Morgunblaðið - 08.03.1969, Page 21
MORGUNB'LAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1969.
21
Sœkjum fram:
Þjóðmálnverkefni næstu ára
Á aukaþingi Sambands ungra
Sjálfstæðismanna, sem haldið var
s.L haust voru 'lagðar fram ítar-
legar tillögur undir heitinu
„Þjóðmálaverkefni næstu ára“.
Tillögur þessar voru undirbún-
ar af mörgum ungum mönnum,
sem stjórn S.U.S. kallaði til þ.á.m
miörgum sérfræðingum og embætt
ismönnum, sem sérfróðir voru
hver í sinni grein.
Tillögurnar voru ræddar á
þinginu og komu fram ýmsar til-
lögur till breytinga. Tillögurnar
voru ekki samþykktar, en ráð
fyrir því gert, að hin einstöku
aðildarfélög fengju tillögurnar
sendar til að ræða þær lið fyrir
lið. Hugmyndin var sú, að aðild-
arfélögin héldu síðan fundi um
hina einstöku málaflokka og
færi fjöldi funda og skipting um
ræðuefnis í flokka eftir aðstæð-
um og áhuga á hverju félags-
svæði.
Takmark þessa starfs var að
gefa sem flestu ungu fólki, á
sem flestum stöðum um landið,
tækifæri til þess að hafa áhrif
á stefnumótun ungra Sjálfstæðis
manna. Stjórn S.U.S. sendi síð
an samræmdar ti'llögur til stjórna
allra hinna 27 aðildarfélaga Sam
bands ungra Sjálfstæðismanna,
sem síðan hafa haldið fundi og
ráðstefnur um einstaka kafla til
lagnanna.
Áður hafa komið frásagnir hér
á síðunni um fundahöld vegna
„Þjóðmálaverkefnis næstu ára“
og nú á næstunni verða haldnir
fundir eða ráðstefnur um land
allt, þar sem einstakir kaflar
tillagnanna verða teknir fyrir.
VESTMA NNAE Y J AR
í Vestmannaeyjum verður hald
in ráðstefna á vegum Eyverja
F.U.S og S.U.S. um „Sjávarút-
vegsmál" laugardaginn 8. marz
og hefst hún kl. 15.00 í sam-
koanuhúsinu. Frummælandi verð-
ur Matthías Bjarnason alþingis-
maður, en hann hefur látið þessi
mál sig miklu varða á Alþingi,"
og mun hann svara fyrirspurn-
um.
Ef ekki vinnst tími til að ljúka
við ráðstefnustörf á laugardag,
verður henni haldið áfram á
sunnudag. Á sunnudag kl. 16.00
mun svo verða fundur Fulltrúa-
ráðsfélaganna í Vestmannaeyjum
og þar miun Steinar Berg Björns
son formaður Heimdallar F.U.S.
flytja erindi um afstöðu unigra
Sjálfstæðismanna til þjóðmál-
anna.
Matthías Bjarnason
VESTFIRÐIR
Á ísafirði og Bolungarvík
halda Fylkir, F.U.S. og F.U.S. í
N.-ísafjarðarsýslu fundi og mun
Friðrik Sophusson mæta þar fyr
ir hönd stjórnar S.U.S.
AKUREYRI
Á Akureyri mun Vörður
F.US. gangast fyrir kvöldverðar
fundi föstudaginn 21. marz í
Sjálfstæðishúsinu (litla sal) og
mun Jón E. Ragnarsson varafor
maður S.U.S. flytja erindi þar.
SÍDAN
RITSTJÓRAR:
PÁLL
STEFÁNSSON
OG
STEINAR J.
LÚÐVÍKSSON
REYKJANESKJÖRDÆMI
í Reykjaneskjördæmi hafa 4
félög ungra Sjálfstæðismanna
samstarf um að vinna úr verk-
efnum þessum og auk þeirra
funda, sem þegar er búið að
halda í því kjördæmi, er ákveð-
Jón E. Ragnarsson
ið að rætt verið um „Utanríkis-
mál“ miðvikudaginn 19. marz í
Keflavík. Frummælandi verður
Matthías Á. Mathiesen, alþingis-
maður, ávarp mun flytja Stein-
þór Júlísson, form. Heimis. F.U.S
Keflavík og fundarstjóri verður
Benedikt E. Guðbjartsson stjórn-
armaður í Stefni F.U.S Hafnar-
firði.
