Morgunblaðið - 04.05.1969, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.05.1969, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1960 Sýning — flug“ — í SÝNING, helguð hálfrar aldar afmaeli flugsims hér á landi, verð ur haldin í flui?Skýli na\ 1 á ReykjaivSkurflugrvelli dagaraa 28. ágúst til 7. september i haust, að Því er siegir í fréttatilkynn- ingn frá Flugmálaiélagi fslands. Undirbúningur að sýningunni er hafinn fyrir nokkru. Stjórn sýningarinnar hefur haldið nokkra fundi, en í henni eiga sæti: formaður Bergur G. Gísla- son, framkvæmdastjóri, Baldvin Jónsson, hrl., Agnar Kofoed Hansen, flugmálastjóri, Alfreð Elíasson, forstjóri, Björn Jóns- son, forseti Flugmálafélagsins. Björn Pálsson, flugmaður og Örn O. Johnson, forstjóri, en Agnar Guðnason, ráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands er til aðstoðar stjórninni við undirbún ingsstörfin. Hugmyndin er að sýna þróun fiugmála hér á landi, frá árinu 1919 og fram á okkar daga. Enn- „50 ára haust fremur er það von þeirra, sem að sýningunni standa, að hægt verði að kynna hér þæcr fram- farir, sem orðið hafa erlendis í geimvísindum og tæknibúnaði, sem notaður er til geimferða. Mikil flugsýning verður einnig haldin á meðan á sýningunni stendur. Á útisvæðinu næst flug skýlinu verða sýndar ýmsar gerðir flugvéla og verður það svæði afgirt. Vitað er, að margir áhuga- og atvinnuljósmyndarar eiga í fór- um sínum myndir frá ýmsum merkisatburðum úr sögu flugs- ins. >að eru vinsamleg ti’lmæli stjórnarinnar, að þeir hafi sam- band við Björn Jónsson hjá Loftleiðum, vilji þeir lána mynd ir. Ennfriemur er það vel þegið, að fá lánuð gömul og ný tæki, sem notuð hafa verið eða ætluð til nota í sambandi við flugið. Margt kemur til greina og ábendingar áhugamanna verða vel þegnar. Árbóh 1969 um S-Þingeyjursýslu er komin út hjú Ferðuléluginu NÝ árbók er komin út hjá Ferða félagi íslands. Fjallar hún um Suður-Þingeyjarsýslu veistan Skjálfandafljóts og Fljótsheiðar. Höfundur er Jóhann Skaftason, sýslumaður, sem áður hefur skrifað í árbók um Barðastrand- arsýslu. Bókina prýða fjöldi mynda úr Suður-Þingeyjansýslu og á forsíðu litmynd af Goða- fossi. í formála gerir höfundur nokk uð grein fyrir hinu þríþætta Aþenu, 3. maí. NTB. RÉTTARHÖLD yfir þeim 34 mönnum, er reyndu að steypa grísku herstjóminni 1968, eiga að hefjast í Saloniki 14. maí n.k. Var skýrt frá þessu í dag og segir í ákærunni, að sakborningar séu úr hópi kommúnista og vinstri sinna og hafi komið á fót ólög- legri hreyfingu í því augnamiði að stevpa rikisstjóminni. Þeir voru handteknir í maí 1968. SAMKOMUR Boðun fagnaðarerindisins I dag, sunnudag, Austurg. 6, Hafnarfirði kl. 10 f. h. Hörgshlíð. Reykjavík kl. 8 e. h. verkefni árbókahöfunda og gef- ur það hugmynd um hvernig verkefnið er tekið. Hann segir, að leitast skuli við að gefa stutt en glöggt yfirlit um landslag hér aðsins og drepa eftir föngum á mótunarsögu þess í stórum drátt um og lýsa hrjóstrum þess gróðri, dýralífi og umferð- arleiðum. Síðan skuli farið í frásögunni sveit úr sveit og bæ frá bæ, lýsa bú- skapar- og lífsskilyrðum og vekja athygli á þvi markverð- asta, sem fyrir augu ber, og drepa jafnframt á söguþætti bundna umhverfi hverju sinni, ef