Morgunblaðið - 09.02.1969, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1969.
Símon hélt, að þau væru að
hlæja að sér og eyddi þessu
tali.
Þau léku franskt kriket úti í
garðinum og Lísa las fyrir Sím-
on úr Andrési Önd. Því hafði
Símon gaman af, en Peter fannst
þetta heldur vellulegt lestrarefni
fyrir strák.
— Kemur hr. Peter með þér
næst þegar þú kemur, Liz?
sagði Símon þegar þau bjuggust
til að fara.
Hún tók eftir því, að hann
vildi ekki láta hana kyssa sig
nema þau væru ein. Svo að hún
faðmaði hann snöggvast að sér
og sagði. — Nei, vinur, vegna
þess, að næst verð ég komin í
frí og þá förum við saman til
hans afa, eins og þú manst.
— Já. . vitanlega. Er hann afi
alltaf í sama húsinu?
— Já, ætli það ekki.
—Gott sagði Símon, um leið
og hann stakk upp í sig heljar-
miklum brjóstsykri, svo að frek-
ara tal af hans hálfu kom ekki
til mála.
Á leiðinni til borgarinnar aftur
spurði Lísa Peter, hvort honum
fyndist Símon ánægður með til-
veruna. Henni datt í hug þetta
umtal um að heimsækja afa.
— Áttu' við, að hann sé ekki
öruggur um sig? Þetta umtal hans
um, hvort afi væri enn í sama
húsinu?
— Mér finnst það ekki nema
eðlilegt, sagði Peter. — ég minn-
ist þess, að ég hugsaði það sama
í sambandi við hann afa minn,
sem átti stórt hús í Mount Cook.
Við bróðir minn vorum vanir að
fara þangað saman í sumarfrí-
inu okkar. Þar var allt fullt
af hesthúsum og útihúsum, þar
sem við gátum leikið okkur.
Skrifstofuhúsnœði
til leigu í Austurstræti 17 (Silla og Valda húsið)
2. hæð.
Upplýsingar í síma 19460.
H/F JÖKLAR.
Arnfirðingar — BílddœHngar
SÓLARKAFFI
Arnfirðinga og Bílddælinga verður í Hótel Sögu,
Súlnasal sunnud. 9. febrúar kl. 8.30.
Þorrakvartett, Alli Ruts o. fl. skemmta. — Dans.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Miðasala og borðpantanir gegn framvísun aðgöngu-
miða verður frá kl. 2—5 sunnudag í anddyri Súlnasals.
SKEMMTINEFNDIN.
Gamli maðurinn, eða réttara sagt
eitthvert sambland af honum
sjá’lfum og húsinu hans, voru að-
alhaldreipin hjá mér í þá daga.
Ég sá mömmu sjaldan. Hún var
dýralæknir. Kona, sem brauzt
áfram. En hafðu engar áhyggj-
ur, Lísa. Drengnum getur ekki
liðið betur.
— Ég hefði nú samt gaman af
að geta haft hann eitthvað hjá
mér Ég held hann sakni kof-
ans okkar og kattanna, því að
hann nefnir hvorugt á nafn.
— Þetta er nú of djúpstætt og
flókið fyrir mig, sagði Peter, dá
lítið óþolinmóður. — Blessuð
farðu ekki út í neina sálarfræði.
Ég hef verið hrifinn af þér frá
því fyrsta, einmitt vegna þess,
hvað þú ert blátt áfram, telpa
mín.
— Ég er hrædd um, að það
sé misskilningur hjá þér, svar-
aði Lísa. Hún var hissa á þessu
„telpa mín“ og fannst það vera
eitthvað svo vanabundið orðatil-
tæki — ekki sem neitt gæluorð,
heldur bara í staðinn fyrir nafn-
ið hennar.
Hún tók að óska þess með
sjá'lfri sér, að hann vildi aka svo
lítið hraðar, því að hún var orð-
27
in óþolinmóð að komast heim,
enda þótt hún vissi ekki hvers-
vegna. Hún skyldi finna sér ein-
hverja afsökun á því að hún
byði honum ekki inn — hún
gæti sagzt vera svo önnum kaf-
in að búa sig til næstu ferðar.
Hann var vonsvikinn, en lét
ekki á því bera. Hann lofaði að
hringja til hennar áður en hún
legði upp í langferðina og sagði
að enn væri hugsanlegt, að hann
yrði sendur í flóttamannaflutn-
ingana.
— Líði þér vel . . .og talaðu
ekki meira við ókunna karlmenn
en þú þarft, sagði hann um leið
og hann steig aftur upp í bíl-
inn.
— Bjáni, sagði Lísa. — Það er
nú einmitt það, sem mér er borg-
að kaup fyrir.
— Já, það er ekki nema satt.
Því er nú verr.
Þegar hann var farinn, skamm
aðist hún sín fyrir þetta vanþakk
læti sitt. Það hafði verið fallega
gert af honum að fara með hana
í heimsóknina til Símonar, og
það sparaði henni bæði kostnað
og fyrirhöfn.
Hún hafði nógan tíma til að
búast af stað. Meira að segja
hafði hún miklu minna að gera
en Peter, og nú þegar hann var
farinn. var hún einmana. Líklega
var hún þverúðarfyllsta og van-
IFUNA
VARI
ELDUUINAR
MALNING
FUNAVARI er plastbundin eldvarnarmálning,
er blæs upp við hita og myndar frauð, sem
logar ekki en einangrar vel gegn hita.