í Kópavogi verður rætt um
„Húsnæðismál" laugardaginn 12.
apríl í Sjálfstæðishúsinu. Frum-
mælandi þar verður Sigfinnur
Sigurðsson, borgarhagfræðingur,
ávarp mun flytja Jón Gauti Jóns
son stjómarmaður í Tý F.U.S.
Matthías Á. Mathiesen
Kópavogi og fundarstjóri verður
Árni R. Árnason, fyrrverandi for
maður Heirnis F.U.S., Keflavík.
í Kjósarsýslu verður fjallað
um „Samgöngumál" miðvikudag
inn 30. apríl að Hlégarði, Mos-
felissveit. Ingólfur Jónsson, ráð
herra verður frummælandi á
þeim fundi. Ávarp flyturFlemm
ing Jessen form. félagsins, en
fundarstjóri verður Jón Atli Krist
jánsson formaður Týs F.U.S. Kópa
vogi.
Auk þess, sem að undan er
Ráðstefna S.U.S. og Varðar, F.U.S.:
Forystu og stjórnun í atvinnu-
málum strjálbýlisins ber aö auka
— stóretla ber starfsemi skipulagsmá/a
— aukin sjálfsstjórn sveitarfélaga
— rannsóknir á nauðsynlegum virkjunum
— samtök stofnuð í hverju kjördœmi
LAUGARDAGINN 15. febrúar sl.
hélt Samband ungra Sjálfstæðis-
manna og Vörður, félag un|gra
Sjálfstæðismanna á Akureyri
fund um Iðnaðarmál. Var fund-
urinn lialdinn í Sjálfstæðishús-
inu á Akureyri og var vel sóttur.
Fluttar voru þrjár framsöguræð-
Ur og síðan urðu miklar umræð-
u um iðnaðarmái og atvinnumál.
í fundarlok var samþykkt álykt-
un, þar sem lögð er áherzla á
nauðsyn þess, að efla forystu og
stjórnun í atvinnúmálum strjál-
býlisins og bent á nokkur grund-
vallaratriði í því efni.
Fundurinn var haldinn í fram-
baldi af aukaþingi SUS í haust,
en þar voru lögð fram drög af
efnismikilli gtefnuskrá ungra
Sjálfstæðismanna, sem síðan
hafa verið rædd í félögum þeirra
víðs vegar um landið og verður
því haldið áfram á næstu mán-
uðum. Þannig verður t. d. fund-
ur um sjávarútvegsmál haldinn
í Vestmannaeyjum um næstu
helgi. Drög þessi verða síðan
lögð fram á reglulegu þingi
SUS næsta haust, með þeim
breytingum sem hinar víðtæku
umræður g«fa tilefni til.
Birgir ísleifur Gunnarss'on, for
maður SUS sett) fundinn á Ak-
ureyri og gerði grein fyrir til-
gangi hans. Fundarstjóri var
skipaður Sigurður Sigurðsson
verzlunarmaður, formaður Varð-
ar en framsöguræður fluttu
Otto Schopka framkvæmdastjóri
Landssambands iðnaðarmanna,
Edgar Guðmundsson verkfræð-
ingur Dalvíkur og Ólafsfjarðar
og Guðmundur Hallgrímsson
lyfjafræðingur á Akureyri. —
Vöktu ræður þeirra mikia at-
hygli, enda kom fram í þeim að
nær því ótæmandi möguleikar
eru fyrir hendi til að hefja stór-
kostlega iðnvæðingu í landinu
til viðbótar við þann iðnað sem
fyrir er og vaxið hefur verulega
undanfarin ár.
