Morgunblaðið - 17.04.1969, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1960
Afli Hornafjarðar-
báta yfir 5000 lestir
Höfn, Homafirði, 16. apríl.
FYRRI hluta aprílmánaðar var
afli Hornafjarðarbáta 1597 lest-
ir í 80 sjóferðum, þar af var
landað í öðrum höfnum 51 smá-
lest.
Heildarafli frá áramótum er þá
orðinn 5.140 lestir, en var á
sama tíma. í fyrra röskar 5000
lestir. Aflahæstir eru Gissur
hvíti SF 1 með 837 Íestir í 25
sjóferðum og Jón Eiríksson með
771 lest í 24 róðrum. — Gunnar.
Báðir símastrengirnir
til útlanda óvirkir
BÁÐIR talsímastrengirnir til út-
landa voru óvirkir í gær. Ieecan,
strengurinn til Kanada, hefur ver
ið slitinn um nokkurn tíma. En
Evrópustrengurinn Scotice bilaði
í Skotlandi í gær. Var bi'lunin
þar sem hann liggur milli Gair
Loch og Innvernes, sem er hátt
í fjalllendi og hefur hann senni-
lega verið skorinn af jarðvinnslu
tækjum. Hafði Landssíminn feng
Hafís á
Húnaflóa
HAFÍS hefur legið nokkuð
lengi út af Norðurlandi, en ekki
komið fast að landinu. í gær-
m-orgun hafði Veðuxstofan svo
fregnir af töluverðri íabreiðu ut-
arlega á Húnaflóa og var ísinn
þá búinn að loka Reykjarfirði á
Strönduim. ís hefur verið þrálát-
ur við Horn, en ekki lokað sigl-
ingaleiðinni undanfarna daga. —
Meiri hætta virðist nú á að lok-
ist Strandamegin í Húnaflóa.
Fyrir nokkrum dögum hafði
Veðurs'ofan fréttir af ísröndinni
austar með landinu. Var hún þá
120 sjómílur A af Langanesi og
teygðist í SA. En ekki er spáð
norðanátt, sem betuir fer, því hún
gæti rekið ísinn suður með landi.
ið þær upplýsingar, að viðgérð
færi fram og var búizt við á
hverri stundu að fá samband.
Varðstjórinn sagði að engin
vandræði hefðu verið með síma-
samband, því fengizt hefðu tvær
línur yfir þennian stað, svo Lands
síminn hafði eina línu fyrir Lond
on og aðra fyrir Norðurlönd.
Árððursherferð fyrir saltfisk-
og skreiðarneyzlu á Ítalíu
SAMTÖK fiskinnflytjenda á ítal-
íii — ANIPESCA, hafa beitt sér
fyrir því að hafin verði út-
breiðslu- og auglýsingaherferð
fyrir aukinni neyzlu saltfisks og
skreiðar þar í landi, en á und-
anförnum árum hefur mjög dreg
ið úr neyzlu ftala á þessum af-
urðum. Tveir íslendingar sátu
dagana 17. og 18. marz fund í
Róm með innflytjendunum og
framleiðendum fimm framleiðslu
landa auk íslands, þar sem þessi
mál voru rædd. Þeir eru Stefán
Gunnlaugsson, deildarstjóri í við
skiptamálaráðuneytinu og Val-
garð J. Ólafsson, fulltrúi hjá
Sölusambandi íslenzkra fiskfram
leiðenda.
Morguoblaðið átti í gær sam-
tal við Stefán Gunnliaugsson og
sagði hainn, að meðal ítalskra
fiskframleiðenda ríkti sú skoð-
un að slík áróðurs- og auglýs-
ingaheirferð, vel skipulögð og
skynsamlega rekin með þátttöku
framleiðslulandamna myndi bera
mikinin og góðan árangur í sölu.
Fraimleiðskilönd, er fulltrúa áttu
á áðurn'efnduim fundi voru ís-
land, Noregur, Færeyjar, Þýzka-
land, Frakkliand og Karaada.
