Morgunblaðið - 02.03.1969, Page 10
' 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969
„Fyrirgefðu, frðken gdð,
þú ert falleg"
Samfal við Helgu á Sæbóli sjötuga
Á SÆBÓH, suður í Kópa-
vogi, rétt sunnan við Foss-
vogslæk, er í rauninni land-
nemabyggð. Kópavogur er í
dag næststærsti kaupstaður
landsins, en þegar þau hjónin
Helga Sveinsdóttir og Þórður
Þorsteinsson settust þar að
fyrir 33 árum, var þar engin
byggð, ekki á öllu nesinu,
utan Kópavogshælis og Digra
ness, og þannig varð það um
þriggja ára tímabil, að þau
voru ein, eins og landnemar,
líkt og íslendingar í Vestur-
lieimi á sínum tíma.
Helga Sveinsdóttir, hús-
freyjan á Sæbóli veirður sjö-
tug á morgun, miánudaginn 3.
marz, og henni verður haldið
samsæti af konum í Kópavogi
þá um kvöldið kl. 8.30 í Fé-
íagsheimilinu. Af þessu til-
efni komuim við að Sæbóli
seint í síðustu viku til að
spjalila við landnemnafrúna í
Kópavogi, fyrrverandi hrepps
stjórafrú, til þess að reyna að
fá hana til að segja okkur frá
þvi helzta, sem á daga henn-
ar hefði drifið.
Við settumst við kaffiborð-
ið í eldhúsinu og setustofunni
innar af Blóma.s<kálanum, þar
sem steikin brann og smjörið
rann um árið, þegar bóndi
hennar vildi selja páskaliljur
á föstudeginum langa oig víð-
frægt er orðið. Gulbröndótt
læða liggur í kassa við fót-
skör okkar, tveir stálpaðir
kettlingar teygja letilega úr
limum sínum, líta spurnar-
augum til blaðamanns, milli
þess, sem þeir fá sér slurk
að sjúga hjá móður sinni.
Þarna inni er sjónvarp, alls-
kyns þægindi, enda annað
heimili fjölskyldunnar, þótt
aðalheimilið sé nær Fossvogs
bökkum.
Steinsnar er að Marbakka,
þar býr Finnbogi Rútur og
þótt þar á miili hafi ekki
alltaf legið gagnvegir, er svo
komið eins og Þórður segir
glaðklakkanlega: Lægðin
milli Marbakka og Sæbóls er
óðum að grynnast."
„Ég er ósköp lítið gefin
fyrir allt stand og stúss, það
er helzt hann Þórður vilji
tala,“ segir frú Helga, þegar
við hefjum samtalið," en mér
er svo sem sama, þótt ég segi
þér £rá, hvaðan ég er upp-
runnin og svoleiðis. Ég er
fædd að Lambavatni á Rauða
sandi. Móðir mín hét Guð-
ríður Víglnndsdóttir, en faðir
minn Sveinn Maignússon. Þau
voru ekki gift, og því var
það, að móðir mín dreif sig
norður fjöll, alla leið til Bol-
ungaivíkur og átti þar böm
og buru. Ég varð eftir hjá
föður mínum og ólst þar upp
til tvítugsaldurs. Hann var
ættaður úr Breiðafjarðareyj-
um og frá Bairðaströnd. Faðir
minn var á margan hátt
merkilegur imaður. í bókinni
eftir hann Sigurð Árnason:
Með straumnum, segir svo
orðrétt um föður minn: „Það
þótti framúrskarandi gáfaður
og fjölhæfur maður, og var
álitið, að hann gæti nólega
allt, er að smíðum laut. — Og
má þess geta, að eitt sinn
smíðaði hann gufuvél, mifcið
smásmíði, að sögn ekki stærri,
en stórt khxkkuverk, xuuk
ketilsins.“
★
Segir líka frá því í sömu
bók, að Sveinn fékkst mikið
við lækningar og þótti frá-
bær í þeiirri grein. Hann var
fjöifróður, og sagt var, að
hann læsi mörg tumgumál.
Svo var það eitt sinn, að
strandaði franskt skip fram-
urndan Breiðuvík, láklega eins
konar spítalaSkip, því að
gríðarstóran meðalasfcáp rak
á land. Pabbi fékk hann. Ég
man eftir þessum skáp í stof-
unni heima, hann náði nærri
upp undir loft, aililur úr
mahogny og fullur af allisfcyns
glösum með lyfjum. Ég man
það, þegar ég vakti yfir tún-
inu á vorin, þá brá ég mér
stuindum inn í stofu, og gerði
mér það til dundurs til að
halda mér vakandi að telja
glösin í skápnum, allavega
lit og að lögun, en þess á
milli var ég auðvitað alltaf
að gantast við hrossin.
