Morgunblaðið - 12.08.1969, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1®6®
MAGNUSAR
«iPH3m21 mmar21190
©ft»r lokun »lmi 40381
1-44-44
Hverfiseötu 113.
Simi eftir lokun 311M.
BÍLALEIGAN FALIIR hf
car rental service ö
22*0-22-
RAUPARÁRSTÍG 31.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14870.
bilaleigan
A K Ji R A VT
ear rental service
8-23-47
sendnrn
HÖRÐUR ÖLAFSSON
hæstar jttarlögmaður
skjalaþýðandi — ensku
Austurstræti 14
simar 10332 og 35673.
Knútur Bruun hdl.
Lögmannsskrifstofa
Grettisgötu 8 il. h.
Sími 24940.
VANDERVELL
Vélalegur
Bedford 4-6 cyl. dísil 57, 64.
Buick V 6 cyl.
Chevrolet 6-8, '54—'68.
Dodge '46—'59, 6 cyl.
Dodge Dart '60—'68.
Fiat flestar gerðir.
Ford Cortina '63—'68.
Ford D-800 '65—'67.
Ford 6—8 cyl. '52—'68.
G.M.C.
Gaz '69.
Hillman Imp. '64—'65.
Moskwitch 407—408.
Opel '55—'66.
Rambler '56—'68.
Renault flestar gerðir.
Rover, bensín, disil.
Skoda 1000 MB og 1200.
Simca '57—'64.
Singer Commer '64—'68.
faunus 12 M, 17 M '63—'68.
Trader 4—6 cyl. '57—'65.
Volga.
Vauxhall 4—6 cyl. '63—'65.
Willys '46—'68.
Þ. Jónsson & C#
Simi 84515 og 84516.
Skaifan 17.
0 Góður ljóðalestur
I.jóöavinur skrifar:
„Kaeri Velvakandi!
Nóg er af nöldrinu í fólkinu,
en sjálfsagt er að láta líka heyra
í sér til þess að þakka það, sem
vel er gert, og hvetja með því
fólk til þess að vanda sig.
Ég var að hlusta áðan (skrif-
að á sunnudagskvöldi) á frú Guð
rúnu Þ. Stephensen lesa ljóð í út
varpinu. Það var fallegur lest-
ur. og vandaður. Guðrún hefur
góða og fagra rödd, sem hún
kann mjög vel með að fara. Lest
urinn var látlaus, tilgerðarlaus,
skýr og ómþýðui. Ekki gladdi
það mig sízt, að hún las' Ijóð sem
ljóð, fylgdi hljóðfalli og stuðla
setningu í áherzlun, en eins og
kunnugt er, er alveg hörmulegt
oft að heyra lærða leikara lesa
ljóð, ef þeir hafa ekki tilfinn-
ingu fyrir kveðskap og bragregl
um.
Þótt hér sé allsterkt að orði
kveðið, tel ég það þó ekki oflof.
Megi hún sem oftast lesa fyrir
útvarpshlustendur
Ljóðavinur."
Q Áhugi Ólsara á brezku
konungsfjölskyldunni
Vestan frá Ólafsvík berst eft-
irfarandi bréf:
„Kæri Velvakandi!
Fyrirgefðu þetta kvabb, en svo
leiðis er, að ég og systir min er-
um ekki á eitt sáttar með það,
hve mörg börn Elísabetar Breta
drottningar og Margrétar prins-
essu eru, og hvers kyns þau eru.
Ég segi, að Beta eigi fjögur.
Þrjá stráka og eina stelpu, og
Magga strák og stelpu. Systir
mín segir aftur á móti, að Beta
eigi þrjé og Magga tvo stráka.
Það mundi gleðja mig mikið, ef
þú vildir dæma í þessu fyrir
okkur.“
Bréfritarinn hefur rétt fyrir
sér. Börn Elízabetar eru fjögur
þ.e. Karl (Charles Philip Arthur
George), Anna (Anne Elizabeth
Alice Louise), Andrés (Andrew
Albert Christian Edward) og Ját
varður (Edward Antony Richard
Louis).