einhverjir eru kunnir og um- talsverðir að dómi sögunnar. Og í þriðja lagi telur hann svo rétt og slcylt að minnast aðeins á fólk ið, sem héraðið elur, þvi þegar allt kemur til alls er það að mannlegum dómi höfuðupp- spretta landkostanna. Segir höf- undur hafa reynt að hafa þetta að leiðarljósi, en þó líklega van- rækt mest síðasta þáttinn, enda viðkvæmasfúr og vandmeðfarn- aistur. Ritstjóri Árbókar er Páll Jóns son, en ritnefnd skipa auk hans Haraldur Sigurðsson og Eyþór Einarseon. Enskunám í Englandi Enn eru möguleikar á að komast á sumarnámskeið Scanbrit í Englandi, ef sótt er um strax. Allar upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík, sími 14029. - VERKFÖLL Framhald af bls. 32 dreifingu, nema til íbúðahúsa, frá og með 8. maí n. k. Og ennfremur: Til áréttingar fyrra bréfi, um a'ð stöðvun sú er þar var ákveðin taki til Eillrar vinnu við dreifingu á olíu, benzíni og líuvörum, nema til íbúðarhúsa og bílabenzíns á tanka benzínafgreiðslustöðva. Verkamannafélagið Dagsbrún hefur boðað stöðvun á allri dreif ingu á olíu, oliuvörum og ben- zíni frá oJíustöðvum á félags- svæðinu nema olíu til íbúðar- húsa og bOabenzíni á tanka benzínafgreiðslustöðva. Tekur gildi frá og með 8. mai n.k. 11. maí 1969. Verkalýðsfélag Akraness hef- ur bo'ðað stöðvun á aUri dreif- ingu á olíu, olíuvörum og benzini frá olíustöðvum á Akra nesi neima oliu til íbúðarhúsa og bílabenzíni á tanka benzínaf- greiðslustöðva. Tekur gildi frá og með 11. maí 1969. 10. mai 1969. VerkaJýðstfélag Hveragerðis, Hveragerði, hefur boðað stöðv- un á allri dreitfingu á olíu, olíu- vörum og benzíni frá olíustöðv um á félagssvæði sinu, neraa olíu til íbúðarhúsa og bíla- benzín á tanka á benáinafgr.- stöðvum. Tekur gildi 15. maí 1969. - í SJÓNUM Framhald af bls. 32 aðeins af hæstu öldutoppun- um. Við vorum ótrúlega heppn- ir. Og þrátt fyrir mótstrauma, hákarla, brennandi sól og brim seinni hlutann bjargaði lítill fiskibátur okkur kl. 22 kvöldið eftir. Vorum við þá svo lanigt leiddir, að það var spurning um minútur. Fiskimennimir fóru með okkur í land eftir að hafa gefið okkur hressingu. Það var dásamleg tilfinning að hafa fast land undir fótum aftur. þó við værum reikulir í spori og ættum erfitt með gang af saltbruna á fótunum. Við fengum húsaskjól um nóttina hjá fátækri bænda- fjölskyldu og daginn eftir feragum við far með áætlunar- bíl til Acapulco, þair sem við vorum lagðir í sjúkrahús. Allir hatfa veirið hjálpsamir. Ég er furðu hress og sárin næstum gróin.“ Segist Gylfi fljúga til New York frá Mexico, þar sem Gripsholm kemur 19. maí. Skinið er væntanlegt til ís- lands 3. júlí i sumar og Gylfi þá væntandega með því. - ÍSRAEL Framhald af hls. 1 skurðar, og þar með afsanri'að þá kenningu að IsraeLsmenn séu ósigrandi. Arabar hafa miklu meira lið og fleiri fallbyssur á bökkum Suez-skurðar, en fsraelsmenn. Óttast er að strax og flughérir þeirra séu orðnir nægilega sterk ir, hyggi þeir á innrás í fsrael. Ræður og hótanir Nassers hafa styrkt þessa trú. Að þvi er virðist eru ísraels- menn ekki í nokkrum vafa um að þeir muni sigra ef til stríðs kærni. Það verður hinsvegar miklu erfiðara og þeir munu biða meira tjón, ef Arabar fá frum- kvæðið, og gera fyrstu