Hér fer á eftir ályktun sú er
borin var upp og samþykkt í
fundarlok:
Fundur Sambands ungra Sjálf
Otto Schopka
Edgar Guðmundsson
Guðmundur Hallgrímæon
tálið, eru í undirbúningi fjöl-
margir fundir um land allt, og
verða þeir auglýstir síðar. Rétt
er að geta þess, að Heimdallur
F.U.S hefur starfandi nefnd, sem
hefur allan veg og vanda að úr
vinnslu Þjóðmálaverkefnanna á
vegum félagsins og hefur hún
þegar leitað umsagnar ýmissa
manna og eftir að hafa unnið
úr því, sem fram kemur, mun
verða efnt til funda á vegum fé-
lagsins.
Nú næstu daga verða einstak-
ir kaflar „Þjóðmálaverkefnis
næstu ára“ birtir í Morgunblað-
inu, en drögin skiptast í eftir-
talda meginkafla:
Rannsóknir og nýjar atvinnu-
greinar, Markaðsmá'l, Fjármagn,
Sjávarútvegur og fiskiðnaður,
Iðnaðarmál, Landbúnaður, Verzl
un, Menntamál, Félagsmál, Heil-
brigðismál, Almannatryggingar,
Húsnæðismál, Menningarmál, Ut
anríkis- og öryggismál, Skatta-
kerfið, Samgöngumái, Starfsemi
hins opinbera og tengslin við al-
menning. Ýmiss þjóðmálaverkefni
Áhugafólk er hvatt til þess að
kynna sér efni umræðugrund-
vallarins og taka þátt í framtíð-
arstefnumótun þeirri, sem nú
er unnið að.
Skrifstofa S.U.S Válhöll v.
Suðurgötu hefur upplag af Þjóð
málaverkefninu, og getur fólk
hringt í síma 17103, ef óskað er
eftir að fá verkefnið sent. Nú
á næstunni mun tímaritið Stefn-
ir koma út, en þar er skýrt frá
öllu, sem fram kom á aukaþingi
S.U.S. sl. haust.
Allar breytingatil'lögur, við-
aukatillögur og aðrar athuga-
semdir, sem berast skrifstofu
S.U.S verða kynntar á þingi
S.U.S næsta haust, þar sem geng
ið verður frá framtíðarstefnu-
skrá ungra Sjálfstæðismanna.
stæðismanna og Varðar, félags
ungra Sjálfstæðismanna á Akur-
eyri, haldinn á Akureyri 15.
febrúar 1969 bendir á nauðsyn
þess að efla forystu og stjórnun
í atvinnumálum strjálbýlisins. I
því sambandi ályktar fundurinn:
1. Að skona á stjórnvöld lands-
ins, að stórefla starfsemi á sviði
skipulagsmála og byggðaáætlana
í strjálbýlinu, svo og að færa
þjónustu ýmissa opinberra stofn-
anna, s. s. í samgöngumálum, að
öllu eða miklu leyti, út á land,
þar sem vettvangur þeirra er
fyrst og fremst.
2. Að skora á stjórnvöld lands-
ins, að s'tuðla að aukinni sjálfs-
stjórn sveitarfélaganna i fjár-
málum og framkvæmdum.
3. Að krefjast þess. að nú þeg-
ar verði hafnar víðtækar rann-
sóknir til undirbúnings nauðsyn-
legum virkjunum í strjálbýlinu
til raforkuframleiðslu og til undir
búnings stóriðju og öðrum iðn-
aði, enda verði næsta stóriðju-
fyrirtæki byggt í strjálbýlinu,
þótt það kunni að kosta meira
átak en ella.
4. Að skora á forystumenn í
atvinnumálum strjálbýlisins og
þá einkum í iðnrekstri, svo og
áhugamenn, að stofna til sam-
taka sín á milli í hverju kjör-
dæmi til að efla og auka mögu-
leika atvinnufyrirtækjanna, að
vinna öllum árum að því að haf-
in verði uppbygging stóriðju og
annars meiri háttar iðnaðar í
strjálbýlinu.
Fundurinn telur þetta grund-
vallaratriði til að fyrirhuguð
iðnvæðing í landinu fái raun-
verulega náð til hinna strjálli
byggða landsins, og hafi þannig
um leið nauðsynleg áhrif til
fyllstu nýtingar á auðæfum
lands og sjávar og hagkvæmustu
byppðaþróunar í landinu. -J