Börn Margrétar eru tvö, Da-
víð (David Albert Charles, titl-
aður Viscount Linley) og Sara
(Sarah Frances Elizabeth, titluð
Lady Sarah Armstrong-Jones).
Svo getur Velvakandi ekki
stillt sig um að vera dálítið ó-
notalegur: Drottningin og prins-
essan eru ekki kallaðar Beta og
Magga. Drottningin heitir Eliza-
bet, en ekki Elísarbet, og hún er
Bretadrottning, en ekki Breda;
drottning. Drottningin á þrjá
drengi og eina telp’
O Biblíufesta þarf ekki
að vera ofstæki
Kópur i Kópavogi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Það hefur aldeilis verið líf og
fjör í dálkunum þínum að und-
anförnu, og sannarlega skortir
ekki fjölbreytnina í umræðuefn-
in, þar sem eru hundamál, spíri-
tismi, kristindómur, og ég veit
ekki hvað. Það er reglulega for-
vitnilegt að lesa bréfin, þegar
mönnum er hæfilega mikið niðri
fyrir, og þeir taka þátt í umræð-
unum af lífi og sál
Ég fyrir mitt leyti hef sérstak-
lega gefið gaum að skrifum fólks
um kristindómsmálin. Og það er
ég viss um, að fleiri fylgjast með
þeim skrifum en okkur grunar,
því að í brjóstum flestra bærist
spurningin um lífið og tilveruna,
um guð og eilifa von.
Ýmsir hafa lagt orð í belg, og
sýnist sitt hverjum, eins og við er
að búast. Hefur borið mest á
tveimur aðilum, sem kalla sig
Ólaf liljurós og Alfameyna. Mér
virðist Ólafur tala fyrir munn
þeirra, sem halda vilja fast við
ritninguna og byggja á þeim
grundvelli, sem kirkjan hefur
gert um aldaraðii, þ.e. á Jesú
Kristi sem drottni okkar og frels
ara. Álfamærin er hins vegar á
öndverðum meiði, og má vænt-
anlega telja hana fulltrúa „frjáls
lyndra" á þessum vettvangi.
Reyndar hef ég alltaf skilið hug-
takið „frjálslýndi" á þann veg,
að í því felist bæði víðsýni og
umburðarlyndi, og ætti Álfamær-
in því að taka skrifum Ólafs
samkvæmt því. Að vísu segir
hún í síðasta bréfi (7. ágúst), að
„vinsamlegt rabb við kunningja
minn Ólaf liljurós hefur ekki ver
ið til annars ætlað en reyna að
auka víðsýni hans ..." En við
lestur greina hennar hefur mér
satt að segja reynzt afar erfitt
að koma auga á þessa vinsemd
og víðsýni. Hins vegar notar hún
stór orð og ljót um Ólaf og aðra
þá, sem vilja vera trúir ritn-
ingunni. Hún ásakur þá um sjálfs
réttlæti, trúarhroka, ofdramb og
stórflónsku, svo að tilfærð séu
nokkur orð úr síðasta bréfi
hennar.
En hvar er þá viðsýnið? Eða
vinsemdin?
Af hverju er það kallað „sjálfs
réttlæti" að tileinka sér það rétt-
læti, sem Guð veitn okkur af náð
sinni í Jesú Kristi, samkvæmt
ritningunni?
O Þarf það að vera
trúarhroki?
Af hverju heitir það „trúar-
hroki" að treysta orði guðs og
leitast við að elska guð og ná-
ungann í orði og verki?
Af hverju er það túlkað sem
„ofdramb" að þiggja náð guðs og
fyrirgefningu óverðskuldað og
reiða sig á hann í lífi og dauða?
Af hverju heitir það „stór-
flónska" að halda fast við ritn-
inguna og boðskap hennar, hvað
sem breytileg tízka segir á
hverjum tíma?
£ Víðsýni og vinsemd
Ég spyr enn: Hvar er víðsýnið
og vinsemdin? Eða bara sann-
girnin? Séu nú skrif Álfameyj-
arinnar lýsing á afstöðu þeirra
„frjálslyndu" gagnvart öðru
fólki, hverjir eru þá fullir af
sjálfsréttlæti, trúarhroka, of-
drambi og stórflónsku?
