Morgunblaðið - 02.03.1969, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969
Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup:
PASSÍUSÁLMAR
t>egar fastan hófst voru Passíusálmarn
ir teknir fram og Hallgrími gefið orðið
í hverju húsi á Islandi í þrjár aldir:
Upp, upp, mín sál, og allt mitt geð
upp, mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til,
Herrans pínu ég minnast vil.
Síðan fylgdu menn leiðsögn hans,
þegar hann rakti feril Krists frá Getsem-
ane til Golgata. Og við hvert fótmál
lærðu menn eitthvað. Hver dráttur í
mynd frelsarans varð lifandi, öll atvik
urðu raunveruleg og allir þeir lærdómar,
sem skáldið dró af atburðum þessarar
einstæ'ðu sögu, hittu beint í mark.
Enn er Hallgrímur lesinn. Fyrir 25
árum tók rikisútvarpið upp þá ágætu
reglu að flytja Passíusálmana á níu-
viknaföstu, einn sálm á kvöldi. Með því
að fylgja níuviknaföstu endast þeir fram
að páskum, ef hver rúmhelgur dagur
fær sinn sálm.
Það hefur alltaf verið mikið hlustað
á lestur Passíusálmanna í útvarpinu,
líklega þó ekki meira í annan tíma en
í þetta sinn. Flutningur Jóns Helgasonar
á þeim er áhrifamikill og verður mörg-
um eftirminnilegur. Túlkunin er kröftug,
borin uppi af heitu þeli og ást á verk-
inu.
Gömlu lögin njóta sin betur í einsöng
en þegar þau voru sungin margraddað,
auk þess sem orðin koma betur til skila.
Margir hefðu óskað þess, að hinn ágæti
söngvari hefði líka verfð látinn syngja
lokavers hvers sálms, eitt eða tvö eftir
atvikum, og ekki aðeins upphafsversið.
Hvenær ætlar útvarpið að taka upp
kvöldbæn árið um kring, eða a.m.k. yfir
vetrartímann? Vinsældir Passíusálmanna
á föstunni skera að vísu ekki úr um það
tif fulls, að hliðstætt efni á sama stað í
dagskránni á ö'ðrum árstímum yrði
mikils metið af þorra hlustenda — Pass-
íusálmarnir eru í flokki sér. En reynslan
af þessum dagskrárlið mælir þó með
því, að þetta væri alltjent reynt. Og
ekki getur það hafa farið framhjá út-
varpsráði, að morgunbænirnar í útvarp-
inu eru vinsæll dagskrárliður, sem mikill
fjöldi manna vildi ekki missa. Stutt
bænarstund að kvöldi eftir síðari kvöld-
fréttir myndi áreiðanlega ekki síður
verða vel þegin.
Og hvenær kemur að því, a'ð sjónvarp
ið láti í té eitt lítið andartak í dagskrár-
lok, þar sem slegið væri á helgan streng?
Ég segi andartak — eitt kjarnaorð úr
Heilagri ritningu, eitt stutt bænarvers
áður en sjónvarpið kveður að kvöldi —
ég færi ekki fram á meira. Ég er sann-
færður um, að þeir eru í meirihiuta
meðal sjónvarpsnotenda, sem tækju
þessu með þökk.
En ég var að tala um Passíusálmana.
Þeir hafa orði'ð langlifir. Þær bækur eru
teljandi, sem halda lífi svo lengi. Og
Hallgrímur hefur ekki aðeins náð því
að eiga sæti sitt tryggt um aldur á
æðsta bekk meðal höfuðsnillinga. Hann
varð nákomnari en nokkur annar hverj-
um manni, sem hér hefur fæðzt og
lifað og dáið um þriggja alda skeið. Það
var hann, sem leiddi hvert íslenzkt barn
fyrstu sporin mn í helgidóm bænarinnar.
Öðrum fremur hefur hann innrætt háum
sem lágum holl heilræði og helg vís-
dómsor'ð. Orð hans hafa sent geisla kross
ins og upprisunnar inn í hvert hryggðar-
myrkur og verið flestum athvarf og
styrkur í dauðans stríði.