árásina. Margt bendir til þess að ísra- elsmenn séu þegar farnir að búa sig undir að hefja stríðið, með leifturárás. Sem dæmi má nefna að í síðustu viku gerðu ísraelskar orrustuþotur árás á radarstöð sem Egyptar stjórna, við þorpið Mazar í Jórdaníu. Egyptar reistu þessa stöð eftir sex daga striðið, til að bæta upp aðvörunarstöðv- ar sem ísraelsmeran eyðilögðu í sex daga stríðinu. Eyðilegging þessarar stöðvar hefur það í för með sér að ísra- elskar vélar geta svotil óséðar farið allra sinraa ferða, og gætu því gert árás fyrirvaralaust. Talið er að eina von Araba til að ná yfirráðum í lofti sé að koma að ísraelsku vélunum á jörðu niðri og litlar líkur eru til að það takist. Arabiskar vélar hafa mjög sjaldan verið sendar gegn ísraelskum vélum þegar þær haifa ráðizt inn fyrir loft- helgina, og ef þær hafa gert það, hafa þær jafnan fengið slæma út reið. - FORSETI Framhald af bls. 1 hafði mikil áhrif á múhameðs- trúarmaranimi Zakir Husain og vakti áhrifa hans á vandamál- um fræðslu og menmtunar. Átti Husain sæti í mörgum alþjóð- legum nefndum á þessu sviði, var m.a. í stjóm UNESCO frá 1956—1958. Harm varð þing- maður í Efri deild indverska þmgsins 1952, lamdstjóri í Bihar 1957 o® síðan varaforseti lands síns 1961 og loks forseti 1966, eins og að framan greinir. Hann var kuranur um gjörvallt Indland sem framúrskairandi ræðumaður og rithöfundur. Dr. V. V. Giri varaforseti tekur nú sjálfkrafa við embætti for- seta Indlands, en forsetakosning- ar verða að fara fram inman sex mánaða sam.kv. stjórnarskrá landsins. - VIETNAM Framliald af bls. 1 hetfur oftsinnis stungið upp á leynilegum samningafundum við fulltrúa kommúnista. Þessu hefur ekki verið svarað, en ýmis- legt þykir benda til að slíkir fumdir séu ekki langt undan, t.d. hafa fulltrúar stjómarinnar í Saigon, átt marga viðræðufundi við banidaríska fulltrúa, undan- farna daga. Þá er þvi einnig haldið fraim að frú Nguyen Thi Binb, varaformaður sendinefnd- ar Viet-Corag, sé stödd einhvers staðar í Suður-Vietnam. Kommúnistar hafa dregið mjög úr árásum sínum á borgir og bæi í Suður-Vietnaim, undan- farna daga, og stöðugur straum- ur þeirra hefur verið til lamda- mæra Laos og Kambódíu. Bar.da- ríkjamenn eru þó ekki trúaðir á að þetta sé vegraa þess að þeir vilji draga úr stríðinu. Einn her- foringjarma sagði: „Þetta undan- haild staíar vafalaust af því að þeir hafa á undanförnum vikum misst 38 þúsund menn, 23 þús- und vopn atf ýmsu tagi og tug- þúsundir eldflauga og vörpu- sprengja. Auik þess höfum við eyðilagt fyriir þeim mikið ai HÆTTA Á NÆSTA LEITI —+ eftir John Saunders og Alden McWilliams Hvemig kemur ykkur Troy saman Rav- en? Nokkur vandamál sem ég ætti að vita um? Ekkert alvarlegt herra Lake. 2. mynd) Borðhaldið hefur nokkrum sinnum verið þögult, og viðraeðurnar þvingaðar. En ég held að megi seg.ia að það nki gagn kvæm virðing. Ég vona að hað haldist svo. 3. mynd) Það kann að fara svo að þú upp- götvir brátt helzta veikleika félaga þins. Hann heldur að hann sé Don Juan. hrísgrjónum og öðrum vistum. Við teljum að þeir séu að draga sveiitir sínar til baka til að hvíla þær, og búa þær umdirfrekari árásir“. - POMPIDOU Framhalð af bls. 1 að hann gaf til kynna, að hann myndi taka upp