Meðal viðkom,andi aðila fram-
leiðsl'ulandanna er almemnur
álhugi á máli þessu og stamda
vonir til að kynningarstarfsemi
þessi geti hafizt áður en l'aragt
um líður. Kostnaður af henirai
verður greiddur af innflytjend-
unum og fraimleiðend'um og skipt
ist hainn til helminga. Ætlunin
er síðan að aiukin n'eyzlia standi
straum af kostnaðirauim og verð-
ur greidd ákveðin uppíhæð á
'hvert kg. af útfliuttum saltfiski
og útfluttri skreið.
í GÆR tóku iðnnemar sér fri
úr skólanum og gengu fylktu
liði niður að Alþingishúsi, til
að afhenda menntamálaráð-
herra undirskriftalista, þar
sem þeir kröfðust bættrar iðn
fræðslu. Síðan hlustuðu þeir,
sem fyrir komust á áheyr-
endanöllum, á umræður um
iðnfræðslulögin. Sjá nánari
frásögn á þingfréttasíðu, blað-
siðu 14.
Keflavíkurbótor
Keflavík, 16. apríl.
NETABÁTAR höfðu mest 11 lest
ir og línubátar höfðu 6—9 lest-
ir, en stærstu netabátarnir voru
ekki komindr að um kl. 10.30 er
þetta er skrifað, en afli mun
vera svipaður hjá þeim.
Floti Ross og Assodated
Fisheries sameinast
Mikili og ffóðujr
aíli á Seivogísbanka
MIKILL og góður afli er á Sel-
vogsbanka, og lítur vel út með
áframhaldandi veiði. Marga und
anfarna daga hafa yfir 30 bátar
komið irun til Þorlákshafnar með
fallegan fisk. Er þar unnið nótt
og dag í fiski, en af mörgum
bátum er fiskinum ekið til
Reykjavíkur í fiskvinnslustöðv-
arnar.
Bátarnir voru að koma inn, er
Mbl. hafði samband við Þorláks
höfn í gærkvöldi, með svipaðan
afla og áður. í fyrrakvöld var
aflinn alls 613 tonn, kvöldið áð-
ur 724 tonn og þar áður 725
lestir.
í honum verða 120 fiskiskip
í LOK júní er búizt við, að und-
irbúningi verði lokið fyrir gam-
einingu togaraflota brezku út-
gerðarfyrirtækjanna Ross Group
og Associated Fisheries. Er gert
ráð fyrir, að þannig verði tij út-
gerðarfélag með eignum, sem
nemi 10—12 millj. punda, en
Asisociated Fisheries elgi meiri
hlutann í því. Úthafsfiskiskipa-
floti þessa fyrirtækis verður ein-
hrver sá istænsti í heimi.
Samruná útgerðarfyrirtækj-
anna mun ná til 120 skipa og í
þessum flota verða 10 verk-
smiðj utogarar. Hann mun veiða
um fkramta hluta alls þess bol-
fiisks, sem landað er í Bretlaradi.
Ákvörðun Ross og AF um að
sameina fiskiiskipaflota sína kem
ur í kjölfar níu m'áriaða samn-
ingaviðræðna milli félaganna.
Það verða einvörðungu fiski-
skipaflotarnir, sem sameiin-
ast. Dreifingarkerfi félaganna
tveggja verða rekin áfram hvort
í sínu lagi og í samkeppni hvort
Tími til að leita auðœfa
á landgrunni íslánds?
— Erlent olíufélag vill bora til reynzlu
ÞJÓÐIR þær, sem búa við Norð-
ur-Atlantshaf, hyggja nú mjög
að landgrunni sínu með tilliti til
hugsanlegra auðæfa, sem þar
kunni að finnast. Fyrir nokkrum
vikum, eða 24. marz sl. sam-
þykkti Alþingl lög um yfirráða
rétt íslendinga yfir landgrunni
sínu og þar með komin forsenda
fyrir slíkum rannsóknum hér.
