Morgunblaðið - 09.02.1969, Síða 17

Morgunblaðið - 09.02.1969, Síða 17
MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1969. 17 ... Hve glöð er vor æska... (Ljósm. Ámi Johnsen). Hægt og hægt Ekki er auðvelt að átta sig til hlítar á því sem er að gerast í Tékkóslóvakíu. Frelsisvilji flestra forustumanna sýnist óbugaður og þolgæði þeirra er aðdáunarvert. Engu að síður virðist hægt og hægt síga á ógæfuhlið. Almeirn- ingur er bersýnilega haldinn vax andi kvíða og sár örvæntinig brauzt út í sjálfsmorðum og slík- um tilraunum margra æsku- manna nú fyrir skemmstu. Örlög þeirra vöktu samúð allra sæmi- legra manna, einsdæmi var, að einn har'ðsvíraðasti kommadind- ill hér leyfði hér að hafa þær hörmungar í flimtingum. Smám saman er verið að herða fjötrana. Undanhaldsmönnum og beinum leppurn er troðið í fleiri og fleiri lykilstöður. Áhrif frelsis vinana minnka að sama skapi og yfir þeim vofir missir aimennra vinsælda og trausts. Þeir vilja örugglega gera sitt bezta. Hættan er annars vegar sú, að þeir glati þeim stuðningi, sem gefið hefur þeim styrk, og á hinn bóginn að nöfn þeirra verði notuð sem skálkaskjól. Vandinn er mikili og því miður gefa tilkynningar um vaxandi samrá'ð og samstarf við innrásarmennina versnandi tíma til kynna. Heimskan í hávegum Okkur Islendingum verður tíð- rætt um örðugleika okkar. Víst eru þeir miklir og verst er, að þeir eru magnaðir að þarflausu öllum til óþurftar, eins og með verkfallinu síðustu vikurnar. Vandræði okkar eru þó lítil mið- að við það, sem Tékkar eiga við að búa, og ekki þarf a’ð fara svo langt til að kynnst sjálfsköpuð- um örðugleikum, þeirrar tegund- air, gem við erum lausir við. Svo er um trúardeilurnar í Norður Irlandi þessa dagana. Þar hefur forsætisráðherrann neyðst til þess að rjúfa þingið og efna til nýrra kosninga, vegna þess að svo mörgum fylgismanna hans þótti hann sýna óhæfilegt frjáls- lyndi og linkind gegn þeim þegn um landsins, sem eru kaþólskrar trúar. Vanþekkingin og þröng- sýnin sem í þessu lýsir sér er með ólíkindum. Erfiðleikar í sam búð ólíkra kynstofna, svo sem hvítra og svartra, eru staðreynd- ir, sem menn geta harma'ð, en eru þó skiljanlegar og í eðli sínu torleystar. En hitt, að trúmála- deilur skuli blossa upp með þeim hætti, sem raun er á orðin í Norður írlandi, sýnir, að um sumt stöndum við þó framar ná- grönnum okkair. Batnanili horfur á aukinni efnahagssamvinnu Líkurnar fyrir framgangi Nordek, — hinnar auknu efna- hagssamvinnu Norðurlandanna f jögurra — sýnast meiri en flest- ir höfðu búist við. Samtök bænda og iðnrekenda a.m.k. í sumum löndum hafa raunar lýst vantrú sinni á þessum tilraunum eða beinni andstöðu við þær. En stjórnmálamenn telja þá and- stöðu a'ð mestu á misskilningi 'bygigða og bera þess vegna ekki verulegan kviðboga fyrir, að hún ráði úrslitum. Enn er samt ósam- ið um vandamestu atriðin, þau, er helzt ráða úrslitum. Það er þess vegna rétt, sem Per Borten for- sætisráðherra Noregs heldur fram, að þótt hraðar hafi miðað í áttina en menn bjuggust við, þá verði ekki um úrslitin sagt, fyrr en sést hvort samkomulag næst um þau efni, sem eftir er að fjalla um til hlitar. Annar glöggur Norðmaður hefjir