sveigjanlegri atf- stöðu varðandi Efnahagsbanda- lag Evrópu og hefuir hann á þann hátt styrkt stöðu sína meðal kjós- enda, sem greitt hafa miðflokk- unum atkvæði sitt og eru utan raða gaullistaflokksins. Þar að auíki hefur hann þegar feragið fyrirfieit um stuðning Óháða lýðv el disflokksins. Á meðal vinstri flokkana er ástandið þaranig, að þrír stjóm- málamenn úr þeim hafa til- kynnt framboð sitt. Slitnaði al- gjörlega upp úr allri samkomu- lagsviðleitni milli virastri flokk- anna eftir hina örlagariku at- burði í fyrravor og þann yfir- gnæfandi sigur, sem gaullistar unnu í þingkosnimgunum, er á eftir fóru. Franski frankinn fær nú and- artaks hlé uan helgina, en í gær varð kauphallargengi hans lægra en nokru sinni frá því í frönsku gjaldeyriskreppunni í nóvember í fyrra. Samtímis þessu hafa opinberir talsmenn í Bonn ákveðið neitað sem tilhæfulaus- um öllyim orðrómi um, að gengi marksins verði hækkað. í frönsku gjaldeyriskreppunni var lagt mjög hart að vestur-þýzku stjóminni að hækka gengi marksiras og átti það að draga úr þeirri erfiðu gjaldeyriskreppu, sem þá kom upp. En Vestur- Þjóðverjar neituðu þessari kröfu ákveðið og innleiddu í þess stað skattahækkanir á útflutningi og greiddu fyrir auknum iranflutn- ingi. Átti þetta að miða að því að skapa jafnvægi á alþjóðapen- ingamarkaðiraum. Engu að síður er það vitað, að úttflutninguir Vestur-Þýzkalands hefur orðið meiri í ma.rz t. d., en nokkum tímann var gert ráð fyrir og þrátt fyrir allar yfirlýsingar Þjóðverja um. að markið yrði ekki hækkað, var það skráð hærra en noikkru sinni fyrr í kauphöllinni í París í gærkvöldi. Samt virðist öllu tekið með hægð í seðlafoönkum á Vestur- löndum og þar gerðuir umdirbún- ingu,r að þvi að s' yðja frankann með þeim gjaldeyrisforða, sem þeir hafa yfir að ráða. Ekki hefux verið boðað til neins skyndi- fundar milli fjármálaráðheæranna í „klúbb hirana ríku“, eins og gert var i fyrrahaust, er Frakk- lamd átti í sem mestum erfið- leikum, eftir að fjánmagn hafði streymt þaðan látlauist mánuðum saman til Vestur-Þýzkalands og Sviss. Frakklamd byggir að svo s'öddu á lánatryggimgu þeirri, er nam tveimur milljörðum dollara og veitt var seðlafoörakum 10 öflugustu iðnaðarlandanna. Er sagt. að fjáirmálasérfræðingar í París búist ekki að sinrai við neinni geragisfeillingu frankans. - SPRENGJA Frarrihald af bls. 1 t sprengjuárásinni á Umu- Ovoha eyðilögðust nokkur hús og þar á meðal eyðliagðist sjúkra/húsið. sem á voru máluð stór Rauða kross-merki, næstum algiörlega. Þeir, sem urðu fyrir sprengjuárásinni, voru aðallega sjúkliragar, setn ekki gátu leitað skióls fyrir árásinni. Odumegwu Ojukwu ofursti, lefðtogi Biatfra, hefur borið fram eindregna áskorun til al- mennings í heimiraum um að reyna að fá endi bundinn á borgarastyrjöldina í Nigeriu. I fréttatilkynniragu frá Biafra, sem getfin var út í Geraf á föstu- dagskvöld, lagði Ojukwu áherzlu á, að styrjöldin væri ekki lerag- ur máletfni Afrikumanna einna. Ásfeorun Ojukwus kom fram á fundi, sem hann og yfirstjóm hers Biafra, svo og ættartiötfð- ingjar héldu í Owerri á fiirramtu dagskvöld, en Biafraiher tókst að vinna þessa borg aftur fyrir tveimur vitoum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.