Jarðfræðingar hafa látið hafa
eftir sér, að ekki sé óhugsandi
að olía finnist hér á landgrunn-
inu, ef borað er, og þá helzt út
af Vestfjörðum. í viðtali við Pét-
ur Thorsteinsson, sendiherra í
Washington, í sjónvarpinu kom
það svofram, að bandarískt olíu-
félagi hefur snúið sér til íslenzku
ríkisstjómarinraar með beiðni um
að fá leyfi til að gera tilrauna-
boranir á íslenzka landgrunrainu.
Mbl. spurðist fyrir um þetta
hjá Gunnari Schram, deildar-
stjóra í utanríkisráðuneytinu,
sem staðfesti að slík beiðni hefði
alveg nýlega borizt frá banda-
rísku olíufyrirtæki, en ekki hefði
verið tekin afstaða til þessa máls
enn. Er þar ekki um að ræða
neitt af þeim olíufélögum, sem
hér starfa.
Frumvarpið til laga um um-
ráðaréttinn yfir landgrunninu
var undirbúið í utanríkisráðuneyt
inu. Er þar gert ráð fyrir að
yfirráð okkar nái svo langt út
sem hægt er að gera tilraunabor
anir, sem nú er út á 300—400
m. dýpi. Er landgrunraið, sem ís
lendingar hafa yfirráðarétt yfir
geysistórt, eða 115 þús. ferkm.
út að 200 m. dýpi. Er það þá
stærra svæði en ísland.
Er ekki óeðlilegt að athyglin
beinist að því að gera rannsókn-
ir á því hvað þar finnst, enda
gera allir það í kringum okkur,
sagði Gunnar. Bandaríska olíu-
fyrirtækið Philips hefur keypt
rétt til tilraunaborana á land-
grunni Noregs, allt norður á 62.
breiddargráðu. f sumar á að
gera rannsóknir á landgrunninu
kringum Spitzbergen. Á land-
grunni Danmerkur hefur nýlega
fundizt gas og lítilsháttar af olíu.
Og Danir eru farnir að hugsa
um slíkar kannanir við Gráénland.
Beglngerð um
störi læknanna
ó Húsavík
REGLUGERÐ hefur nú verið
sett um störf lækna á sjúkrahús-
inu á Húsavík, en eins og sagt
var frá í Mbl. á sínum tíma
komu upp deilur milli læknanna
á Húsavík um heilbrigðisþjón-
ustuna þar á staðnum. Var reynt
að koma á sáttum milli þeirra
með aðstoð stjómar Læknafé-
lags íslands og landlæknis, en
þær báru ekki árangur og fór
stjórn sjúkrahússins þá fram á
að heilbrigðismálaráðuneytið
setti reglugerð um störf lækn-
anna á sjúkrahúsinu. Undirritaði
táðherra reglugerðina 11. apríl sl.,
og að sögn Áskels Einarssoraar
sjúkrahússráðsmanns munu á
næstunni -fara fram viðræður
mi!lli læknanna um hina ýmsu
þætti reglugéi-ðariíinar.
við annað og önnur fyrirtæki,
sem starfa að dreifingu fiskmat-
væla.
Kafbálur
í Hvalfirði
f GÆR kom einn af kafbátum
Atlantshafsbandalagsins inn í
Hvalfjörð til að taka ólíu. í Hval
firði var sem kunnugt er gerð
byrgðastöð frá Atlantshafsbanda
lagirau, ætluð fyrir svartolíu. Ef
skip baradalagsins þurfa svart-
olíu, geta þau komið þarna iran.
Kafbáturinn kom í gærmorg-
un, stanzaði utan við Reykjavík
°g fékk fylgd inn í Hvalfjörð.
Þar var hann að taka olíu í gær
og var áformað að hann færi í
morgun.
Opið hús
— í Himinbjörgum I
félagsheimili
Heimdallar
HEIMDALLARFÉLAGAR
eru hvattir til þess að líta inn. J
Félagsheimilið er opið mánu-1
dags-, þriðjudags-, fimmtu-
dags- og föstudagskvöld og (
opnar kl. 20.30 öll kvöldin.
Félagsheimilisnefnd.'