látið ®vo ummælt, að mest rtiundi und ir því komið, hvort Dönum og Svíum kæmi saman. Danir sækj- ast einkum eftir auknum mark- aði í Sviþjóð fyrir landíbúnaðar- vörur sínar og gera sér grein fyrir, að þar sé eftir meiru að slægjast en í Noregi og Finn- landi, bæði vegna mannfjölda og af því að Norðmenn og Finnar muni halda fastara í vernd fyrir landbúnað sinn a.m.k. í vissum landshlutum en Svíar. í báðum löndunum, Svíþjóð og Danmörku, er markvisst unni'ð að því að fækka búum, Svíar segjast fsekka litlum meðalbúum um 10 þús. á ári hjá sér og Danir um 7 þús. í sínu landi. Nú munu um 1:2% dönsku þjóðarinnar hafa lífsupp- eldi af landbúnaði, en talið er, að það hlutfall muni á fáum árum lækka um h.u.b. helming. í stað þess leggja Danir vaxandi áherzlu á iðnað og eru þess vegna að vissu marki hræddari við samkeppni Svía. Af þessum orsökum telja sem sagt sumir, að ef þessum tveimur tekst að semja annars vegar um landbún- aðinn en hins vegar iðnaðinn, þá sé verstu þröskuldunum rutt úr vegi, svo áð hinar þjóðirnar muni þá einnig slást í förina, því að með samningum hinna verði þeirra hagsmunum einnig borgið. Síðasta stórafrek Erlanders? Sumir hafa þó sérstakar áhyggj ur út af afstöðu Finna. Sívaxandi gagnrýni Sovétmanna á þessar ráðagerðir vekja ugg um, að Finnar neyðist til að skerast úr leik, þegar á reynir. Forsætisráð herra þeirra Koívísto segir þenn an ótta samt ástæðulausan. Finn ar muni sjálfir sjá sínum hag áleiðis á ekki lengri tíma. Það hlýtur áð taka meira en nokkra mánuði að semja um svo víð- tækt samstarf og í tollabandalagi lýsir sér. Raunar er hugsanlegt, að samstarfið verði aukið og tilrapnirnar í heild verði taldar heppnast, þó að tollabandalag komist ekki á a.m.k. um sinn. Fróðir menn telja samt, að höfuð markmiðum verði trauðla náð nema með tollabandalagi. landi hinn 10. maí 1940. Hins vegar er þagað um þáð, að 10. apríl, réttum mánuði áður, tók Alþingi ákvörðun um að flytja æðsta vald í málefnum ríkisins inn í landið. Þá hafði það vald verið utanlands allt frá þvi að Gamli sáttmáli var gerður 1262. Um það verður þess vegna ekki deilt, að fáir dagar eru merkari í sjálfstæðisbaráttunni en einmitt hinn 10. apríl 1940. Á hann er blaðið, sem hann nefndi: „Er Morgunblaðið hættulegt fyrir lýð ræðið?" Þar segir hann m.a.: „Útvarpið og sjónvarpið eru nú einu fjölmiðlunartækin sem geta veitt Morgunblaðinu ein- hverja keppni í mótun skoðana almennings og vihðist það vera ritstjórnum þess mikill þyrnir í augum, svo sem sjá má af árás- um á fréttamenn útvarps og sjónvarps, sem birtast æ oftar á síðum blaðsins og bera sterkan keim r itskoðuna rstefn u. “ REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 8. febr. borgið og taka þær ákvarðanir, er þeim henti bezt. Þarlendir kommúnistar virðast þó búast til andstöðu. En einir ráða þeir ekki úrslitum, sennilega veltur mest á afstöðu Kekkonens for- seta, sem sumir halda, að enn hafi ekki tjáð sig um málið. Það virðist þó með ólíkindum, svo einbeittur sem forsætisráð- herann er í yfirlýsingum sínum, og þegar litið er til hvorttveggja, hinna miklu áhrifa Kekkonens sökum reynslu hans og virðing- ar, og þeirra beinu valda í