Föður mínum lánaðist allt-
af vel við lækningar. Gemgju
fæðimgar erfiðlega, vair hann
alltaf tilkvaddur, m.a.s. áður
Helga Sveinsdóttir
en hann raáði tvitiugsaldri, og
m.a.s. í önimur héröð.“
„Hvenær hleyptir þú srvo
heimadraganum, Heliga?“
„Ég vair um tvítugt, oig fór
þá suður til Reykjavíkur.
Ég hafði áður stundað nám
hjá sér Þorvaldi Jabobssyni
í SauðlaUksdal, en þegar suð-
ur kom settist ég í fram-
haildsbefck hjá honum ísleifi
að Bergstaðastræti 3. Auk
þess sótti ég saumamámskeið
hjá Ólafíu Sæmundsdóttur,
og fór í Hússtjórn í Kvenna-
skólanum. Svo sótti ég vefn-
aðarniámskeið í Listvinahús-
inu. Við lömidum þar vefstól
ana daginin út og daginn inn.
Ekki nóg með það, heldur
fór ég á niámsikkeið í Gróðrar-
stöðinmi hjá Raignari Ásgeirs-
syni. Síðan fór ég að hreinsa
grasfræ fyrir Klemenz á Sáms
stöðuim, þeir siáðu þeim í
sandanna fyrir austan. Ótta-
legt ryk, og samanlaigt held
ég, að þetta grasfræ og vefstól
arnir í Lis tv inaihús inu og vist
mín hjá Jensen Bjerg hafi
valdið því, að ég féfck Slím
í luinga og gat ekfci farið út
til Danmerkur til áframhald-
andi máms, en þess í stað varð
ég að dveljast á Vífilsstöðum
í nokkra mánuði, og það var
þá, sem við Þórður settum upp
hringana."
„Hvaða vitleysa kona. Við
vorum búin aö setja upp
hringana löngu áður,“ skýtur
nú Þórður inní.
„Nei, ég held nú síður,“
svarar Hélga af bragði. „Ætli
ég muni það ekki. Sigurður
yfirlæknir gaf mér bæjarleyfi.
Þegar ég kom aiftuir, og hann
sá hrimginm á fingri mánum,
sagði hánn: „Jæja, svo að það
var þetta, sem þér þurftuð
bæjarleyfi til.“
Nú biður Þórður um orðið:
„Ég sáhana fyrst í Bolunga
vík. Við vorum að sl’ást,
nokkrir strákar inn í verzlun
Sameinaða. Já, það var mikil
þolinmæði, sem verzlunar-
stjóraniuim, honum Jóni Fann-
berg var léð, að leyfa ofctour
þetta. Ég hafði þá alla uindir
að lofcum, hljóp yfir þá í
hendingslkasti og út úr búð-
inmi, — og lenti þá í fanginu
á Hel.gu, gat varið hana falili,
því að ég var sterfcur þá.
Sagði ég gvo við hana: „Fyrir-
gefðu, fröken góð. Þú ert
falleg." Snaraðist ég svo hins
vegar götunmar. Þar bjó
gömul kiona, sem ég lét stund
um fá í soðið en hún prjón-
aði á miig vettlimga í staðinm.
Ekki var ég fyrr komiinn inn,
en hún bað mig ganga með s'ér
út að gluigga, bernti mér út,
„Sérðu stúlkuna þarna? Þetta
er komuefnið þitt.“ Það var
Heliga. Anmars kom mér það
svo sem ekkert á óvart. Mig
hafði dreymt hana rétt um
fermingaralidur úti í Vigur.
Framhald á bls. 20
Húnvetningafélagið í Reykjavík
Árhátíð félagsins verður haldin að Hótel Sögu (Súlnasal)
föstudaginn 7. marz n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.30.
DAGSKRÁ:
1. Ávarp formanns, Jakobs Þorsteinssonar.
2. Ræða, frú Hulda Stefánsdóttir.
3. Tvísöngur: Guðmundur Guðjónsson og Sigurveig
Hjaltested. Undirleikari: Skúli Halldórsson.
4. Skemmtiþáttur: Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjamason.
5. Dans. ' Veizlustjóri: Jónas Eysteinsson.
Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu félagsins að
Laufásvegi 25 iÞingholtsstrætismegin) miðvikudaginn
5. marz kl. 20—22. Borð verða tekin frá á sama stað.
______________________STJÓRN OG SKEMMTINEFNP.
Þakjárn —
steypustyrktarjárn
Höfum fyrirliggjandi þakjárn, þakpappa og saum,
ennfremur lítið magn af steypustyrktarjárni, 10 og 25
mm, á mjög hagstæðu verði.
VERZLANASAMBANDIÐ,
Skipholti 37, sími 38560.
Vy
O
mura VINYL-VEGGFÓÐUR