Morgunblaðið - 02.03.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.1969, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MAJRZ 1969 Trúin á Guð, föðurland mitt og yfirmann minn — gerði mér kleift að standast 11 mánaða pyntingar, sagði einn af áhöfn Pueblos Kaliiforníu, 1. marz, AP. LLOYD Bucher, skipherra á Pueblo táraðist þegar einn skip- verja hans af mexíkönskum uppruna sagði frá pyntingnm sem hann varð að þola meðan þeir voru fangar í Norður Kóreu. Kóreumennirnir voru sérstak- lega grimmir við hann því þeir héldu hann vera Suður-Kóreu- búa eða Filippseying. Mexíkaninn er kaþólskur og hann var spurður hvort hann hefði getað leitað styifes í trú sinni. ,,Ekki þegar þeir voru nálæg- ir, aðeins á nóttanmi þegar við vorum einrr . hegar hann sagði þetta laut skiphenrann höfði. ,,Hvað var það sem gerði þér kleift að standast pyntingamar í þessa ellefu mánuði“ spurði einn aðmirálanna. „Trúin á Guð, föðurland mitt og yfirmamn minn“. Bucher fól andlitið í höndum sér, og skömrnu síðar fór verj- andi hans með hanin úr réttar- salniuim. Allir sikipverjar Pue- blos standa sem einn maður með skipherraniumn og þeir eru sann- fserðir um að hann hafi gert rétt. Kvenfélng Hallgrímskirkju keld- nr samkomu fyrir aldrað fólk Á ÞRIÐJUDAGINN held- ur Kvenfélag Hallgrímskirkju ár lega samkomu fyrir aldrað fólk í söfnuðinum. Yerður samkoman í félagsheimili kirkjunnar og hefst kl. 8.30. Dagskráratriði verða þau, að Guðrún Tómasdóttir, söngkona, syngur við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar, en auk þess munu sóknarprestamir báðir taka til máis. Þá verða kaffiveitingar fram bornar og kirkjuorganist- inn mun stjórna almennum söng. Þess má geta, að á þessari sam komu verður vígt nýtt píanó, Bezta auglýsingablaðið sem Kvenfélag Hallgrímskirkju hefur gefið félagsheimili kirkj- Þessa mynd tók Sv. Þorm. í kín verska garðinum í gærmorgun, áður en opnað var þar aftur. Hábœr opnar aftur í Kínverska garðinum í gær opnaði veitingahúsið Há- bær aftur sumarveitingastað sinn í kínverska garðinum og verður þar opið hér eftir frá klukkan 11 á morgnana til kl. 11.30 á kvöld- in. Kínverski garðurinn er við hliðina á veitingahúsinu, sem kunnugt er og er hann yfir- byggður, en tjörn og blóma- skrúð inni, svo að gestum finnst þeir vera a'ð borða úti í garði. Frakki krefst 7,6 millj. kr. skaðabófa Málaferli út af leigu á Straumfjarðará MÁLAFERLI eru hafin vegna leígu á Straumfjarðará. Hefur franskur maður stefnt íslenzkum aðila hér heima, og eru ðóms- kröfur í stefnu þær, að fslend- ingurinn, sem hafði ána á leigu í nokkur ár, greiði stefnanda 34 þúsund pund og 5.619 dollara Feðgarnir á nýja verkstæðinu. VIKINGUR — nýtt bílaverkstœði á Akureyri Akureyri, 6. febrúar. FE£>GARNIR Jóhann Kristinsson og Kristinn Jóhannsson opna I dag nýtt og fullkomið bílaverk- stæði að Furuvöllum 11 á Akur- eyri. Jóhann hefir um margra ára skeið verið framkvæmda- stjóri Þórshamars h.f., en hóf á síðastliðnu sumri ásamt Kristni syni sínum byggingu hins nýja húsnæðis til eigin starfsemi. Húsakynnin eru mjög hentug og fullkomin, og er vinnu3alurinn um 400 fermetrar. Lýsing er þann ig, að hvergi ber skugga á, og gler í gluggum dreifir sólarljós- inu jafnt um allan salinn. Loft- ræstikerfi er um allt hús, einnig í niðurfallsstokknum í gólfi vegna kolsýringshættu. Auk vinnusal- arins eru í húsinu skrifstofa, vöru lager og varahlutageymsla, snyrt ing og kaffistofa. Viðgerðaþjónusta verður ekki bundin við neinar einstakar bíla tegundir, og einkum mun verða fengizt við réttingar og almenn- ar viðgerðir. Fyrst í stað verða starfsmenn þrír, en verða sex síðar meir. — Sv. P. ásamt vöxtum og kostnaði, en samtals eru þetta um 7.6 millj- ónir íslenzkar krónur. Mál þetta var þingfest i bæj- arþingi Reykjavíkur 6. febrúar sl. og lagði stefnandi fram greinargerð sína í málinu í fyrra dag. Stefndi hefur fengið frest til að skila greinargerð sinni til 6. marz n.k., að því er Björn Guðmundsson, fulltrúi hjá Borg ardómaraembættinu tjáði Mbl. í gær. í greinargerð stefnanda segir um málavexti, að árið 1961 hafi hann (Frakkinn) í fyrsta sinn tekið á leigu veiðirétt í Straum- fjarðará, en þá mun hinn stefndi hafa