Morgunblaðið - 02.03.1969, Page 5

Morgunblaðið - 02.03.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969 STÖ'RF Alþiiigis sl. viku mótuð- ust mest af iskýrslugjöf þriggja ráðherra: Forsætisráðlherra um efnahagsmál, utanríkisráðherra um utanríkismál og samgöngu- málaráðherra um framkvæmd vegaáætlunar 1968. 12 klukku- stunda umræður urðu um skýrslu foníiætisráðherra og einn ig urðu töluverðar umræður um skýrslu utanríkisráherra. Hins vagar vakti það nokkra furðu að enginn þingmaður kvaddi sér hljóðs eftir að sam- göngumálaráðherra hafði flutt sína skýnslu. Sennileg skýring á því er sú, að senn líður að því að vegaáætlun áranna 1969-1972 verði lögð fram og rædd, og þing menn spari því púðrið til þeirra umræðna. Um skýrslugerð utanríkisráð- herra má segja, að um nýmæli sé að ræða, þar sem þetta mun í fyrsta sinn sem efnt er til um- ræðna um utanríkismál ó Al- þingi á þennan hátt. Hins vegar var varla við því að búast, eftir eðli málsins, að í skýrslu hans kæmi mikið fram af nýmælum og fréttum, enda má segja að öll þau atriði er hann drap á hafi verið meira og minna til um- ræðu á opinberuim vettvangi áð- ur. Athyglisverðaufi kaflinn í ræðu ráðherra, var að mínum dómi, um áhrif og tillögutflutn- ing íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum. Það kom í hlut Þórarins Þór- arinssonar að túlka stefnu Fram sóknarflokksins í þeseum um- ræðum. Utanríkisstefnu Fram- sóknar var nýlega lýst sem „vindhana á kirkjubúrst". Féll ræða Þórarins, ágætlega að þess- ari lýsingu, er hann ræddi uim dvöl varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Kom hann þar fram með kenningar flokks síns, að íslendingar eigi sjálfir að taka að sér gæzlu hernaðarmannvirkj anna og radarstöðvana á Kefla- víkurflugvelli. Ekki hafði hann þó fyrir því að skýra hversu slíkt ætti að eiga sér stað. Sem fyrr segir urðu mjög lang- ar umræður um skýrslu forsætis ráðherra um efnahagsmálin. Var skýrsla ráðherra mjög yfirgrips- mikil og ítarleg. Gerði hann nána grein fyrir þróun efnahags mála hér tvö síðustu árin, og þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið af ríkisstjórnarinnar hálfu til þess að mæta þeim mjög svo þungu áföllum, sem þjóðin hefur orðið fyrir. Um umræðurnar, sem á eftir fóru, má segja að þær voru í heild málefnalegri en maður átti von á. Er ekki vafi á að heildar- svipur þeirra hefði orðið annar og verri, ef útvarpað hefði verið frá þeim. Nokkrir stjórnarand- stæðingar með Lúðvík Jósepsson og Olaf Jóhannesson í broddi fyl'kingar héldu þó dæmigerðar útvarpsræður. Var í málflutningi þeirra flestu snúið við, og aug- um lokað fyrir staðreyndum. Vildu þingmenn láta sem þeir og flokkar þeirra hefðu á tak- teinum úrræði i efnahagsmálum, en þegar þeir voru nánar inntir eftir þeim fengust lítil svör. Vit- anlega getur hver og einn kom- ið með tiliögu á tillögu ofan, sem hljómar býsna fallega, þegar þeir þurfa ekki að bera ábyrgð á framkvæmd þeirra. En yfir slíkan málflutning ættu hins vegar ábyrgir stjórnmálamenn að vera hafnir, þótt þessu sé því miður ekki svo varið hjá flestum þingmönnum stjórnar- andstæðinga. Fáir hafa bent á eins skýran hátt, á rökvillur s'tjórnarand- stæðinga og Ólafur Björnsson gerði í þessum umræðum. Benti hanh á að ekki væri um aðra