utan- ríkismálum, sem forsetinn hefur samkv. stjórnarskránni finnsku. Enginn einstakur maður hefur málið þó frekar í hendi sér en Erlander forsætisráðherra Sví- þjóðar. Eindreginn áhugi fyrir framgangi þess lýsir sér í öllum hans orðum. Ýmsir ætla og, að hann muni leggja meginkapp á a'ð hrinda Nordek áleiðis áður en hann hvefur frá völdum, er hann segist munu gera á eða eftir flokksþing sitt í september n.k. Mundi þá Nordek verða hans síðasta stórafrek og hámark merkilegs stjórnmálaferils. Ein- staka menn hafa jafnvei á orði, að Erlander muni verða beðinn um að halda áfram til að tryggja málinu framgang, ef svo standi á í haust, að líklegt sé að á for- ustu hans geti oltið. Ærið er samt ólíklegt að hann taki slíkt í mál, hitt er miklu líklegra, að hann leggi allt kapp á að ýta málinu svo langt álei'ðis sem hann fremst getur fyrir haustið. Bíðum átekta Þegar þetta er haft í huga, er naumazt réttmætt það, sem sum- ir höfðu þó mjög á orði, einkum Krag, fyrrv. forsætisráðherra Danmerkur, að meðferð málsins og samningar allir gengju of seint. Hér sem ofit ella er enginn vandi að fá skjótar málalyktir með því að hleypa öllu í strand. Hitt er í raun og veru furðu- legt, hversu langt hefur miðað Eðlilegt er, að við íslendingar veltum fyrir okkur, hvort allt þetta umtal, ráðagerðir og samn- ingar skipti okkur ýkja miklu máli. Og sé því svarað játandi, vaknar spurning um, hvort við höfum gert rétt í því að vera einungis áhorfendur en ekki bein ir þátttakendur í samningum. En þessir samningar eru svo um fangsmiklir, að við höfum ein- faldlega ekki mannafla til að komast yfir það verk. Það kemur ekki að sök, þegar af því, að vegna mismunar á mannfjölda getutn við aldrei búist við að ráða miklu um þa'ð, hvernig hinir hagi samstarfi sínu. Þess vegna er eðlilegt, að við tökum afstöðu þegar þeir eru búnir að semja sín á milli, og gerumst aðilar ef við teljum þátt töku okkur hagkvæma og fáum viðurkenndan nauðsynlegan fyrir vara,. Við nálgumst Nordek bezt með því að fá fyrst skorið úr því, hvort vi'ð getum ásamt hinum orðið aðilar að EFTA. Jafnframt ber okkur að fylgjast með og benda á, ef eitthvað okkur skað- samlegt sýnist í bígerð. Ekkert of ómerkilegt Seint verður ofsögum sagt af iðni kommúnista við áróður. Eitt dæmi þess er útgáfufyrirtæki á þeirra vegum, sem nefnist „Fjöl- vís“, sem gefur út kosninga- handbækur og vasaalmanök. Þar á meðal er „Minnisbókin 1969“, sem Sjóvátryggingafélag íslands hefur keypt af forlaginu og sent viðskiptavinum sínum. I daga- tali bókarinnar eru örfáar dag- setningar helztu atburða úr ís- landssögu, einkum úr sjálfstæðis baráttunni. Allur er sá fróðleikur þó handahófskenndur, jafnvel í þeim dæmum, þar sem engar grunsemir um áróður vakna. T.d. er getið um hernám Breta á ís- sem sagt ekki minnst, en hins vegar er skýrt frá því, a’ð hinn 19 júní 1966 hafi átt sér stað 1. Keflavíkurganga! Þá er sagt frá því, að hinn 9. sept. 1960 hafi verið Þingvallafundur og „stofn- uð samtök hernámsandstæðinga!" Einnig er þess getið, að 17. júní 1937 hafi verið stofnað bók- menntafélagið Mál og menning. Hinsvegar er þagað um stofnun Almenna bókafélagsins 1955, og er það þó mun fjölmennara