Morgunblaðið - 02.03.1969, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969
Hafnarstræti 19.
Vegna fjölda áskorana verður
sérfræðingurinn frá Kanter’s
aftur í verzlun vorri, til að-
stoðar og leiðbeiningar um
val á Kanter’s lífstykkjavör-
um mánudaginn 3. marz.
Kaníer's
lífstykkjavörum.
Corselett
Slankbelti
Buxnabelti
Teyjgjubelti
Sokkabelti
Brjóstahak’.arar
Allt í
Blaö allra landsmanna
Bezta auglýsingablaðiö
Trésmiðjan Borg
í nýju húsnœði
SAUÐÁRKRÓKI 26. febrúar. —
Nýlega hefur trésmiðjan Borg á
Sauðárkróki tekið í notkun nýtt
og rúmgott húsnæði, sem fyrir-
tækið hefur látið reisa að Borg-
armýri 1. Fyrirtækið var stofnað
í júlí 1963 og hefur frá upphafi
starfað í fremur ófullkomnu hús-
næði, sem fyrir löngu var orðið
of lítið, því framleiðslan hefur
vaxið jafnt og þétt.
Stofnendur voru eigendur
Borgar hf., en þeir eru Hreinn
Jónsson, Stefán Guðm.undsson og
Vilhjálmur Hallgrímsson, en síð-
an hafa bætzt í hópinn þeir
Bragi Skúlason og Kári Val-
garðsson, og eru þeir allir þygg-
ingarmeistarar.
Framkvæmdir við áðurnefnda
byggingu hófust sumarið 1967.
Húsið sem er ein hæð er 657
ferm. að flatarmáli. I>að er full-
frágengið að innan. Endanlegur
kostnaður við bygginguna liggur
ekki fyrir, en húsið mun metið
á um 5 milljónir króna, og er
þá ekkj reiknað með lóð og vél-
um.
Vinnusalir eru mjög rúmgóðir
og bjartir, og virðist öllu þar vel
og haganlega fyrirkomið. Auk
þess er í húsinu efnisgeymslur,
skrifstofa, teiknistofa, kaffistofa
og snyrtiherbergi.
Trésmiðjan Borg hef.ur frá
upphafi framleitt inni og úti-
hurðir, auk hvers konar innrétt-
inga, svo og veigg og loftklæðn-
ingar, og hyggjast forráðamenn
fyrirtækisins auka mjög fram-
leiðslu á því síðasttalda. Hjá
fyrirtækinu starfa nú 10 menn,
en hið nýja húsnæði gerir kleift
að fjölga þeim í allt að 25.
Eigendurnir sáu sjálfir um
byggingu hússins, en aðrir aðil-
ar, sem við það störfuðu voru,
Alur sf., sem sá um raflagnir,
Jón Dagsson, sem annaðist múr-
verk, og miðstöðvarlagningar
þeir Ingimar og Sigurður Ant-
Séð yfir vinnusalinn í trésmíðaverkstæðinu.
onssynir. Verkfræðilegur ráðu-
nautur við bygginguna var Pét-
ur Pálmason á verkfræðiskrif-
stofu Sigurðar Thoroddsen á Ak-
ureyri.
Eins og áður segir eru eigend-
ur trésmiðjunnar Borg fimm,
Formaður stjórnar hlutafélagsins
er Vilhjálmur Hallgrímsson, en
framkvæmdastjóri er Stefán
Guðmundsson. Húsið er staðsett
í væntanlegu iðnaðarhverfi sem
rísa á á Sauðárkróki. Bæjarbúar
gera sér nú æ ljósari grein fyrir
því, að öflugur iðnaður sé lík-
legastur til að skapa bæjarfé-
laginu trausta og heillaríka
framtíð. Hér starfa nú nokkur
iðnfyrirtæki, stór og smá, sem
öli gegna ómetanlegu hlutverki
í atvinnulífi staðarins. Þau eiga
flest við erfiðleika og vandamál
að stríða, en með bjartsýni og
dugnaði eigendanna, og stuðn-
ingi yfirvalda ætti þeim að vera
vel borgið. — Kári.
OLIVETTI SKRIFSTOFUVÉLAR
Olivetti reiknivélar
8 gerðir — Verð frá krónum 5.960,oo
Olivetti bókhaldsvélar
6 gerðir — Verð frá krónum 39.420,oo
Olivetfi rafritvélar 3 gerðir — Verð frá krónum 24.900,oo
FULLKOMIN VIÐGERÐAÞJÓNUSTA Á EIGIN VERKSTÆÐI, í REYKJAVÍK AÐ RAUÐARÁRSTÍG 1 OG Á AKUREYRI HJÁ ÓTTARI BALDVINSSYNI STRAND- GÖTU 23. • 0r^\
0. HELCASON & MELSTEÐ HF.
Rauðarárstíg 1 — sími 11644.
KAPPRÆBUFUNDUR
um efnahagsmálin verður haldinn í Sigtúni sunnudaginn 2. marz nk. kl. 15,00
Framsögumenn af hálfu Heimdallar:
Steinar Berg Björnsson,
Styrmir Gunnarsson.
Framsögumenn af hálfu FUF:
Elías Snæland Jónsson,
Þröstur Ólafsson.
Fundarstjórar: Pétur Kjartansson og Sigurður Þórhallsson.
Allir velkomnir meðnn húsrúm Ieyfir
Félag ungra Framsóknarmanna
Heimdallur FUS