Morgunblaðið - 08.03.1969, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.03.1969, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1969. 7 .Myndir af sjónum mitt eftirlæti' Sýning í Mbl-glugga Um þessar mundir sýnir Andrés Magnússon málverk í sýn ingarglugga Morgunblaðsins. Andrés Magnússon er fædd- ur hinn 22. júní 1924 í Vík í Mýrdal og er skaftfellskrar ætt ar. Hann hefur stundað margs kon ar vinnu til lands og sjós, en þó ávallt gefið sér tíma til að grípa til pensilsins í önn dags- ins og málar aðallega með olíu- litum. — Hvenær byrjaðir þú að mála? — Ég hef eitthvað fiktað við liti og teikningar frá því ég man eftir mér. Mest hef ég lík- lega teiknað af sjávarmyndum og dýra, en myndir tengdar sjónum hafa ávallt verið mitt eftirlætisviðfangsefni, enda var 85 ára er í dag Málfríður Jóns- dóttir, en hún verður að heiman I dag. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Kristín Magnúsd. Laufásvegi 65 Reykjavík og Rögnvaldur Jó- hannesson Hjarðarhóli 4 Húsavík. Gefin verða saman í hjónaband 1 dag af séra Jóni Auðuns ungfrú Svava Ragnhildur Þórisdóttir ritari og Norman John Eatough endur- skoðandi frá New Jersey. Brúð- hjónin verða stödd á Háaleitis- braut 18. Gefin verða saman 1 hjónaband í dag af séra Jóni Auðuns ung- frú Asta Björk Friðbertsdóttir frá Súgandafirði og Kjartan Þór Kjart ansson sjómaður. Heimili þeirra verður fyrst um sinn á Njarðarg. 47. FRETTXR Sunnudagaskólar Hjálpræðisherinn Sunnudagaskólinn hefst kl. 2 e.h. 011 börn velkomin Heimatrúboöiö Sunnudagaskóli kl. 10:30 öll börn velkomin Sunnudagaskólinn í Mjóuhlíð 16 hefst kl. 10:30 öll börn hjart anlega velkomin. Sunnudagaskóli Kristniboðsfé- laganna er í Skipholti 70 kl. 10:30 öll börn velkofnin Sunnudagaskóli KFUM og K í Reykjavík og Hafnarfirði hefjast í húsum félaganna kl. 10:30 öll börn velkomin. Bænastaðurinn Fálkagötu 10 Kristilegar samkomur sunnud. Sunnudagaskóli kl. 11 f.h. Almenn samkoma kl, 4. Bænastund alla virka daga kl. 7 em. Allir velkomn- ir. KFUM og K í Hafnarfirði Almenn samkoma sunnudags- kvöld kl. 8:30 Séra Lárus Halldórs son talar. Boðun Fagnaðarerindisins Almenn samkom að Hörgshlíð 12, Reykjavík sunnudagskvöld kl. 8 Heimatrúboðið Almenn samkoma sunnudaginn 9 marz kl. 8.30 Allir velkomnir Kristniboðssamkomur verða í Sel- fosskirkju miðv., fimmtud og föstud. 12—13. marz og hefjast kl 8:30 á kvöld- in Sýndar verða litmyndir frá ís- lenzka kristniboðsstarfinu í Konsó Gunnar Sigurjónsson og Benedikt Arnkelsson, cand theaJ, tala. Allir velkomnir. Kristniboðssamkomur verða i Eyr arbakkakirkju sunnud. 9. marz og þriðjud 11. marz og í Stokkseyrarkirkjumánud 10 marz og hefjast hvert kvöld kl 9 Benedikt Arnkelsson og Gunnar Sigurjónsson, cand theol., tala og sýna myndir frá íslenzka kristni- boðinu í Konsó. Allir eru velkomn- ir. Bræðrafélag Langholtssafnaðar Fundur þriðjudagskvöld kl. 8:30 Langholtssöfnuður Óskastund barnanna sunnudag kl. 4 Krikjuvikan á Akureyrl Skáldakvöld kl. 8:30 tileinkað Davíð Stefánssyni skáldi frá Fagra- skógi. Ávarpsorð flytur Jón Krist- insson, Gísli Jónsson flytur ræðu. Kirkjukór Akureyrarkirkju syng ur Lesið úr verkum skáldsins. ég til sjós um langt árabil. — Hefurðu stundað myndlist arnám? — Ég var einn vetur hjá Jó- hannesi Jóhannessyni, en löngu áður hafði ég lært teikningu hjá Gunnlaugi Briem og Finni Jóns syni. — Hvenær málarðu helzt? — Það hefur verið um helgar og þegar ég hef yfirleitt tíma til frá vinnu. — Og aldrei tekið þér fri frá störfum til að mála? — Nei, ekki nema svona dag og dag. — Og hvar hefur þú málað mest? — í Hvalfirðinum, en ég var um nokkur ár flensari i hval- veiðistöðinni. Þá gáfust oft sæmi lég hlé frá skurðinum og um- hverfið er fallegt með mörgum skemmtilegum mótívum. — HBl. Flytjendur: Kristjana Jónsdóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir, Guðmund- ur Gunnarsson og Jón Kristinsson. Einsöngur: Jóhann Konráðsson Jak ob Tryggvason