mjög mismunandi að gerð, eftir því hver flíkin er. ÞÓTT þorri sé rétt hálfnað- ur, eru sýningadömurnar á Signubökkum búnar að spranga um skrautsali tízku- kónganna í París í þeim föt- um, sem konur um heim allan eiga að láta sig dreyma um í vor og sumar. Vortízkusýn- ingunum er loki'ð og því ætti að fara að koma í ljós hver „Parísarlínan" er að þessu sinni. Það er ekkent nýtt að tízku- frömuðirnir þar syðra keppist um að sýna skrýtin og öfga- kennd föt, sem fáar konur hafa löngun eða hugrekki til að klæðast, a.m.k. fyrst um sinn. Þannig sýndu þeir nú síða kjóda, þar sem pilsið er klofið upp að mjöðm, kjóla, sem eru opnir að framan svo að naflinn geti blasað við og þannig mætti lengi telja. En það eru ekki þessi föt, sem beðið er eftir með eftirvænt- ingu — það er beðið eftir því að heyxa, hvað þeir segja um sídd ,liti og það, sem sameig- inlegt er hjá þeim. Það er beðið eftir „Parísarlínunni". PILSIN STYTTAST Pilsin styttast enn. Hjá, Sýningu Dior-tízkuhússins lauk að vanda með því að inn kom brúður í fullum skrúða. Var kjóllinn að sjálfsögðu hvítur og á hann eru fest hvít taublóm. VortízkaníParís1969 Þröngir jakkar, sfutt felld pils og hvitir skór Balmain eru pilsin aðeins styttri en í fyrra, hjá Dior eru þau miklu styttri og pilsin hjá tízkuhúsum Feraud, Ung- aro, Cardin og Courréges gætu ekki verið styttri, ef þau ættu áfram að kallast pils. Þessi gráa flannelsdragt vakti mikla athygli hjá Dior. Pilsið er fellt og vasarnir stórir. HVÍTT — HVÍTT Litur sumarsins er hvítt. Þar með er ekki sagt að flík- urnar eigi að vera alhvítar, heldur á flest það sem við þær er haft að vera hvítt: skór, hanzkar, kragar, belti og klútar og þáð skaðar ekki að efnið í kjólnum sé hvít- köflótt eða með hvítu mynstri. Með öllu þessu hvíta eru áð- allitirnir fagurblátt, ljós- rautt, ljósdrapp og ýmsir ljósir daufir litir. SÖMU FÖT A KONUR OG KARLA Flest tízkuhúsin sýndu buxnadragtir, en þó ekki eins mikið og í fyrra. Buxnadragt- irnar líkjast nú meir karl- mannafötum en nokkru sinni fyrr — eða eru það kannski karlmannafötin, sem farin eru að líkjast kvenfatnaði? Svo mikið er þó víst að það þyk- ir mjög vel viðeigandi að par fái sér föt (dragt) úr sama efni og með sama sniði og klæðiat eins blússum eða peysum við. Karlmenn hafa nú „leyfi“ til þess áð klæð- ast skyrtum og peysum úr efnum, sem hingað til hafa aðeins þótt hæfa kvenþjóð- inni. Síðbuxurnar sitja á mjöðm- unum og skálmamar eru víð- ar. Jakkarnir eru síðir, og ef síðbuxurnar eru ekki hluti af buxnadragt eru þær hafð- ar við stutta kjóla eða kyrtla. ÞRÖNGIR JAKKAR — FELLD PILS Dragtarjakkar eru síðir og þröngir og pilsin eru felld eða plisseruð. Á kjólum er allur gangur. Þeir eru víðir, þröngir, plíss- Búningur frá Lanvin. Bux- urnar eru úr rauðu silki. in er um hálsinn með bindis- hnút. Dior lætur sér þó ekki nægja hlásklút um hálsinn, heldur á áð binda hann um höfuðið að hætti tatara. Sýn- ingastúlkurnar hjá Ricci voru með klútana vafða um beltin, en leður og málmbelti setja mikinn svip á tízkuna. Þeir, sem verið hafa þarna syðra síðustu dagana segja, að nú eigi allar sannar Parísar- dömur klúta merkta einhverju fínu tízkuhúsi og belti með spennu með einkennisstöfum einhvers tízkukóngsins. Þetta er sá varningur tízkuhúsanna frægu, sem skrifstofustúlkan getur veitt sér — verðið á kjólum og drögtum er ákveð- ið með fjárráð annarra stét-ta í huga. Hvítur síðdegis og kvöldkjóll frá Jean Patou.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.