haft ána á leigu frá land- eigendum. Tveimur árum síðar lánaði Frakkinn íslenzka leigu- takanum 5.619 dollara, og átti sú upphæð að renna til að kaupa lönd, sem lægju að Straumfjarð ará. Upp í þetta áttu að koma útgjöld í sambandi við kaupin. Fyrri leigusamningurinn um Straumfjarðará rann út árið 1964 og í október það ár var gerð ur nýr leigumáli milli aðila um tímabilið 1. jan. 1965 til 31. des. 1974. Stefnandi vissi ekki betur en stetfndur hefði ána sjálfur að leigu, þar til fyrir rúmu úri að hann komst að því, að leigu- máli fyrrverandi leigutaka árinn ar var útrunninn sl. haust. Seg- ir stefnandi í greinargerð sinni, að hann hafi greitt alla leiguna fyrirfram, þegar leigumáli var gerður — samtals 35 þúsund pund. Bréfaskipti fóru fram milli Frakkans og íslenzka leigutak- ans, og hinn 23. janúar 1968 rit- aði hinn síðarnefndi Frakkanum bréf, og mat þá veiðiréttinn á 7200 pund mánuðina júlí og ágúst. Stefnandi svaraði þessu bréfi, og lagði hann til að annað hvort yrði staðið við leigumálann eða fyrri leigutaki árinnar greiddi sér 39.830 pund. Er þar reiknað með sjö árum, sem eftir voru af leigutímanum, en Frakkinn hélt veiðiréttinum sl. sumar, þannig að vanheimildin nær ekki nema til sex ára. Telur Frakkinn því skaðabæturnar 34 þúsund pund. Rétt er að taka fram, að hér kemur einungis fram sjónarmið stefnanda, en sem fyrr segir mun lömaður stefnanda leggja fram greinargerð hans hinn 6. marz n.k. Var garðurinn mjög vinsæll síð- astliðið sumar og komu þar bæði erlendir ferðamenn og tslending ar. Matreiðslumaður er kínversk ur, svo bæði eru þar á boðstól- um kinverskir réttir og evrópsk- ur matur. En kaffisala er þar allan daginn. Gafðurinn er rek- inn samhliða veitingahúsinu, en inni í húsinu er vínstúka og veit ingasalur. Tónlist er í garðinum, leikið á rafmagnsorgel. Svavar Kristjánsson, veitinga- maður í Hábæ, sagði Mbl. áð hann væri búinn að skrifa lista- mönnum og segja þeim að þarna væri aðstaða til sýningar á lista verkum, og hafa reyndar áður verið listsýningar í kínverska garðinum. Eins sagði hann að þar væri aðstaða fyrir verzlunar- menn til sýningar á vörum og tækjum. Breytingor ó Alþýðublaðinu ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir frá því í gær, að það muni verða með breyttu sniði í framtíðinni. Þann ig sé baksíðuefni ætlaður stað- ur í opnu blaðsins í framtíðinni, nýr blaðhaus verði gerður og ýmsar fleiri breytingar. Þá seg- ir, að sunnudagsblöð Alþýðu- blaðsins verði einnig með nokk- uð öðru sniði en aðra daga. Blaðið boðar einnig endurbæt- ur á letri og prentun og batn- andi tæknilegan frágang. Móðir misþyrmdi litlum syni á hroðalegan hátt FIMM ára dreng var sl. fimmtudag komið undir lækn- ishendur, eftir að uppvíst hafði orðið, að hann hafi orð- ið að þola hroðaleigar mis- þyrmingar af móður sinni. Voru margir áverkar á drengn um, m. a. var hann handleggs brotinn og voru brotin talin allt að 3ja vikna gömul. Dreng urinn liggur nú á barnaspitala Hringsins, en móðurinni hefur verið komið í geðrannsókn, að sögn Bjarka Elíassonar, yfir- lögregluþjóns. Mál þetta komst upp með þeim hætti, að litli drengur- inn kom í búð hér í bæ, augljóslega vanræktur og bað um að sér yrði gefið eitthvað að drekka. Starfsfólkið sá strax hvernig komið var fyr- ir drengnum og lét lögregluna vita, og eftir skjóta athugun var barnaverndarnefnd gert aðvart. Var drengurinn þeg- ar fluttur í Borgarsjúkrahús- ið, og þaðan í barnaspítalann. Þar varð hann að gangasrt und ir langa aðgerð, því að m. a. þurfti að brjóta upp brotin á handlegg hans sem byrjuð voru að gróa saman. Áverk- ar voru einnig á fótum, hálsi, úlnliðum og andliti og virtust sum sárin vera eftir bönd. F uilvíst er, að það var móðir drengsins, sem valdið haifði þessuim áverkium, og talið að hún haifi gert það í æðisköstuim, þó að eflcki sé vitað rnánar uim tildrög þess. Sem fyrr segir hefur konunni verið komið í sjúikralhús til geðrannsóknar. Anmar somur konunnar var á heimilmiu, ein engir áverkar voru sjáanlegir á honum, og talið að hamm hafi ekki þurft að líða neinar misþyrminigar. Honuma heíur niú verið komið fyrir á bama- heimili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.