Morgunblaðið - 09.02.1969, Side 11

Morgunblaðið - 09.02.1969, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1969. 11 Steve, neðanjarðarritstjóri með meiru. Allir á sveitinni Næst grípum við glóðvolgan Steve Ruben, sagnfræðistúdent við Bethany College í Vestur Virginiu. Oss er tjáð, að hér sé kominn uppreisn æskunnar holdi klædd. — Ert þú byltingar maður, Steve? Þröngt A a þingi — Að svo mæltu er Steve hlaupinn í burtu, því nú hópast stúdentarnir saman í hátíða- salnum. Við króum þó af eina stúdínuna og spyrjum hana að nafni og skóla. — Ég heiti Ruth Goldberg og nem sálfræði við Trenton State College í New Jersey. Mér skilst segir Ruth, að þið kvartið um þrengsli hér í háskólanum, ég vildi að ég gæti boðið ykkur til Trenton. Þá sæuð þið fyrst þrengsli, skólinn er bókstaflega yfirfullur. Við þyrftum helzt að geta gengið á hofðum hvers ann ars til að komast fyrir. Á stú- dentagörðunum er sömu sögu að segja, við búum þar tveir stúdentar í hverju her- bergi og nægir þó alls ekki til. f mötuneytinu og bókasafn- inu er sama upp á teningnum þar er stundum beðið klukku- stundum saman í röðum eftir að komast að. En þú mátt samt ómögulega skilja þetta sem svo að ég sé með eintóman barlóm, auðvitað eru háskólaárin þau skemmtileg- ustu og allt stendur þetta nú vonandi til bóta. Við verð- um bara að sætta okkur við, að fylkisháskólarnir virðast yfir- að eggja stúdentana á að láta ekki prófessorana eina um að stjórna skólanum. — Og hvernig lánast það? Steve verður dularfullur á svipinn og segir: — Ég og þú erum eiginlega há'lfgerðir stétt- arbræður. f Bethany er starf- andi neðanjarðarhreyfing stú- denta og ég er ritstjóri leyni- blaðs hennar. Blaðinu er ætlað að róta svo upp í hugum stú- dentanna. að jafnvel þeir dauf- gerðustu, sem fljóta sofandi að feigðarósi taki við sér. Ég skal nefna þér dæmi um hverju neð- anjarðarhreyfingin hefur komið í kring. Fyrir rúmu ári fórum við fram. á að stúdentarnir gerðu nokkurs konar kennslu- og námsmat í lok hvers miss- eris. Segðum álit okkar á þar til gerðum eyðublöðum, á kennsl- unni og námsbókunum og bent- um á leiðir til úrbóta. Fyrir at- beina okkar tókst að fá þetta samþykkt með naumum meiri- hluta i háskólaráðinu. Raunvís- indaprófessorarnir voru okkur ándsnúnastir og sögðu stúdent- ana á engan hátt hæfa ti'l að kveða upp dóm í sínum grein- um. Eftir sviftingar í ráðinu og nokkur miður fögur orð í leyni- blaðinu varð rhatið að veruleika. Reynslan frá því í fyrravor hef- ur svo sannað hvílíkt þarfaþing stúdentamatið er. Við komum tií leiðar breytingum á nokkrum ævafornum kennsluskræðum og úreltum kennsluháttum, og allir sannfærðust. í haust lögfesti há skólaráðið matið og lauk upp einum rómi um gagnsemi þess fyrir kennara og stúdenta. Framhaíd á bls. 13. Frjálslynd Nú kröfðust stúdentarnir þess að blaðámenn gættu jafnvægis í byggð landsins og ræddu við Suð urríkja stúdent. Fyrir valinu varð stúdínan Nanoy Naughton. -— Þetta er nú hálfgert plat, ég er aðeins frá Suðurríkjunum að nafninu til, sagði Nanoy. Þótt ég stundi nám við Vanderbilt- háskólann í Tennessee, þá er heimili mitt í St. Louis í Miss- ouri Skólinn okkar hefur mjög gott orð á sér. Þetta er einka- skóli, sem einkum sérhæfir sig í verkfræði og læknisfræði. Að- staðan til náms er öll eins og bezt verður á kosið, sjálf legg ég stund á stjómvísindi. — Ertu þá ekki áhugakona um stjórnmál? — Jú, biddu fyrir þér. Ég er æstur republíkani, þ.e.a.s. frjáls- lyndur. Roekefeller og Lindsay eru mínir menn, Nixon finnst mér leiðin'legur en Goldwater og Co. þaðan af verri. Ég hef tekið þátt í allskonar félagsstarfsemi heima í St. Louis og sit þar í æsku- lýðsráði. Við beitum okkur fyr- ir samstarfi við borgaryfirvöld- leitt síðastir til umbóta og þar eru fjárveitingar líka skornar mest við nögl. Annars finnst mér draumi lík- ast að vera komin til Evrópu. Ég hef eiginlega varla stigið fæti mínum út fyrir fylkismörk New Jersey, við Bandaríkja- menn erum víst litlir ferðagarp- ar. — Að lokum kvaðst Ruth ætla að lesa sagnfræði við Kaup mannahafnarháskóla, en kynna sér skapgerð norrænna víkinga í frístundum. „Skapgerðarkönnun í frístund- um“, segir Ruth. Efnið og andinn — Að lokum spjöllum við nokkur orð við Charles A. Turn er, jr. efnafræðistúdent við Washburn-háskóla í Kansas. — Ég lít nú aðallega á þetta sem skemmtiferð, segir Charles og brosir við þegar við innum hann eftir námi. Kansas er ekk- ert sérstakt gleðifylki, en ætli Charles frá Kansas, á skemmti- f«rð. Nanoy repúblikani, „ég blæs á Nixon“... in og höfum komið ýmsu til leið- ar. Þið starfrækið hér æskulýðs- miðstöð í bænum, það er nokkuð sem við stefnum að heima. Dan- ir eru framarlega á þessu sviði og ætlunin er að kynna sér æskulýðsmál þeirra. maður myndist ekki til við að lesa eitthvað í evrópskri sögu svona þegar færi gefst í Kjöp- en. Ég hef orðið þess áskynja, að stúdentarnir hér einhæfa sig fyrr í sinni aðalgrein en heima. Þannig er mér gert að skyldu að lesa jafnframt stærð- fræðigreinum bæði sagnfræði, ensku og eitt erlent tungumál. Ég kaus þýzkuna því mikið af kennslubókum og heimildum í efnafræðinni er á þýzku. — Hver eru helztu áhugamál þín Charles? — Ég er allur í íþróttunum. Það kannast víst allir við í- þróttaáhugann í Bandaríkjunum og ég er þar engin undantekn- ing. Flestum frístundum mínum ver ég í körfuknattleik. Merki- legt fyrirbæri þessi handknatt- leikur ykkar, ég hefði gaman að því að sjá hann leikinn. Kannski maður réyni að innleiða hann heima? Annars eru ekki allir jafn mikið fyrir líkamsmennt- ina, þess vegna er leikfimi t.d. skyldugrein, tvær stundir á viku á okkar námsstigi og þann- ig mun það vera víðast hvar. Það var liðið að miðnætti þeg- ar bandarísku stúdentarnir kvöddu gestgjafa sína og þökk- uðu ánægjulega kvöldstund. Margir úr hópnum voru nokkuð þreytúlegir, enda höfðu sumir vakað á annan sólarhring. En öll voru þau glöð og hress í bragði og sögðu það synd, að fá ekki að vera hér lengur. Þ. W.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.