FUNAVARI tefur því mjög fyrir íkviknun í eld-
f imum vegg- og loftklæðningaref num og hindr-
ar þannig lengi vel útbreiðslu elds. Á sama hátt
einangrar FUNAVARI stálbita og járnhurðir og
varnar því að málmurinn hitni og leiði hita til
reiðslu elds.
MALIMIIMG S
KÓPAVOGI SSmi 40460
þakklátasta kvenpersóna, sem til
var í heiminum.
Nú lét hún niður í ferðatösku,
auk handtöskunnar, sem nægði
henni venjulega, því að þetta
yrði langferð. Þetta tók hana um
það bil klukkustund. Síðan hreins
aði hún og affrysti kæliskáp-
inn. Matinn úr honum fór hún
með til konu með mörg börn, sem
átti heima uppi á efsta lofti.
Maðurinn hennar hafði skó-
verkstæði á neðstu hæð. Hann
gerði illa við skó og sjaldan, því
að hann eyddi mestum tíma sín-
um við veðhlaup. Konan var
alltaf fegin að hitta Lísu og
henni þakklát fyrir matinn, sem
hún færði henni öðru hverju.
Stundum bauðst hún til að taka
til í íbúðinni fyrir hana, meðan
w # ÁLFTAMÝSI 7
BLOMAHÚSIÐ
simi 83070
Opið alla daga öll kvöid og
um helgar.
Blómin, sem þér hafið ánægju
af að gefa, fáið þér í Blóma-
húsinu.
hún væri fjarverandi, en eftir
rykinu og ruslinu að dæma í
hennar eigin íbúð, þótti Lísu
ekki fýsilegt að þiggja þá hjálp
og sagðist alltaf hafa nógan
tima tli að gera það sjálf.
Konan var að gefa yngsta
barninu þegar eitt eldri krakk-
anna kom með Lísu upp stigann.
Þrátt fyrir flakandi blúsuna og
ringulreiðina á öllu, sem þarna
var inni, fannst Lísu þetta eitt-
hvað heilbrigt. Ungbarnið var
feitt og ánægt. Enginn skeytti
neitt um þefinn af óhreinum
bleyjum — eða var það kannski
kálsuðulykt?
Börnin virtust öll heilbrigð
og ánægð. Þessi kona hafði sýni-
lega lent á réttri hillu í lífinu.
Hún var ekki að fara í felur
með neitt. Lífið gekk sinn vana-
gang, eins og bezt vildi verkast.
Ef ti'l vill höfðu börnin ekki
neitt strangvísindalegt mataræði
en mamma þeirra var þarna allt-
af við höndina til að hugga þau
eða skamma, eftir því sem við
átti hverju sinni. Þarna höfðu
þau öryggi.
Á steinbrúnni úti fyrir var
drengur að kenna systur sinni á
hjóli. Litla stúlkan slagaði, æpti
SCNNUDAGU 9. FEBRÚAR 1969
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Hvers konar skriftir ættu að ganga vel í dag, ekki sízt ef
um skapandi verk er að ræða. Leitaðu þó álits vinar, sem get-
ur ráðið þér heilt.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Þér hættir til að segja ekki alltaf allan sannleikann og
ættir að ráða bót á þeirri ónáttúru.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júín
Alls konar óþægindi geta komið upp í dag, ef þú gætir ekki
fyllstu skapstillingar. Sinntu þeim verkum, sem þú hefur tekið
að þér, þótt hvíldardagur sé.
Krabbinn 21. júní 22. júl>
Þú ert hollur vinum þínum, en gleymir stundum þeim sem
enn nær þér satnda. Það getur bakað sárindi, sem gróa seint,
ef þú gerir ekki bragabót.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Krikjuganga væri að öllu leyti hressandi og upplífgandi fyrir
þig i dag. Reyndu að fá yngri meðlimi fjölskyldunnar með.
Ekki veitir af smá blessunarorðum ó þessum síðustu timum.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. sept
Skapið er ekki upp á það bezta i dag. Þú ættir að heim-
sækja góða vini þína og sækja þangað hressingu og upplyftingu,
sem þér er nauðsyn.
Vogin 23. september — 22. október
Þú gætir þess venjulega að láta tilfinningarnar ekki ráða. En
þú skyldir þó stundum hlusta eftir rödd samvizkunnar, a.m.k. i á-
kveðnu fjölskyldumáli.
Drekinn 23. október — 21 nóvember
Aðstoð berst þér frá aðilum, sem þú áttir sízt von á að leggðu
þér lið. Þetta skyldirðu meta að verðleikum og skrifa bak við
eyrað.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Ef þú stundar einhvers konar sport, skaltu leggja það á hilluna
i dag.
Steingeitin 22. desember — 20. janúar
Einhverjir kunningjar þínir vilja óðir og uppvægir leiða þig i
allan sannleika um ákveðið og viðkvæmt mál. Ljáðu þvi ekki
eyra og reyndu sjálfur að komast að niðurstöðu.
Vatnsberinn '21. janúar — 19. febrúar
Kaldhæðni þín er til að dylja þitt hlýja og góða eðli, það er
óþarfi og þú skalt ekki hika við að koma til dyranna eins
og þú ert klæddur, ef þannig stendur á.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz
Þú ættir að heimsækja roskna ættingja í dag og munt komast
að raun um, að það verður þér til gleði og góðs, ekki síður
en þeim.