er organisti Allir eru velkomnir. Kristniboðsfélag karla Fundur mánudagskvöld kl. 8:30 Prófessor Jóhann Hannesson hefur Biblíulestur. Allir karlmenn vel- komnir. Munið eftir % smáfuglunum í frostunum Loftleiðir h.f. Bjarni Herjólfsson er væntanleg- ur frá New York kl 1000. Fer til Luxemborgar kl. 1100. Er væntan- legur til baka frá Luxemborg kl 0215. Fer til New York kl 0315 Vilhjálmur Stefánsson fer til Ósl óar, Gautaborgar og Kaupmanna- hafnar kl. 1015 Er væntanlegur til baka frá Kaupmannahöfn, Gauta- borg og Ósló kl. 0015. Eimskipafélag íslands Bakkafoss fór frá Þorlákshöfn 6.3 til Aveiro Brúarfoss fer frá New York 12.3. til Reykjavíkur Dettifoss fór frá Vestmannaeyj- um í gær til Hull og Hamborgar Gullfoss fór frá Reykjavík i gær til Þórshafnar í Færeyjum, Hamborgar og Kaupmannahafnar. Lagarfoss fór frá Vestmannaeyjum í gær til Reykjavíkur. Laxfoss fór frá Reykja vík í gær til London og Hull. Mánafoss kom til Piraeus í gær frá Gibraltar. Reykjafoss fór frá Her- öya 5:3 til Rotterdam Antwerpen og Hamborgar. Selfoss fór frá Súg- andafirði í gær til ísafjarðar, Flat- eyrar og Grundarfjaðar. Skógafoss fór frá Volkom í gær til London. Tungufoss fór frá Kaupmannahöfn í gær til Gautaborgar og Kristian sand. Askja kom til Reykjavíkur í gær frá Leith. Hofsjökull kom til Murmansk í gær frá Akureyri. Skipaútgerð ríkisins Esja fer frá Reykjavík á mánu- daginn austur um land til Seyðis- fjarðar Herjólfur fer frá Reykja- vík kl. 21:00 á mánudagskvöld til Vestmannaeyja. Herðubreið fer frá Reykjavík á þriðjudaginn vest ur um land í hringferð. Hafskip hf. Langá fer frá Keflavík í kvöld til Cotonou, Dahomey. Selá fór frá Hull i gær til Hamborgar, Kaup- mannahafnar, Gautaborgar og Reykjavíkur. Rangá fór frá Antwerp en 5 til Reykjavíkur. Laxá er I Kaupmannahöfn fer þaðan í dag til Reykjavíkur. * VISUKORN Straumhvörf Sá „gamli" er grálega hnýsinn: gægist nú fyrir horn. Ef „ráðstefnan" rekur burt ísinn raula ég vísukon. Vísindi vorra daga: Vizka sem treysta má. Fölnar hver frægðar saga á feðranna ævi-skrá, St.D. Gömludansahljómsveit Asgeirs Við birtum í dag mynd af gömlu-dansa-hljómsveit Asgeirs Sverris- sonar og söngkonunni Siggu Maggý, en hijómsveitin leikur og syngur fyrir dansi á fimmtudögum og laugardögum á hinum fjör- ugu gömlu dönsum í Þórscafé. (Hljómsveitina skipa, talið frá vinstri: Haukur Sighvatsson, As- geir Sverrisson, Sighvatur Sveinsson, Rútur Hannesson, Sigga Maggý og Bragi Einarsson). Ljósm. Óli Fáll. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu BARNAGÆZLA Get tekið tvö börn í gæzlu allan daginn. Er í Árbæjar- hverfi. Sími 82429. LOKAÐ í DAG vegna jarðarfarar. DÚNA, Kópavogi. Skrifstofustúlku óskost vön algengri skrifstofuvinnu, vélritun, he’zt enskum bréfaskriftum. Þær sem hefðu áhuga á starfinu sendi nöfn sín þar sem tekið er fram menntun, fyrri vinnu- staðir merkt: „Hæfileikar — 2801“. GLER Tvöfalt ,,SECERE" einangrunargler, A-gœðaflokkur Samverk h.f., glerverksmiðja Hellu, sími 99-5888. Koupmenn — knupfélög Sjónaukar, sjónaukar 8 x 30, 7 x 50. Heildsölubirgðir EIRÍKUR KETILSSON Vatnsstíg 3 — Sími 23472. Notaður miðstöðvsrketill óskast til kaups. — Stærð 16 ferm. Upplýsingar í síma 81629. DIGRANES H.F., Suðurlandsbraut 10. HUSBYGCJENDUR - ÍBÚDAREIGENDUR Við bjóðum yður með stuttum fyrirvara: Fataskápa (allar stærðir), sólbekki, eldhúsinnrétt- ingar og annað tréverk. SMÍÐASTOFAN H F. Trönuhrauni 5 — Sími 50855. Hainarbúðir Leigjum sal fyrir fundi og veizlur. Seljum heitan og kaldan veiz’umat, veizlubrauð og snittur út í bæ. Heitur matur á matmálstímum. Kaffi og brauð allan daginn. Böðin opin alla virka daga. Einnig ódýr gisting. — Pantanir í síma 14182. Opið frá kl. 6—11:30. HAFNARBÚÐIR. Húsgögn — útsala Seljum í dag og næstu daga lítið göl uð hjónarúm og fleira. — Opið á sunnudag. B. Á. HÚSGÖGN H.F. Brautarholti 6. Símar 10028 og 38555.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.