Ef þær kynslóðir, sem hafa lifað á
íslandi um liðnar þrjár aldir mættu
velja sér kjörskáld, efa ég ekki, hver
fengi flest atkvæðin. Og mættu þær rök-
styðja atkvæði sitt, myndu þær minna
á, að Hallgrimur var þeim meira en and-
ríkur snillingur. Hann var þeim sterkur
leiðtogi, hollur ráðgjafi og beztur vinur
í raun. Og ég gæti bezt trúað, að allir
vorir forfe'ður og formæður um næstliðn
ar aldir væru samdóma um það álit, að
engin þjóð ætti einum sona sinna meiri
þökk að gjalda en islenzka þjóðin passíu
sálmaskáldinu.
Ég á bréf í fórum mínum, sem mér
þykir vænt um. Þar standa m.a. þessi
orð: „Árum saman hef ég notað Passíu-
sálmana í daglegri bænagjörð minni á
föstunni, en héðan í frá mun ég lesa þá
daglega, einnig utan föstutímans".
Þetta bréf er langt að komið. Það er
frá Ungverjalandi, Búdapest. Bréfritar-
inn heitir Lajos Ordass. Hann er lúth-
erskur biskup, víðkunnur maður og
mikils virtur víða um lönd. Hann var
sviptur embætti vegna þess, að valdhöf-
um Ungverjalands þóknuðust ekki við-
brögð hans við skoðanakúgun og and-
legri áþján. Hann er frábær málamaður
og hefur notað tíma sinn síðan hann
var sviptur stöðu sinni og starfsfrelsi
m.a. til þess að læra íslenzku til mikillar
hlítar tilsagnarlaust. Passíusálmana hef-
ur hann ekki aðeins lært að meta til
einkanota. Hann hefur þýtt þá alla á
ungversku. Þýðingin fæst ekki gefin út
í Ungverjalandi, en handrit hafa komizt
úr landi og verið fjölrituð. Hafa sálm-
arnir náð mikilli útbrei'ðslu meðal ung-
verskra flóttamanna og ég hef traustar
heimildir fyrir því, að þeir eru mikið
sungnir í þessari þýðingu, enda er hún
að mati dómbærra manna hið ágætasta
verk. _
I löndum, þar sem ungverskir flótta-
menn eru fjölmennir, eru sérstakar út-
varpssendingar fyrir þá. Á föstunni hafa
Passíusálmarnir í þýðingu Ordass sums
staðar verið fastur þáttur í þessum út-
varpsdagskrám að undanförnu.
Þannig hefur Hallgrímur unnið nýtt
svið undir áhrif sín á síðustu árum og
sent neista af sinni heilögu glóð inn í
hugarheim framandi fólks, sem hefur
sætt þungum örlögum.
Hallgrímur bað ekki um frægð. Hann
lagði alla sína gáfu að fótskör Drottins
síns og bað þess eins, að hún mætti
þjóna honum og mikla hann:
0, Jesú, gef þinn anda mér,
allt svo verði til dýrðar þér
uppteiknað, sungið, sagt og téð
síðan þess aðrir njóti með.
Þessi bæn var heyrð.
EFTIR EINAR SIGURÐSSON
REYKJAVlK
Tíðin var ágæt framan af vik-
unni, en eftir miðja vikuna
hvessti á suðvestan og spilltist
þá sjóveður, einkum hjá loðnu-
bátunum.
I byrjun síðustu viku fóru
fyrstu útilegubátarnir að koma
inn eftir verkfallið og voru að
því fram yfir miðja vikuna. Neta
bátarnir voru yfirleitt með góð-
an afla, þannig var Ásberg með
54 lestir og Ásgeir með 33 lestir.
Aflinn var yfirleitt þorskur. All
ur fiskur, sem ekki er landað
daglega, er slægður.
Af línubátum, sem legið höfðu
úti, var Ásbjörn með 44 lestir
og Ásþór með 41 lest, langmest
þorskur og lítilsháttar ýsa.
Af trollbátuiníUim kom Sæborg
með mestan afla, 30 lestir, þorsk
ur og ýsa.