Það er aðeins til eitt, og ekk-
ert annað, sem er öruggt í til-
verunni og hægt er að byggja á
um tíma og eilífð: Guð, skapari
himins og jarðar. Og kærleikur
hans til okkar birtist fyrst og
fremst í Kristi Jerú og hjálpræð
isverki hans, sem stendur öllum
til boða, sem þiggja vilja, jafnt
„Álfameyjum“ serr. „Liljurósum“
eða „frjálslyndum" sem „þröng-
sýnum“. Mættum við öll þiggja
náð hans í auðmýkt ... og fá
hjálp til að elska náungann. —
Það hæfir að kveðja með
kunnu ritningarorði: „Því að svo
elskaði Guð heiminn, að hann
gaf son sinn eingetinn, til þess
að hver, sem á hann trúir, glat-
ist ekki, heldur hafi eilift líf",
(Jóhs. 3, 16).
Kópur 1 Kópavogl".
0 Athugasemd
frá Stjörnubíó
„Reykjavík 10. ágúst 1969.
t þætti Velvakanda 9. þ.m. spyr
Þorri hvers vegna sleppt hafi ver
ið aftan af myndinni Ég er forvit
in — gul, og óskar svárs strax,
en hann kveðst hafa farið að sjá
myndina sunnudaginn 3. þ.m.
Rétt -er að upplýsa að regla
Stjörnubíós er sú að klippa aldrei
úr þeim myndum sem við tök-
um til sýningar. Við álítum að
þær eigi að fá að njóta sin með
kostum og göllum. eins og fram-
leiðandi hefur gengið frá þeim,
og áhorfendur eigi að dæma um
þær sjálfir. Ög síz' af öllu kæmi
til greina að skerða listaverk
eins og myndir Vilgots Sjömans,
Ég er forvitin — gul, og Ég er
forvitin — blá.
Eftir að bréf þetta birtist, fór
ég að grennslast fyrir um tilefni
þess, og tjáði sýningarstjóri mér
þá að á íyrstu sýningu myndar-
innar umræddan sunnudag, kl. 5,
hafi orðið þau mistök að filmu-
spotti sem slitnað hafði aftan af
síðustu spólunni, var ekki tilbú-
inn í tæka tíð, svc að þegar að
þeim hluta myndarinnar kom,
voru kveikt ljós í sýningarsaln-
um, meðan viðgerð fór fram. En
sýningarstjóra láðist því mið-
ur að tilkynna sýningargestum
að þetta væri hlé vegna við-
gerðar, og því töldu þeir mynd-
inni vera lokið þegar ljósin
komu.
Við hörmum þetta leiðindaat-
vik og biðjum velvirðingar á því
en Þorra og aðra þá sem hafa
orðið fyrir þessu og óska eftir
að sjá þennan filmuspotta, bjóö-
um við velkomna til sýningar á
niðurlagi myndarmnar næstkom-
andi fimmtudag kl 7.15
Með þökk fyrir birtinguna
Virðingarfyllst
Iljalti Lýðsson"
Höfum flutt
lækningastofu okkar að Laugavegi 42, H. hæð. Símar 12218,
21788.
Viðtalstímar óbreyttir unz nýja símaskráin kemur út.
Guðmundur B. Guðmundsson, læknir.
Isak G. Hallgrimsson, læknir.
Hljómsveitin FACON, Bíldudal.
og fari það í...
Myndin af hljómsveitinni FACON hefur
auðsjáanlega misheppnazt, en nýja hljóm-
platan þeirra, sem var að koma út, mis-
héppnaðist ekki. Þetta er vafalaust sér-
kennilegasta plata sumarsins og skemmti-
leg eftir því.
SG-hljómplötur
r
..m mj \ \ Stratford ...a
'* Éjgg , 1 : SAFE COMPANY LTD. V
r.« p E N S K 1 R
í i PENINGASKÁPAR
þjófheldir — eldtraustir
heimsþekkt —
if'V viðurkennd framleiðsla.
L i;' 4
E. TH. MATHIESEN H.F.
SUÐURGÖTU 23 — HAFNARFIRÐl — SÍMI 50152