Morgunblaðið - 09.03.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1969.
BfLALEIGANFALURHF
car rental service ®
raudarArstíg 31
siM11-44-44
mum
Hverfiseðtu 103.
Simi eftir lokun 31100.
MAGIMÚSAR
skiphoih21 «ma«21190
eftir lokun slmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
Husqvarna er
Regina Exklusiv
Innbyggður grill-
motor,
steikarhitamœlir.
klukka
(junnar séscjeírióon h(.
Suffurlandsbraut 16.
Laugavetf 33, - Sími 35200.
Fullkomirt
steypustöð
Steypustöðin hf. býður yður stein-
steypu, milliveggjaplötur. gangstétt-
arhellur, fyllingarefni og bruna.
Steinsteypran er uppistaðan í húsi
yðar og er mikilvægt að vel sé til
hennar vandað. Steypustöðin hf.
hefur öll þau steypuefni sem fáan-
leg eru á markaðnum, auk þess sem
hún framleiðir og selur öðrum
steypustöðvum steypuefni.
Steypustöðin hf. er fullkomnasta
steypustöð landsins og eina steypu-
stöðin sem verksmiðjubrærir steyp-
una. Vegna þessara nákvæmu sjálf-
virku tækja, er öruggt að rúmmál,
sigmál og v/c tala séu hárrétt.
T. d. var steypa frá Steypustöð-
inni hf. valin í Kópavogsbrúna þar
eð ströngustu kröfur voru gerðar
til gæða og styrkleika steypunnar.
Verzlið við Steypustöðina hf., það
er yður hagkvæmast.
• Öryggismál
Norðurlandaþjóða
„Gammelnordisk" skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Á Norðurlöndum hugsar al-
menningur mikið um öryggis- og
varnarmál landa sinna. í»ar ger-
ir fólk sér Ijóst, að hver þjóð
verður að hafa öflugar varnir út
af fyrir sig, en það eitt nægir
ekki hjá smáþjóðum, eins og
Norðurlandaþjóðunum, heldur
verða þær að treysta á varnar-
bandalög við vinveittar þjóðir.
Þetta gera Danir, Norðmenn og
íslendingar, Finnum er bannað
af Rússum, en Svíar treysta á
mátt sinn og megin í fyrstu lotu
en stuðning annarra, ef í harð-
bakkann slær.
§ Hvað segir ekki
Hartling?
Mér þóttu athyglisverð um
mæli, sem Poul Hartling, utan-
ríkisráðherra Dana, viðhafði á
fundi Norðurlandaráðs, en hann
fjallaði einkum um viðhorf nor-
rænnar samvinnu til öryggismála
stefnu ríkjanna. Hann benti á, að
Danir legðu mesta áherzlu á ör-
yggismálapólitík, sem gilt gæti
til mjög langs tíma, — enda er
annað skammsýn og hættuleg
stefna, þótt óábyrgir ævintýrapóli
tikusar hyggist stundum veiða á
hana atkvæði hjá yfirsýnarlaus-
um ungæðingum og slagorða-
tyggjandi glamraralýð. Síðan
sagði Hartling:
£ Nok . . . nok.
„Ekkert styður þá skoðun,
að framkvæmd þessara mála í
framtíðinni (norrænnar sam-
vinnu) geti á nokkurn hátt orð-
ið til þess að breyta afstöðu Dan-
merkur í utanríkispólitik eða
nokkurs annars norræns ríkis.
Staða þeirra verður óbeytt.
Nok skal de nordiske lande
være sig selv, men ikke sig selv
nok".
Þetta var viturlega mælt og
alveg réttilega.
0 Og hvað segir ekki
sjálfur Hækkerup?
Stór-kratinn Per Hækker-
up, fyrrverandi utanríkismálaráð
herra Danmerkur, 9krifar í Fyens
Stitstidende í tilefni af Norður-
landaráðsundinum:
0 Norðurlönd mega ekki
einangra sig
„Norðurlandaþjóðirnar geta
aldrei leyst efnahagsleg vanda-
mál sín og tryggt öryggismál sín
í einangrun frá Evrópu eða um-
heiminum yfirleitt.
Norðurlönd geta styrkt stöðu
sína í Evrópu og heiminum með
skynsamlega skipulögðu sam-
starfi (með aðaláherzlu á hag-
Klœðskeri
Klæðskeri óskar eftir afgreiðSiustarfi í fa-taverzlun eða
við sniðningu á saumastofu.
Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 18.
þessa mánaðar merkt: „1. apríl — 2884“.
Fiskverkunarhús
í Akurhúsaiandi í Grindavík er til sölu n úþegar.
Nánari upplýsingar veitir lögfr. vor, Bjöms Ólafs,
sími 16312 og 20500.
SEÐLABANKI ÍSLANDS,
Ríkisábyrgðasjóður.
r 4 VEHZLTJITIIT » £ 3
BARNAFA TNAÐUR
Ódýrar útipeysur.
Stretchbuxur, 2 gerðir.
Úlpur á 1 Vz til 3ja ára.
Húfur, margar gerðir.
nýta hluti), sem reist er á gagn-
kvæmu trausti, hreinskilni og til-
litssemi — og endist jafn lengi
og hagsmunirnir eru sameigin-
legir í höfuðdráttum.
Til allrar hamingju er mark-
miðið með þessum umræðum um
efnahagsleg tengsl Norðurlanda-
þjóðanna ekki einangruð Norður-
lönd, heldur styrkari Norðurlönd
i heimi, þar sem alþjóðlegt sam-
starf eykst stöðugt".