Þessir togarar seldu í síðustu
viku:
Lestir Krónur Kg.
Hafliði 122 1.773.000 14.53
Svalbakur 135 1.710.000 12.67
Röðull 167 2.508.000 15.02
Hallv. Fr.d. 242 3.284.000 13.56
Mikill meiri hluti aflans var
ufsi. í næstu Viku selja 4-5 tog-
arar.
KEFLAVÍK
Afli í net hefur verið tregur,
þó kom Helga úr Reykjavik einn
daginn með 29 lestir, mest uísi,
og Sæhrímnir með 32 lestir, einn
ig mest ufsi, voru þessir bátar
báðir i útilegu. Eftir nóttina hef-
ur aflinn yfirleitt verið um 10
lestir.
Á línu hefur aflinn komizt upp
í 12 lestir eins og hjá Nonna, en
algengast hefur hann verið um 5
lestir.
Af trolli komu Freystinn með
9 lestir og Hamravik með 7 lest-
ir.
Um 3000 lestir hafa verið lagð
ar á land af loðnu.
Allir eru vongóðir um af'.a-
brögðin, þótt einstaka séu svart-
sýnir eins og gerist og gengur og
vilji ekki meina, að neitt bendi
til meiri afla en í fyrra.
SANDGERÐl
Afli hefur verið sæmilegur á
línuna, þannig fékk Andri einn
daginn 18 lestir og Sigurpáll 14
lestir og margir 10 lestir og þar
um kring.
3 bátar eru byrjaðir með net,
og var einna bezt hjá Hólm-
steini, 9 lestir.
í trollið hefur verið lélegt og
svo til ekkert.
Af loðnu hafa verið lagðar á
land um 1500 lestir.
Mönnum finnst líta sæmilega
út með aflabrögð, og þegar beitt
er sílinu, fæst meiri fiskur og
mjög vænn og góður fiskur, en
það hefur verið gert undanfarna
daga. En ýsuna hefur vantað í
aflann í allt haust og gerir enn.
AKRANES
Tveir bátar eru byrjaðir me'ð
net, og fékk Hávarður einn dag-
inn 18 lestir.
Á línuna hefur aflinn verið
5—9 lestir, Sigurfari fékk einn
daginn 9 lestir og Skírnir 8 lestir.
Og Sigurborg kom með 53 lestir
úr útilegu eftir 5 lagnir. Afli
þykir alveg sæmilegur á línuna
eftir því sem gerist um þetta
leyti.
GRINDAVÍK
Afli hefur verið góður í net,
þannig fengu Geirfugl og Albert
25 lestir hvor einn daginn, en
algengasti aflinn hefur verið 8—
12 lestir. Minni ufsi er nú í afl-
anum en áður, eftir að bátarnir
færðu sig grynnra.
Línubátarnir hafa verið að fá
8—10 lestir, stærsti róðurinn var
hjá Hrafni Sveinbjarnarsyni II.
13 lestir. Þórkatla II. fékk 25
lestir í 2 lögnum. Það lítur
óvenjulega vel út me'ð linuveið-
ina, góður fiskur, mikið þorskur
og um 1—3 lestir af ýsu í róðri.
í trollið hefur verið sáratregt
hjá litlu bátunum. Staðarberg
fékk einn daginn 13 lestir og
Sigfús Bergmann 24 lestir eftir
2 sólarhringa, og var aflinn ufsa-
blandinn til helminga.
Er nú betra útlit með afla-
brögð en í fyrra.
Af loðnu hafa verið lagðar á
land 1500 lestir.
VESTMANNAEYJAR
Allmargir bátar eru búnir að
taka net, og fóru veiðarnar vel
af stað, aflinn komst upp í 35
lestir eftir nóttina, en nú hefur
dregið úr honum, og er nú aflinn
orðinn sáralítill, og þa'ð sem það
er er það ufsi, svo til eingöngu.
Togveiði er mjög almennt
stunduð í Eyjum, en heldur hef-
ur aflinn í trollið verið tregur
það sem af er. Þó hefur ein-
staka bátur fengið góðan afla við
og við. Menn sakna ýsunnar í
aflanum og eru sumir vantrúaðir
á mikinn trollfisk ef svo heldur
áfram.