að- ila að ræða í þjóðfélaginu en at- vinnurekendur og launþega. Nú væri það yfirlýst stefna stjórn- aranid'stæðinga, að báðir þessir aðilar ættu að fá til sín stóraukið fjármagn, ef þeir kæmust til valda. Hver er þriðji aðilinn, sem á að greiða þetta fjármagn? spurði Ólafur og við því fékkst vitanlega ekkert svar. Svo sem vænta mátti var Stefán Valgeirsson einn þeirra Framsóknarþingmanna er þátt tóku í umræðunni. Sá þingmað- ur lætur mikið að sér kveða í ræðustól Alþingis, og segja sum- ir að hann flytji leiðinlegar ræð- ur. Á það skal ekki lagt mat, en víst er að lýsingar hans á ástandi og horfum hjá bændaistétti.nni á íslandi eru ekki uppörvandi. Dettur manni stundum í hug, þegar þessi þingmaður og bóndi er að flytja ræður sínar um land búnaðarmál, að hann sé að koma úr ferðlagi í fortíðinni t.d. frá ríkisstjórnarárum Framsóknar- flokksins, og skýri frá því. Ný- lega bauðst þingmaðurinn að fara í kjördæmi landbúnaðarráð herra og segja bændum þar, hversu aumt ástandið væri hjá Framkvœmdastjóri helzt viðskiptafræðingur eða maður með hliðstæða menntun óskast fyrir heldur lítið fyrirtæki. Upplýsingar í síma 16661. Einar Sigurðsson. þeim. Það segir trúa mín, að sunnlenzkir bændur taki því boði með þökkum. Það gæti t.d. verið ágætt skemmtiatriði á kvöldvöku að heyra flutta árlega öfugmælaræðu. flytur og hefur nú mælt fyrir. Leggur þingmaðurinn til að skip uð verði nefnd sem fái það hlut- verk að kanna hvort möguleiki sé á því að Islendingar komi sér upp meiri farskipastóli. Ef til vill er þarna um óframkvæman- legt mál að ræða, en það er vissu lega þess virði að það sé full- kannað hvort möguleikar eru fyrir hendi. Steinar J. Lúðvíksson. Fagna ber tillöguflutningi á Alþingi um skattfrelsi Sonnings- verðlauna Halldórs Laxness. Það gerist ekki svo oft, að íslending- ar hljóti slíka viðurkenningu er- lendis, að opinberir sjóðir megi ekki við því að láta viðkomandi njóta viðurkenningarinnar að óskertu. „Ég játaði þakkandi, þegar mér var boðin aðild að þessum tillöguflutningi“, sagði Pétur Benediktsson er hann mælti fyrir frum'varpinu, og er enginn vafi á því að í sama streng muni allir þingmenn taka. Geta ber um þingsályktunar- tillögu er Guðlaugur Gíslason s y r r Skemmti- og fræðslufundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 5. marz í Atthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 20:30. Margt til skemmtunar. Ókeypis aðgangur. Veitingar. Mætið vel, takið með ykkur gesti. Skemmtinefnd SVFR. / Látið ekki dragast að athuga bremsurnar, séu þær ekki lagi. — Fullkomin bremsu þjónuata. Stilling Átthogafélag Strandamanna heldur árshátíð að Hlégarði laugardaginn 8. marz, sem hefst með borðhaldi (þorramat) kl. 19.30. Bílar frá Ka kofnsvegi (Gömlu BSÍ) kl. 19.00. Til skemmtunar verður: Kvartettsöngur og þjóðl'agasöngur. Kátir félagar leika fyrir dansi. Miðar seldir í Úraverzlun Hei-manns Jónssonar, Lækj- argötu 4, sími 19056, fimmtudag 6. marz kl. 15—18, föstudag 7. marz kl. 17—19. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórn og skemmtinefnd. NATHAN & OLSEN HF. Eftirlæti allrar fjölskyldunnar með súkkulaðibragði GENERAL Nýtízku veitingahús — flusturver Hdaleitisbraut 68 — Sendum — Sími 82455

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.