og athafnasamara útgáfufyrirtæki en Mál og menning. „Ritskoðun46? Satt er það, að slíkur áróður er meinlítill. En hann sýnir, að kommúnistar láta ekkert tæki- færi ónotað til að ota sínum tota. Hrekklausir athafnamenn eies og Sjóvátryggingafélag íslands, sjá ekki við brögðum þeirra og ganga þess vegna erinda komm- únista, þótt í litlu sé. Bezta ráð- ið til að koma í veg fyrir slíkt laumuspil er að vekja athygli á því. Þess vegna standast kommún- istar ekki reiðari en þegar orð er haft á áróðri þeirra og annarra vinstri-sinna. Frekjan og gremjan lýsa sér glögglega í því þegar aðai nöldur menni Þjóðviljans líkir saman ábendingum Morgunblaðsins um einstök dæmi þess, sem miður hefur fari'ð í þessum efnum hjá útvarpi og sjónvarpi, við ritskoð- un, sem Sovétmenn hafa nú neytt Tékka til að taka upp. Nöldur- mennið ætlar aðra svo einfalda, að þeir skilji ekki muninn á frjálsri gagnrýni, sem hægt er að hrekja, ef rök eru fyrir hendi, og hlutdrægri ritskoðun, sem erlend yfirvöld neyða frelsisunnandi þjóð til að þola. Ætla mætti, að fáir gerðu sig bera að því að láta slíkar blekkingar villa um fyrir sér. En svo vir’ðist sem fátt sé svo fráleitt, að enginn láti gabbast. Ungur stúdent skrifaði t.d. fyrir skömmu grein í Alþýðu „Ldkreglur lýðræðisins66? Síðar segir pilturinn: „Flestir munu vera því sam- mála, að áhrifavald Morgunblaðs ins er óeðlilega mikið og sam- ræmist varla leikreglum lýðræð- isins, þar sem eitt æðsta boð- orðið er sem jöfnust aðstaða allra •til að láta í ljósi skoðanir sínar. Segja má að vandamálið hafi einnig verið viðurkennt af ís- lenzkum ráðamönnum, þegar ákveðið var að full greiðsla skyldi koma fyrir þau eintök, sem send eru hinum ýmsu stjóm arstofnunum ríkisins, en það hafði ekki verið gert áður. Það er aðkallandi spurning, hvort ríkissjóður eigi ekki í ríkari mæli að styrkja stjórnmálaflokkana til blaðaútgáfu. Sú leið hefur verið farin t.d. í Svíþjóð, og verður ekki annað séð en hún gefist vel.“ Vangavelturnar um, að út- breiðsla Morgunblaðsins brjóti gegn „leikreglum lýðræ'ðisins“ eru meira en lítið kynlegar. Er það ekki einmitt kjarni lýðræðis og réttra leikreglna þess, að menn megi sjálfir ráða því, hvaða dagblöð þeir kaupi og lesi? Hitt er allt annað mál, og það þessu með öllu óskylt, að ríkið borgi fyrir þá þjónustu, sem biöð in vinna í þess þágu. Beinn styrk ur til blaða ber hins vegar vitni þess, að stjórnvöld vilji ekki una þeim dómi, sem almenningur, frjáls og óþvingaður, hefur kveð ið upp. Annað mál er einnig, hvort1 ástæða þyki til þess að styrkja starfsemi flokka og þá með hverjum hætti. Slíkt er gert í sumum löndum t.d. Svíþjóð. En spurningin er þá sú, hvort hinn ungi rithöfundur í Alþýðublað- inu vill einnig fylgja fordæmi Svía í því, að hæð styrktarfjár til hvers flokks fari eftir at- kvæðamagni, sem hann hefur hlotið, þannig að styrkurinn verði þeim mun meiri sem at- kvbæ'ðamagnið er meira. Sá hátt ur er óneitanlega rökréttur og erfitt að færa ástæður fyrir öðru. Eða af hverju skyldi flokkur, sem sárafáir vilja kjósa eiga að fá jafnmikinn styrk og hinn, sem miklu meira atkvæðamagn hefur hlotið?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.