Búið er nú að landa tæpum
20.000 lestum af loðnu, og voru
bátarnir síðustu daga vikunnar
a'ð koma með afla úr annarri
loðnugöngunni, sem er nú komin
langleiðina heim undir Eyjar.
SKUGGI YFIR ATVINNU-
LÍFINU
Það er ekki nema hálfur mán-
uður síðan sjómannaverkfallinu
lauk, sem stóð í rúman mánuð,
og raunar má segja, að áhrif þess
hafi náð allt frá áramótum, þó að
verkfall ætti ekki að heita fyrsta
hálfa mánuð ársins.
Meðalútflutningur landsmanna
er um 20 milljónir króna á dag,
en þar sem togaraflotinn og út-
gerð á Vestfiörðum var ekki
stöðvuð, mætti láta sér detta í
hug, að gjaldeyristapið hafi verið
Framhald á bls. 16
Um 7000 lestir hafa borizt á
land af loðnu, og tók alveg fyrir
veiðina við bræluna.
Netabátar veröa varið við tölu
vert af fiski úti í kanti, geti
komizt upp í 20 lestir í lögn, og
hefur helmingurinn verið ufsi.
Aðrir netabátar, sem liggja úti,
eru með hreinan þorsk og eru
norðar, á Breiðubugtarflaki.
Verður nú víða vart við fisk.
Togararnir hafa verið að afla
sæmilega einkum á Selvogs-
bankanum, en aflinn hefur verið
mestmegnis ufsi. Þannig fékk
Hallveig Fróðadóttir, sem seldi í
vikunni, 240 lestir, Þorkell máni,
sem er á leið út, yfir 200 lestir
og Maí 260 lestir.
Tiðin hefur ekki bagað veiðar
hjá togurunum, en á Halanum
hefur veri'ð ís, og líklega hafa
togarar hvergi getað verið að
veiðum út af Vestfjörðum vegna
íss.
Ekki er vitað um, að neinn
togari sé að ve ða karfa.
Engin beimalöndun hefur verið
síðan 13. janúar, eða í hálfan
annan mánuð og ekki útlit fyrir.
að svo verði. Togararnir sem
sel.ia e.lendis ha.fa verið að fá
fyr r ufsann um 13 krónur fyrir
kg.
SÆKIÐ SUMARIÐ HEIM UM HAVETUR
PÁSKAFERÐIR ÚTSÝNAR 1969
TOKREMOLINOS — LONDON Brottför 28. marz. KANARIEYJAR — LONDON
Á KANARIEYJUM er sumarpara-
dís nieðan vetrarríkið herjar á
norðurhjara heims, enda eru þær
eftirsóttasti dvalarstaður Evrópu-
búa á veturna og allt upppantað
marga mánuði fram í tímann. Vegna
sérstaklega hagstæðra samninga
getur UTSÝN boðið nokkur sæti
á mjiig lágu verði til Kanarieyja
um pá-skana.
Verð frá kr. 24.800.—
ÚTSÝNARFERÐ — ÓDÝR
EN FYRSTA FLOKKS.
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17.
S’mar 20100 og 23510.
f sumar mun ÚTSÝN halda uppi
hálfsmánaðarferðum með þotuflugi
beint á COSTA DEL SOL, vinsæl-
asta ferðamannastað álfunnar.
Með fyrsta flokks gistingu er
Á SÓLARSTRÖND SPÁNAR —
COSTA DEL SOL — er allt í feg-
ui-sta skrúða um páskana. Bezta
loftslag og sólríkasti staður Evrópu
með meira en 320 sólskinsdaga á ári.
Úrvalshótel og fjöldi skemmti-
staða. Fyrir þá, sem kæra sig ekki
um að liggja alla daga í sólbaði er
fjölbreytt úrval kynnisferða um
Sólarströndina til Granada, Sevilla
eða yfir sundið til Afríku. Eftir-
sóttasti ferðamannastaður Spánar
árið um kring.
verðið frá kr. 15.000.—