£ Ekki stefna út á annes
og afkima veraldar
Við eigum að hafa vinsam-
legt samstarf við Norðurlanda-
þjóðir að því marki, sem okkur
er hentugt og heppilegt. En við
megum alls ekki fara að einblína
út í þetta horn heimsins. Veröld-
in er stærri, — sem betur fer.
Þótt Svíar segi sjálfir svo fagur-
lega um Skandinavíu, að „Norden
ár várldens játtelem", þá þurfum
við nú ekki að falla í stafi yfir
því. En hvað skyldi ísland þá
vera á landabréfinu? Sem sagt:
Lifi norræn samvinna — að hæfi-
legu marki!
Gamelnordisk".
— Velvakandi þakkar bréfið,
þótt hann skilji ekki almennilega
hræðslu bréfritara við norræna
samvinnu, eða hvað hann er eig-
inlega að fara í síðasta hluta
bréfsins, þar sem hann dregur
ýmist úr eða í.
— En heppinn er Velvakandi
að skiija ekki sænsku.
Q Þjónsdóni
„Kæri Velvakandi!
Við erum héma tvær stúlkur,
sem erum mjög reiðar út af máli
nokkru, sem okkur langar til að
leita upplýsinga um hjá þér.
Fyrir nokkru urðum við fyrir
óþægilegri reynslu á skemmti-
stað hér í borginni, þar sem okk-
ur fannst réttindi viðskiptavinar-
ins heldur betur misvirt.
Þannig var mál með vexti, að
fátt fólk var komið á staðinn þeg-
ar við komum, og hafði það sýni-
lega tryggt sér beztu borðin, eu
það voru þarna eftir nokkur borð
á sæmilegum stað, sem ekki virt-
ust upptekin. Við fengum okkur
sæti í mesta sakleysi við eitt þess
ara borða og ætluðum að biðja
þjóninn um kók á borðið. (Við
tökum það fram, að þetta var
ekki vínveitingastaður).
Kemur þá ekki þjónninn æð-
andi í öllu sínu veldi og skipar
okkur að hafa okkur á brott hið
skjótasta. Við stóðum sem stein-
runnar andartak, en áttuðum
okkur þó von bráðar og spurðum
hvort þetta borð væri frátekið.
Hann svaraði með þjósti miklum,
að það skipti engu máli, hann
réði sjálfur hvar fólkið sæti, og
að því mæltu skipaði hann okkur
að setjast við borð úti í horni,
þar sem sátu fyrir þrír karldrjól-
ar ög voru að staupa sig.
Þar sem okkur leizt ekki alls-
kostar vel á að fá þessa menn
yrir sessunauta, tókum við það
ráð að reyna að fá okkur borð
í hinum enda salarins, þar sem
kona nokkur sá um borðin. Ekki
gekk sú ferðin betur, við vorum
reknar frá einu borðinu yfir á
það næsta, og held ég, að við höf-
um næstum verið búnar að fara
salinn á enda.
Þar sem við vorum búnar að
kaupa okkur gos á eitt af borð-
unum og þannig tryggja okkur
fast sæti fannst okkur fjandi
hart að vera reknar þaðan.
Nú spyrjum við: er þetta hægt,
er svona framkoma leyfileg?
Tveir mjög óánægðir
viðskiptavinir".
— Sennilega leyfist þjóninum að
ráða þessu að einhverju leyti,
þótt laus borð og ómerkt séu I
sjálfu sér löglegt boð til við-
skiptavina um að tylla sér niður.
Setjist þeir niður, hafa þeir sam-
þykkt boðið, og ætti þjóninum þá
ekki að geta rift hinu þegjandi
samkomulagi, nema eitthvað al-
veg sérstakt komi tiL En hér á
íslandi líðst svo margt í svona
málum, eins og ailir vita, því
miður.
Ví '53 Ví '53
Skemmtunin verður « Domus Medica
laugardaginn 15. marz
VI '53 VI '53
Vinna i Englandi
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN getur útvegað vinnu
við margháttuð störí í ENGLANDI yfir sumarmánuð-
ina eða lengri tímabil. Völ er á vinnu í verzlunum,
hótehim í London, á suðurströnd Englands eða hinni
fögru cyju JERSEY undan Frakklandsströnd — einnig
við aðstoðarstörf í sjúkrahúsum og heimilisstörf —
Au Pair.
Tilvalið tækifæri til þjálfunar í ensku.
Lágmarksaldur 18 ár.
ÓDÝR FARGJÖLD Á VEGUM ÚTSÝNAR.
Þcir, sem hafa I hyggju að sækja um slík störf, komi
til viðtals í Ferðaskrifstofunni ÚTSÝN milli kl. 13.30
og 18 næstu daga. Aðeins takmarkaður fjöldi kemst að.
Upplýsingar ekki vcittar í síma.
Ilöfum kaupanda að nýlegri ÍBÚÐA- INGÓLFSSTRÆTI Höfum ennfremur kaupanda að
4ra—5 herb. íbúð innarlega við GEGNT sérhæð í Hlíðahverfi eða Teigun-
Kleppsveg (Sæviðarsund), Voga- SALAN GAMLA BÍÓI um. Útb. kr. 800—900 þús.
hverfi eða Sólheimum. íbúðin má SÍMI 12180. Einbýlishús og sérhæðir óskast.
vera í f jölbýlishúsi. Útb. kr. SÖLUMAÐUR: HEIMASÍMI Miklar útborganir.
700—800 þús. GÍSLI ÓLAFSS. 83974.